Fréttablaðið - 10.02.2012, Síða 4
10. febrúar 2012 FÖSTUDAGUR4
GENGIÐ 09.02.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
220,0098
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
121,8 122,38
192,81 193,75
161,58 162,48
21,737 21,865
21,18 21,304
18,324 18,432
1,5778 1,587
189,16 190,28
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-
5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Mest seldu vítamín í Bretlandi og hafa hlotið hin virtu verðlaun „
The Queen´s award for enterprise“
THE QUEEN'S AWARDS
FOR ENTERPRISE:
SUSTAINABLE DEVELOPMENT
2004
við hlustum!
20% afsláttur
af öllum Vitabiotics vítamínum
í febrúar
KÖNNUN Samstaða, nýtt framboð
undir forystu Lilju Mósesdóttur,
fengi ríflega fimmtung atkvæða
og fjórtán þingmenn yrði gengið
til kosninga nú, samkvæmt niður-
stöðum skoðanakönnunar Frétta-
blaðsins og Stöðvar 2. Ný fram-
boð fá samtals ríflega 30 prósent
fylgi.
Taka verður niðurstöðum könn-
unarinnar með fyrirvara þar
sem enn eru mjög margir sem
ekki gefa upp afstöðu. Þó gáfu
um 52,9 prósent þeirra sem þátt
tóku í könnuninni upp afstöðu
til einhvers stjórnmálaflokks.
Spurt var sérstaklega um fjögur
ný framboð.
Almennt hefur lægra hlutfall
þeirra sem taka afstöðu þegar
spurt er um fylgi flokka í skoð-
anakönnunum verið tengt óþoli
almennings á þeim stjórnmála-
flokkum sem í boði eru. Í könn-
unum sem gerðar voru fyrir hrun
var algengt hlutfall í kringum 65
prósent.
Niðurstöður könnunarinnar,
sem gerð var á miðvikudags-
og fimmtudagskvöld, gefa vís-
bendingu um stöðu flokkanna
þrátt fyrir að margir taki ekki
afstöðu til flokkanna. Hafa verð-
ur í huga að nýju framboðin eiga
eftir að móta afstöðu til málefna
sem skipta kjósendur máli, fram-
bjóðendur þeirra eru ekki komnir
fram og framboðin hafa lítið sem
ekkert kynnt sig.
Sé miðað við þá sem tóku
afstöðu til einhverra flokka nýtur
Sjálfstæðisflokkurinn enn mests
stuðnings. Um 35 prósent kjós-
enda segjast myndu kjósa flokk-
inn nú, sem myndi færa flokknum
24 þingsæti. Flokkurinn er með
sextán þingmenn í dag.
Samstaða mælist nú með næst
mest fylgi, og segjast 21,3 prósent
myndu kjósa flokkinn í kosning-
um, og fengi hann miðað við það
fjórtán þingmenn.
Önnur ný framboð fá ekki jafn
mikinn stuðning. Björt framtíð,
undir forystu Guðmunds Stein-
grímssonar, mælist með 6,1 pró-
sents stuðning, sem myndi skila
fjórum á þing. Hægri-grænir,
flokkur Guðmundar Franklíns
Jónssonar, fengju samkvæmt
henni 0,9 prósent atkvæða. Þá
fengi Lýðfrelsisflokkurinn undir
forystu Guðbjörns Guðbjörnsson-
ar 1,2 prósent atkvæða. Hvorugur
næði manni á þing.
Um 12,3 prósent þeirra sem
afstöðu taka segjast myndu kjósa
Samfylkinguna ef gengið yrði til
kosninga nú, og fengi flokkurinn
átta þingmenn miðað við þá nið-
urstöðu. Samfylkingin er í dag
með 20 þingmenn.
Alls sögðust átta prósent
myndu kjósa Vinstri græn í skoð-
anakönnuninni, sem myndi skila
fimm þingmönnum í kosningum,
en tólf eru í þingflokki Vinstri
grænna í dag.
