Fréttablaðið - 10.02.2012, Qupperneq 20
Jean-Jacques Rousseau – þriggja alda minning er yfirskrift málþings sem
Félag um átjándu aldar fræði heldur um þennan fransk-svissneska heimspek-
ing í Þjóðarbókhlöðunni á morgun. Málþingið fer fram í fyrirlestrarsal á annarri
hæð og hefst klukkan 13.30.
„Það skemmtilega við svona
gjörninga er að fólk veit ekki á
hverju það á von og ég gæti jafn-
vel komið sjálfri mér á óvart,“
segir Nanna Kristín Magnús-
dóttir leikkona spurð í hverju
myrkraleiðsögn felist, en Nanna
Kristín verður með slíka leiðsögn
á Hönnunarsafninu á Garðatorgi 1
í kvöld undir yfirskriftinni „Hús-
gögn í nýju ljósi“.
„Þar sem ég er leikkona þá
verður þetta leiklist og þar sem
þetta er í Hönnunarsafninu kem
ég inn á hönnun. Eins og vera ber
á safni þá verður þetta leiðsögn,
nánar tiltekið myrkraleiðsögn.
Það verður myrkur í salnum og
gestir fá afhent vasaljós. En þetta
verður engan veginn formleg leið-
sögn, eigum við ekki að segja að
þetta sé leiðsagnargjörningur?“
Myrkraleiðsögnin verður tvisv-
ar í kvöld, klukkan 21 og 22.30 og
verður farið um sýningu safnsins
á húsgögnum eftir íslenska hönn-
uði. „Það eru þarna húsgögn úr
Höfða, Háskóla Íslands og fleiri
byggingum og ég reyni að fá inn-
blástur bæði frá húsgögnunum
sjálfum, þeim stöðum sem þau
koma frá og því hver hönnuð-
urinn er,“ segir Nanna Kristín.
„Spila þetta svona af fingrum
fram. Þegar kemur að listum þá
er nefnilega allt leyfilegt.“
Myrkraleiðsögnin er ekki það
eina sem Hönnunarsafnið býður
upp á á Safnanótt. Í kvöld klukkan
19 verður opnuð í safninu ný sýn-
ing sem nefnist „Sjálfsagðir hlut-
ir“. Þar er vakin athygli á gripum
sem við lítum á sem sjálfsagða í
daglegu lífi og þeim efnum sem
þeir eru gerðir úr. Fjölskyldu-
smiðja verður í tengslum við
sýninguna þar sem unnin verða
verkefni í tengslum við hráefni
og hönnun.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, for-
seti bæjarstjórnar og formað-
ur menningar- og safnanefndar
Garðabæjar, opnar sýninguna
og sýningarstjórar eru Árdís
Olgeirsdóttir og Þóra Sigurbjörns-
dóttir. fridrikab@frettabladid.is
Leiðsagnargjörningur í
myrkri á Hönnunarsafni
Húsgögn í nýju ljósi nefnist gjörningur sem Nanna Kristín Magnúsdóttir fremur í Hönnunarsafni Íslands í
kvöld. Nanna Kristín lofar óvenjulegri upplifun, enda sé allt leyfilegt þegar kemur að listum.
„Það skemmtilega við svona gjörninga er að fólk veit ekki á hverju það á von,“ segir
Nanna Kristín Magnúsdóttir leikkona sem verður með myrkraleiðsögn í Hönnunar-
safni í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
MALNEIROPHRENIA flytur
kammerpönk við súrrealíska
fantasíu frá 1925 í kvöld.
Tríóið Malneirophrenia heldur
tónleika á Safnanótt í Borgarbóka-
safninu við Tryggvagötu og hefjast
þeir klukkan 21.30 í kvöld. Hluta
af þöglu kvikmyndinni Le Voyage
Imaginaire eftir René Clair frá
árinu 1925 verður varpað á tjald
meðan á tónleikunum stendur.
Malneirophreniu skipa þeir
Hallur Örn Árnason bassaleik-
ari, Gunnar Theodór Eggertsson
píanóleikari og Hallgrímur Jónas
Jensson sellóleikari. Hljómsveit-
in hefur sérhæft sig í kvikmynda-
tónlist, einkum frá tímum þöglu
myndanna.
Þögul mynd
og tónlist
Gunnar Theodór Eggertsson, píanó-
leikari Malneirophreniu, er sérstakur
áhugamaður um þöglar kvikmyndir.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Viðburðirnir á Safnanótt eru af
ýmsum toga. Á Borgarbókasafn-
inu fer fram ljóðaslamm þar sem
ungt fólk flytur frumsamin ljóð
eða texta fyrir dómefnd sem
velur þrjú bestu atriðin.
Ljóðaslamm 2012 verður haldið
í kvöld. Dagskráin hefst klukkan
20.30 og samanstendur af um tíu
atriðum þar sem fólk á aldrin-
um 15 til 25 ára stígur á svið
og fremur ljóðagjörninga
af ýmsum toga. Textarn-
ir eru frumsamdir og
allir túlka þeir þemað
Myrkur með einum
eða öðrum hætti.
Ljóðaslammið
fer fram í aðalsafni
Borgarbókasafns
í Tryggvagötu 15 og
fær safnið ávallt nýja
ásýnd af þessu tilefni þar sem
sett er upp svið og ljósabúnaður.
Dómnefnd velur þrjú siguratriði
en hana skipa leikkonurnar Guð-
laug Elísabet Ólafsdóttir og María
Þórðardóttir, rithöfundurinn Stef-
án Máni Sigþórsson, Óttarr Proppé
tónlistarmaður og Úlfhildur Dags-
dóttir bókmenntafræðingur.
Slammað til sigurs
Borgarfulltrúinn og tónlistarmaðurinn Ótt-
arr Proppé á sæti í fimm manna dómnefnd
sem velur þrjú bestu atriðin á Ljóðaslammi
2012. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ENSKI
BOLTINN
STÆRRI
EN ALLT
SKILA LEIFTURSÓKNIR ARSENAL TITLI Í ÁR?
512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000
VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT INNIHELDUR
Sigurjón M. Egilsson
stýrir Sprengisandi
á sunnudags morgnum kl. 10–12
Sprengisandur
kraftmikill þjóðmálaþáttur