Fréttablaðið - 11.02.2012, Síða 34
11. febrúar 2012 LAUGARDAGUR34
M
ér þykir ákaflega vænt
um að Þjóðleikhúsið skyldi
sýna mér áhuga og hafa
fylgst með störfum mínum
erlendis, segir Þór Breið-
fjörð, leikari og söngvari, þar sem við sitj-
um á gangi í starfsmannaaðstöðu Þjóð-
leikhússins með kaffi í krúsum og litlar
piparkökur að maula. Þór er nefnilega að
æfa aðalhlutverkið í söngleiknum Vesaling-
unum eftir Victor Hugo sem frumsýndur
verður í byrjun mars. Hann kveðst hafa
farið í áheyrnarprufur eins og hver annar,
enda sé um marga sterka söngvara að ræða
í landinu.
Þór þekkir verkið vel, söng í Vesaling-
unum í tvö ár á West End í London og fór
auk þess með sýninguna um Skandinavíu
með öðrum norrænum söngvurum. „Í heild
á ég um 1.000 sýningar að baki í Vesaling-
unum í fimm mismunandi hlutverkum. En
Jean Valjean er draumahlutverkið. Victor
Hugo, höfundur Vesalinganna, er Halldór
Laxness Frakka og Jean Valjean er á pari
við Jón Hreggviðsson í Íslandsklukkunni,“
segir Þór sem telur verkið kallast vel á við
samtímann með öllum sínum byltingum,
þótt það gerist á fyrri hluta 19. aldar. „Við
erum með frábæran texta sem Friðrik Erl-
ingsson rithöfundur hefur umort og er með
orðum og línum sem ná beint til hjartans,“
segir hann. „Leikmyndin er líka ákaflega
frumleg og ég held að opnunaratriðið eigi
eftir að verða stórbrotið og enn meira spenn-
andi en á West End. Hér er mikill metnaður
af allra hálfu, orka og gleði. Við erum eins
og krakkar í nammibúð.“
Þór ólst upp í Reykjaskóla í Hrútafirði þar
sem faðir hans var kennari. Hann hóf tón-
listarferilinn á að læra á klassískt píanó og
þrettán ára var hann kominn í skólahljóm-
sveit. „Marinó Björnsson smíðakennari
spilaði í dansbandi og hjá honum lærði ég
hljóma. Þá opnaðist fyrir mér heimur popps-
ins,“ rifjar hann upp.
Sextán ára settist Þór í Ármúlaskólann
eins og margt utanbæjarfólk. „Það var mjög
fínt fyrir mig að fara í Fjölbraut í Ármúla,“
segir hann. Ég tók bæði mála- og náttúru-
fræðibraut því ég gat ekki valið á milli en
gekk vel að læra, auk þess var ég að vinna
í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi og í
hljómsveit í skólanum. Við í FÁ vorum með
Hótel Ísland sem okkar hátíðasal, þannig að
án þess að ég vissi af fékk ég mikla þjálf-
un í að koma fram. Við hituðum upp fyrir
Síðan skein sól og Sálina hans Jóns míns og
einu sinni var ég í dúettinum Strandamenn
sem söng Beach Boys lög. Það er til mynd af
okkur í Sálarjökkum að ofan og Bermúda-
stuttbuxum að neðan. Verst að hún er eigin-
lega ónýt.“
Þór var einn þeirra sem sungu í Hárinu
1994 ásamt mörgum öðrum sem þá voru að
stíga sín fyrstu skref á frægðarbrautinni,
Margréti Eir, Hilmi Snæ, Emilíönu Torrini,
Pétri Erni, Ingvari E. Sigurðssyni, Margréti
Vilhjálms, Matthíasi Matthíassyni, Baltasar
Kormáki og fleirum. „Við vorum krakkarn-
ir í Hárinu, alveg þrusuhópur,“ segir hann
brosandi. „Í framhaldinu var mér boðið að
syngja í Súperstar á móti Stebba Hilmars.“
En hvernig skyldi Þór hafa komist að á
West End? „Ég var farinn að hugsa út á við
og láta mig dreyma. Byrjaði samt á að fara
í líffræði því ég er svona í endanum á þeirri
kynslóð sem fannst músík ekki vera alvöru
vinna. Þegar ég frétti af postgratuade námi
í Arts Educational London Schools, sem er
einn af stærstu leiklistarskólunum í Lond-
on, sótti ég um með vídeói og fékk pláss.
