Fréttablaðið - 10.02.2012, Qupperneq 34
klæðum og þar fram eftir götunum.
Nú er mikið um að fólk sé að
gera upp gömul húsgögn, er
það komið til að vera? Já,alveg
tvímælalaust komið til að vera, en
það helst auðvitað allt í hendur við
tískuna.
Einnig er mjög vinsælt að blanda
saman nýju og gömlu. Þessi gömlu
húsgögn hafa sál og það er eitt-
hvað svo sjarmerandi við það að
gefa þeim nýtt líf, þetta er eitt af
því skemmtilegasta sem ég geri.
Veggfóður – halda þau áfram?
Já, veggfóður verða alltaf í tísku,
en auðvitað breytast litir, áferð og
munstur.
14 • LÍFIÐ 10. FEBRÚAR 2012
Hvenær byrjaði ástríða þín fyrir
því að skreyta heiminn? Hún
byrjaði þegar ég var lítil stelpa, ég
passaði alltaf upp á að það væri
hreint og fínt í herberginu mínu, þar
voru allir hlutir á réttum stað og ég
spáði mjög mikið í hvernig allt ætti
að vera.
Byrjaðir þú strax að breyta og
bæta eða er það eitthvað sem
kom síðar? Áhuginn á því að
breyta og bæta byrjaði þegar ég
var um tvítugt eða um svipað leyti
og ég fór ég að kaupa hönnunar-
blöðin.
Hvar færðu bestu hugmyndirn-
ar? Þær koma oftast upp í hugann
seint á kvöldin þegar ég er komin
upp í rúm og er við það að festa
svefn, og svo auðvitað úr blöðum
og af netinu.
Hvert er þitt hlutverk sem stíl-
isti? Það sem ég byrja yfirleitt á
að gera er að skoða það rými sem
viðkomandi óskar eftir að breyta
og síðan kem ég með nokkrar hug-
myndir út frá því. Langflestir eru að
leita eftir góðum ráðum um það
sem þeir geta gert sjálfir.
Hvers konar breytingum er fólk
helst að leitast eftir? Flestir vilja
fá hugmyndir að því hvernig hægt
er að breyta miklu með litilli fyrir-
höfn, eins og að skipta um liti á
veggjum og færa til húsgögn, finna
stað fyrir allar myndirnar, skipta út
púðum í sófa, skipta um liti á hand-
VEIT EKKERT SKEMMTILEGRA EN AÐ GEFA
GÖMLUM HÚSGÖGNUM NÝTT LÍF
Þórunn Högna hefur unnið sem stílisti í mörg ár og gefið landsmönnum góð ráð við að fegra heimili sín. Hún var einn umsjónarmanna Innlits/út-
lits til sex ára og starfar nú sem blaðamaður og stílisti á tímaritinu Hús og híbýli. Vegna fjölda áskorana hefur Þórunn nú ákveðið að bjóða upp
á sérstaka stílistaráðgjöf fyrir fyrirtæki og heimili ásamt því að gera upp gömul húsgögn en það hefur verið ástríða hennar lengi.
Vegna fjölda áskorana hefur Þórunn nú ákveðið að bjóða upp á sérstaka stílista-
ráðgjöf fyrir fyrirtæki og heimili ásamt því að gera upp gömul húsgögn fyrir aðra.
GAMALL BASTSTÓLL ÖÐLAST NÝTT LÍF
Þessi gamli körfustóll var á leiðinni í Sorpu, en syst-
ir mín ákvað að hirða hann og nýta hann lengur, og
þannig komst hann í mínar hendur.
HRÁEFNI: Grátt lakk frá Slippfélaginu, grunnur til
dæmis frá Kópal, einnota hanskar og tveir penslar.
AÐFERÐ: Grunnurinn er borinn jafnt og þétt á stól-
inn með pensli og látinn þorna í sex klukkustund-
ir. Síðan er lakkið borið á. Fara þarf tvær umferð-
ir yfir stólinn, gott er að bíða í fjórar klukkustund-
ir á milli umferða.
Að lokum er sniðugt að setja fallegan púða eða
sessu í stólinn.
FACEBOOK/STÍLISTARÁÐGJÖF ÞÓRUNNAR HÖGNA
UPPÁHALDS
Hönnuðurinn? Arne Jacobsen-Philip Starck&Charles and Ray Eames.
Heimasíðan? www.novagrats.com og www.contemporist.com og vin-
tageseeker.com
Tímaritið? Það eru svo mörg sem ég skoða en þessi kaupi ég alltaf:
norska Elle Decoration-Living etc., Bo bedre og breska Elle Decora-
tion.
Kaffihúsið? Ég er áskrifandi að Kaffitárskaffi, en finnst reyndar líka
mjög notalegt að fara á Súfistann á Laugaveginum og kíkja í blöð í
góðra vina hópi.
Veitingastaðurinn? Ég elska indverskan mat þannig að Austur-Indía-
félagið er minn uppáhaldsstaður, svo hef ég heyrt að Sushi Samba
sé æðislegur.
Dekrið? Andlitsbað ásamt heil-nuddi í Nordica Spa.
■ Skipta um lit á veggjum.
■ Breyta um lit á púðum/mottum
í stofunni
■ Skipta um rúmteppi og púða
í svefnherbergjum og barnaher-
bergjum. Skipta um skerma á
lömpum og loftljósum og breyta
þannig lýsingunni.
■ Breyta um liti á handklæðum á
baðherberginu.
■ Poppa upp á gömlu mublurnar
■ Svo gefa fersk blóm og kerti í
vasa alltaf ljúfa stemningu.
5
HUGMYNDIR AÐ BREYTING-
UM SEM BREYTA MIKLU EN
KOSTA LÍTIÐ
1 2 3 4
WUSHU FÉLAG REY
(KUNG FU S k e i f a n 3 j | S í m i 5 5 3 8 2 8 2 | w w w . h e i l s u d r e k i n n . i s
Kínversk hugræn
teygjleikfimi
-WU SHU ART
KJAVÍKUR
)
KUNG FU
Tai Chi
Qi Gong
FYRIR BÖRN OG
UNGLINGA
fyrir líkama
og sál
15%
afsláttur af
heilsumeðferð
þegar þú kaupir
leikfimikort