Fréttablaðið - 10.02.2012, Page 42
10. febrúar 2012 FÖSTUDAGUR22
BAKÞANKAR
Brynhildar
Björnsdóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. bauti, 6. fíngerð líkamshár, 8. for-
nafn, 9. bókstafur, 11. leita að, 12.
orðtak, 14. urga, 16. pípa, 17. ennþá,
18. fát, 20. tveir eins, 21. handa.
LÓÐRÉTT
1. munnvatn, 3. umhverfis, 4.
peningagræðgi, 5. af, 7. ljótur, 10.
framkoma, 13. gerast, 15. sál, 16.
iðka, 19. 2000.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. buff, 6. ló, 8. mér, 9. eff,
11. gá, 12. frasi, 14. ískra, 16. æð, 17.
enn, 18. fum, 20. dd, 21. arma.
LÓÐRÉTT: 1. slef, 3. um, 4. fégirnd,
5. frá, 7. ófríður, 10. fas, 13. ske, 15.
anda, 16. æfa, 19. mm.
Ég er með nýtt
verkefni í gangi.
Sjónvarp á
klósettinu!
Flottur!
Þá get ég
svarað kalli
náttúrunnar á
meðan ég horfi
á leikina,
Breið-
bands-
sjónvarp! Jesús.
Byrjaðu
að hlúa
að mér.
Erfiður
dagur,
elskan?
Bjáni! þú verÐur aÐ skoÐa
loÐfílinn vel! ég hefÐi getaÐ
kafnaÐ á þessu!
Einu sinni dreymdi
mig ferðalög um
heiminn…
…núna dremir mig
um hreint eldhús.
Ég er ekki bara grænmetisæta. Ég borða líka fisk, ávexti, egg og stundum súkk-
ulaði. Ég borða hins vegar ekki fugla eða
ferfætlinga. Eins nafnorðs skýring á því
hvar ég stend í fæðukeðjunni er mér vitan-
lega ekki til á íslensku en það þvælist ekk-
ert fyrir mér. Kjötneysla annarra truflar
mig ekkert heldur. Ég er afar stolt af því
að hafa nú nýlega lært að búa til kjötbollur
sem mér skilst að séu nokkuð bragðgóðar.
Stundum elda ég líka kjúklingalæri handa
börnunum mínum, sem þeim finnst ein-
staklega góður matur.
ÞAÐ truflar mig hins vegar þegar
ég heyri lýsingar á því að sums
staðar í heiminum séu dýr barin
til bana af því að þá verði kjötið af
þeim bragðbetra. Það truflar mig
líka þegar ég sé myndir af svínum
sem ala aldur sinn í járngrindum
svo þau eigi torveldara um hreyf-
ingar og safni meiri fitu þangað
til þeim er slátrað með því að
kremja þau í klessu í einhvers
konar pressu. Og það truflar
mig að lesa ítrekað fréttir
af því að langir og lágir
kassar, troðfullir af lif-
andi kjúklingum, detti af
bílpöllum og dýrin veltist
limlest um þjóðvegina á
Íslandi þangað til björgunarsveitarmenn
ná að plokka þau upp af götunni og henda
aftur inn í bíl sem ekur þeim í sláturhúsið.
ÞRÁTT fyrir mína persónulegu forgangs-
röðun í málefnum holdsins hef ég þá trú að
svo framarlega sem dýr eigi sæmilegt líf
og mannúðlegan dauðdaga sé réttlætanlegt
að það láti lífið fyrir aðra. Lamb sem fædd-
ist til að deyja fyrir aldur fram á skilið
heilt sumar á fjalli. Og öll húsdýr eiga að
fá að vera frjáls að því marki sem slíkt er
hægt, södd og hrein og ekki of mörg saman
í vistarverum. Í landinu eru í gildi lög
um dýravernd og fréttir af illri meðferð á
dýrum vekja jafnan hörð viðbrögð.
ÉG er ekkert viss um að hænur lifi miklu
vitsmunalífi. Kannski hugsa þær bara ekki
neitt. En ég er nokkuð viss um að þær geta
fundið til. Ég get valið að kaupa egg í stór-
markaði úr hamingjusömum hænum. Hvar
er hægt að kaupa læri af kátum kjúkling-
um sem ekki eyddu síðustu stundunum og
jafnvel allri ævinni kramdir saman í pínu-
litlum kassa?
ÞAÐ hlýtur að skipta kjötætur máli, ekki
síður en grænmetisætur af öllum skil-
greiningum, að maturinn þeirra lifi og
deyi á þann hátt sem er sæmandi bæði
þeim sem snæðir og hinum snædda.
Kátir kjúklingar
Ekki fleiri virkjanir
Okkar kynslóð er búin með kvótann segja
María Ellingsen og Andri Snær Magnason.
Níu lög um draum en eitt lag
um straum
Rýnt í undankeppni Eurovision
í gegnum tíðina.
Neysla og náttúra
Margir kostir fylgja því að velja matvæli
sem eru framleidd án þess að skaða
náttúruna.
Meðal annars efnis: