Fréttablaðið - 10.02.2012, Síða 42

Fréttablaðið - 10.02.2012, Síða 42
10. febrúar 2012 FÖSTUDAGUR22 BAKÞANKAR Brynhildar Björnsdóttur 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman LÁRÉTT 2. bauti, 6. fíngerð líkamshár, 8. for- nafn, 9. bókstafur, 11. leita að, 12. orðtak, 14. urga, 16. pípa, 17. ennþá, 18. fát, 20. tveir eins, 21. handa. LÓÐRÉTT 1. munnvatn, 3. umhverfis, 4. peningagræðgi, 5. af, 7. ljótur, 10. framkoma, 13. gerast, 15. sál, 16. iðka, 19. 2000. LAUSN LÁRÉTT: 2. buff, 6. ló, 8. mér, 9. eff, 11. gá, 12. frasi, 14. ískra, 16. æð, 17. enn, 18. fum, 20. dd, 21. arma. LÓÐRÉTT: 1. slef, 3. um, 4. fégirnd, 5. frá, 7. ófríður, 10. fas, 13. ske, 15. anda, 16. æfa, 19. mm. Ég er með nýtt verkefni í gangi. Sjónvarp á klósettinu! Flottur! Þá get ég svarað kalli náttúrunnar á meðan ég horfi á leikina, Breið- bands- sjónvarp! Jesús. Byrjaðu að hlúa að mér. Erfiður dagur, elskan? Bjáni! þú verÐur aÐ skoÐa loÐfílinn vel! ég hefÐi getaÐ kafnaÐ á þessu! Einu sinni dreymdi mig ferðalög um heiminn… …núna dremir mig um hreint eldhús. Ég er ekki bara grænmetisæta. Ég borða líka fisk, ávexti, egg og stundum súkk- ulaði. Ég borða hins vegar ekki fugla eða ferfætlinga. Eins nafnorðs skýring á því hvar ég stend í fæðukeðjunni er mér vitan- lega ekki til á íslensku en það þvælist ekk- ert fyrir mér. Kjötneysla annarra truflar mig ekkert heldur. Ég er afar stolt af því að hafa nú nýlega lært að búa til kjötbollur sem mér skilst að séu nokkuð bragðgóðar. Stundum elda ég líka kjúklingalæri handa börnunum mínum, sem þeim finnst ein- staklega góður matur. ÞAÐ truflar mig hins vegar þegar ég heyri lýsingar á því að sums staðar í heiminum séu dýr barin til bana af því að þá verði kjötið af þeim bragðbetra. Það truflar mig líka þegar ég sé myndir af svínum sem ala aldur sinn í járngrindum svo þau eigi torveldara um hreyf- ingar og safni meiri fitu þangað til þeim er slátrað með því að kremja þau í klessu í einhvers konar pressu. Og það truflar mig að lesa ítrekað fréttir af því að langir og lágir kassar, troðfullir af lif- andi kjúklingum, detti af bílpöllum og dýrin veltist limlest um þjóðvegina á Íslandi þangað til björgunarsveitarmenn ná að plokka þau upp af götunni og henda aftur inn í bíl sem ekur þeim í sláturhúsið. ÞRÁTT fyrir mína persónulegu forgangs- röðun í málefnum holdsins hef ég þá trú að svo framarlega sem dýr eigi sæmilegt líf og mannúðlegan dauðdaga sé réttlætanlegt að það láti lífið fyrir aðra. Lamb sem fædd- ist til að deyja fyrir aldur fram á skilið heilt sumar á fjalli. Og öll húsdýr eiga að fá að vera frjáls að því marki sem slíkt er hægt, södd og hrein og ekki of mörg saman í vistarverum. Í landinu eru í gildi lög um dýravernd og fréttir af illri meðferð á dýrum vekja jafnan hörð viðbrögð. ÉG er ekkert viss um að hænur lifi miklu vitsmunalífi. Kannski hugsa þær bara ekki neitt. En ég er nokkuð viss um að þær geta fundið til. Ég get valið að kaupa egg í stór- markaði úr hamingjusömum hænum. Hvar er hægt að kaupa læri af kátum kjúkling- um sem ekki eyddu síðustu stundunum og jafnvel allri ævinni kramdir saman í pínu- litlum kassa? ÞAÐ hlýtur að skipta kjötætur máli, ekki síður en grænmetisætur af öllum skil- greiningum, að maturinn þeirra lifi og deyi á þann hátt sem er sæmandi bæði þeim sem snæðir og hinum snædda. Kátir kjúklingar Ekki fleiri virkjanir Okkar kynslóð er búin með kvótann segja María Ellingsen og Andri Snær Magnason. Níu lög um draum en eitt lag um straum Rýnt í undankeppni Eurovision í gegnum tíðina. Neysla og náttúra Margir kostir fylgja því að velja matvæli sem eru framleidd án þess að skaða náttúruna. Meðal annars efnis:

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.