Fréttablaðið - 12.01.2012, Blaðsíða 48
12. janúar 2012 FIMMTUDAGUR32
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds-
son, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elkó, tonlist.is
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Skýringar:
TÓNLISTINN
Vikuna 5. - 11. janúar 2012
LAGALISTINN
Vikuna 5. - 11. janúar 2012
Sæti Flytjandi Lag
1 Gotye / Kimbra ...............Somebody I Used To Know
2 Of Monsters And Men ................King and Lionheart
3 Mugison ............................................................ Kletturinn
4 Dikta...................................What Are You Waiting For?
5 Amy Winehouse ........................... Our Day Will Come
6 Florence & The Machine ......................... Shake It Out
7 Adele..........................................................Rumour Has It
8 Lana Del Ray .............................................Video Games
9 Jason Derulo ...............................................Fight For You
10 Ed Sheeran ....................................................Lego House
Sæti Flytjandi Plata
1 Mugison ...................................................................Haglél
2 Of Monsters And Men ...........My Head Is An Animal
3 Adele .................................................................................. 21
4 Sigurður Guðm. og Sigríður Thorl ........ Ásamt Sinfó.
5 Kammersveit Reykjavíkur............................Bach svítur
6 Helgi Björnsson ........ Íslenskar dægurperlur í Hörpu
7 Sóley .......................................................................We Sink
8 Sigur Rós ........................................................................ Inni
9 Gus Gus ......................................................Arabian Horse
10 Ýmsir ................................................................Pottþétt 56
Hljómsveitin Underworld fagnar tuttugu ára afmæli á árinu 2012. Af því
tilefni koma út tvær safnplötur með henni nú í janúarmánuði. Annars
vegar einföld plata, A Collection, sem hefur að geyma helstu smellina og
nýleg samstarfsverkefni, m.a. með Brian Eno, High Contrast og Tiesto.
Hins vegar er það svo þrefaldur pakki,
1992-2012 Anthology, en í honum er kafað
dýpra. Á fyrri plötunum tveimur er helstu
lögum sveitarinnar safnað saman, en þriðji
diskurinn inniheldur fágætt efni, áður óút-
gefnar upptökur og b-hliðarlög.
Forsaga Underworld hófst árið 1980
þegar þeir Karl Hyde og Rick Smith hitt-
ust fyrir tilviljun í stúdentaíbúð í Cardiff.
Þeir voru fyrst saman í hljómsveitunum
Screen Gemz og Freur sem voru undir
áhrifum frá reggítónlist og þýsku sveitinni
Kraftwerk. Freur, sem m.a. tók upp efni
undir stjórn Conny Plank og Dennis Bovell,
þróaðist í fyrstu útgáfuna af Underworld
sem gerði tvær plötur á árunum 1988-1989.
Hljómsveitin var hins vegar stofnuð upp á nýtt eftir að þeir Karl og Rick
kynntust Darren Emerson árið 1991. Hin nýja Underworld, með Darren
innanborðs, sendi frá sér sitt fyrsta lag árið 1992 og fyrstu stóru plötuna
dubnobasswithmyheadman í janúar 1994. Þá hafði tónlistin breyst í þá
rokkskotnu teknóblöndu sem Underworld er þekkt fyrir.
Underworld fékk frábæra dóma fyrir dubnobass …, en þegar tvö
laga sveitarinnar voru valin í kvikmyndina Trainspotting náði hún til
fjöldans, ekki síst fyrir lagið Born Slippy sem varð einkennislag heillar
kynslóðar í Bretlandi. Í kjölfarið varð Underworld öflug tónleikasveit.
Darren Emerson hætti árið 2000, en þeir Karl og Rick héldu áfram og
hafa gefið út fínar plötur undanfarin ár, síðast Barking sem kom út 2010.
Árið 2012 gæti orðið stórt ár hjá Underworld. Auk safnplatnanna, sem
ég mæli sérstaklega með, þá munu þeir Karl og Rick hafa umsjón með
tónlistinni á opnunarhátíð Ólympíuleikanna í London í sumar, ásamt
Danny Boyle leikstjóra Trainspotting.
Enn þá líf í Underworld
AFMÆLISÁR Nýjar safnplötur
og Ólympíuverkefni á 20 ára
afmælisári Underworld.
Nýrrar plötu Lönu Del Rey
hefur verið beðið með mik-
illi eftirvæntingu. Flestir
telja að þessi bandaríska
söngkona muni slá rækilega
í gegn á þessu ári.
