Fréttablaðið - 10.02.2012, Side 2
10. febrúar 2012 FÖSTUDAGUR2
LÖGREGLUMÁL „Ég er bara sár yfir
að tapa þessu vegna þess að þetta
er hluti af mínum íþróttaferli,“
segir Geirmundur Vilhjálmsson,
fyrrverandi fangelsisstjóri, sem
kært hefur Pál Winkel fangelsis-
stjóra vegna lyftingalóða sem seld
voru frá Kvíabryggju.
Geirmundi var vikið úr starfi
fangelsisstjóra á Kvíabryggju
fyrir um einu og hálfu ári vegna
gruns um brot í opinberu starfi.
Hann var í nóvember síðastliðn-
um ákærður fyrir fjárdrátt í starfi
og vísað til 39 mismunandi atriða.
Þess er krafist að hann endur-
greiði ríkinu tæpar tvær milljónir
króna.
Að sögn Geirmundar óskaði
hann eftir því að fá líkamsrækt-
artækin sem hann eigi – og reynd-
ar fjölmarga aðra muni sína sem
enn séu á Kvíabryggju – en fékk
afsvar. „Páll Winkel hefur sagt að
ég eigi að framvísa nótu fyrir öllu
sem ég eigi á Kvíabryggju. Pabbi
gaf mér þessi lóð þegar ég byrj-
aði að æfa tólf ára gamall,“ segir
hann.
Geirmundur kveðst hafa upp-
götvað nýlega að hluti tækjanna
sem hann hafi átt í fang-
elsinu hafi verið seldur
til líkamsræktarstöðv-
ar í Stykkishólmi og á
sveitabæ í Helgafells-
sveit. Hann hafi sjálf-
ur farið á staðinn
og gengið úr
skugga um að
það hafi verið
hans búnað-
ur sem seld-
ur var. Um
hafi verið
að ræða
lóð af Brooklyn-gerð
sem ekki hafi verið
framleidd í
þrjátíu ár.
„ É g e r
ekki að fal-
ast eftir að
fá þetta til
baka frá
þeim sem
keyptu þetta í góðri trú,“ tekur
Geirmundur fram. Hann hafi
spurst fyrir um málið hjá núver-
andi forstöðumanni á Kvíabryggju
og fengið þau svör að tólin hafi
verið seld að beiðni Páls Winkel.
„Ljóst er að framangreind hátt-
semi hlýtur að teljast brot í opin-
beru starfi auk þess sem um þjófn-
aðarbrot er að ræða,“ segir í kæru
sem Geirmundur lagði fram á
hendur Páli nú í vikunni. Hann
krefst þess að málið verði rann-
sakað og Páli gerð refsing, komi
í ljós að hann hafi mælt fyrir um
sölu lóðanna. Þá gerir hann einnig
kröfu um 400 þúsund króna bætur.
„Þetta er þvæla,“ segir Páll
Winkel. „Þegar ákvörðun var tekin
um að banna laus lóð í fangelsum
landsins gaf ég fyrirmæli um að
selja lóð í eigu fangelsanna. Það
var gert.“ gar@frettabladid.is
SPURNING DAGSINS
Gráða & feta ostateningar henta
vel í kartöflusalatið, á pítsuna,
í sósuna, salatið, ofnréttinn og
á smáréttabakkann.
ms.is
Gráða & feta
ostateningar í olíu
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Fangelsisstjóri kærir
stuld á lyftingatólum
Geirmundur Vilhjálmsson, sem vikið var úr starfi fangelsisstjóra á Kvíabryggju
og ákærður fyrir auðgunarbrot í starfi, hefur kært Pál Winkel fangelsismálastjóra
fyrir þjófnað á lyftingatólum sem Geirmundur kveðst hafa átt á Kvíabryggju.
LYFTINGASALUR Á KVÍABRYGGJU Fyrrverandi fangelsisstjóri segist hafa átt lyftinga-
tæki sem fangelsismálastjóri hafi að honum forspurðum selt til líkamsræktarstövar á
Stykkishólmi og á bæ einn í Helgafellssveit.