Framsóknarflokkurinn fengi
12,5 prósent atkvæða og átta
þingmenn yrðu niðurstöður
kosninga í samræmi við könn-
un Fréttablaðsins og Stöðvar 2.
Flokkurinn er í dag með níu þing-
menn.
Hreyfingin nýtur stuðnings 1,7
prósenta samkvæmt könnuninni.
Það myndi ekki duga til að koma
fulltrúum flokksins á þing, en
þingmenn Hreyfingarinnar eru í
dag þrír talsins. Þess ber að geta
að þingmenn flokksins vinna nú
að stofnun nýs stjórnmálaafls
í samvinnu við Borgarahreyf-
inguna, Frjálslynda flokkinn og
ýmis grasrótarsamtök. Stofn-
fundur framboðsins er áformað-
ur næstkomandi sunnudag.
brjann@frettabladid.is
Nýtt framboð Lilju Mósesdóttur
með ríflega fimmtungs fylgi
Kjósendur virðast bíða eftir nýjum framboðum samkvæmt niðurstöðu skoðanakönnunar Fréttablaðsins og
Stöðvar 2. Ný framboð mælast með nærri þriðjung atkvæða. Hátt hlutfall tekur ekki afstöðu til flokka.
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
13°
-4°
-7°
-3°
-5°
-6°
-2°
-2°
19°
1°
11°
8°
25°
-8°
-1°
16°
-7°
Á MORGUN
5-10 m/s.
SUNNUDAGUR
8-13 m/s.
-1
2
1
1
2
2
3
5 3
2
-2
8
12
10
9
7
8
6
8
3
10
10
0
-2
1
2
0
4
55
6
6
HELGARVEÐRIÐ
Engar miklar breyt-
ingar til morguns
en dregur úr éljum
um landið vestan-
vert og kólnar um
stund. Seint annað
kvöld gengur í stífa
sunnanátt með úr-
komu aðra nótt en
á sunnudag verður
komin suðvestan-
átt og nokkuð milt
í veðri.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
EFNAHAGSMÁL Einn lýtalæknir er nú
formlega til rannsóknar hjá skatt-
rannsóknarstjóra ríkisins. Sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins er
hér um að ræða Jens Kjartansson.
Gunnar Thorberg, staðgengill
skattrannsóknarstjóra, vildi þó ekki
staðfesta nafn læknisins, en segir
að einn hafi staðið upp úr í skoðun
embættisins á skattamálum lýta-
lækna með einkarekstur.
„Við erum búin að vera að skoða
nokkra lækna. Ég get ekki neitað
því að við erum nú með einn í rann-
sókn,“ segir Gunnar. Ekki sé þó
hægt að fullyrða að um skattsvik
sé að ræða þar sem ekki liggi allar
upplýsingar fyrir. Gunnar útilokar
ekki að skattamál fleiri lækna verði
skoðuð í kjölfarið.
Eftir að ábendingar bárust frá
velferðarráðuneytinu þess efnis
að lýtalæknar með einkarekstur
væru ekki að gefa viðskipti sín upp
til skatts, hóf embættið skoðun til
að ákvarða hvort hefja skuli form-
lega rannsókn.
Gunnar segir rannsóknir á lækn-
um óalgengar hjá embættinu. Þetta
sé fyrsti lýtalæknirinn sem rann-
sakaður sé formlega.
„Það er ekki daglegt brauð hjá
skattrannsóknarstjóra að eltast
við lækna. Langt frá því,“ segir
hann. „Maður hafði alltaf talið að
þeir væru heiðarlegri kanturinn af
fólki. Það er ekkert sérlega gaman
að vita af því að þeir séu ekki með
sitt á hreinu.“
Skattrannsóknarstjóri ríkisins hefur formlega rannsókn á fjármálum lýtalæknis:
Skatturinn skoðar fjármál Jens
VÍSINDI Ameríka, Asía og Afríka
munu í framtíðinni renna saman
í eitt meginland, og aðrir land-
massar fylgja í kjölfarið. Þegar
þetta gerist má búast við að Ísland
kremjist á milli Grænlands og
Spánar.
