Fréttablaðið - 11.02.2012, Síða 78

Fréttablaðið - 11.02.2012, Síða 78
11. febrúar 2012 LAUGARDAGUR42 Krossgáta Lárétt 1. Þeim gengur allt í haginn ef kjötbúðingur kastar upp (8) 5. Ráðarmar eru útundir sig (10) 10. Púkaglös vill þrjótur sá (13) 11. Jurtin finnst ef internet er tengt við innranet (6) 12. Þarf himinfley til að stunda þær (13) 13. Skýla skauti fyrir manni að austan (8) 14. Mjög hvass er ansi hress (11) 16. Draugur ruglar einum rómi (4) 17. Reglur um dótaklúbba kveða á um að skera sauði og blanda saft (14) 24. Finnum titring dekkja en keyrum þó í vélvæddum félagskap (16) 27. Sigraðir um leið og þú prófaðir (7) 28. Endurskipulegg safn og eldhústæki birtist (6) 29. Helsti kraftur úr virkjun aðfalla (7) 30. Ávextir æða á þann sem þefar (8) 31. Páll rukkar fyrir not af tröppum og sjálfum sér (10) 32. Gott er að æja á svitabúllum útá landi (10) 35. Auðelduð er ekki ofelduð (9) 36. Nærri rennur lengra inn vegna launanna (12) 37. Leitum að holum og fulltæmum (7) Lóðrétt 1. Þau sem eignast fley og frumefni hirða lítt um aðra (9) 2. Legg þrykkflöt að jöfnu við leikvang (9) 3. Útlit merki títt hross er bregður litum (9) 4. Má dansa við rápröð? (7) 5. Stofnahæð er Uxaafréttur og rís úr Djúpinu (9) 6. Þarmar og útivist gera hana eftirsóknarverða (9) 7. Gróðurblettur og tengt erfiði binda endi á félagskap (7) 8. Má líkja saman öldutoppum og nammi? (8) 9. Fátækir gegn auðvaldinu og fullir af hugmyndum (8) 15. Farðu til fiskjar, þar eru þjáningar og dýrlingateikn (11) 17. Er grassæti gripur hins óbreytta? (12) 18. Eftir sjoppu gjörtæmum með skorinorðum hætti (12) 19. Fullskipa gröfum meðfram þjóðvegum (12) 20. Göptum eftir hríðarflan í ofankomunni (12) 21. Áhlaupið á galtana er rugl (7) 22. Fjörleg fyrst og eflist en missir að lokum allan mátt (9) 23. Undirstaða golfkúlunnar blaðurlyf fyrir þá sem tefja? (10) 25. Senda ráð aftur til eigenda þess, gömlu bankanna (10) 26. Horfir sívaki hvar ris rís hvað hæst (5) 32. Drottning þessa lands er ríkari en Samtök atvinnu- lífsins og British Airways samanlagt (4) 33. Ósáttir eru oft upp á þennan heimspeking (4) 34. Gítarleikari er hálfgert brak (4) U M H L E Y P - I N G A R Vegleg verðlaun Lausnarorð Ef bókstöfunum í skyggðu reitunum er raðað rétt saman birtist íslensk skáldsaga frá 21. öldinni. Sendið lausnarorðið í síðasta lagi 15. febrúar næstkomandi á krossgata@frettabladid.is merkt „11. febrúar“. Lausnarorð síðustu viku var umhleypingar. Vikulega er dregið er úr inn- sendum lausnarorðum og fær gjafabréf fyrir tvo á sýningu að eigin vali í Borgarleikhúsinu. Vinningshafi síðustu viku var Hugrún Helgadóttir, Akureyri. 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 V I N Á T T A M B S V S U A A V F L J Ó T A S K R I F T I N N S Í R G N E T R D G L A Ð H E I M A R K A M P A K Á T I A F L T Ö A M N K R S Æ L K E R U M F O S S T U N G A B V A Y N U E A B Ú I U P P H A F S M A Ð U R F Ó A R N P T U R Æ I I A N A U T A N R Í K I S M Á L A N E F N D A R R A Ó T F N L I V E R B Ú Ð I R N A R S A G Ð U R S N I E L S V E T K Á T Í N A N L K A Ð I L A R Ý A T E N G L A S A F N T N L Ó L U H R S A G A N D S K O T A R J A F N H A T T A R U Æ T I Á I Á O R S Ú L U R I T I N L N Á L A P Ú Ð I U A N N Æ P A N S P S Langur bíladagur! Bílabúð Benna og Ferðaklúbburinn 4x4 Í dag 11. febrúar frá kl. 10-16 Verslun Bílabúðar