Fréttablaðið - 11.02.2012, Side 4
11. febrúar 2012 LAUGARDAGUR4
Auglýsing fyrir samstarfsverkefni
Össurar og Nike hefur ekki verið
og verður ekki sýnd í sjónvarpi í
Bandaríkjunum, ólíkt því sem sagði
í Fréttablaðinu í gær. Hún er aðeins
aðgengileg á netinu.
LEIÐRÉTT
VIÐSKIPTI Lán frá Hugverkasjóði,
Sólarsjóði og Styrktarsjóði eru
færð í bókhaldi Baugs Group í árs-
lok 2008 og ársbyrjun 2009, sam-
kvæmt upplýsingum frá Erlendi
Gíslasyni, skiptastjóra Baugs.
Fjallað er um lánveitingarnar í
dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í
máli þrotabús Baugs gegn þrotabúi
SPRON til riftunar á 100 milljóna
króna greiðslu Baugs til SPRON á
árinu 2008. Krafan um riftun er
gerð á þeirri forsendu að Baugur
hafi verið orðinn ógjaldfær þegar
greiðslan var innt af hendi.
Erlendur segir að greiðslurnar
hafi verið skráðar sem lán. Sú
hæsta hafi verið innan við 10 millj-
ónir króna. Hann bætir því við að
færslurnar úr sjóðunum hafi í
öllum tilfellum verið greiddar til
baka mjög fljótlega aftur.
Þótt talið hafi verið að umrædd
lán Baugs frá styrktarfélögunum
hafi verið ólögmæt voru þau ekki
tilkynnt til lögreglunnar. Erlend-
ur segir að ástæðan sé sú að lánin
hafi verið greidd til baka í öllum
tilfellum.
Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrr-
verandi stjórnarformaður og helsti
eigandi Baugs, segir að dómurinn
komist að þeirri niðurstöðu að
Baugur hafi verið gjaldfær þvert
á það sem skiptastjóri Baugs haldi
fram. Jón Ásgeir segir að Baugur
hafi lagt út ákveðinn kostnað fyrir
Sólarsjóðinn við stofnun, til dæmis
hönnun heimasíðu.
„Sjóðurinn var stofnaður með
100 milljóna framlagi frá eigin-
konu minni og mér. Engin rýrnun
hefur orðið á því fé. Þvert á móti
hefur sjóðurinn vaxið og dafnað,“
segir Jón Ásgeir og bendir á árs-
reikning frá árinu 2010. Þar kemur
fram að Sólarsjóður hafi átt 125
milljónir í lok árs. - jhh
Baugur Group fékk að sögn skiptastjóra lán úr þremur styrktarsjóðum sem talið er að hafi verið ólögmæt:
Deilt um hvort Baugur Group var gjaldfær
SJÓÐUR Sólarsjóðurinn var stofnaður
með 100 milljóna fjárframlagi og hefur
vaxið, ekki rýrnað, segir Jón Ásgeir
Jóhannesson. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VIÐSKIPTI Hinn danski FIH
Erhversbank tilkynnti í fyrradag
að hann hefði tapað 25,7 milljörð-
um króna á árinu 2011. Tap bank-
ans er nánast einvörðungu vegna
niðurfærslu á óbeinni eign hans
í skartgripaframleiðandanum
Pandoru og vegna afskrifta lána.
Þetta kemur fram í ársreikningi
FIH sem var gerður opinber á
miðvikudag. Hvort tveggja hefur
neikvæð áhrif á virði seljendaláns
sem Seðlabanki Íslands veitti FIH
haustið 2010.
Þegar Seðlabankinn seldi
99,89% hlut í FIH 18. september
2010 var söluandvirðið sagt 5 millj-
arðar danskra króna. 1,9 milljarð-
ar danskra króna (39 milljarðar
króna) voru staðgreiddir. Auk þess
veitti Seðlabankinn nýjum eigend-
um, FIH Holding, seljendalán upp
á 3,1 milljarð danskra króna. Virði
þess á gengi dagsins í dag er 67,6
milljarðar íslenskra króna. Lánið á
að greiðast í árslok 2014, höfuðstóll
þess er bundinn við danska neyslu-
vísitölu og það ber ekki vexti.
