Fréttablaðið - 11.02.2012, Qupperneq 32
11. febrúar 2012 LAUGARDAGUR32
LÍF Í SÁTT OG SAMLYNDI VIÐ UMHVERFIÐ
UMHVERFISVÆNIR LÍFSHÆTTIR:
Matvæli
L
ífræna l ífsstí l inn
uppgötvaði ég 16 ára
gömul, í litlu eldhúsi
fyrrum tengdamóður
minnar í heimabænum
mínum, Keflavík. Hún
fór reglulega til Reykjavíkur til
að kaupa voðalega sérstakan mat
og hreinlætisvörur í brúnum bréf-
poka merktum Yggdrasil. Í fyrstu
skildi ég ekki í þessu en þegar hún
sagði mér frá því hvernig hefð-
bundinn matur er búinn til fékk
ég hálfgert áfall. Ég hef ég ekki
getað snúið við síðan,“ segir líf-
ræni bloggarinn Sirrý Svöludótt-
ir. Í dag gegnir hún stöðu mark-
aðsstjóra þessa fyrirtækis með
brúnu bréfpokana, Yggdrasils,
sem er heildsala og verslun með
heilnæmar vörur. „Ég er algjör-
lega meðvituð um hvað ég set ofan
í mig. Ég myndi ekki vilja fara í
gegnum lífið í blindni, vonandi að
öll þau eiturefni sem eru í kring-
um okkur hafi ekki skaðleg áhrif á
mig. Ég vil reyna að takmarka þau
eins og ég get til að auka líkurn-
ar á að ég og fjölskyldan lifi heil-
brigðari lengur. Ég vil líka reyna
að gera mitt besta til að gera vel
við náttúruna og umhverfið.“
Sirrý hefur bæði hagsmuni
sína og náttúrunnar að leiðarljósi
þegar hún velur lífrænt. „Lífræn
ræktun byggist á því að framleiða
hágæða matvæli án þess að skaða
eða menga náttúruna með notkun
tilbúins áburðar eða eiturefna á
borð við skordýraeitur og íblönd-
unarefni sem menga bæði jarð-
veg, grunnvatn og að sjálfsögðu
matinn sem verið er að rækta. Í
lífrænni ræktun eru erfðabreytt-
ar lífverur bannaðar, en sú ræktun
er óumhverfisvæn vegna þess að
hún krefst mun meira skordýra-
eiturs og áburðar en nokkur önnur
ræktun og þar að auki er hún ekki
sjálfbær.“
Hún segist alltaf dragast lengra
inn í lífræna lífsstílinn eftir því
sem hún lærir meira um mat-
vælaiðnaðinn. „Þegar ég byrjaði
að velja lífrænar umfram ólífræn-
ar matvörur var það vegna þess að
ég vildi sniðganga auka- og eitur-
efnin í matnum mínum og borða
meira af heilnæmum mat sem er
ekki búið að blanda með saltlausn-
um, rotvarnarefnum eða vatni til
að þyngja eða fegra. En svo vindur
þessi lífsstíll upp á sig og maður
gerist enn meðvitaðri neytandi. Ég
myndi til dæmis vilja leggja meiri
áherslu á beint frá bónda, en það
er erfitt hér á landi þar sem lítil
sem engin áhersla er hjá stjórn-
völdum á að efla lífræna ræktun á
Íslandi. Ef ég væri markaðsstjóri
fyrir Ísland myndi ég leggja mun
meiri áherslu á að gera Ísland
hið eina sanna græna land, með
áherslu á lífræna ræktun, sjálf-
bærni og umhverfisvænt líf.“
Sirrý segist skynja mikla hugar-
farsbreytingu og aukinn áhuga á
umhverfisvænum lífsstíl. Hún
trúir því að það muni leiða til þess
að aðgengi fólks að heilnæmum
vörum verði fljótlega orðið enn
betra. „Aðgengið á eftir að stór-
batna þegar stórmarkaðir átta
sig á að þessar vörur eiga heima
í almennum hillum en ekki í sér-
stökum heilsuhornum,“ segir hún
bjartsýn að lokum.
Hægt er að forvitnast um Sirrý
og hennar hollu venjur á vefsíð-
unni svoludottir.wordpress.com.