Enska söngkonan Adele var á allra
vörum á síðasta ári en núna hefur
sviðsljósinu verið beint að Lönu
Del Rey, bandarískri söngkonu sem
vill láta kalla sig glæpakvendis-
útgáfuna af Nancy Sinatra.
Önnur plata hennar, Born To Die,
er hennar fyrsta hjá útgáfufyrir-
tækinu Stranger Records, undir-
fyrirtækis Interscope Records sem
er í eigu Universal Music Group.
Hún kemur út í lok mánaðarins og
telja helstu markaðs- og tónlistar-
sérfræðingar að hún eigi eftir að
seljast eins og heitar lummur á
árinu.
Fyrsta smáskífulagið af plöt-
unni, Video Games, kom út síðasta
sumar og samdi hún það sjálf með
aðstoð lagahöfundarins Justins
Parker. Það náði níunda sæti
breska smáskífulistans og sumir
töldu það eitt af lögum ársins.
Seiðandi og frekar dimm rödd Del
Rey var öðruvísi en annað sem var
í gangi og í nýlegu viðtali sagðist
hún hafa ákveðið að syngja lagið
með dýpri tón til að vekja meiri
athygli hlustenda sinna. Mynd-
bandinu við lagið leikstýrði hún
sjálf og klippti og síðan það birtist
fyrst á Youtube hafa tæpar átján
milljónir manna skoðað það, sem
segir sitthvað um vinsældir söng-
konunnar.
Lana Del Rey, sem heitir réttu
nafni Elizabeth Grant, fædd-
ist í New York-fylki í júní 1986.
Hún ólst upp í smábænum Lake
Placid en átján ára flutti hún til
New York-borgar. Faðir hennar er
milljarðamæringurinn Rob Grant
og það var starfsfólk á vegum hans
sem fann upp listamannsnafnið
Lana Del Rey því það þótti henta
tónlist hennar vel.
Fyrsta plata hennar, Lana
Del Ray, kom út í janúar 2010 og
naut hún aðstoðar föður síns við
markaðs setninguna. Útgáfan vakti
minni athygli en vonir stóðu til en
Del Rey var ekki af baki dottin.
Hún sneri aftur með nýja ímynd,
kynþokkafyllri, klædd í anda sjö-
unda áratugarins og með betri lög
í farteskinu. Þetta virkaði og að
undan förnu hefur andlit hennar
prýtt forsíðu hvers tímaritsins á
fætur öðru, þar á meðal tímaritsins
Q. Breska tónlistartímaritið valdi
hana einnig björtustu von ársins
2012, auk þess sem ein stærsta
fyrir sætuskrifstofa heims, Next,
gerði við hana fyrirsætusamning.
Ljóst er að framtíð Lönu Del Ray
er björt og verður forvitnilegt að
fylgjast með ferli hennar í fram-
tíðinni. freyr@frettabladid.is
Rísandi stjarna í tónlistinni
Á UPPLEIÐ Nýrrar plötu Lönu Del Rey, Born to Die, er beðið með mikilli eftirvænt-
ingu. NORDICPHOTOS/GETTY
Rokkarinn Dave Grohl úr
Foo Fighters hefur líkt tón-
listarlandslaginu í dag við
það sem var uppi árið 1991
þegar fyrrum hljómsveit
hans Nirvana braust fram
á sjónarsviðið með látum.
Hann telur að hljómsveit-
ir sem spila gítarrokk fái
ekki næga athygli í dag. „Mér
finnst ekkert að rokkinu í dag.
Það bara fær ekki næga athygli.
Núna er tónlistarlandslagið
ekki ósvipað og árið 1991 áður
en Nirvana varð vinsæl,“ sagði
Grohl við Billboard.
„Undir lok níunda áratugarins
var mikið af straumlínulöguðu
poppi sem krakkar höfðu engan
áhuga á.
Þeir náðu engum tengslum við
hármetalsveitir sem sungu um
súludansara í limósínum akandi
eftir Sunset Boulevard,“ sagði
hann.
Líkir 2012 við árið 1991
ÓSÁTTUR Grohl telur
að gítarrokkið fái
ekki nægilega
athygli.
og á smile@smile.is
> PLATA VIKUNNAR
GP! - Elabórat
★★★★
„Guðmundur Pétursson gítarleikari fer
um víðan völl á frábærri sólóplötu.“
- tj
> Í SPILARANUM
Intro Beats - Half Time
Emilie Simon - Franky Knight
The Maccabees - Given to the Wild
Ani DiFranco - Which Side Are You On?
Of Montreal - Paralytic Stalks