Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.01.2012, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 12.01.2012, Qupperneq 32
4 • Ein stærsta tónlistarfrétt síðasta árs var samningur hljómsveitar- innar Of Monsters and Men við útgáfurisann Universal. Fljótlega í kjölfarið byrjuðu hjólin að snúast og hljómsveitin sendi frá sér stuttskífuna Into the Woods í desember í gegnum iTunes. Skífan fór fljótlega á lista yfir vinsælustu plötur vefverslunarinnar og situr í dag í efsta sæti Heatseekers lista Billboard, sem einblínir á hljóm- sveitir og tónlistarmenn á uppleið. Magnaður árangur það. Ragnar Þórhallsson, söngvari og annar gítarleikari Of Monsters and Men, er ánægður með árangurinn en ánægðastur með ferðalögin sem eru fram undan. Nýja árið fer nefnilega að miklu leyti í útrás Of Monsters and Men. Endurbætt útgáfa plötunnar My Head is an Animal, sem kom út á Íslandi á síðasta ári og seldist í meira en 5.000 eintökum, kemur út á vegum Universal og í kjölfarið heldur hljómsveitin í tónleika- ferðalag sem hefst á tónlistarhá- tíðinni South by Southwest í Texas í Bandaríkjunum í mars. Þaðan liggur leiðin til fleiri ríkja Bandaríkjanna í sendibíl og eftir það er Evrópa og jafnvel Ástralía á dagskránni. „Að geta ferðast út um allt er algjör snilld,“ segir hann. „Ég hlakka mest til þess. Allt annað gerist eða gerist ekki. Við erum að fá tækifæri til að sjá heiminn og gera það sem okkur finnst gaman.“ Spurður hvort þetta sé líf sem hann hafi látið sig dreyma um segist Ragnar svo ekki vera, enda sé Of Monsters and Men fyrsta hljómsveitin hans. „Og ég er 24 ára,“ segir hann. „Sumir í hljóm- sveitinni hafa verið með þennan draum frá því að þeir voru litlir. Ég leyfi mér að dreyma þetta núna og mig dreymir vel.“ Hlutirnir hafa gerst hratt hjá Of Monsters and Men sem vann Músíktilraunir árið 2010, skömmu eftir að hún var stofnuð. Nú er svo komið að meðlimir hljóm- sveitarinnar hafa tekið sér frí frá námi og störfum til að geta sinnt hljómsveitinni og tekið að fullum krafti þátt í starfinu sem er fram undan. „Þetta er búið að gerast hratt og maður nær ekki að pæla mikið í því. Ég hef stundum orðið hræddur og stressaður, en svo fatta ég hvað þetta er mikil snilld og leyfi mér að rúlla með,“ segir hann. Útgáfusamningur var ekki það eina sem rak á fjöru Of Monsters and Men í fyrra því bandaríski um- boðsmaðurinn Heather Kolker tók hljómsveitina að sér. Hún starfar hjá umboðsskrifstofunni Paradigm Agency í New York. Þar sér hún meðal annars um tónleikabók- anir fyrir hljómsveitir á borð við MGMT og Edward Sharpe & The Magnetic Zeros. Of Monsters and Men er fyrsta hljómsveitin sem hún tekur að sér umboðsmennsku fyrir. Í viðtali við Fréttablaðið í apríl sagði hún umboðsmennsk- una vera nýja upplifun fyrir sig. „Ég hafði lengi leitað að hljóm- sveit, en vildi ekki vera umboðs- maður nema ég myndi finna mjög sérstaka hljómsveit sem ég elska á allan hátt,“ sagði hún. „Ég vildi ekki bara dá tónlistina, heldur líka sjá möguleika á því að hljómsveitin yrði farsæl. Þá vildi ég elska fólkið í hljómsveitinni, en slíkt er ekki auðvelt að finna í þessum bransa.“ Ragnar er mjög ánægður með samstarfið. „Það er mikið pælt í öllu og málin rædd áður en ákvarðanir eru teknar. Hún hjálpar okkur í því. Hún þekkir þetta allt.“ Það er eitthvað traustvekjandi við að hafa konu í þessu. „Já, ég elska að vinna með konum, frekar en körlum. Hún er ekki í einhverjum svörtum jakkafötum, eða eitthvað.“ Of Monsters and Men er nú í hljóðverinu Sýrlandi ásamt upptökustjóranum Jacquire King. Hann er enginn aukvisi í bransanum og stýrði til dæmis upptökum á plötunni Good News for People Who Love Bad News með Modest Mouse og Aha Shake Heartbreak, Only by the Night og Come Around Sundown með Kings of Leon. King segir í samtali við Popp að árangur Of Monsters and Men á vinsældalistum komi sér ekki á óvart. „Þetta er samt æðislegt og sjaldgæft, en þau eiga þetta skilið að mínu mati,“ segir hann. Ragnar segir mjög gaman að fá tækifæri til að vinna með King. „Þetta er öðruvísi vinkill á að taka upp, síðast voru það bara við. Nú erum við komin með annað auga og eyra. Þetta er mjög gott. Við erum að prófa hann í fimm lögum, ekki allri plötunni, sem er gott fyrir okkur til að sjá hvort við fílum þetta. Og þetta er al- gjörlega að virka eins og er. Þetta er lærdómsríkt fyrir svona unga hljómsveit eins og okkur.“ POPPSKÚRINN Horfðu á Of Monsters and Men flytja lög í Popp- skúrnum á Vísi.is. Sumir urðu syfjaðir í myndatökunni. Of Monsters and Men er heitasta hljóm- sveitin á Íslandi í dag. 2011 var annað starfsár hljómsveitarinnar, en þrátt fyrir það landaði hún útgáfusamningi við Universal, umboðsmanni og kórónaði árið með gull- plötu fyrir sölu á fyrstu plötunni, My Head Is an Animal. Nú vinnur hljómsveitin að því að betrumbæta plötuna fyrir útrás sem á ekkert skylt við það sem við Íslendingar tengjum við það orð. Orð: Atli Fannar Myndir: Stefán ALLT ÖÐRUVÍSI ÚTRÁS HEFST VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT INNIHELDUR ENSKI BOLTINN STÆRRI EN ALLT
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.