Fréttablaðið - 11.02.2012, Side 2
11. febrúar 2012 LAUGARDAGUR2
HEILBRIGÐISMÁL Búið er að
ómskoða 105 konur með PIP-púða
hér á landi, af þeim tæplega 300
sem fengu boðun í skoðun. Sam-
kvæmt nýjustu upplýsingum frá
landlæknisembættinu hefur 71
kona greinst með leka púða, eða
um 68 prósent af þeim sem hafa
verið skoðaðar.
Þetta er lægra hlutfall en
greindist í ómskoðun fyrir viku,
þar sem rúmlega 80 prósent voru
með sprungna púða. Landlækn-
ir fær þessar tölur frá leitarstöð
Krabbameinsfélagsins, sem sér
um að skoða konurnar á fimmtu-
dögum og föstudögum í viku
hverri. - sv / sjá síðu 24
Nýjar tölur frá landlækni:
68 prósent með
sprungna púða
LANDBÚNAÐUR Ekkert eftirlit er
með því hvort vörur merktar sem
vistvæn landbúnaðarafurð upp-
fylli kröfur um umhverfisvæna
framleiðsluhætti.
Bændasamtökin höfðu áður eft-
irlit með vörum
merktum sem
vistvænar
landbúnað-
arafurðir.
Þau hvetja
ekki
lengur til
þess að
merkingin
sé notuð og
hafa ekki eft-
irlit með gæðum
framleiðslunnar.
Neytendasamtökin hafa gagn-
rýnt íslensk fyrirtæki fyrir að
nota merki vistvænnar landbún-
aðarframleiðslu. Telja samtökin
merkinguna villandi fyrir neyt-
endur, sem telji margir að vörur
merktar vistvænar séu sambæri-
legar lífrænt vottuðum vörum.
- hhs / sjá síðu 32
Vistvæn landbúnaðarafurð:
Marklaus vist-
væn merking
Páll, stendurðu í lóðabraski?
„Nei, verða ekki allir að leggja sitt
lóð á vogarskálarnar?“
Geirmundur Vilhjálmsson, fyrrverandi
fangelsisstjóri á Kvíabryggju, sem sætir
ákæru fyrir fjárdrátt, hefur kært Pál
Winkel fangelsismálastjóra fyrir að stela
af honum lyftingalóðum og selja þau.
DANMÖRK Karlmaður um fertugt
er í haldi lögreglu í Danmörku
sterklega grunaður um að hafa
myrt og nauðgað starfskonu á sam-
býli þar sem hann bjó.
Maðurinn, sem hefur oft komið
við sögu lögreglu vegna óreglu
og ofbeldisverka, hélt í bílferð
með konunni á fimmtudag. Þegar
þau sneru ekki aftur hófst leit og
fannst konan látin með fjölmörg
stungusár á líkama.
Hinn grunaði fannst í gær, mikið
slasaður eftir að hafa klessukeyrt
stolinn bíl á flótta undan réttvís-
inni. Hann hafði ekki verið yfir-
heyrður vegna ástands síns. - þj
Grunaður um að drepa konu:
Slasaðist í bíl-
slysi eftir morð
VIÐSKIPTI Icelandair Group tap-
aði sem nemur 200 milljónum
íslenskra króna á fjórða ársfjórð-
ungi 2011. Til samanburðar var
hagnaður félagsins 1,4 milljarðar
á sama ársfjórðungi 2010.
Viðsnúningurinn skýrist að
stórum hluta af mun hærra olíu-
verði á fjórðungnum miðað við
árið áður. Jókst kostnaður vegna
eldsneytis um 46% á fjórðungnum
miðað við sama fjórðung árið áður.
Rekstrartekjur félagsins voru
20 milljarðar og jukust um 7%
milli ára. - mþl
Hátt eldsneytisverð dragbítur:
Icelandair eyk-
ur tekjur sínar
ICELANDAIR Stjórn fyrirtækisins spáir því
að EBITDA ársins 2012 verði á bilinu 11
til 12 milljarðar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
KÖNNUN Meirihluti landsmanna
vill að þing verði rofið og boðað til
kosninga í vor, samkvæmt niður-
stöðum skoðanakönnunar Frétta-
blaðsins og Stöðvar 2 sem gerð var
á miðvikudag og fimmtudag.
