Fréttablaðið - 11.02.2012, Síða 73
KYNNING − AUGLÝSING Fermingarveislur11. FEBRÚAR 2012 LAUGARDAGUR 3
Framsetningin skiptir máli
Pinnamatur er sívinsæll í fermingarveislum og gaman að geta boðið upp á sitt lítið af hverju. Hann krefst hins vegar töluverðs nosturs og því gott að
blanda saman aðkeyptu og heimatilbúnu til að spara sér einhverja vinnu. Það getur til að mynda verið ráð að kaupa tilbúin kjúklingaspjót og
kjötbollur en útbúa annað upp á eigin spýtur. Þegar magnið er áætlað er gott að hafa það í huga að hver gestur fær sér yfirleitt tvo til þrjá bita af
hverri tegund. Hér eru nokkur dæmi um skemmtilega smárétti og ólíka framsetningu sem skiptir ekki síður máli.
Hví ekki að nota saltstangir í stað pinna?
Með því að smyrja fyrirfram er hægt að losna
við örtröð í kringum veisluborðið þar sem
fólk er að velja álegg. Þessu er einfaldlega hægt að
kippa beint á diskinn.
Litlir kjúklingabitar, vafðir inn í papriku
og skreyttir með kapers eru fyrirtaks
munnbitar.
Ídýfur og flögur má
hafa á hverju borði.
Það kemur skemmtilega út að stinga osta og ávaxtapinnum í hálfa melónu.
Risaækjur með með
sítrónumajonesdýfu
getur verið skemmtileg
tilbreyting frá brauði og
kökum.
Með því að hafa
múffur í stað köku
er smáréttaþemanu
haldið út í gegn.
Á Radisson Blu Hótel Sögu eru fjölmargir veislusalir á fyrstu og annarri hæð.
Salirnir eru allir mismunandi að
stærð og henta því öllum stærðum
og gerðum af veislum. „Þá erum
við einnig með sjö sali á Brodway í
mismunandi stærðum til að mæta
þörfum hvers og eins,“ segir Hörð-
ur Sigurjónsson, sölustjóri veit-
ingasviðs Radisson Blu Hótel Sögu.
„Hótel Saga sér nú um veitinga-
salina á Broadway en það eru ekki
allir sem vita það að Broadway er
ekki einn stór salur heldur marg-
ir minni salir sem auðvelt er að
opna á milli og tengja saman. Því
er mjög sveigjanlegt hversu marg-
ir komast í hvern sal enda oft erf-
itt að áætla nákvæman fjölda með
löngum fyrirvara,” segir Hörður.
Á efstu hæð á Hótel Sögu er hinn
einstaki veitingastaður Grillið og
þar er mjög vinsælt að vera með
fermingarveislur. Útsýnið yfir
borgina er yndislegt og umgjörð-
in einstök.
„Fyrir fermingar hafa þrír seðl-
ar verið vinsælastir hjá okkur,
kökuhlaðborð, steikarhlaðborð og
bröns,” segir Hörður „Brönsinn er
orðinn mjög vinsæll fyrir ferming-
arnar en við bjóðum einnig upp á
kaffiveislur, hádegisverði, kvöld-
verði, hlaðborð eða pinnamat; allt
eftir óskum hvers og eins. Mín
reynsla er sú að fermingarbörn-
in sjálf hafa ákveðnar skoðanir á
hvernig þau vilja hafa veisluna,
hvað á að vera á borðum og jafnvel
hvaða sal þau vilja,“ segir Hörður.
„Hver veisla er auðvitað einstök
og Radisson Blu Hótel Saga hefur
í gegnum fimmtíu ára sögu fyrir-
tækisins verið þekkt fyrir frábæra
þjónustu og framúrskarandi gæði
í mat,“ segir Valgerður Ósk Ómars-
dóttir, sölu- og markaðsstjóri. „Við
hvetjum fólk til að koma og skoða
salina og aðstöðuna hjá okkur. Það
sem er svo frábært við að halda
veislur á Radisson Blu Hótel Sögu
og Broadway er við sjáum um allt
sem viðkemur salnum, þjónust-
unni og matnum. Veisluhaldarar
ganga bara inn í fullbúinn sal með
uppdekkuðum borðum, við erum
með löbera og servíettur í lit sem
fólk getur valið úr og við skreytum
salinn með. Matreiðslumenn sjá
alfarið um veitingarnar og þegar
veislan er búin, tekur fólk gjafirn-
ar og fer heim. Ekkert uppvask og
enginn frágangur. Við sjáum um
allt frá A til Ö,“ segir Valgerður og
Hörður bætir við að aðstandend-
um fermingarbarna þyki þetta
mjög þægileg.
„Fólk kemur brosandi hingað
inn og brosir enn breiðar þegar
það fer út. Við komum alltaf til
móts við óskir fólks og gefum
fólki tímanlega aðgang að salnum
ef óskað er eftir því til að skreyta
hann að óskum fermingarbarns-
ins..“
Veislusalir Radisson Blu Hótel
Sögu eru útbúnir fullkomn-
ustu tækni. Því er einfalt að setja
upp myndasýningar á tjaldi eða
skjám. Einnig eru hljóðkerfi inn-
byggð í sölunum ef fólk vill troða
upp með söng eða hljóðfæraleik.
„Við höfum einnig búið til leik-
horn fyrir börn fyrir framan sal-
ina og jafnvel sett upp sjónvarp
svo yngsta kynslóðin geti líka
notið sín í veislunni,“ segir Val-
gerður. Hún segir þó nokkrar bók-
anir komnar fyrir næsta ár. Við
erum þó ekki alveg fullbókuð fyrir
vorið og bendum fólki í veisluhug-
leiðingum á að hafa samband. Við
erum með frábært starfsfólk sem
hefur unnið við fermingarveisl-
ur í fjöldamörg ár og getur að-
stoðað við að útfæra veislurnar í
takt við óskir fólks og komið með
ýmsar hugmyndir til að dagur-
inn verði sem eftirminnilegast-
ur fyrir fermingarbarnið og fjöl-
skyldu þess.“
Nánari upplýsingar um ferm-
ingarmatseðlaog sali er að finna á
heimasíðunni, www.hotelsaga.is
Við sjáum um veisluna fyrir þig
Radisson Blu Hótel Saga býður upp á alhliða þjónustu þegar kemur að veisluhöldum. Boðið er upp á stórglæsilega sali, uppdekkuð borð og dýrindis
mat og þjónustu auk þess sem veislusalirnir eru búnir fullkomnustu tækni fyrir myndasýningar eða tónlistaratriði. Hver veisla er einstök og komið er
til móts við óskir hvers og eins.
Valgerður Ósk Ómarsdóttir, sölu- og markaðsstjóri, og Hörður Sigurjónsson, sölustjóri veitingasviðs Radisson Blu Hótel Sögu, sjá um fermingarveisluna frá A til Ö. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA