Fréttablaðið - 11.02.2012, Page 94

Fréttablaðið - 11.02.2012, Page 94
11. febrúar 2012 LAUGARDAGUR58 folk@frettabladid.is ? Kærastan mín vill alltaf vakna á næturnar til að stunda kynlíf – hún er aldrei til í tuskið ÁÐUR en við förum að sofa. Er asnalegt að ég vilji frekar gera það á kvöldin? Eru konur kannski þannig gerðar að þær njóta kynlífs betur um miðja nótt? SVAR: Konur eru ekki sér þjóð- flokkur sem stundar bara kynlíf á ákveðnum tímum dags. Engir tveir einstaklingar eru eins og á það einnig við um konur. Þín kona nýtur kannski kynlífs betur eftir að hafa sofið í sig smá orku. Þá hafa mörg „kvennablöð“ oft ráð- lagt konum að karlar elski að láta vekja sig um miðja nótt í villt- um kynlífsleik. Kannski finnst konunni þinni þessi tími einfald- lega hentugastur eða kannski er hún að fara eftir afleitum ráðum tímarits. Hvort heldur, ef þessi tími hentar þér ekki þá verður þú að segja það við hana og þið að sammælast um tíma sem hentar ykkur báðum. Það gengur ekki að annað hvort ykkar sé hálf- sofandi á meðan á samförum stendur. Kannski þarf konan þín að fara fyrr upp í rúm, ná að sofa smá áður en þú kemur upp í og þá eru þið bæði til í tuskið á sama tíma. Eða þið gætu prufað kyn- líf um miðjan dag. Ef þú vilt að þetta breytist þá verður þú að tala við hana. En svo velti ég því fyrir mér, vill hún kannski hafa þig sofandi á meðan á samförum stendur? Ef svo er þá erum við komin út í allt aðra sálma. Vakinn af kærustunni til að stunda kynlíf FÓLK ER MISJAFNT Sumir vilja stunda kynlíf á næturnar, aðrir á kvöldin og enn aðrir um hábjartan dag. KYNLÍF: ÞARFTU HJÁLP? Sendu Siggu Dögg póst og segðu henni frá vandamáli úr bólinu. Lausnin gæti birst í Fréttablaðinu. kynlif@frettabladid.is Skeggjaðir menn hafa lent í vandræðum með snertiskjá- símana sína sem lýsir sér þannig að skeggið skellir á viðmælendur. Fyrir suma ætti að vera einfalt mál að leysa vandann. TÆKNI Alskegg er í tísku hjá karl- mönnum víða um heim og þá sér- staklega í Reykjavík. Skeggið hefur ýmsa kosti, eins og Fréttablaðið greindi frá á dögunum, en skegg- sérfræðingurinn Stjúri, sem rekur rakarastofu í Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar, segir það meðal annars veita góða vörn fyrir bæði hita og kulda. Ókostirnir eru líka til staðar og einn af þeim ein- skorðast við menn sem nota síma með snertiskjá og þá sérstaklega Nokia N8. Þeir sem eru með þykkt alskegg hafa lent í því að skjárinn nemi skeggið á meðan á samtali stendur með þeim afleiðingum að síminn skelli á eða setji viðmælandann á bið. Vandamálið má þó leysa á ein- faldan hátt með því að hala niður Symbian Belle-uppfærslunni á heimasíðu Nokia. Þorsteinn Þorsteinsson, vöru- stjóri farsíma hjá Hátækni, segir að vandinn hafi legið í skynjara í skjánum, en að það sé nú úr sög- unni. „Það er búið að laga þetta vandamál með uppfærslum, en þeir sem voru með mikið skegg lentu frekar í þessu en hinir,“ segir hann. Ókostirnir við alskeggið eru nokkrir í viðbót, eins og Stjúri kom að á dögunum. „Marga klæj- ar undan skegginu í fyrstu,“ segir hann. „Svo eiga matarleifar til að festast í því, en maður verður að vera duglegur að þrífa sig og forð- ast að borða eins og dýr.“ Þessi vandamál verða ekki leyst með hugbúnaðaruppfærslu. atlifannar@frettabladid.is Uppfærsla gerir út um símavandamál skeggjaðra FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Gildir eingöngu þegar forráðamaður kaupir máltíð. 1 máltíð á barn af barnamatseðli. Gildir eingöngu í sal. ■ Til að sækja Symbian Belle í Nokia N8-símann þinn þarftu að vera með Nokia PC Suite-hugbúnaðinn settan upp í tölvunni þinni. ■ Það á að vera nóg að tengja símann við tölvuna og opna Nokia PC Suite. Þannig ættirðu að finna nýjustu uppfærsluna sem ætti að gera út um skeggvandamálið. UPPFÆRÐU SÍMANN ÞINN NÝR KINDLE Bókarisinn Amazon.com kynnir á næstunni tvær nýjar útgáfur af Kindle-lestölvunni sinni, sem hefur slegið í gegn víða um heim. Nýju útgáfurnar verða með sjö og níu tommu skjá. Kindle hefur hingað til verið fáanleg með sex tommu skjá.lifsstill@frettabladid.is 58
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.