Fréttablaðið - 11.02.2012, Side 44
Ingibjörg Huld útskrifaðist úr
Fræðum og framkvæmd í leiklist-
ardeild Listaháskólans síðastlið-
ið vor og Hilmir er einnig til þess
að gera nýútskrifaður. Þau kynnt-
ust samt ekki í LHÍ, eins og marg-
ir gætu ályktað, heldur á hesta-
mannamóti. „Já við kynntumst á
landsmóti hestamanna í Skagafirði
og giftum okkur í Vestur-Land-
eyjum, rétt fyrir utan Hvolsvöll,“
segir Ingibjörg Huld. „Þar á fjöl-
skylda mín sveitabýli þar sem hún
hefur hestana og við reynum að fara
eins oft þangað og við getum.“ Hún
segir hestaáhugann þó ekki tengjast
leiklistinni, en hestamennska hefur
lengi fylgt þeirri stétt. „En okkur
finnst óskaplega gott að fara í sveit-
ina og kúpla okkur aðeins frá leik-
listinni. Reyndar þykir okkur yfir
höfuð bara mjög gaman að ferðast
um landið og gerum mikið af því.
Það má segja að við eigum svona
fegurðardrottningaáhugamál; ferða-
lög og að sinna vinum og fjölskyldu,“
segir Ingibjörg Huld og glottir.
Leiksýningin Ég er vindurinn er
sett upp af leikhópnum Sómi þjóð-
ar, eru fleiri verkefni á döfinni hjá
þeim? „Já, það er nýtt verk í spilun-
um hjá Sóma þjóðar. Tryggvi Gunn-
arsson ætlar að leikstýra því en ég
ætla að reyna að vera viðloðandi
það og jafnvel að gera leikmynd-
ina. Áhugasviðið í leiklistinni er
mjög breitt og fagurfræði leikhúss-
ins er minn helsti áhugapunktur. Ég
hef aldrei gert leikmynd eingöngu
þannig að það verður mjög gaman
að takast á við það.“
fridrikab@frettabladid.is
Ingbibjörg Huld Haraldsdóttir leikstjóri nýtur leiklistar um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Framhald af forsíðu
Flóamarkaður ungs fólks í Hinu húsinu verður hald-
inn í húsakynnum þess að Pósthússtræti 3-5 í dag
frá klukkan 14-17. Þar mun ungt fólk á aldrinum 16-
25 selja notuð föt og fleira. Flóamarkaðurinn er í
kjallara hússins. Gengið er inn Austurstrætismegin.
HÓTEL HVOLSVÖLLUR
HÖLDUM UPPÁ VALENTINUS
OG KONUDAGINN
Laugardaginn 18. febrúar
Sími: 487 48050 | www.hotelhvolsvollur.is | info@hotelhvolsvollur.is
Glæsileg og rómantísk helgi
Þú býður makanum og við bjóðum þér.
Gisting, 3 rétta kvöldverður,
dinnertónlist, dans og morgunverður.
Kr. 15.900.- fyrir ykkur bæði.
HAFÐU SAMBAND OG FÁÐU
FREKARI UPPLÝSINGAR
BÓ
S - 774 1408
Ráðstefnur | fundir
Veisluþjónusta
Árshátíðir | Brúðkaup
Leitið tilboða.
Á dagskrá Vetrarhátíðar í dag klukkan 14 er flutn-
ingur á Pétri og úlfinum eftir Sergei Prokofieff í
Hallgrímskirkju. Halldóra Geirharðsdóttir leikkona
segir börnum söguna og stóra Klais-orgelið bregður
sér í hlutverk sinfóníuhljómsveitar í umsjón Matti-
asar Wager.
Pétur og úlfurinn er eitt frægasta tónlistarævintýri
fyrir börn sem samið hefur verið og hefur haldið
vinsældum sínum kynslóð fram af kynslóð.
Pétur og úlfurinn
Fermingatilboð
Svanadúnsæng og andadúnskoddi
38.900 kr. Bara í dag.