Fréttablaðið - 11.02.2012, Qupperneq 22
22 11. febrúar 2012 LAUGARDAGUR
Fimmtudaginn 12. jan. sl. varð áhugaverð uppákoma í bæjar-
ráði Kópavogs. Þá ákvað bæjar-
ráð að hafna erindi Leikskóla-
nefndar með 4 atkvæðum gegn
1. Formaður (S) og varaformað-
ur bæjarráðs (VG) ákváðu án
samráðs við meirihluta sinn í
bæjarstjórn að sameinast minni-
hlutanum (D) og hafna erindi frá
meirihlutanum sem á 3 fulltrúa í
Leikskólanefnd, formaður er frá
VG og Sjálfstæðisflokkur á þar
tvo fulltrúa.
Nefndin samþykkti á fundi
sínum erindi til bæjarráðs sem
varðar vinnutilhögun við inn-
leiðingu námsskrár á yngsta
skólastiginu. Sjálfstæðismenn í
bæjarráði, Gunnar Birgisson og
Ármann Kr. Ólafsson, voru hins
vegar mótfallnir erindinu og bók-
uðu sérstaklega um það í fundar-
gerð bæjarráðs.
Þá kemur að hinu áhugaverða í
þessari uppákomu. Oddviti Sam-
fylkingar og formaður bæjar-
ráðs, Guðríður Arnardóttir, og
fulltrúi Vinstri grænna, vara-
formaður bæjarráðs, Ólafur
Þór Gunnarsson, ganga skyndi-
lega til liðs við minnihluta bæj-
arráðs, búa til meirihluta með
Sjálfstæðis flokknum um þetta
einstaka mál og skilja fulltrúa
NæstBestaFlokksins, þann sem
þetta ritar, eftir einan í minni-
hluta; þar sem mér virtist erindið
vera ódýrasti og skynsamlegasti
kosturinn í stöðunni ákvað ég að
samþykkja það.
Uppákoma af þessu tagi er
nokkuð sérstök en þó ekki eins-
dæmi. Nokkrum sinnum hefur
meirihluti bæjarráðs hafnað
afgreiðslu úr nefnd frá sínum
eigin meirihluta. Undirritað-
ur hefur þó aldrei stundað slík
vinnubrögð. Það má samt telj-
ast einstakt að meirihluti verði
að minnihluta með svo afgerandi
hætti.
Þegar fundargerð bæjarráðs
frá 12/1 var tekin til afgreiðslu
í bæjarstjórn 24/1 ákvað fundur-
inn eftir fortölur fundarmanna
að vísa málinu aftur til bæjar-
ráðs. Töldu þá oddviti Samfylk-
ingar og Vinstri grænna að um
misskilning hefði verið að ræða,
báru fyrir sig þekkingar- og
reynsluleysi, lögðu til að úr yrði
bætt og málið tekið aftur fyrir.
Meirihlutinn kom til sjálfs sín og
hætti að vera í meirihluta með
minnihlutanum og minnihlutinn,
Sjálfstæðisflokkurinn, varð aftur
að minnihluta og ákvað í þetta
sinn að hafa ekki skoðun á mál-
inu lengur og sat hjá. Niðurstaða
er ekki fengin í erindi Leikskóla-
nefndar nú fjórum vikum frá því
erindið var lagt fram. Skilvirk
stjórnsýsla.
Meirihlutinn ræður, sagði mað-
urinn og konan. Það er ábyrgð
okkar og skylda að mynda starf-
hæfan meirihluta í bæjarstjórn,
gott og vel, en þegar vinnubrögð-
in eru á þessa lund veltir maður
því fyrir sér hvort það sé yfirleitt
hægt eða nauðsynlegt.
Uppákoman í bæjarráði 12/1
var ekki eina óvenjulega upp-
ákoman þann daginn. Það kann
að vera tilviljun en sama dag
boðar formaður bæjarráðs, Guð-
ríður Arnardóttir, fulltrúa meiri-
hlutans á fund með skömmum
fyrirvara.