Finnur, eru þetta ekki bara
einhver skyndikynni?
„Nei, alls ekki. Þetta er ást við fyrstu
sýn.“
Finnur Sveinsson er sérfræðingur hjá
Landsbanka Íslands sem er í hópi stór-
fyrirtækja sem vilja innleiða svokallað
skyndibílakerfi fyrir starfsfólk sitt.
TÆKNI Ný tegund vírusa er nú
að ryðja sér rúms og farin að
berast með tölvupósti. Ekki þarf
lengur að opna viðhengi eða
smella á tengla í tölvupóstinum
til að vírusinn hlaðist niður í
tölvuna.
Fjallað er um þessa nýju vír-
usa í nýjasta tölublaði Vírsins,
fréttabréfs upplýsingatækni-
sviðs Deloitte. Þar kemur fram
að þegar smitaður tölvupóstur
sé opnaður fái notandinn skila-
boð um að eitthvað sé að hlaða
einhverju niður í tölvuna, og þar
með laumi óværan sér inn.
Mikilvægt er að uppfæra
vírusvörn í tölvum og mögulega
stilla póstforrit þannig að þau
sýni aðeins texta tölvupósts. - bj
Ný tegund vírusa í tölvupósti:
Smita tölvur
án viðhengis
STJÓRNSÝSLA Ofurtollar á tæki
sem ætluð eru til hljóðritunar
mismuna blindum sem hafa ekki
efni á tækjum
sem sérhönnuð
eru til að spila
ákveðna teg-
und hljóðbóka.
Þetta segir
Arnþór Helga-
son, fyrrver-
andi formaður
Öryrkjabanda-
lags Íslands.
Í bréfi sem
Arnþór hefur
sent fjármála-
ráðherra og formanni efnahags-
og viðskiptanefndar segir hann
það klára mismunun að slík tæki
beri 7,5 prósenta toll, 25 prósenta
vörugjöld og 2,5 prósenta stef-
gjald, þegar myndavélar beri
engin slík gjöld.
Arnþór skorar í bréfinu á fjár-
málaráðherra að leiðrétta þessa
mismunun hið snarasta. - bj
Segir tolla mismuna blindum:
Tæki til hljóð-
ritunar of dýr
ARNÞÓR
HELGASON
Pabbi gaf mér þessi
lóð þegar ég byrjaði
að æfa tólf ára gamall.
GEIRMUNDUR
VILHJÁLMSSON
FYRRVERANDI FANGELS-
ISSTJÓRI Á KVÍABRYGGJU.
GEIRMUNDUR
VILHJÁLMSSON
PÁLL WINKEL
KÓPAVOGUR Nýr meirihluti hefur verið mynd-
aður í bæjarstjórn Kópavogs og verður
Ármann Kr. Ólafsson, oddviti sjálfstæðis-
manna, næsti bæjarstjóri. Komist hefur verið
að samkomulagi við Guðrúnu Pálsdóttur,
fráfarandi bæjarstjóra, að hún muni taka
við starfi sviðsstjóra hjá bænum á ný eftir
stjórnarskiptin, sem verða á bæjarstjórnar-
fundi í næstu viku.
Samkomulag listanna felur í sér að Rann-
veig Ásgeirsdóttir, Y-lista, verður formaður
bæjarráðs og Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi
Framsóknarflokks, varaformaður. Þá verður
Margrét Björnsdóttir, úr Sjálfstæðisflokki,
forseti bæjarstjórnar.
Ármann segir í samtali við Fréttablaðið að
viðræður listanna hafi hafist á föstudag og
þær hafi gengið vel. Listarnir hafi þurft að
gera ýmsar málamiðlanir, en sjálfstæðismenn
leggi áherslu á að hefja skattalækkunarferli í
bænum.