Alls sögðust 55,9 prósent þeirra
sem afstöðu tóku vilja kjósa til
þings í vor, en 44,1 prósent eru því
andvígir. Tæplega 86 prósent tóku
afstöðu til spurningarinnar.
Stuðningsmenn stjórnarflokk-
anna voru síst á því að boða ætti
til kosninga í vor. Um 22,5 prósent
þeirra sem segjast myndu kjósa
Samfylkinguna ef gengið yrði til
kosninga nú vilja kosningar, en 20
prósent stuðningsmanna Vinstri
grænna.
Afgerandi meirihluti þeirra sem
styðja Sjálfstæðisflokkinn, Fram-
sóknarflokkinn og Samstöðu, fram-
boð undir forystu Lilju Mósesdótt-
ur, vill að þing verði rofið.
Alls sögðust 82,2 prósent stuðn-
ingsmanna Sjálfstæðisflokksins
vilja kosningar, 71,4 prósent þeirra
sem kjósa myndu Framsóknar-
flokkinn og 68,7 prósent þeirra sem
styðja Samstöðu.
Þeir sem sögðust myndu kjósa
Bjarta framtíð, flokk Guðmunds
Steingrímssonar, voru síður áfjáð-
ir í kosningar. Um 30 prósent
þeirra sögðust vilja að þing verði
rofið og gengið til kosninga í vor.
Ekki reyndist marktækt að reikna
afstöðu þeirra sem styðja önnur
framboð.
Lítill munur var á afstöðu fólks
eftir búsetu. Þó sögðust heldur
fleiri íbúar landsbyggðarinnar vilja
kosningar samanborið við íbúa höf-
uðborgarsvæðisins.
Fólk á aldrinum 18 til 49 vill frek-
ar kosningar en þeir sem eru 50 ára
eða eldri. Tæplega 59 prósent yngri
aldurshópsins vilja slíta þingi og
kjósa í vor samanborið við tæplega
53 prósent þeirra sem eldri eru.
Hringt var í 800 manns 8. og 9.
febrúar. Þátttakendur voru vald-
ir með slembiúrtaki úr þjóðskrá.
Svarendur skiptust jafnt eftir
kyni, og hlutfallslega eftir búsetu
og aldri.
Spurt var: Á að leysa upp þing og
boða til alþingiskosninga í vor? Alls
tóku 85,9 prósent afstöðu til spurn-
ingarinnar. brjann@frettabladid.is
Meirihluti kjósenda
vill kosningar í vor
Ríflega helmingur landsmanna vill rjúfa þing og boða til alþingiskosninga í
vor samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Mikill meirihluti
stuðningsmanna stærstu stjórnarandstöðuflokkanna vill þingkosningar í vor.
Allir
Framsókn
Björt framtíð
Samstaða
Sjálfstæðisfl.
Samfylking
Vinstri græn
55,9% 44,1%
71,4% 28,6%
30,0% 70,0%
68,7% 31,3%
82,2% 17,8%
22,5% 77,5%
20,0% 80,0%
Meirihlutinn vill kosningar
Á að leysa upp þing og boða til alþingiskosninga í vor?
HEIMILD: SKOÐANAKÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS OG STÖÐVAR 2
■ Já ■ Nei
KOSIÐ Haldi ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna út kjörtímabilið verður
næst kosið til þings vorið 2013. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
DÓMSMÁL Maður sem keypti vændi
í tvígang af fjórtán ára dreng var
í gær dæmdur í tólf mánaða skil-
orðsbundið fangelsi í Héraðsdómi
Vesturlands í gær.
Maðurinn játaði að hafa haft
kynmök við drenginn í tvígang, og
greitt honum fyrir í bæði skiptin.
Dómurinn telur að þar sem mað-
urinn játaði brot sitt skýlaust, auk
afleiðinga málsins fyrir hann, sé
rétt að skilorðsbinda árs fangels-
isdóm yfir manninum. Þar var
einnig litið til þess að hann hafi
bætt ráð sitt í kjölfar málsins.
Í dóminum er vísað í vottorð
geðlæknis. Niðurstaða hans var
að maðurinn hafi um árabil lifað
í felum með kynhneigð sína. Hann
hafi leitað eftir samskiptum við
aðra karlmenn í gegnum netið.