Þetta mun þó ekki gerast í nán-
ustu framtíð, því 50 til 200 milljón-
ir ára eru í þennan umfangsmikla
samruna, að því er fram kemur í
grein í vísindaritinu Nature, sem
vitnað er til á vef BBC.
Allur landmassi á jörðinni var
samfastur fyrir um 300 milljónum
ára, en hefur síðan rekið í sundur.
Vísindamenn telja að sagan muni
endurtaka sig. - bj
Landmassinn rennur saman:
Ísland kramið
milli heimsálfa
Aðferðafræðin
Í könnun Fréttablaðsins og Stöðvar
2 var hringt í 800 manns dagana
8. og 9. febrúar. Þátttakendur voru
valdir með slembiúrtaki úr þjóð-
skrá. Svarendur skiptust jafnt eftir
kyni, og hlutfallslega eftir búsetu
og aldri.
Spurt var: Hvaða lista myndir þú
kjósa ef gengið yrði til kosninga í
dag? Svarmöguleikar voru lesnir
upp í tilviljanakenndri röð, bæði
flokkar sem sæti eiga á Alþingi og
ný framboð sem hafa verið stofnuð.
Ef ekki fékkst svar var spurt:
Hvaða flokk er líklegast að þú
myndir kjósa? Ef ekki fékkst svar
var að lokum spurt: Er líklegra að
þú myndir kjósa Sjálfstæðisflokkinn
eða einhvern annan flokk? Þráspurt
var með þessum hætti til að reyna
að fá fólk til að taka afstöðu. Alls
tóku 52,9 prósent afstöðu.
Það er ekki daglegt
brauð hjá skattrann-
sóknarstjóra að eltast við
lækna. Langt frá því
GUNNAR THORBERG
STAÐGENGILL SKATTRANNSÓKNARSTJÓRA
DÓMSMÁL Hæstiréttur staðfesti
í gær gæsluvarðhald yfir karl-
manni sem er ákærður fyrir
kynferðisafbrot gegn 11 ára
dóttur sinni. Héraðsdómur Vest-
urlands úrskurðaði manninn
nýlega í varðhald til 2. mars.
Í úrskurði Hæstaréttur
kemur fram að tveir dómarar
töldu varðhaldið eiga rétt á sér.
Jón Steinar Gunnlaugsson skil-
aði sératkvæði þar sem hann
taldi ekki sýnt fram á að sterkur
grunur léki á því að hinn ákærði
hafi framið brotin. - þj
Barnaníðsmál í Hæstarétti:
Ákærði áfram í
gæsluvarðhaldi
21,3%
Samstaða
Heimild: Könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2
50
40
30
20
10
0
FYLGI STJÓRNMÁLAFLOKKANNA
25
.4
.2
00
9
28
.7
.2
00
9
15
.1
0.
20
09
7.1
.2
01
0
18
.3
.2
01
0
23
.9
.2
01
0
19
.1
.2
01
1
24
.2
.2
01
1
5.
-6
.4
.2
01
1
8.
9.
20
11
7.
o
g
8.
12
.2
01
1
8.
o
g
9.
2.
20
12
Ko
sn
in
ga
r
6,1%
12,3%
12,5%
35,0%
8,0%
VG
0,9%
Hægri grænir
1,2%
Lýðfrelsis-
flokkurinn
Björt framtíð
1,7%
Hreyfingin
%
EKKI BRÁÐUR HÁSKI Rannsóknir benda
til þess að í fyllingu tímans muni Ísland
kremjast milli Grænlands og Spánar.
Kveikt í póstkössum
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var
kallað að fjölbýlsishúsi við Vallakór
í Kópavogi á áttunda tímanum í
gærkvöldi þar sem kveikt hafði verið
í þremur póstkössum í anddyri húss-
ins. Greiðlega gekk að slökkva eldinn
og var anddyrið reykræst í kjölfraið.
Ekkert skemmdist í brunanum nema
póstkassarnir sjálfir.
SLÖKKVILIÐ