Fréttablaðið - 11.02.2012, Síða 88
11. febrúar 2012 LAUGARDAGUR52
BAKÞANKAR
Atla Fannars
Bjarkasonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. dylja, 6. stefna, 8. stórt ílát, 9.
mærð, 11. berist til, 12. safna saman,
14. málmblanda, 16. kallorð, 17.
kverk, 18. fiskur, 20. ung, 21. svall.
LÓÐRÉTT
1. slagæð á úlnlið, 3. skammstöfun,
4. land í Suðvestur-Asíu, 5. sigað, 7.
hlutavelta, 10. spor, 13. endir, 15.
greinilegur, 16. langur, 19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. fela, 6. út, 8. hít, 9. lof, 11.
bt, 12. smala, 14. brons, 16. hó, 17.
kok, 18. áll, 20. ný, 21. rall.
LÓÐRÉTT: 1. púls, 3. eh, 4. Líbanon,
5. att, 7. tombóla, 10. far, 13. lok, 15.
skýr, 16. hár, 19. ll.
Maggi...
hefuru smá
tíma?
Við verðum að tala saman!
Nú ert þú kominn á þann
aldur að... hmmm þú veist...
það eru nokkrir hlutir sem
þú verður að skilja!
Liverpool á ekki eftir að fara
með sigur af hólmi í ár! og
ef við fáum ekki góðan liðs-
styrk eigum við ekki heldur
möguleika á
næsta ári!
Náðiru að
tala við
hann?
Já! Hann
skildi alvöru
málsins!
Ég vil ekki
að þú sitjir
fyrir framan
tölvuskjá í allt
sumar!
Af hverju lestu
ekki dagblað eða
spilar eða ferð á
bókasafnið?
Vá... Hvað?? Það er eins og þú búir í einhverjum
hliðarheimi þar
sem fólk les dag-
blöð, spilar og fer á
bókasöfn.
Bjössi var svo
heppinn að eiga
hús meÐ sérstakri
tengdmömmuvörn.
Geturðu
stafað
eftirnafnið
þitt?
Já, Laufey..
Sem sagt, L fyrir læti,
A fyrir arg, U fyrir ...
Motörhead er hættuleg hljómsveit. Í 37 ár hefur boðskapurinn sem Lemmy
Kilmister og félagar predika breiðst hratt
um heimsbyggðina og í raun verið horn-
steinn hnignunar mannkyns. Óábyrgt kyn-
líf, stríð, spilafíkn og fíkniefnaneysla er
aðeins hluti af því sem meðlimir Motörhead
hafa á samviskunni og sem íbúar þessa
heims getum við aðeins vonað að Guð þyrmi
sálum okkar þegar stóri dagurinn rennur
upp — við leyfðum þeim að vaða uppi og
fyrir það skulum við gjalda.
FYRR í vikunni birtust fréttir af óprúttn-
um aðilum sem gerðu tilraun til að flytja
boðskap Motörhead til landsins í formi
rauðvíns merktu hljómsveitinni. Því var
að sjálfsögðu hafnað af nefnd á vegum
Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins.
Hún telur áhrifagjarna Íslendinga ekki
tilbúna til að neyta víns á meðan allt
sem djöfullinn sjálfur stendur
fyrir blasir við á flöskunni.
Þegnar annarra þjóða geta að
vísu keypt vínið án vandræða,
en íslenska þjóðin er ekki til-
búin.
DJÖFULLEGT merki Motörhead
er vel sýnilegt á flöskunum.
Það er því augljóst að nefndin
treysti þjóðinni ekki til að forð-
ast amfetamínneyslu, óábyrgt
kynlíf og stríðsrekstur á meðan
hún dreypir á volgu Motörhead-rauðvíni.
Þetta er skiljanlegt vegna þess að fátt fer
betur saman en notaleg kvöld með rauð-
vín í hönd og stríðsrekstur undir áhrifum
amfetamíns.
ÖNNUR rök sem nefndin notaði til að hafna
kröfunni voru þau að meðlimir Motörhead
koma ekki nálægt framleiðslunni. Þessi rök
eru að sjálfsögðu góð og gild, enda notuð
til hliðsjónar við framleiðslu á fjölmörg-
um öðrum vörum. Allir vita til dæmis að
Ágústa Johnson bakar sjálf heilsukexið sem
hún leggur nafn sitt við, Arnar Grant og
Ívar Guðmunds blanda líka prótíndrykkinn
Hámark, svo ég tali ekki um stjörnur á borð
við Britney Spears og David Beckham sem
nýta stórkostlega efnafræðikunnáttu sína
til að blanda ilmvötn. Loks má ekki gleyma
íþróttaálfinum og Sollu stirðu, sem vinna
baki brotnu við framleiðslu á vörum Lata-
bæjar víða um heim. Þetta vita allir.
ÞESSI harðduglega nefnd þarf að fá miklu
víðtækari völd. Merkimiðar eru ekki það
eina sem þarf að taka hart á innan ÁTVR,
heldur einnig áfengið sjálft. Aldrei er mað-
urinn berskjaldaðri fyrir daglegum freist-
ingum á borð við óábyrgt kynlíf, eitur-
lyfjaneyslu og stríðsrekstur en þegar hann
er undir áhrifum áfengis. Næsta verkefni
nefndarinnar er því að banna allt áfengi á
Íslandi og leggja svo sjálfa sig niður. Eða
skrifa nýja stjórnarskrá.
Amfetamín, óábyrgt kynlíf og stríð
Kræktu klónum
í ævintýrið
Leikir og gleði á
hverri síðu ... MJÁ!
www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu
Turninum 12. hæð - 201 Kópavogur - www.domusnova.is
Til sölu
tískuvöruverslun
á besta stað við
Laugaveg
Frábært tækifæri - Gott verð
Axel Axelsson
Löggiltur fasteignasali
Heimir Bergmann
Sími 822 3600
heimir@domusnova.is
heimir.domusnova.is
Nánari uppl. veitir Heimir Bergmann