Fréttablaðið - 10.02.2012, Blaðsíða 36
Helga Möller söngkona segist
jafnvel elda helgarmatinn á
mánudögum sökum óreglulegs
vinnutíma. Hún borðar sjaldan
steikur nema alveg spari og kýs
heldur léttari mat. Hún deilir
hér með okkur æðislegri upp-
skrift af kjúklingi fyrir helgina
og hollu og ljúffengu banana-
brauði á eftir sem hún státar
sig mikið af enda uppskriftin
hennar frá grunni.
KJÚKLINGARÉTTUR MEÐ SÆTUM
KARTÖFLUM.
Sæt(ar) kartöflur afhýddar og
sneiddar, settar í eldfast mót.
Olíu, salti og pipar stráð yfir kart-
öflurnar og þær bakaðar í 30-40
mín. í ofni (eftir smekk)
Takið kartöflurnar út úr ofninum
og dreifið einum poka af spín-
ati yfir.
Á meðan kartöflurnar eru að malla
í ofninum eru kjúklingalundir/
bringur, niðursneiddar og steikt-
ar á pönnu. Kryddið með karríi og
hvítlaukskryddi eftir smekk.
Setjið kjúklinginn svo ofan á spín-
atið.
Setjið því næst eina til tvær
krukkur af mangóchutney yfir
kjúklinginn.
Ristuðum hnetum/möndlum með
hýði (mega vera hvaða hnetur
sem er) dreift yfir ásamt lúku af
muldu ritzkexi.
Að lokum er rifinn ostur og feta-
ostur settur yfir réttinn og hann
bakaður í ofni á 180°C í um 20-30
mín.
BANANABRAUÐ HELGU MÖLLER
3 þroskaðir bananar
4 msk. agavesíróp
3 dl gróft spelt
2 dl Granóla-múslí
1 egg
1 tsk. vínsteinslyftiduft
smá maldonsalt
Allt pískað saman með gaffli í
skál og bakað við 180 gráður í
eina klukkustund.
Bananabrauðið er best nýbak-
að með miklu smjöri en eftir tvo
daga, ef eitthvað er eftir, er mjög
gott að rista það.
HELGARMATURINN
FRÆGIR FLYKKJAST Í ÚTHVERFIN
Hárgreiðslumeistarinn, sjónvarpsmaðurinn og tískulöggan Svavar Örn
Svavarsson og sambýlismaður hans, Daníel Örn Hinriksson, sem bú-
settir eru í Smáíbúðahverfinu í Reykjavík hafa nú ákveðið að
færa sig um set og breyta um lífsstíl svo um munar. Leið
þeirra liggur nú í Leirvogstungu í Mos-
fellsbæ þar sem náttúran er höfð
í hávegum og stutt er í fjöllin.
Parið á nokkra hunda og seg-
ist hlakka til að fara í göngu-
túra í hverfinu.
Svavar og Daníel fá líklega
góðar móttökur þar sem fjöl-
miðlakonan Sigga Lund kom
sér nýlega fyrir á sömu slóð-
um. Ekki amalegir ná-
grannar það.
BARNALÁN
Fyrirsætan og fegurðar-
drottningin Kristín Lea Sig-
ríðardóttir, sem var kjör-
in ungfrú Norðurland árið
2009, og unnusti hennar,
Vigfús Þormar Gunnarsson,
eiga von á sínu fyrsta barni.
Kristín, sem er gengin
fjóra mánuði á leið,
blómstrar sem
aldrei fyrr.
Primus
Bekkpressu-
bekkur með
fótatæki
Fitmaster
Lyftingastöð
með 60 kg
stafla.
Classic
Lyftingastöð
PIPA
R
\
TBW
A
SÍA
Multi-
funktion
bekkur
Multi-
funktion
standur
HVAÐ TEKUR
ÞÚ Í BEKK? 59.900
Verð
áður
47.920
Tilboð
án lóða
129.900
Verð
áður
116.910
Tilboð
59.900
Verð
áður
41.930
Tilboð
39.900
Verð
áður
31.920
Tilboð
án lóða
124.900
Verð
áður
99.920
Tilboð
án lóða
www.markid.is sími 517 4600 Ármúla 40
Lóð og
handlóð 50 kg.
lóðasett 36.900
Verð
áður
29.900
Tilboð
15%
afsláttur