Þar gat ég verið bæði í leiklistar- og söng-
leikjadeild. Á þessum tíma var ég búinn að
kynnast konunni minni, Hugrúnu Sigurðar-
dóttur, og við ákváðum að skella okkur út.
Á West End fékk ég inni í Súperstar, eftir
geðveikt inntökupróf þar sem milljón manns
mætti og tók númer. Ég var búinn að bíða
allan daginn með nóturnar mínar og fékk
svo bara að taka átta takta úr laginu sem ég
ætlaði að syngja til að heilla dómendurna.
Ég tók eitthvað úr Súperstar og endaði sem
einn af lærisveinunum. Þá fékk ég umboðs-
mann og allt fór að rúlla svo ég var samfelld
ellefu ár á West End og víðar. Strákurinn
okkar, hann Kristinn, fæddist 1998. Þá var
ein sýning eftir af Súperstar og vika í að ég
byrjaði í Vesalingunum. Reyndar fæddist
hann svo fljótt að ég þurfti að taka á móti
honum á heimili okkar, en það er önnur og
lengri saga.“
Litla fjölskyldan bjó í fallegu ensku
sveitaþorpi með gömlum kirkjum, að sögn
Þórs. „Það var yndislegt að vera þarna en
fólkið okkar heima var farið að toga. Samt
langaði okkur í smá meiri ævintýri áður en
við færum heim. Ég kynntist upptökustjóra
í Kanada sem var hrifinn af tónlistinni sem
ég var að búa til svo við fluttum til Kan-
ada og keyptum hús í Nova Scotia með átta
hekturum í kring og breiðri á með silungi og
laxi. Þetta var svona Johnny Cash fílingur.
Ég gerði plötuna Running Naked sem var til-
nefnd til ECMA verðlauna og mér var boðið
að spila á ýmsum stöðum. Við höfðum það
mjög gott, fengumst við þýðingar líka en
söknuðum reyndar leikhússins, því þarna
er lítil leikhúsmenning. Maður sér hvað
Reykjavík er ótrúleg borg í samanburði
við til dæmis Halifax þar sem er bara eitt
atvinnuleikhús sem er auk þess mikið með
farandsýningar.“
Ástæðuna fyrir flutningnum heim til
Íslands í ágúst 2010 segir Þór hafa verið
heimþrá. „Við Hugrún viljum líka að sonur
okkar alist upp sem Íslendingur. Áttuðum
okkur á því að þegar hann væri orðinn tán-
ingur færi hann að festast meira úti. Við
hlökkum til að fara með hann um land-
ið, bæði akandi og gangandi. Okkur finnst
hann þurfa að læra hver okkar arfleifð er
og tala íslensku eins og innfæddur þó að
hann sé fæddur erlendis. Það gengur vel.
Hann er í frábærum bekk í Kópavogsskóla,
er hamingjusamur og elskar Ísland þannig
að í augnablikinu njótum við þess öll að vera
hér innan um ættingja og vini.“
Frekari upplýsingar um Þór er að finna á
vefsetri hans, thorthemusic.com.
Byrjaði samt á
að fara í líf-
fræði því ég er
svona í endanum á þeirri
kynslóð sem fannst músík
ekki vera alvöru vinna.
Línur sem ná beint til hjartans
Þór Breiðfjörð, söngvari og leikari, synti móti straumnum og flutti nýlega heim til Íslands eftir fjórtán ára útivist, lengst af sem
leikari á West End í London. Hann á að baki um 1.000 sýningar af Vesalingunum og æfir nú draumahlutverkið í Þjóðleikhúsinu.
Þór sagði Gunnþóru Gunnarsdóttur frá ferlinum, hamingjunni yfir að vera kominn heim og fá að ala soninn upp sem Íslending.
MEÐ DEREK JACOBI LEIKARA AÐ AFLOKINNI FRUM-
SÝNINGU VESTURPORTS Á RÓMEÓ OG JÚLÍU Á WEST
END. MYND/EDDI
ÞÓR OG ERLENDUR EIRÍKSSON Í VESTURPORTSÝN-
INGUNNI RÓMEÓ OG JÚLÍU Á WEST END. MYND/EDDI
ÞÓR BREIÐFJÖRÐ SÖNGVARI OG LEIKARI „Ég var búinn að bíða allan daginn með nóturnar mínar og fékk svo bara að taka átta takta úr laginu sem ég ætlaði að syngja til að heilla dómendurna.“ FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR