Fréttablaðið - 11.02.2012, Page 34

Fréttablaðið - 11.02.2012, Page 34
11. febrúar 2012 LAUGARDAGUR34 M ér þykir ákaflega vænt um að Þjóðleikhúsið skyldi sýna mér áhuga og hafa fylgst með störfum mínum erlendis, segir Þór Breið- fjörð, leikari og söngvari, þar sem við sitj- um á gangi í starfsmannaaðstöðu Þjóð- leikhússins með kaffi í krúsum og litlar piparkökur að maula. Þór er nefnilega að æfa aðalhlutverkið í söngleiknum Vesaling- unum eftir Victor Hugo sem frumsýndur verður í byrjun mars. Hann kveðst hafa farið í áheyrnarprufur eins og hver annar, enda sé um marga sterka söngvara að ræða í landinu. Þór þekkir verkið vel, söng í Vesaling- unum í tvö ár á West End í London og fór auk þess með sýninguna um Skandinavíu með öðrum norrænum söngvurum. „Í heild á ég um 1.000 sýningar að baki í Vesaling- unum í fimm mismunandi hlutverkum. En Jean Valjean er draumahlutverkið. Victor Hugo, höfundur Vesalinganna, er Halldór Laxness Frakka og Jean Valjean er á pari við Jón Hreggviðsson í Íslandsklukkunni,“ segir Þór sem telur verkið kallast vel á við samtímann með öllum sínum byltingum, þótt það gerist á fyrri hluta 19. aldar. „Við erum með frábæran texta sem Friðrik Erl- ingsson rithöfundur hefur umort og er með orðum og línum sem ná beint til hjartans,“ segir hann. „Leikmyndin er líka ákaflega frumleg og ég held að opnunaratriðið eigi eftir að verða stórbrotið og enn meira spenn- andi en á West End. Hér er mikill metnaður af allra hálfu, orka og gleði. Við erum eins og krakkar í nammibúð.“ Þór ólst upp í Reykjaskóla í Hrútafirði þar sem faðir hans var kennari. Hann hóf tón- listarferilinn á að læra á klassískt píanó og þrettán ára var hann kominn í skólahljóm- sveit. „Marinó Björnsson smíðakennari spilaði í dansbandi og hjá honum lærði ég hljóma. Þá opnaðist fyrir mér heimur popps- ins,“ rifjar hann upp. Sextán ára settist Þór í Ármúlaskólann eins og margt utanbæjarfólk. „Það var mjög fínt fyrir mig að fara í Fjölbraut í Ármúla,“ segir hann. Ég tók bæði mála- og náttúru- fræðibraut því ég gat ekki valið á milli en gekk vel að læra, auk þess var ég að vinna í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi og í hljómsveit í skólanum. Við í FÁ vorum með Hótel Ísland sem okkar hátíðasal, þannig að án þess að ég vissi af fékk ég mikla þjálf- un í að koma fram. Við hituðum upp fyrir Síðan skein sól og Sálina hans Jóns míns og einu sinni var ég í dúettinum Strandamenn sem söng Beach Boys lög. Það er til mynd af okkur í Sálarjökkum að ofan og Bermúda- stuttbuxum að neðan. Verst að hún er eigin- lega ónýt.“ Þór var einn þeirra sem sungu í Hárinu 1994 ásamt mörgum öðrum sem þá voru að stíga sín fyrstu skref á frægðarbrautinni, Margréti Eir, Hilmi Snæ, Emilíönu Torrini, Pétri Erni, Ingvari E. Sigurðssyni, Margréti Vilhjálms, Matthíasi Matthíassyni, Baltasar Kormáki og fleirum. „Við vorum krakkarn- ir í Hárinu, alveg þrusuhópur,“ segir hann brosandi. „Í framhaldinu var mér boðið að syngja í Súperstar á móti Stebba Hilmars.