Í tilkynningu sem Seðlabankinn
sendi frá sér við söluna kom þó
fram að seljendalánið yrði „leið-
rétt með tilliti til þess taps sem
FIH verður fyrir vegna eigna á
efnahagsreikningnum þann 30.
júní 2010 þar til 31. desember 2014
auk þess sem mögulegur hagnað-
ur FIH af Axcel III sjóði kemur til
hækkunar“.
Frá miðju ári 2010 hefur FIH
bankinn afskrifað um 48 milljarða
íslenskra króna eða sem samsvar-
ar rúmlega 70% af upphaflegu
virði seljendaláns Seðlabankans.
Þar af voru 21,6 milljarðar afskrif-
aðir á síðasta ári. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Seðlabankanum drag-
ast þær afskriftir sem átt hafa sér
stað vegna eigna sem voru á efna-
hagsreikningi FIH um mitt ár 2010
frá seljendaláninu. Bankinn leggur
þó áherslu á að það er ekki á gjald-
daga fyrr en í lok árs 2014.
Þá lækkaði virði Axcel III sjóðs-
ins, sem á 57,4% í Pandoru, úr 22,7
milljörðum króna í 4,6 milljarða
króna á síðasta ári. Virðisrýrn-
unina má nánast einvörðungu
rekja til hruns á hlutabréfaverði
Pandoru. Virði bréfanna var 336
danskar krónur á hlut í byrjun árs
2011 en 53 danskar krónur á hlut í
lok þess. Virðisrýrnunin nemur því
18,1 milljarði króna.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins var gert ráð fyrir því
í kaupsamningi Seðlabankans
og nýrra eigenda FIH að hagn-
aður bankans af Axcel III sjóðn-
um yrði á bilinu 15,3-32,7 millj-
arðar króna (700-1.500 milljónir
danskra króna). Til að það verð
sem Seðlabankinn gaf upp við söl-
una á FIH gangi upp þarf hagnað-
ur FIH vegna sjóðsins að verða um
26 milljarðar króna (1,2 milljarðar
danskra króna), eða mjög nálægt
efri mörkunum. Heildarvirði Axcel
III sjóðsins um síðustu áramót var
tæplega fimmtungur af þeirri
upphæð. Hlutabréf í Pandoru hafa
hækkað nokkuð það sem af er ári
en miðað við gengi þeirra í gær er
heildarvirði hlutar Axcel III sjóðs-
ins í félaginu enn einungis tæplega
helmingur af neðri mörkunum sem
tilgreind voru í samkomulaginu,
eða um sjö milljarðar króna.
thordur@frettabladid.is
Stefnir í tugmilljarðatap
Seðlabanka vegna FIH
FIH hefur afskrifað 48 milljarða síðan Seðlabankinn seldi hann. Virði hlutar í Pandoru fór úr 22,7 milljörð-
um í 4,6 milljarða. Hvort tveggja hefur afar neikvæð áhrif á virði seljendaláns sem Seðlabankinn veitti FIH.
SEÐLABANKASTJÓRI Seljendalánið er vistað inni í Eignasafni Seðlabanka Íslands
(ESÍ), dótturfélagi Seðlabankans. Már Guðmundsson er stjórnarformaður ESÍ.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
FIH bankinn var í eigu Kaupþings fyrir bankahrun. Öll hlutabréf hans voru
sett að veði fyrir 500 milljóna evra (81 milljarðs króna) neyðarláni frá Seðla-
banka Íslands 6. október 2008. Lánið átti upphaflega að vera til fjögurra daga.
Áður en það endurgreiddist féll Kaupþing og Seðlabankinn gekk að veðinu.
Seðlabankinn hefur einungis endurheimt um helming þeirrar fjárhæðar sem
hann lánaði enn sem komið er.
Matsfyrirtækið Moody’s lækkaði í október síðastliðnum lánshæfiseinkunn
FIH úr Ba2 í B1 með neikvæðum horfum. Við það færðist bankinn neðar í
hinum svokallaða ruslflokki auk þess sem hann er á athugunarlista Moody’s.
