Fréttablaðið - 10.02.2012, Qupperneq 22
2 • LÍFIÐ 10. FEBRÚAR 2012
LÁRA BJÖRG BJÖRNSDÓTTIR
ALDUR: 35 ára
MAKI: Tryggvi Tryggvason
BÖRN: Björn Óttar, 10 ára
STARF: Skrifstofustjóri Vefpressunnar.
ÁHUGAMÁL: Engin
HVENÆR ERTU SETT?: Í lok apríl.
VEISTU HVORT ÞÚ GENGUR MEÐ?
Dreng.
Hvað ertu gengin langt og hvern-
ig líður þér á líkama og sál? Ég er
komin rúma sex mánuði á leið. Mér
líður alveg merkilega vel miðað við
hvað ég er gömul og stressuð.
Meðgangan núna og þegar þú
gekkst með frumburðinn fyrir
10 árum? Þessi meðganga er allt
öðruvísi. Vinkona mín sagði mér
um daginn að þegar ég gekk með
son minn fyrir 10 árum hafi ég iðu-
lega setið í eldhúsinu með kleinu-
poka og klárað hann, ég talaði mjög
mikið um mat, át lasanja í morgun-
mat, uppgötvaði mozzarella-ost og
kenndi öllum vinkonuhópnum að
nota hann. Ég nánast lagði fyrir til
að eiga fyrir máltíð á klukkustunda-
fresti. En núna get ég rétt þrælað
ofan í mig hálfri kjúklingabringu án
þess að fá ógeðshroll og brjálast.
Ef ég fengi að ráða og læknavísind-
in væru ekki að segja manni að vera
nánast með spínat í æðalegg mundi
ég bara borða tekex með smjöri og
skola því niður með undanrennu.
Hvernig er að vera ó lét t
mamma? Bjössi fæddist 2001
en það er magnað að vera ólétt
mamma. Sonur minn passar mjög
upp á mig og spyr mig oft á dag
hvort ég sé þreytt og hvernig mér
líði. Það er ekki laust við að hjart-
að bókstaflega springi úr ást að
liggja með hann í fanginu og klappa
bumbunni um leið.
Hvernig var fæðingin? Ég missti
vatnið heima, fyrirvaralaust og að-
eins fyrir tímann. Ég skreið því upp á
fæðingardeild í smá stressi lítandi út
eins og ég veit ekki hvað. En fæðing-
in gekk vel og ég þurfti engin verkja-
lyf svo ég var send í þetta hippa-
hreiður (engin vika á fæðingardeild-
inni … nei, nei) þar sem manni er
skóflað út eftir sólarhring og hent
heim. Þegar ég gekk inn í íbúð-
ina mína með son minn 24 klukku-
stunda gamlan í fanginu beið mín
lítið stöðuvatn af legvatni á stofu-
gólfinu. Svo, þá var ekkert annað í
boði en að skúra það upp. Sem ég
gerði. Ein og með drenginn í fanginu.
Hvernig viltu upplifa fæðinguna
í vor? Í þetta skiptið langar mig upp
á fæðingardeildina í einhverju dýru.
Kannski bleikri Jackie-O dragt, með
hatt og mjög mikið máluð. Síðan
þætti mér eðlilegt og gott að fá að
liggja á deildinni í nokkra daga. Í
stóru herbergi með blómum á borði.
Kalt kampavín í fötu við rúmstokk-
inn væri ekki galin hugmynd þann-
ig lagað. Þið vitið?
Ertu með æði fyrir einhverju
matarkyns á þessari meðgöngu?
Ég er eiginlega frekar með óþol
fyrir mjög mörgum mat. Flest sem
mér fannst gott, finnst mér við-
bjóður núna. En fyrstu mánuðina
þegar ógleðin var sem verst borð-
aði ég salsa í öll mál. Eintómt og
með skeið. Og svo finnst mér sulta
mjög góð. Ég gæti borðað hana
með skeið líka en ég vil ekki hræða
fólk svo ég læt það ekki eftir mér.
Eru hormónarnir að stríða þér?
Ef ég heyri lag með Bruce Spring-
steen fer ég að gráta. Ef einhver
spyr mig hvað klukkan sé fer ég að
gráta. Ef maðurinn minn segir að ég
sé sæt þá fer ég að gráta. Svo, þú
getur ímyndað þér stuðið á heim-
ilinu. – Djöfull held ég að Bruce
Springsteen sé góður pabbi.