Fer ekki gegnum lífið í blindni
Eftir að hafa komist að því hvernig hefðbundnar matvörur eru búnar til sneri Sirrý Svöludóttir sér að umhverfisvænni neyslu.
Þessi lífræni bloggari sagði Hólmfríði Helgu Sigurðardóttur frá því hvað rekur hana áfram í heilsusamlegu líferninu.
EF ÉG VÆRI MARKAÐSSTJÓRI ÍSLANDS Ef Sirrý Svöludóttir væri markaðsstjóri Íslands
myndi hún leggja áherslu á að gera Ísland hið eina sanna græna land, með áherslu
á lífræna ræktun, sjálfbærni og umhverfisvænt líf. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Það er klárlega bæði meiri áhugi
og þekking á umhverfisvænum
vörum meðal íslenskra neytenda
heldur en var fyrir nokkrum árum.
Við erum samt enn nokkuð á eftir
hinum Norðurlandaþjóðunum.“
segir Brynhildur Pétursdóttir, fulltrúi
Neytendasamtakanna.
Brynhildur ráðleggur neytendum
að leita eftir vottuðum umhverf-
ismerkjum á borð við svaninn en
það er trygging neytandans fyrir
því að varan hafi verið framleidd á
eins umhverfisvænan hátt og kostur
er. Í slíkri vottun felst einnig viss
gæðastimpill.
Fáir íslenskir framleiðendur eru
með lífræna vottun. Íslenskar land-
búnaðarvörur eru sumar hverjar
merktar vistvænum landbúnaði.
Sú merking varð til fyrir um 15
árum, um það leyti sem lífræna
bylgjan var að byrja. Í dag er ekkert
eftirlit með henni og hún getur
því ekki talist gildur gæðastimpill.
Neytendasamtökin hafa aldrei verið
ýkja hrifin af henni. „Okkur hefur
fundist að íslenskir framleiðendur
mættu leggja meiri áherslu á líf-
ræna ræktun, í stað þess að búa til
þetta millistig, sem heitir vistvænt.
Að okkar viti ætti öll hefðbundin
framleiðsla að vera mjög góð. Svo
ætti bara að vera eitt lífrænt merki,
sem allir vita fyrir hvað stendur. Það
er ruglandi fyrir neytendur að hafa
of mörg merki og skilgreiningarnar á
bak við þau verða að vera á hreinu.
Nú er Evrópusambandið búið að
koma sér niður á eitt lífrænt lógó,
og það verður til bóta. Mér sýnist
almennt vaxandi áhugi á lífrænni
ræktun, líka á meðal bænda, og í
Evrópusambandinu er sífellt meiri
áhersla lögð á matvælaframleiðslu í
sátt við umhverfið.“
Brynhildur segir að neytendur
geti fyrst og fremst stuðlað að
bættu umhverfisvænu vörufram-
boði með aukinni meðvitund í
innkaupum. Kaupa vottaðar vörur
þegar þess gefst kostur, svo sem
umhverfismerktar, fair trade eða
lífrænt, og gefa þannig verslunar-
eigendum skilaboð um áhuga sinn.
„Á endanum snýst þetta allt um
framboð og eftirspurn. Verslanir
hafa margar staðið sig vel og eru
flestar komnar með lífræn horn
núna, sem var ekki fyrir nokkrum
árum. Það er líka tilvalið að nýta
afsláttardaga. Ef fólk tekur við sér á
slíkum dögum eru það skýr skilaboð
til verslunarinnar.“
ÍSLENDINGAR ERU EFTIR Á
BRYNHILDUR PÉTURSDÓTTIR Segir
Neytendasamtökin merkja meiri
áhuga og meðvitund meðal neytenda
þegar kemur að umhverfisvernd.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA.IS
1.
Taktu nokkur skref í átt að umhverfisvænni neysluvenjum …
Eitt í einu
Þú gerist varla fullkom-
lega umhverfisvænn neyt-
andi í einni innkaupaferð.
Skiptu út óumhverfisvænni
matvöru sem þú kaupir
venjulega fyrir aðra umhverf-
isvæna í hvert sinn sem þú
verslar inn til heimilisins.