Þar tilkynnti hún að Samfylk-
ingin styddi ekki lengur bæjar-
stjórann og undir þetta tók odd-
viti Vinstri grænna. Þá var
stungið upp á því að Guðríður
Arnardóttir tæki við starfi bæj-
arstjóra. Málefni bæjarstjórans í
þessu samhengi höfðu ekki verið
rædd síðan í september á síðasta
ári og þá tók oddviti Samfylking-
ar af allan vafa um það að hann
sæktist ekki eftir þessu embætti,
þannig að þetta voru sannarlega
óvænt tíðindi. Mér var nokkur
vandi á höndum. Ef ég styddi
ekki þessa ákvörðun væri sjálf-
hætt fyrir mig í meirihlutasam-
starfinu. Eftir nokkra umræðu
óskaði ég eftir því að fá að ræða
við mitt samstarfsfólk í Næst-
BestaFlokknum áður en endan-
legar ákvarðanir yrðu teknar.
Næsti fundur meirihlutans
var ákveðinn sunnudaginn 15.
jan. Ákvörðun Samfylkingar og
Vinstri grænna lá hins vegar
fyrir og varð ekki haggað. Bæj-
arstjórinn naut ekki stuðnings
þeirra og því ljóst að ekki var
meirihluti fyrir því að hann héldi
áfram störfum. Það sem hins
vegar var ekki tekin ákvörðun
um, var hvernig skyldi að þessu
staðið. Það sem gerist síðan í
framhaldinu vil ég kalla hreint
klúður sem Guðríður Arnardótt-
ir, oddviti Samfylkingar, og Ólaf-
ur Þór Gunnarsson, fulltrúi VG,
bera fulla ábyrgð á. Þau höfðu
frumkvæðið og sáu um fram-
kvæmdina.
Það ber heldur ekki gott vitni
um samstöðu innan meirihlutans
þegar einum fulltrúa af sex er
haldið utan við stórar ákvarðana-
tökur um leið og lagt er á ráðin
að losna við þann hinn sama úr
meirihlutasamstarfinu. Undirrit-
aður lítur ekki svo á að hann hafi
„sprengt“ meirihlutann. Þetta var
sjálfsíkveikja sem fulltrúar Sam-
fylkingar og Vinstri grænna bera
fyrst og fremst ábyrgð á.
Þetta er nú rakið hér í stuttu
máli til að benda á ótvíræða galla
hins svokallaða meirihlutafyrir-
komulags í bæjarstjórn. Mun vit-
legra er að vinna að undirbúningi
mála á samstarfsvettvangi allra
flokka og síðan þegar kemur að
afgreiðslu mála getur hver og
einn bæjarfulltrúi tekið skyn-
samlega og upplýsta ákvörðun
og greitt atkvæði í ljósi þess. Því
fylgir töluverð vinna og ábyrgð að
gegna trúnaðarstörfum fyrir sitt
sveitarfélag. Eðlilegast þætti mér
að deila þeirri ábyrgð til allra
þeirra framboða sem hljóta kjör.
Vald bæjarfulltrúa kemur frá
fólkinu, íbúum bæjarins. Þeirra
ábyrgð og skylda er að vinna af
heilindum fyrir fólkið. Þeir verða
að setja hagsmuni einstaklinga
og flokka til hliðar og axla þá
ábyrgð sem þeir eru kjörnir til.
Meirihlutinn ræður
Stjórnmál
Hjálmar
Hjálmarsson
fulltrúi Næstbesta
flokksins og forseti
bæjarstjórnar í
Kópavogi
Það ber heldur ekki gott vitni um samstöðu innan meirihlutans þegar
einum fulltrúa af sex er haldið utan við stórar ákvarðanatökur um leið
og lagt er á ráðin að losna við þann hinn sama úr meirihlutasamstarfinu.
Undirritaður lítur ekki svo á að hann hafi „sprengt“ meirihlutann. Þetta var sjálfs-
íkveikja sem fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna bera fyrst og fremst ábyrgð á.
-kr.900.verðlækkun