Fréttablaðið - 11.02.2012, Blaðsíða 70
KYNNING − AUGLÝSINGBílasölur LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 20128
Bílasýningin í Chicago er nú haldin í 104. sinn en hún var fyrst haldin árið 1901.
Er sýningin sú fyrsta í heimin-
um sem haldin er hundrað sinn-
um eða oftar.
Samtök bílasala í Chicago
CATA hafa haldið sýninguna
allt frá árinu 1935 en sýningin er
ávallt haldin á McCormick Place
sem er gríðarstórt sýningar-
svæði og býður sýnendum upp á
fjölmarga möguleika
til að koma bílum
s í nu m á f r a m-
færi. Ti l dæmis
hafa verið haldn-
ir rokktónleikar
og búnar t i l
reynsluakst-
ursbrautir.
Sýningin
hófst í gær en
stendur til 19. febrúar. Búist
er við yfir milljón gestum sem
munu koma og skoða þau nærri
þúsund farartæki sem verða til
sýnis. Þó nokkrir bílar verða
frumsýndir og nokkrir hug-
myndabílar kynntir til leiks.
Þá geta gestir einnig skoðað
það nýjasta í aukahlutum auk
fornbíla og kappakstursbíla af
ýmsu tagi.
Löður starfrækir sjö bíla-þvottastöðvar víðs vegar um höfuðborgarsvæðið og þar af
tvær stórar svampþvottastöðvar
með fullkomnustu svampburst-
um sem völ er á „Þetta eru am-
erískir burstar sem fara mjög vel
með bílinn og eru talsvert betri en
þeir handsvampar sem menn eru
að nota,“ segir framkvæmdastjór-
inn Róbert Róbertsson.
Bíllinn er þrjár til fjórar mín-
útur að renna í gegn og eigandinn
situr inni á meðan. „Fyrst er hann
hins vegar forþveginn. Þá er hann
sprautaður með tjöruhreinsi og
smúlaður hátt og lágt. Hann fer
svo í gegnum sextíu háþrýsti stúta
áður en hann fer inn í svampana
og kemur skínandi út,“ segir Ró-
bert.
Löður starfrækir einnig fimm
snertilausar stöðvar. „Þetta eru
háþrýstistöðvar þar sem ekk-
ert kemur við bílinn nema vatn
og sápa. Eins erum við með 26
þvottabása þar sem er hægt að
nálgast tjöruhreinsi, sápur og
önnur nauðsynleg efni og þrífa
bílinn sjálfur,“ segir Róbert en
þar með er ekki allt upp talið:
„Við bjóðum líka upp á hraðþrif
sem virka þannig að bíllinn er
þrifinn að innan samhliða því að
hann rennur í gegnum þvotta-
stöðina. Þrifin taka um tíu mínút-
ur og henta þeim sem eru að flýta
sér. Bíllinn er ryksugaður, mott-
urnar teknar og þurrkað af mæla-
borðinu og eigandinn fær sér kaffi
á meðan.“ Bónstöðin er svo fyrir
þá sem vilja víðtækari þrif. „Þá er
bíllinn skilinn eftir og þrifinn hátt
og lágt.“
Eins og heyra má er um að ræða
alhliða þjónustu og er fyrirtækið
það stærsta sinnar tegundar hér
á landi. „Við teljum okkur fremsta
á þessu sviði og höfum sömu-
leiðis víðtæka reynslu en stöð-
in hefur verið starfrækt í tólf ár.
Róbert segir viðskiptin láta ekki á
sér standa og að renneríið á stöðv-
arnar sé gott.
„Viðskiptavinir þurfa ekki að
hafa áhyggjur af langri bið en
stóru stöðvarnar geta tekið við allt
að fimmtíu bílum á klukkustund.
Það fer inn bíll á um mínútu fresti
og því ekki langt að bíða þó komið
sé að nokkurri röð.“
Bílaþvottastöðvarnar eru
opnar alla daga frá 8 til 19 og 10 til
18 um helgar. Róbert segir yfirleitt
mest að gera um helgar, í kringum
hádegið virka daga og eftir þrjú á
daginn. „Það er þó talsvert um að
fólk komi fyrir vinnu svo dreifing-
in er ágæt. Þá er meira að gera í
þurru veðri en blautu og má segja
að bleytan sé okkar versti óvinur
því þá eru bílarnir fljótir að verða
skítugir og mörgum finnst ekki
taka því að þrífa þá.“
Svampþvottastöðvar Löðurs
eru til húsa að Bæjarlind 2 í Kópa-
vogi og Fiskislóð 29. Aðrar stöðv-
ar eru að Háholti 11 í Mosfellsbæ,
Bæjarlind 18, Reykjavíkurvegi 54
í Hafnarfirði, Stekkjabakka 2 og
að Skúlagötu. Sjá nánar á www.
lodur.is.
Kaggar og kerrur í Chicago
Stærsta og elsta bílasýning Norður-Ameríku er bílasýningin í Chicago. Sýningin var opnuð almenningi í gær en fjölmiðlafólk fékk að gægjast á helstu
sýningargripina nokkrum dögum fyrr. Meðfylgjandi eru myndir af nokkrum bílum sem kynntir voru bílaspekúlöntum á fyrsta degi sýningarinnar.
1953 Chevrolet Corvette frá 1953 og sextíu ára afmælisútgáfa 2013 Corvette 427 Convertible Collectors Edition. Hin nýja Corvetta er með 505 hestafla 7 lítra LS7 V-8 vél og er því hraðasti blæjubíllinn í sögu Corvette.
NORDICPHOTOS/GETTY
Veloster Turbo
frá Hyundai.
Þessi suður-
kóreski bíla-
framleiðandi
hyggur nú
á enn meiri
landvinninga
í Bandaríkj-
unum.
Lexus kynnti LF-LC
hugmyndabílinn.
Bíllinn hreinn á svipstundu
Löður starfrækir sjö alhliða bílaþvottastöðvar og býður meðal annars upp á svampþvottastöðvar, snertilausar stöðvar, þvottabása, hraðþrif og bónstöð.
Fyrirtækið hefur verið starfrækt í tólf ár og þar gengur allt hratt og vel fyrir sig.
Bílarnir eru forþvegnir áður en þeir fara inn í svampana og koma skínandi út.
Löður starfrækir sjö bílaþvottastöðvar
um allt höfuðborgarsvæðið, þar af tvær
svampþvottastöðvar.
Löður er stærsta fyrirtæki sinnar tegundar og býður hraða þjónustu sem viðskiptavinir kunna að meta. FRÉTTABLAIÐIÐ/VALLI
Hugmyndabíll-
inn GT frá
Kia.
Kia kynnti hug-
myndabílinn
Trackster.