Fréttablaðið - 11.02.2012, Side 80

Fréttablaðið - 11.02.2012, Side 80
11. febrúar 2012 LAUGARDAGUR44 timamot@frettabladid.is 72 KÁRI JÓNASSON leiðsögumaður á afmæli.„Huga þarf að veraldlegri uppbyggingu en ekki síður hlúa að mannssálinni.“ „Við ætlum að halda ekta fullorðins- ball þar sem hljómsveitin Dansband- ið leikur fyrir dansi og Anna Breið- fjörð stjórnar dansinum,“ segir Birna Soffía Baldursdóttir, formaður kven- félagsins Hlífar á Akureyri. Umrædd- ur dansleikur verður á Hótel KEA á morgun, sunnudaginn 12. febrúar milli klukkan 14 og 16. Allur ágóði rennur til kaupa á bráðamóttöku- búnaði ungra barna fyrir Slysadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. „Þessi búnaður er ekki til staðar hér fyrir norðan. Okkur Hlífarkonum finnst það algerlega ekki hægt og ætlum að reyna að bæta úr því. Það er eitt af verkefnum félagsins í tilefni af 105 ára afmæli þess,“ segir Birna sem telur að tækið kosti um fjögur hundruð þúsund. Þegar haft er orð á að Birna sé býsna ung, miðað við aldur félagsins hlær hún. „Já, ætli ég sé ekki yngsti formaður þessa félags frá upphafi? ég verð þrjátíu og þriggja í ár. Við erum fjörutíu og fimm konurnar í Hlíf og sú yngsta er 25 ára.“ Hún kveðst vera nýkomin úr fæðingarorlofi og hafa veitt tíu konur í félagið á mömmu- morgnum og víðar. „Ég ræði mikið um félagið við vini og vandamenn og svo spyrst það út hversu gaman er að vera í því.“ Í fyrstu sinnti kvenfélagið Hlíf, fátækrahjálp og heimahjúkrun. Seinna byggði það og rak um tíma barnaheimilið Pálmholt en þegar barnadeild við sjúkrahúsið var í byggingu tók félagið til við að styrkja hana og gerir enn, ásamt því að sinna öðrum verkefnum tengdum börnum. Á Akureyri eru líka Kvenfélagið Baldursbrá og Kvenfélag Akureyrar- kirkju. Innt eftir hvort um samkeppni sé að ræða milli félaganna svarar Birna. „Nei, hér er allt í sátt og sam- lyndi og ekkert hverfastríð. Hlíf er opið öllum, algerlega óháð trú og póli- tík.“ En aftur að ballinu. Blaðamanni finnst það stutt og auk þess haldið að degi til. Býst Birna við góðri þátttöku? „Já, fólk er að koma til að dansa og þegar tíminn er svona afmarkaður þá kemur það á réttum tíma og tekur þátt. Í gamla daga voru haldin Hlífarböll með alvöru dansstjóra og hugguleg- heitum. Þetta er tilraun til að endur- vekja þau. Anna Breiðfjörð danskenn- ari sem verður með okkur er að þjálfa fólk á öllum aldri og það talar um að algerlega vanti böll til að dansa á. Þetta er bara prufa en vonandi eitt- hvað sem er komið til að vera.“ Birna tekur fram að aðgangseyrir sé 2.500 krónur, kaffiveitingar séu inni- faldar í verði en ekki sé hægt að taka við greiðslukortum á staðnum. gun@frettabladid.is KVENFÉLAGIÐ HLÍF Á AKUREYRI: HELDUR BALL Í TILEFNI 105 ÁRA AFMÆLIS Safnar fyrir tækjum fyrir bráðamóttöku ungra barna Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, lét undan áköfum þrýstingi almennings og hrökklaðist frá völdum þennan dag á síðasta ári. Þar með lauk nærri þriggja ára- tuga setu hans á forsetastóli. Þetta gerðist eftir þriggja vikna mótmæli almennings. Mikill fögnuður greip um sig meðal fólksins í landinu og var sannkölluð þjóðhátíðarstemning á Tahrir-torgi í Kaíró og víðar í Egyptalandi en Mubarak forðaði sér frá höfuðborginni og hélt til hallar sinnar við Sharm-el-Sheikh, syðst á Sínaískaga. Herráðið tók við völdum í landinu til að byrja með og ræður enn ríkjum. Barack Obama Bandaríkjaforseti, leiðtogar Evrópusambandsins og þjóð- höfðingjar margra ríkja lýstu ánægju sinni með þróun mála í Egyptalandi en hvöttu jafnframt til þess að lýðræði yrði virt. ÞETTA GERÐIST: 11. FEBRÚAR 2011 Mubarak hrökklast frá völdum Innilegar þakkir til allra þeirra fjölmörgu sem sýnt hafa okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengda- móður og ömmu, Svandísar Ottósdóttur læknaritara, Kirkjusandi 1, Reykjavík. Pétur Guðmundsson Birgir Rafn Þráinsson Eva Hrund Pétursdóttir Kári Kárason Sólrún Edda Pétursdóttir Þorgils Ólafur Einarsson Óskar Freyr Pétursson Ása Björg Ásgeirsdóttir og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, stuðning og hlýhug vegna fráfalls elskulegrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, Guðbjargar Friðfinnsdóttur Jófríðarstaðarvegi 19, Hafnarfirði, (áður Hlíðarbraut 7). sem lést mánudaginn 16. janúar. Sigurður Arnórsson Friðfinnur Sigurðsson Christina Wieselgren Sólveig Sigurðardóttir Jóhannes Kristjánsson Arnór Sigurðsson Sigríður Sigurðardóttir Árni Finnbogason barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu sem sýnt hafa fjölskyldunni samúð og kærleik við andlát og útför elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, Sigurðar Njálssonar Efstaleiti 14, Reykjavík, og heiðrað minningu hans á margvíslegan hátt. Guðný Þorsteinsdóttir Halldóra Sigurðardóttir Viðar Símonarson Anna Sjöfn Sigurðardóttir Guðmundur Páll Ásgeirsson Ólafur Njáll Sigurðsson Birna Bergsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, Kristín Svava Svavarsdóttir lést á heimili sínu laugardaginn 4. febrúar. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 15. febrúar kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Heilaheill. Viðar Gíslason Andrés Viðarsson Margrét Helga Skúladóttir Thelma Svava Andrésdóttir Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför bróður okkar, mágs og frænda, Garðars Aðalsteins Sveinssonar rafvirkja, frá Vestmannaeyjum, Blöndubakka 3, Reykjavík. Ágústa Sveinsdóttir Berent Theodór Sveinsson Laufey Guðbrandsdóttir Tryggvi Sveinsson Þóra Eiríksdóttir og frændsystkin. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Guðrúnar Jósefsdóttur Hjarðarhóli 8, Húsavík, sem lést á heimili sínu 20. janúar. Útförin fór fram frá Húsavíkurkirkju 28. janúar. Ragna Kristjánsdóttir Karl Bjarkason Sæþór Kristjánsson Sigríður Lovísa Kristjánsd. Orri H. Gunnlaugsson Guðrún Agnes Kristjánsd. Ingveldur Kristjánsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR FORMAÐURINN „Ég ræði mikið um félagið við vini og vandamenn og svo spyrst það út hversu gaman er að vera í því.“ MYND/HEIDA.IS
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.