Benna og Ferðaklúbburinn 4x4, bjóða upp á Langan bíladag, í dag 11.febrúar, að Vagnhöfða 23, frá kl. 10-16. Glæsilegir jeppar verða til sýnis og Ferðaklúbburinn 4x4 kynnir starfsemi sína. Icewear verður á staðnum með útivistarfatnað á sérstökum kynningarafslætti. Einnig veglegir afslættir í verslun. Bílabúð Benna - Vagnhöfða 23 - 590 2000 - benni.is- Í sátt við landið - www.icewear.is afsláttur 15% af dekkjum afsláttur 20% af bílaefnavörum afsláttur 10% af verslunarvörum Á þessum degi fyrir réttum 22 árum, hinn 11. febrúar árið 1990, mátti hnefaleikameistarinn Mike Tyson sætta sig við tap í fyrsta skipti á ótrúlegum ferli og lífshlaupi sem átti þó eftir að taka miklu fleiri og talsvert alvarlegri dýfur. Fáir ef nokkrir íþróttamenn síðari tíma hafa vakið jafnmikla aðdáun og fyrirlitningu og járnkallinn Mike Tyson, sem hóf sig upp úr sárri fátækt á götum Brooklyn í að verða yngsti heimsmeistari allra tíma í þungavigt í hnefaleikum og einn frægasti og launahæsti íþróttamaður síns tíma. Glæpir hans og dómgreindarleysi urðu honum hins vegar að falli áður en hann fann innri frið fyrir nokkrum árum og komst aftur á beinu brautina. Tyson var tvítugur þegar hann vann fyrsta heimsmeist- aratitilinn árið 1986 og var ósigrandi næstu árin á meðan hann óð í peningum, bjó við gríðarlegan munað og giftist íðilfagurri Hollywood-leik- konu. Ýmislegt ófagurt gekk þó á á þessum tíma þar sem hann missti meðal annars fóstur- föður sinn og þjálfara, og batt þess í stað trúss sitt við hinn umdeilda athafnamann Don King. Þegar kom að bardaganum við hinn nær óþekkta Buster Douglas voru fáir á því að áskorandinn myndi ná að veita honum nokkra keppni. Raunin varð þó önnur því að Douglas var miklu ákveðnari í bardaganum og var að lokum úrskurðaður sigur í tíundu lotu. Þetta voru einhver óvæntustu úrslit í sögu hnefaleikanna, en var einnig upphafið að endalokunum hjá Tyson. Tveimur árum síðar var hann dæmdur í fangelsi fyrir að hafa nauðgað ungri fegurðardrottningu og sat hann inni í þrjú ár vegna þess. Næstu ár vann hann til baka titla sína, en tapaði þeim til Evand- ers Holyfield árið 1996. Endurfundir þeirra eru hins vegar enn eftir- minnilegri þar sem Tyson beit hluta úr eyra Holyfields og var dæmdur í keppnisbann í kjölfarið. Eftir það einkenndist líf Tysons af mikilli óreiðu þar sem hann varð uppvís að fíkniefnaneyslu og var úrskurðaður gjaldþrota árið 2003 þrátt fyrir að hafa unnið sér inn 400 milljónir dala á ferlinum. Árið 2006 var hann svo handtekinn vegna fíkniefnamisferlis, en síðan þá hefur hann snúið lífi sínu við og segist sáttur við sig og sína. Síðasti bardagi Tysons var tap gegn Íranum Kevin McBride árið 2005. Buster Douglas náði ekki að fylgja eftir sigri sínum, heldur tapaði strax næsta bardaga og hætti keppni eftir það. - þj Heimildir: Britannica, History.com og Wikipedia. Í ÞÁ TÍÐ: Árið 1990 Mike Tyson lagður að velli í fyrsta sinn á ferlinum Ofurkappinn Mike Tyson var felldur af stalli sínum sem óumdeildur þunga- vigtarmeistari í hnefaleikum, af hendi hins nær óþekkta Buster Douglas. AF TOPPNUM Á BOTNINN Fyrsta tap hnefa- leikakappans Mikes Tyson fyrir 22 árum markaði tímamót á mögnuðum ferli. Hann sést hér tryggja sér fyrsta titilinn, tvítugur að aldri, með rothöggi gegn Trevor Berbick. NORDICPHOTOS/AFP
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.