Matsfyrirtækið hefur áhyggjur af því að hann geti ekki endurfjármagnað um
1.100 milljarða króna lán og ábyrgðir á skuldabréfum sem hann fékk frá
danska ríkinu sem hluta af björgunarpakka þess fyrir þarlent fjármálakerfi.
Lánin og skuldabréfin eru á gjalddaga frá ágúst 2012 til júní 2013. Heildar-
eignir bankans nema 1.836 milljörðum króna.
Tóku FIH sem veð fyrir neyðarláni
til Kaupþings
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
11°
-6°
-7°
-1°
-4°
-8°
-2°
-2°
18°
0°
8°
3°
22°
-10°
-2°
13°
-3°Á MORGUN
8-13 m/s en víðar
hvassara síðdegis.
MÁNUDAGUR
5-10 m/s en 8-15 N-til.
2
-1
2
0
1
2
-2
2
4
5
3
6
7
8
8
7
9
7
8
5
8
8
4
4
5
6
6
2
2
3
3
5
STÖKU ÉL VESTRA
Fínasta veður á
landinu í dag en
hins vegar nálgast
okkur lægð úr
suðvestri og í kvöld
verður komin stíf
sunnanátt sunnan
og vestan til og
þykknar upp.
Slydda í fyrstu og
síðan rigning í
nótt með heldur
hlýnandi veðri til
morguns.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
GENGIÐ 10.02.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
221,9666
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
121,90 122,48
192,94 193,88
161,55 162,45
21,733 21,861
21,165 21,289
18,316 18,424
1,5674 1,5766
189,10 190,22
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-
5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Aðalfundur FEB árið 2012
Aðalfundur Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni
verður haldinn föstudaginn 17. febrúar nk. í félags-
heimilinu að Stangahyl 4. Dagskrá fundarins verður í
aðalatriðum sem hér segir:
1. Skýrsla stjórnar fyrir árið 2011.
2. Endurskoðaðir ársreikningar félagsins fyrir árið 2011.
3. Tillaga um lagabreytingar og greidd atkvæði um þær.
4. Kosning fimm aðalmanna og tveggja varamanna í stjórn.
- Kaffihlé.
5. Umræður og afgreiðsla tillagna og ályktana.
6. Úrslit kosninga kynnt.
7. Önnur mál.
Fundurinn verður, sem fyrr segir, föstudaginn 17. febrúar og
hefst kl. 13:00 en húsið opnar kl. 12:30. Félagsmenn eru
hvattir til að fjölmenna og taka með sér félagsskírteini fyrir
árið 2011.
Stjórnin.
LÖGREGLUMÁL Tveir menn voru
stöðvaðir í nótt þegar þeir
reyndu að lauma sér um borð í
skip í Sundahöfn. Mennirnir eru
erlendir hælisleitendur. Lögregla
var kvödd á staðinn og handtók
hún mennina. Þeir gistu fanga-
geymslur og voru yfirheyrðir í
gær með aðstoð túlka.
Skipið var á leið til Kanada og
ætluðu mennirnir að komast þang-
að sem laumufarþegar. Slík sigling
tekur nokkra daga en mennirnir
voru illa nestaðir, einungis með
poka af döðlum og hnetum. Þeir
munu áður hafa gert mislukkaða
tilraun af þessu tagi. - sh
Tveir gripnir í Sundahöfn:
Vildu laumast
af landi brott
STJÓRNSÝSLA Umhverfisráðu-
neytið þarf að tryggja að eftirlit
með framkvæmd skuldbindandi
þjónustusamninga sé í samræmi
við ákvæði þeirra. Þá þarf ráðu-
neytið að tengja greiðslur til
viðsemjenda við frammistöðu
þeirra og bæta yfirferð upplýs-
inga sem frá þeim berast.
Þetta er mat ríkisendurskoð-
unar eftir úttekt á öllum gild-
andi þjónustusamningum sem
ráðuneytið hefur gert við aðila
utan ríkisins. Þeir eru við Skóg-
ræktarfélag Íslands og Heklu-
skóga. Eftirlit hefur að mestu
verið í samræmi við ákvæði
samninganna að mati ríkisend-
urskoðunar. - sv
Tveir samningar skoðaðir:
Þarf að tryggja
betra eftirlit