Skemmtilegu skrifin þín! Hvað
ertu að gera við þessa hæfileika
þína? Í gegnum tíðina hef ég bara
skrifað þegar mig hefur langað til að
skrifa. Annars skrifa ég ekki. Þegar
mig langar til að skrifa fæ ég svona
mjög afgerandi skrifþörf, verð frek-
ar þögul og vinn best seint á kvöld-
in þegar komin er ró. Mér líður mjög
vel í þessu ástandi og fæ mikið út
úr því að skrifa. Þannig skrifaði ég
bókina mína „Takk útrásarvíking-
ar“. Þessi þörf hefur legið í dvala
í marga mánuði en er að koma
aftur yfir mig núna og ég ætla að
bregðast við henni og skrifa skáld-
sögu. Ég er meira að segja búin að
ákveða um hvað hún á að vera.
Svona af því að úrslitin í Euro-
vision eru annað kvöld. Ertu Euro-
vision-aðdáandi?
Nei. En bara plís ekki senda ein-
hvern a nærbuxunum eða þannig.
Jón Ólafsson, Arnar
Gauti og Jóhanna
Pálsdóttir opnuðu
formlega tískuskólann
Fashion Academy Reykja-
vík, sem Elite á Íslandi stend-
ur á bak við, á dögunum. Förðun-
armeistarinn Margrét R. Jónas-
ar og Heba Björg hjá E-label voru
viðstaddar ásamt
fjölda annarra gesta.
Á Hótel 101 á föstu-
daginn var margt um
manninn. Hjónin Stein-
unn Ólína Þorsteinsdóttir og
Stefán Karl Stefánsson voru kát
og það sama má segja um Heiðar
Má Guðjónsson fjárfesti og Stein-
unni Völu Sigfúsdóttur hjá Hring
eftir hring.
Jón Kaldal, Geir H.
Haarde, Katrín Hall,
Hanna Birna Krist-
jánsdóttir, Magnús Árni
Skúlason og Friðrik Þór Frið-
riksson mættu prúðbúin á frum-
sýningu verksins Mínus 16 hjá Ís-
lenska dansflokkunum.
HVERJIR
VORU
HVAR?
MAGNAÐ AÐ VERA ÓLÉTT MAMMA
Rithöfundurinn Lára Björg Björnsdóttir sem gengur með sitt annað barn er með æði fyrir sultu.
Útsölulok
3 verð
aðeins af
útsöluvörum.
4.990kr.
3.990kr.
2.990kr.
Útgáfufélag 365 miðlar ehf.
Umsjón Ellý Ármanns og Kolbrún Pálína
Helgadóttir
Förðun: Fríða María með Bobbi Brown.
Fatnaður: Coco Viktorsson.
Hár: Gunni N-hárstofan.
Ljósmyndari: Stefán Karlsson.
Útlitshönnun Arnór Bogason
Auglýsingar Sigríður Dagný
Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is
Lífið Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík, sími 512 5000
www.visir.is/lifid
„Lára,
hraðamæling
á Suðurgötu.“
Síðasta SMS frá pabba:
María Sigrún Hilmarsdótt-
ir fréttakona og eiginmaður
hennar, Pétur Árni Jónsson
útgefandi, eru flutt á Kvist-
hagann í Vesturbænum.
Pétur og María gengu í það
heilaga síðasta sumar. Þau
voru gefin saman í Dóm-
kirkjunni og brúðkaups-
veislan var haldin á Kjar-
valsstöðum.
María, sem er gengin sjö
mánuði með fyrsta barnið
þeirra, er alin upp á Högun-
um og þekkir hverfið eins
og lófann á sér.
„Ég var mikill grallaraspói
þegar ég var lítil. Gerði
dyraat hjá nágrönnum og
virti ekki lóðamörk þegar ég
lék mér í fallinni spýtu. Mér
finnst gott og gaman að
vera komin á þessar slóðir
aftur. Við erum svona smátt
og smátt að koma okkur
fyrir og gera allt klárt áður
en barnið kemur í apríl,“
segir María Sigrún.
HREIÐURGERÐ
Á KVISTHAGANUM