“ En hvernig skyldi Þór hafa komist að á West End? „Ég var farinn að hugsa út á við og láta mig dreyma. Byrjaði samt á að fara í líffræði því ég er svona í endanum á þeirri kynslóð sem fannst músík ekki vera alvöru vinna. Þegar ég frétti af postgratuade námi í Arts Educational London Schools, sem er einn af stærstu leiklistarskólunum í Lond- on, sótti ég um með vídeói og fékk pláss. Þar gat ég verið bæði í leiklistar- og söng- leikjadeild. Á þessum tíma var ég búinn að kynnast konunni minni, Hugrúnu Sigurðar- dóttur, og við ákváðum að skella okkur út. Á West End fékk ég inni í Súperstar, eftir geðveikt inntökupróf þar sem milljón manns mætti og tók númer. Ég var búinn að bíða allan daginn með nóturnar mínar og fékk svo bara að taka átta takta úr laginu sem ég ætlaði að syngja til að heilla dómendurna. Ég tók eitthvað úr Súperstar og endaði sem einn af lærisveinunum. Þá fékk ég umboðs- mann og allt fór að rúlla svo ég var samfelld ellefu ár á West End og víðar. Strákurinn okkar, hann Kristinn, fæddist 1998. Þá var ein sýning eftir af Súperstar og vika í að ég byrjaði í Vesalingunum. Reyndar fæddist hann svo fljótt að ég þurfti að taka á móti honum á heimili okkar, en það er önnur og lengri saga.“ Litla fjölskyldan bjó í fallegu ensku sveitaþorpi með gömlum kirkjum, að sögn Þórs. „Það var yndislegt að vera þarna en fólkið okkar heima var farið að toga. Samt langaði okkur í smá meiri ævintýri áður en við færum heim. Ég kynntist upptökustjóra í Kanada sem var hrifinn af tónlistinni sem ég var að búa til svo við fluttum til Kan- ada og keyptum hús í Nova Scotia með átta hekturum í kring og breiðri á með silungi og laxi. Þetta var svona Johnny Cash fílingur. Ég gerði plötuna Running Naked sem var til- nefnd til ECMA verðlauna og mér var boðið að spila á ýmsum stöðum. Við höfðum það mjög gott, fengumst við þýðingar líka en söknuðum reyndar leikhússins, því þarna er lítil leikhúsmenning. Maður sér hvað Reykjavík er ótrúleg borg í samanburði við til dæmis Halifax þar sem er bara eitt atvinnuleikhús sem er auk þess mikið með farandsýningar.“ Ástæðuna fyrir flutningnum heim til Íslands í ágúst 2010 segir Þór hafa verið heimþrá. „Við Hugrún viljum líka að sonur okkar alist upp sem Íslendingur. Áttuðum okkur á því að þegar hann væri orðinn tán- ingur færi hann að festast meira úti. Við hlökkum til að fara með hann um land- ið, bæði akandi og gangandi. Okkur finnst hann þurfa að læra hver okkar arfleifð er og tala íslensku eins og innfæddur þó að hann sé fæddur erlendis. Það gengur vel. Hann er í frábærum bekk í Kópavogsskóla, er hamingjusamur og elskar Ísland þannig að í augnablikinu njótum við þess öll að vera hér innan um ættingja og vini.“ Frekari upplýsingar um Þór er að finna á vefsetri hans, thorthemusic.com. Byrjaði samt á að fara í líf- fræði því ég er svona í endanum á þeirri kynslóð sem fannst músík ekki vera alvöru vinna. Línur sem ná beint til hjartans Þór Breiðfjörð, söngvari og leikari, synti móti straumnum og flutti nýlega heim til Íslands eftir fjórtán ára útivist, lengst af sem leikari á West End í London. Hann á að baki um 1.000 sýningar af Vesalingunum og æfir nú draumahlutverkið í Þjóðleikhúsinu. Þór sagði Gunnþóru Gunnarsdóttur frá ferlinum, hamingjunni yfir að vera kominn heim og fá að ala soninn upp sem Íslending. MEÐ DEREK JACOBI LEIKARA AÐ AFLOKINNI FRUM- SÝNINGU VESTURPORTS Á RÓMEÓ OG JÚLÍU Á WEST END. MYND/EDDI ÞÓR OG ERLENDUR EIRÍKSSON Í VESTURPORTSÝN- INGUNNI RÓMEÓ OG JÚLÍU Á WEST END. MYND/EDDI ÞÓR BREIÐFJÖRÐ SÖNGVARI OG LEIKARI „Ég var búinn að bíða allan daginn með nóturnar mínar og fékk svo bara að taka átta takta úr laginu sem ég ætlaði að syngja til að heilla dómendurna.“ FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.