Fréttablaðið - 11.02.2012, Page 29

Fréttablaðið - 11.02.2012, Page 29
LAUGARDAGUR 11. febrúar 2012 29 Viðskiptaþing 2012 Hvers virði er atvinnulíf? Miðvikudaginn 15. febrúar 2012 á Hilton Reykjavík Nordica VIÐSKIPTARÁÐ ÍSLANDS ICELAND CHAMBER OF COMMERCE Skrán ing fer fra m á www. vi.is Sameiginlegur vettvangur íslensks viðskiptalífs í 95 ár 1917-2012 Áætlun um verðmætasköpun og lífskjör Húsið opnar kl. 13:30 og þingið er sett kl. 13:45. Kaffihlé verður kl. 14:35, auk þess sem boðið verður upp á léttar veitingar í lok þings kl. 16:20. Ræða formanns Viðskiptaráðs Tómas Már Sigurðsson Hvers virði er sérstaða Íslands? Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar Útnefning heiðursfélaga Katrín Pétursdóttir Afhending námsstyrkja Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra Hvers virði er gagnaver? Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania Hvers virði er ný flugleið? Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair Hvers virði er hönnun? Hugrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri Kron Hvers virði er makríll? Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja náttúruperlur landsins, oft sömu staðir sem eru til umfjöllun- ar í áðurnefndri rammaáætlun. Hægt er að fá nánari umfjöllun um þá með því að smella á tákn, fróðleikur og myndir birtast þá á skjánum. „Okkur hefur alltaf fundist skorta upplýsingar um þá staði sem eru í umræðunni sem mögulegir virkjanastaðir. Og reyndar hefur stundum verið eins og minnst þekkta örnefnið sé vísvitandi valið til að villa um fyrir fólki. Kárahnjúkavirkjun til dæmis hefði átt að heita Snæ- fellsvirkjun eftir mest áberandi kennileitinu á svæðinu. En kort- ið á að bæta úr þessum ruglingi og er mikið samvinnuverkefni fólksins í Framtíðarlandinu,” segir Andri Snær og bætir við að eflaust hefði vinnan við vefinn kostað tugi milljóna ef hann hefði verið settur upp í launavinnu. „Markmiðið er að fólk geti feng- ið heildarsýn yfir verðmætin sem felast í náttúru Íslands og verið meðvitað um þau átök sem þessi auðlind okkar er,“ segir María. Kárahnjúkar misheppnuð fjár- festing Kárahnjúkavirkjun er sláandi dæmi um hve misheppnað það getur verið að fjárfesta í virkjun- um, hvernig sem á það er litið að mati þeirra Andra Snæs. „Alcoa ætti vitanlega að borga miklu meira fyrir orkuna en fyrirtæk- ið gerir. Ef reiknaður er út allur kostnaður við rekstur verksmiðj- unnar þá kemur í ljós að hagn- aður fyrirtækisins er upp á 40 til 50 milljarða á ári og þeir eiga eftir að borga upp verksmiðjuna sína á tveimur til þremur árum. Landsvirkjun á hins vegar eftir að fá sína fjárfestingu til baka á 40 árum í fyrsta lagi. Skiptin eru algjörlega fáránleg,“ segir Andri Snær. „Og þá erum við ekki farin að fjalla um hversu siðferðislega rangt það er að eyða 90 prósentum af lífríki Lagarfljótsins,“ bætir hann við. „Það er líka athyglisvert að okkur finnist sjálfsagt að drepa einn stærsta sjálfbæra laxastofn í heimi eins og gert verður ef Urr- iðafossvirkjun verður sett á lagg- irnar, þar koma 10.000 laxar á land ár hvert.“ Upplýsingamiðlun er því sem fyrr sagði afar mikilvæg. Og Framtíðarlandið er tilbúið að blása í lúðrana eftir nokkur ár sem það hefur farið frekar hljóð- lega. „Við höfum starfað sleitu- laust frá árinu 2006, haldið landshlutaþing um hugmyndir og nýsköpun, boðið hingað erlendum fyrirlesurum, verið með umræðu- fundi um mikilvæg samfélagsmál en stundum erum við neðanjarðar og svo birtumst við á yfirborðinu þess á milli. Við áttum til dæmis þátt í því að búa til þjóðfundinn 2009 sem hefur leitt af sér fjöl- marga aðra þjóðfundi þar sem viska fjöldans og hugmyndir fá að blómstra, en þátttaka okkar var aukaatriði í samanburði við það að fólkið í landinu steig þarna fram. Okkar takmark er að fóstra verðmæti Íslands, með einum eða öðrum hætti og vera hugmynda- veita um samfélagslega nýsköp- un,“ segir María. Þarf ekki að virkja meira Frekari virkjanir eru ekki sam- félagsleg nýsköpun segja þau og leggja áherslu á að það þurfi ekki og eigi ekki að virkja meira. „Okkar kynslóð er búin með kvót- ann, svo einfalt er það. Það þarf ekki að virkja meira og jafnvel þó að orkugjafar fyrir bíla myndu breytast þá er næga orku að hafa hér nú þegar. Það er til dæmis hægt að sækja orku sem samsvar- ar hálfri Kárahnjúkavirkjun inn á kerfið okkar með því að breyta um tæki og búnað. Svo væri auð- vitað hægt að endursemja við stórfyrirtækin. Punkturinn er sá að ef að við, sem veiðum tvö pró- sent af öllum fisk í heiminum og öflum fimm sinnum meiri orku en við þurfum, getum ekki lifað góðu lífi af þessum auðlindum þá er jörðin óbyggileg. Við verðum að finna leiðir til þess að nýta það sem við höfum,“ segir Andri Snær að lokum. Á nýjum vef Framtíðarlandsins er að finna Náttúrukortið, kort sem veitir yfirsýn yfir þau svæði á Íslandi sem fyrirhugað er að nýta til orkuframleiðslu eða raska á annan hátt. Tekið er mið af niðurstöðum annars áfanga rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða með áherslu á vatnsafl og jarðhita- svæði en það eru iðnaðarráðuneytið og umhverfisráðuneytið sem hafa unnið að þessari útlistun nýtanlegra auðlinda. Í rammaáætlun eru til umfjöll- unar 80 virkjunarhugmyndir sem raðast í þrjá flokka, verndarflokk, sem hefur að geyma þau svæði sem ber að vernda, nýtingarflokk, þar sem þau svæði sem má virkja eru og biðflokk, en í hann falla svæði sem skoða þarf betur áður en ákvörðun um vernd eða nýtingu er tekin. „Til að skapa heildarsamhengi bætir Framtíðarlandið svo við flokknum virkjað sem felur í sér svæði sem þegar hafa verið virkjuð að hluta eða öllu,“ segir á vef Fram- tíðarlandsins, www.framtidarlandid. is. ■ YFIRSÝN MEÐ NÁTTÚRUKORTI NÁTTÚRUKORTIÐ Upplýsingar, myndir og greinar um náttúrusvæði á Íslandi er að finna á Náttúrukorti Framtíðarlandsins. „Mark- miðið er að fólk geti fengið heildarsýn yfir verðmætin sem felast í náttúru Íslands,” segir María Ellingsen.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.