Fréttablaðið - 11.02.2012, Side 8

Fréttablaðið - 11.02.2012, Side 8
11. febrúar 2012 LAUGARDAGUR8 1. Hvað mælist mikið fylgi við Samstöðu, nýtt framboð Lilju Mósesdóttur? 2. Hver verður næsti bæjarstjóri í Kópavogi? 3. Nafn hvaða hljómsveitar ber rauðvín sem ÁTVR vill ekki prófa að selja? SVÖRIN 1. Tuttugu og eitt prósent. 2. Ármann Kr. Ólafsson. 3. Motörhead. FINNLAND Grunur leikur á að þrír Búlgarar, sem handteknir voru í Karleby í Finnlandi í haust, hafi afritað bankakort þúsunda Finna. Þegar mennirnir voru hand- teknir voru þeir með fjögur afritunartæki sem voru hönn- uð fyrir sérstaka tegund hrað- banka. Samkvæmt upplýsingum finnsku lögreglunnar voru Búlgararnir búsettir í Svíþjóð en ferðuðust nær daglega til ýmissa staða í Finnlandi frá júlí til september í fyrra. Talið er að þeir hafi afritað kort í að minnsta kosti 25 hrað- bönkum. Búlgörunum tókst að taka út tugi þúsunda evra í Bandaríkj- unum með sviknum kortum. - ibs Búlgarar í svikaleiðangri: Kort þúsunda Finna afrituð REYKJAVÍKURBORG Leggja þarf í ýmsar betrumbætur í Víðidal vegna Landsmóts hestamanna sem þar verður haldið næsta sumar. Borgarráð hefur samþykkt áætlun sem felur meðal annars í sér að tryggja öryggi landsmóts- gesta, almennan umhverfisfrá- gang og snyrtingar á útvistar- svæðinu. Heimild er til að nota allt að 23 milljónum króna í verk- efnið. „Skoðaðir yrðu möguleikar á að hluti vinnunnar yrði samkvæmt verkefninu „Til vinnu“, það er að ráðið yrði fólk af atvinnuleysis- skrá undir verkstjórn og verkstýr- ingu Fáks,“ segir í greinargerð sem lögð var fyrir borgarráð. - gar Átak fyrir hestamannamót: Atvinnulausir starfi fyrir Fák DÓMSMÁL Hálfþrítugur maður hefur í Héraðsdómi Reykjavíkur verið dæmdur í átta mánaða fang- elsi fyrir árás á fyrrverandi sam- býliskonu sína. Þau höfðu fyrr um daginn slitið sambandi sínu og var konan komin á heimili manns- ins til að sækja eigur sínar. Maðurinn er fundinn sekur um að hafa hrækt framan í hana, tekið hana hálstaki og slengt henni í gólfið og utan í vegg. Hún tognaði og hlaut heilahristing og ýmsa yfirborðsáverka. Móðir konunnar ber að hún hafi verið óvinnufær eftir árásina, döpur og hrædd en ekki lífsglöð eins og áður. Maðurinn hefur tvívegis áður hlotið dóm fyrir líkamsárásir. - sh Dæmdur fyrir líkamsárás: Hrækti á konu og barði hana MENNING Safnaráð meinaði í gær enskum skartgripakaupmanni að fara úr landi með safn af skeiðum og búningaskart úr silfri. Ráðið tók gripina í sína vörslu og mun nú meta menningarsögulegt gildi þeirra. Maðurinn starfar fyrir breska fyrirtækið P&H Jewellers og hafði keypt gull og silfur hér á landi til bræðslu. „Þegar við rákum augun í auglýsingu frá honum þá óskuðum við eftir fundi með manninum til að fara yfir það hvaða gripi hann væri að fara með,“ segir Rakel Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri safnaráðs. Athugunin hafi leitt í ljós að silfurskeiðasafn, fjögur armbönd, tvær nælur og eyrnalokkar kynnu að teljast slík menningarverðmæti að manninum væri óheimilt að fara utan með góssið, enda kveða lög á um að slíkt sé bannað. „Nú verður óskað eftir formleg- um umsögnum frá sérfræðingum þar sem þeir greina gripina nánar og athuga frá hvaða tíma þeir eru og hversu verðmætir þeir eru fyrir menningarsöguna,“ segir Rakel. Í framhaldi muni safnaráð fjalla um umsagnirnar og ákveða hvort veita skuli leyfi til útflutnings. Rakel segir það ekki oft hafa komið fyrir að útflutningi sé hafnað. Það eru hins vegar ekki bara útlendingar sem kaupa hér gull og silfur til bræðslu. Rakel segir að fólk sé hrætt um að innlendir aðil- ar hafi þegar keypt merkar minj- ar og eyðilagt. „Það er vissulega ástæða til að hafa áhyggjur af því að eitthvað af okkar menningar- auði hafi endað hér í bræðslu,“ segir hún. Það sé hins vegar ekki Safna- ráðs að fylgjast með því heldur Þjóðminjasafnsins, segir Rakel. „Ég veit að Þjóðminjasafnið hefur verið í sambandi við gullsmiði og átt gott samstarf við þá. Ég veit að þau vilja treysta þessu fagfólki til að þekkja muninn á einhverju sem er mjög dýrmætt og öðru sem skiptir kannski ekki mjög miklu máli.“ Rakel segir að enn fremur sé Safnaráð í samstarfi við tollstjóra- embætti á landinu öllu um eftirlit með skarti sem flutt er úr landi. Ekki hafi hins vegar komið til þess að tollurinn hafi stoppað neitt. „Maður gerir ráð fyrir að það sé alveg heilmikið sem hefur sloppið,“ segir hún. stigur@frettabladid.is Óttast að verðmætar minjar endi í bræðslu Safnaráð tók skeiðar og skart úr silfri af breskum kaupmanni sem hugðist fara með góssið úr landi. Nú verður metið hvort um dýrmætar menningarsögulegar minjar sé að ræða. Sérfræðingar óttast að slíkir hlutir séu bræddir hérlendis. MISVERÐMÆTT Sumt skartið sem maðurinn hugðist flytja úr landi reyndist ekki hafa menningarsögulegt gildi og var honum leyft að flytja það hvert sem var. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA VEISTU SVARIÐ?
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.