2. 3. Reyndu að kaupa lífræntÞað er ekki til umhverfisvænni
ræktun en lífræn og því er það
besta sem þú getur gert fyrir
náttúruna að velja lífrænt frekar en
annað. Íslendingar geta almennt ekki
stært sig af því að hafa yfirgripsmikla
þekkingu á náttúruvænum fram-
leiðsluaðferðum, en neytendur hér
á landi gera yfirleitt ekki kröfur um
vottaðar vörur. Því þarf að breyta.
4. Og helst líka íslensktSpáðu í hvaðan varan þín kemur.
Kannski þurfti lífræna varan sem þú
varst að kaupa þér að ferðast yfir
hálfan hnöttinn til að komast til
þín. Það er mun betra fyrir jörðina
ef þú velur vöru sem er framleidd
nær þér. Hugsaðu um heildarmynd-
ina og veldu frekar íslenskar vörur, að því
gefnu að gæðin séu góð.
5. Láttu ekki gabbastJafnvel þau stórfyrirtæki sem hafa
hingað til ekki verið þekkt fyrir
umhverfisvernd vilja gjarnan fá sinn
skerf af umhverfisvænu kökunni sem
fer sístækkandi. Sum þeirra kalla vörur
sínar grænar og gefa í skyn á umbúðum
að þær séu umhverfisvænar. Láttu ekki
markaðsbrögð blekkja þig og leggðu viðurkenndar
vottanir á minnið.
Lærðu að lesa
Flestir vildu glaðir tak-
marka inntöku auka-
og eiturefna en vita ekki
hvernig á að þekkja þau.
Ættirðu kannski ekki að forðast mononatríumglútamat?
Eina ráðið við þessu er að læra að lesa innihaldslýsingar.
Smám ferð þú að rata í gegnum frumskóg rotvarnarefna,
litarefna, bindiefna og annarra aukaefna sem þú vilt
forðast.
… og hafðu augun opin fyrir þessum merkjum
Vottað lífrænt
Leitaðu eftir þessu merki ef þú vilt
kaupa íslenska matvöru sem tryggt er
að hafi verið framleidd með lífrænum
aðferðum. Vottun Túns ehf. tekur ekki
tillit til umhverfisáhrifa vörunnar eða
umbúða en gefur til kynna að varan sé
framleidd eftir ákveðnum lífrænum aðferðum.
7. 8.
11. 10. 9.
6. BIO SiegelÞetta er opinbert merki
Þýskalands fyrir lífræna ræktun
og er talsvert algengt á lífrænum
vörum sem til eru hér á landi. Til að
matvara fái að nota BIO-merkið þarf
hún að innihalda í það minnsta 95
prósent lífrænt ræktuð matvæli.
Umhverfismerki ESB
Þetta er merki
Evrópusambandsins fyrir
lífræna ræktun. Nýlega hefur
Evrópusambandið tekið ákvörðun
um að allar lífrænar matvörur
aðildarlanda sambandsins skuli bera þetta merki, sem
ætti að einfalda neytendum valið í hafsjó merkinganna.
Svanurinn
Svanurinn er útbreiddasta
umhverfismerki á Norðurlöndum.
Matvæli eru ekki merkt svansmerkt,
en fjölmargar vörur tengdar matvörum
eru það og því fær hann að fljóta hér
með. Svansmerktar vörur eiga alltaf að
vera í hópi þeirra umhverfisvænstu á markaðnum.
Rainforest Alliance
Rainforest Alliance eru óháð
samtök með þau meginmarkmið
að varðveita líffræðilegan fjöl-
breyti leika, sporna gegn eyðingu
skóga og stuðla að sjálfbærni.
Rainforest Alliance merkið má til
dæmis sjá á kaffi, bönunum og tei.
Fair Trade
Merkið á að tryggja að
smáframleiðendur og
smábændur frá vanþróuðum
ríkjum fái sanngjarnt verð fyrir
vöru sína. Einnig er lögð áhersla á
að vinna gegn hvers kyns misrétti,
vinna á móti barnaþrælkun, hvetja
til lífrænnar ræktunar og stuðla að sjálfbærni.