Fréttablaðið - 12.01.2012, Page 54
12. janúar 2012 FIMMTUDAGUR38
folk@frettabladid.is
LEIKKONAN Naomi Watts mætti
í fallegum kjól og einfaldri kápu
sem líklega er frá Stellu McCartney
sjálfri.
SAMFESTINGUR Fyrirsætan Elettra
Rossellini Wiedemann mætti í bláum
blúndusamfestingi.
LÉT SIG EKKI VANTA Ritstjóri Vogue,
Anna Winour, fagnaði með Stellu í
brúnni kápu með trefil og hanska í stíl.
TÓNLISTARFÓLKIÐ Upptökustjórinn LA
Reid sló í gegn í bandarísku X Factor
þáttunum í haust en hér er hann ásamt
konu sinni Perri A. Reid.
SÝNISHORN Fyrirsætur sýna hér svokallaða „pre fall“ fatalínu Stellu McCartney en sú
þykir gefa ákveðnar vísbendingar um hvernig haustlínan verði frá hönnuðinum en
sú lína verður væntanlega frumsýnd á tískuvikunum í febrúar og mars. Einföld snið,
glansandi efni og mikil munstur einkenndu þessa fatalínu. NORDICPHOTOS/GETTY
Fatahönnuðurinn Stella McCartney er áhrifamikil innan
tískuheimsins og fatnaður hennar í uppáhaldi hjá mörgum.
Það kom því engum á óvart að stjörnurnar flykktust á
búðar opnun hjá dömunni sem opnaði sínu fyrstu búð í
Sohohverfinu í New York í vikunni. Meðal þeirra sem
mættu voru Anna Wintour, ritstjóri Vogue og upptöku-
stjórinn og dómari X Factor, LA Reid.
MARGMENNI Á OPNUN STELLU MCCARTNEY
HÖNNUÐURINN Stella
McCartney er einn af
vinsælustu hönnuðum
dagsins í dag og á sér
marga aðdáendur í hópi
fræga fólksins.
ÁRS er gamanleikkonan Kirstie Alley en undan-
farin ár hefur hún verið frægari fyrir rokkandi
þyngd en hæfileika sína í leiklistinni.
„Ég vissi ekki að þeir væru til,“
segir Gijs van Veldhuizen í holl-
ensku hljómsveitinni Maus.
Hann hefur ákveðið að breyta
nafni hljómsveitarinnar, líkast til í
Mauz, eftir að Biggi í Maus kvart-
aði yfir nafni þeirra, enda hefur
hin íslenska Maus einkaréttinn á
nafninu í Evrópu.
„Ég gæti hafa séð þá á Google
en líklega leiddi ég þá hjá mér
vegna þess að þar stóð að þeir
hefðu ekki starfað í langan tíma,“
segir Gijs, sem er ekkert að æsa
sig yfir nafnabreytingunni. „Þar
sem Maus er nýtt verkefni hjá mér
þá verður ekkert svo mikið mál að
breyta nafninu. Hin hljómsveitin
mín, Audiotransparent, hefur
verið starfandi miklu, miklu
lengur. Ég hef starfað í tónlistar-
bransanum í um fimmtán ár og ég
veit hvers virði vörumerki getur
verið. Í þessu tilfelli hefur hin
íslenska Maus lagt mikið á sig til
að búa til gott vörumerki.“
Gijs í Maus heldur áfram: „Biggi
hafði samband við mig og lýsti yfir
áhyggjum sínum af mögulegum
misskilningi vegna nafnsins. Við
áttum vinsamleg tölvusamskipti
og það er líka gaman að kynnast
nýju fólki í tónlistarbransanum.“
Eins og Fréttablaðið hefur
greint frá munu Gijs og félagar
spila undir nafninu Maus á hátíð-
inni Eurosonic í kvöld. Það verða
vafalítið síðustu tónleikar þeirra
undir því nafni. Gijs hefur einnig
lýst yfir áhuga á að hita upp fyrir
Maus ef íslenska sveitin kemur
saman aftur og ítrekaði hann þann
áhuga í viðtali við blaðamann.
„Biggi var nokkuð hrifinn af hug-
myndinni, þannig að hver veit?
Kannski munu vinaleg samskipti
okkar verða til þess að við spilum
í fyrsta sinn á Íslandi.“ - fb
Þrautreyndur Gijs
aldrei heyrt um Maus
ENGAR ÁHYGGJUR Gijs van Veldhuizen
í Maus hefur ekki miklar áhyggjur af
nafnabreytingunni.
61
JÓGAKENNARANÁM
Jóga stúdíó kynnir 200 stunda jógakennaranám byggt á
umgjörð Yoga Alliance.
Þátttakendur læra jógaæfingar, öndun, slökun, siðfræði,
raddbeitingu og kennslufræði auk fá þeir grunn í jógaheim-
speki og anatómíu.
Kennarar eru: Guðjón Bergmann, Ágústa Kolbrún
Jónsdóttir og Drífa Atladóttir, auk Eiríks Arnarsonar
sjúkraþjálfara.
Námið hefst 20 jánúar 2012 og líkur seinnipart árs.
Skráning og frekari upplýsingar á heimasíðu Jóga stúdíó
www.jogstudio.is eða í síma 772-1025 Ágústa og 695-8464 Drífa