Fréttablaðið - 11.02.2012, Page 19

Fréttablaðið - 11.02.2012, Page 19
LAUGARDAGUR 11. febrúar 2012 19 Það er dapurleg staðreynd að fjöldi barna í heiminum í dag verður fyrir kynferðislegu ofbeldi, þ.m.t. á Íslandi. Sam- kvæmt upplýsingum frá Evrópu- ráðinu benda rannsóknir til þess að eitt af hverjum fimm börnum verði fyrir kynferðislegri áreitni eða kynferðislegu ofbeldi á æsku- árum sínum. Hér er um að ræða svívirðilega glæpi sem hafa í för með sér líkamlegar og andlegar þjáningar fyrir börnin sem fyrir þeim verða. Afleiðingarnar eru öryggisleysi og skömm, sem því miður fylgir enn þolendum kynferðisbrota en ætti með réttu aðeins heima hjá þeim sem ofbeldinu beita. Brotin fela í sér grófustu tegund mann- réttindabrota sem ekki má láta kyrr liggja. Sem betur fer hefur þagnarmúrinn kringum þessa glæpi hrunið smátt og smátt á síð- ustu áratugum. Það er þó ekki nóg að þolendur geti sagt frá, heldur verður samfélagið að vera vel vopnað í baráttunni gegn þessum hroðaverkum. Sögulegur samningur Hlutur Íslands má ekki liggja eftir í að uppræta ofbeldi gegn börnum. Fyrir skömmu lögðum við því fram tillögu á Alþingi þar sem lagt var til að Íslend- ingar fullgiltu mikilvægan Evr- ópuráðssamning um vernd barna gegn kynferðislegri misneytingu og misnotkun og um leið frum- varp að lagabreytingum til að tryggja framkvæmd samnings- ins. Samningurinn, sem kenndur er við Lanzarote, var gerður árið 2007. Tilgangurinn með honum er þríþættur: Í fyrsta lagi er markmiðið að koma í veg fyrir og berjast gegn kynferðislegri misneytingu og kynferðislegri misnotkun á börn- um. Í öðru lagi að vernda réttindi barna sem verða fyrir kynferðis- legu ofbeldi. Síðast en ekki síst er ætlunin að efla samstarf í barátt- unni gegn kynferðislegum glæp- um gegn börnum hjá hverri þjóð og á alþjóðavettvangi. Samningurinn er mjög yfir- gripsmikill og markar tímamót. Með honum bindast ríki böndum í baráttunni gegn ofbeldi gegn börnum en sú barátta getur ekki verið bundin við landamæri. Ekki er þó einvörðungu kveðið á um hvaða háttsemi skuli teljast refsi- verð heldur fjallar samningurinn einnig um forvarnir, stuðning fyrir börn sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi og meðferð kyn- ferðisbrotamanna. Ofbeldi um spjallrásir Samningurinn leggur þannig til leiðir til þess að berjast gegn kynferðislegu ofbeldi gegn börn- um í hefðbundnum skilningi en einnig gegn barnavændi, barna- klámi og ferðaþjónustu sem bein- ist að kynferðislegri misnotkun barna. Hann skapar enn fremur grundvöll til að sporna við því þegar fullorðnir einstaklingar falast af ásettu ráði eftir börnum t.d. á spjallrásum í kynferðisleg- um tilgangi eða láta börn vísvit- andi verða vitni að kynferðislegri misnotkun eða kynferðislegum athöfnum. Samningurinn er hinn fyrsti þar sem sett er fram krafa um að sett verði í refsilög ákvæði gegn misnotkun barna í ýmsum mynd- um, þ.m.t. þegar slík misnotkun á sér stað inni á heimili barns eða innan fjölskyldu þess. Hann legg- ur áherslu á forvarnir og að menn, sem óttast að þeir geti framið eitt- hvert þeirra brota sem lýst eru refsiverð samkvæmt samningn- um, geti leitað sér aðstoðar til þess að koma í veg fyrir það. Sú skylda er lögð á herðar aðildar- ríkjanna að standa að vitundar- vakningu um réttindi barna og hvað bendi til þess að barn geti verið þolandi ofbeldis. Jafnframt gerir hann ráð fyrir fræðslu fyrir börnin sjálf. Refsilögsaga nær til útlanda Samningurinn hefur enn fremur að geyma ákvæði varðandi nýja tegund ofbeldis eins og kynferð- islega misneytingu og misnotkun barna fyrir tilstilli upplýsinga- og samskiptatækni en því hafa aðrir alþjóðasamningar ekki tekið á. Hann tekur einnig á framsækinn hátt á því ógnvænlega vandamáli sem ferðaþjónusta tengd misnotk- un barna er með því að kveða á um að hver samningsaðili skuli fella undir refsilögsögu sína öll brot sem framin eru erlendis af ríkisborgara hans, eða einstak- lingi sem hefur fasta búsetu á yfirráðasvæði hans – jafnvel þótt brotið sé ekki refsivert sam- kvæmt lögum þess ríkis þar sem brotið er framið. Það er mjög brýnt að laga- rammi ríkja sé þannig gerður að hann veiti börnum eins ríka vernd og hugsanlega er unnt. Í því tilliti getur alþjóðasamstarf haft veiga- mikil áhrif. Samningurinn sem hér um ræðir sker upp herör gegn kyn- ferðislegu ofbeldi gegn börnum og íslensk stjórnvöld láta ekki sitt eftir liggja. Sem betur fer hefur þagnarmúrinn kringum þessa glæpi hrunið smátt og smátt á síðustu áratugum. Vernd barna gegn kynferðislegum glæpum Kynferðislegt ofbeldi Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra arionbanki.is – 444 7000 Fræðslufundir og námskeið Arion banka Fjármálafræðsla fyrir þig Arion banki beitir sér fyrir bættu fjármálalæsi og hefur bankinn staðið að fjölda námskeiða sem þúsundir viðskiptavina hafa sótt sér að kostnaðarlausu. Námskeið í febrúar Meniga Þriðjudagur, 14. febrúar Háskólinn í Reykjavík SMART markmið í fjármálum Fimmtudagur, 16. febrúar Borgartún 19 Meniga Fimmtudagur, 23. febrúar Verkmenntaskólinn á Akureyri Greiðslur úr lífeyrissparnaði Þriðjudagur, 28. febrúar Borgartún 19 Nánari upplýsingar og skráning á arionbanki.is eða í síma 444 7000. Hvaða fjármálafræðslu vilt þú fá? Sendu okkur ábendingu um það hvaða fjármálafræðslu þú vilt fá á arionbanki.is/fraedsla Arion banki er aðalbakhjarl Stofnunar um fjármálalæsi.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.