Rannsókn málsins hafði að sögn
geðlæknisins alvarlegar afleiðing-
ar fyrir fjölskyldulíf mannsins,
auk þess sem hann missti vinn-
una.
Geðlæknirinn sagði manninn
hafa unnið vel í sínum málum
eftir að lögregla hóf rannsókn á
kynferðisbroti hans. Hann hafi
farið í áfengismeðferð og stund-
að fundi hjá samtökum kynlífs- og
ástarfíkla.
Geðlæknirinn taldi víst að
maðurinn þjáðist ekki af barna-
hneigð. - bj
Fékk 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að kaupa vændi af 14 ára barni:
Dómur mildaður vegna afleiðinga
LÖGREGLUMÁL Karlmaður á áttræðisaldri var í gær hand-
tekinn grunaður um að hafa komið fyrir sprengju við
hús neðst á Hverfisgötu í Reykjavík að morgni dags 31.
janúar síðastliðinn.
Lögregla birti myndir úr eftirlitsmyndavélum sem sýna
lágvaxinn, feitlaginn mann á vettvangi. Friðrik Smári
Björgvinsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglu höfuðborg-
arsvæðisins, staðfestir að maðurinn sem nú er í haldi sé
grunaður um að vera sá sem sést á upptökunni.
„Rannsóknin er enn í fullum gangi,“ segir Friðrik
Smári. Hann segir að mikil áhersla hafi verið lögð á að
upplýsa málið sem fyrst.
Lögregla lagði hald á ýmiss konar búnað sem talinn er
tengjast málinu og tók bíl mannsins í sína vörslu. Hann
er sömu gerðar og bíll sem sást á upptökum úr eftirlits-
myndavélum við Hverfisgötu.
Tveir menn til viðbótar voru handteknir í gær, en þeim
var sleppt að loknum yfirheyrslum, segir Friðrik Smári.
Hann vildi ekki skýra frekar hvernig þeir eru taldir
tengjast málinu.
Spurður hvort farið verði fram á gæsluvarðhald yfir
manninum segir Friðrik Smári það verða að koma í ljós
eftir því sem yfirheyrslu vindi fram. - bj
Maður á áttræðisaldri handtekinn vegna sprengingar við Hverfisgötu í janúar:
Telja sig hafa manninn á myndinni
GRUNAÐUR Lögregla telur sig hafa handtekið
manninn sem sést á upptökum úr eftirlitsmyndavél
skömmu eftir sprenginguna við Hverfisgötu.
Rannsókn málsins hafði að sögn geðlæknisins alvarlegar
afleiðingar fyrir fjölskyldulíf mannsins, auk þess sem hann
missti vinnuna.
... BANDARÍKIN, AP Fjárlagafrumvarp
Baracks Obama Bandaríkjafor-
seta, sem kynnt verður á mánu-
dag, gerir ráð fyrir 1.300 millj-
arða dala halla í ár.
Áætlun Obama mun, að sögn
fjölmiðla fela í sér skattahækkun
á þá tekjuhæstu, aukin útgjöld til
vegagerðar og landsamgangna
auk niðurskurðar á framlögum til
almannatryggingakerfisins.
Vonir stjórnvalda standa til
þess að jákvæðar atvinnutölur
sem komið hafa fram nýlega
muni bæta horfurnar.
Fjárlög Bandaríkjanna:
1.300 milljarða
halli á árinu
SPURNING DAGSINS
Á námskeiðinu er farið í
hvar og hvernig megi kynn-
ast öðrum, samræðulist,
líkamstjáningu, mörk, kyn-
líf, samskipti kynjanna og
fleira. Sérstök áhersla er lögð
á sjálfstyrkingu og að uppræta
mögulegar hindranir á sviði
náinna tengsla.
Námskeiðið hefst 28. febrúar nk. og stendur yfir í átta vikur,
alls 18 klst. Stjórnendur námskeiðs eru dr. Gyða Eyjólfsdóttir
og Sóley D. Davíðsdóttir sálfræðingar. Nánari upplýsingar um
námskeiðið og umsagnir fyrri þátttakenda má finna á
www.salarafl.is og www.kms.is en skráning og fyrirspurnir fara
fram á salarafl@salarafl.is og kms@kms.is.
Námskeið fyrir fólk í makaleit