„Við teljum líka tímabært að fara að úthluta
byggingalóðum, þar sem markaðurinn er
greinilega að fara að taka við sér, og svo vilj-
um við byrja að greiða niður skuldir bæjar-
ins.“
Rúmar þrjár vikur eru síðan slitnaði upp
úr meirihlutasamstarfi Samfylkingar, Vinstri
grænna, Næstbesta flokksins og Lista Kópa-
vogsbúa. - þj
Nýr meirihluti þriggja framboða tekur til starfa í Kópavogi eftir margra vikna stjórnarkreppu:
Ármann Kr. verður næsti bæjarstjóri
DÓMSMÁL Icelandair þarf að
greiða 80 milljóna króna stjórn-
valdssekt vegna misnotkunar á
markaðsráðandi stöðu samkvæmt
dómi Hæstaréttar. Dómurinn
sneri niðurstöðu héraðsdóms,
sem hafði sýknað flugfélagið.
Málið snýst um brot félags-
ins frá árinu 2007, þegar fargjöld
á flugleiðunum frá Keflavík til
Kaupmannahafnar og London
voru lækkuð til að bregðast við
samkeppni á þeim leiðum.
Samkeppniseftirlitið og áfrýj-
unarnefnd samkeppnismála vildu
sekta Icelandair um 130 millj-
ónir. Hæstiréttur staðfesti brotið,
en lækkaði sektina um 50 millj-
ónir króna. - bj
Hæstiréttur sneri niðurstöðu:
Sekta Icelandair
um 80 milljónir
MISNOTKUN Icelandair misnotaði
markaðsráðandi stöðu sína með því að
lækka verð á fargjöldum á þeim leiðum
sem samkeppni ríkti. FRÉTTABLAÐI/PJETUR
UMFERÐ Mokað hefur verið burt
snjóhraukum sem talið var að hætta
stafaði af í Reykjavík. Hraukarnir
hafa hlaðist upp í snjómokstri borg-
arinnar síðustu vikur.
„Við tókum nokkra en erum
hættir,“ segir Guðni J. Hannesson,
yfirverkstjóri hjá framkvæmda-
og eignasviði Reykjavíkurborgar.
„Nú þarf bara að bíða eftir að þetta
hláni.“
Guðni segir að fjarlægðir hafi
verið hraukar sem talið var að
gætu skapað hættu, svo sem þar
sem skyggði á umferð. Hann segir
nokkuð um að kvartað sé undan
snjóhraukunum sem sums staðar
taki pláss á bílastæðum og gang-
stígum. Hins vegar sé það ekki svo
nú að börnum geti stafað hætta af
því að leika sér í hraukunum. „Það
er orðin svo hörð skel á þessu að þau
geta ekki grafið sig inn í þá.“ - óká
Hættulegir snjóhraukar hafa verið fjarlægðir af götum höfuðborgarinnar:
Nú þarf að bíða eftir hlákunni
SNJÓHRAUKUR Snjó sem rutt hefur verið af göngum og stígum hefur sums staðar
verið hraukað upp og tekur nokkurt pláss. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Í MEIRIHLUTA Ármann Kr. Ólafsson og Rannveig
Ásgeirsdóttir tilkynntu myndun nýs meirihluta í bæjar-
stjórn Kópavogs í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
UPPLÝSINGATÆKNI Breyti Arion
banki ekki verklagi sínu við
skráningu kennitalna við gjald-
eyrisviðskipti hyggst Persónu-
vernd beita bankann dagsektum.
Samkvæmt nýju áliti Persónu-
verndar á bankinn að bregðast
við ekki síðar en í dag. Álitið er
ítrekun á fyrri úrskurði frá 22.
júní í fyrra, en þar var talið að
bankann skorti heimild til að skrá
kennitölu viðskiptavinar við sölu
á 60 evrum. Bankanum var sagt
að stöðva slíka vinnslu, en við því
var ekki orðið. - óká
Kennitöluskráning óheimil:
Hóta Arion
banka sektum