Fréttablaðið - 11.02.2012, Qupperneq 104
11. febrúar 2012 LAUGARDAGUR68
FÓTBOLTI Lars Lagerbäck hélt í
gær sinn fyrsta blaðamannafund
síðan hann var kynntur til sög-
unnar sem nýr landsliðsþjálfari
seint á síðasta ári. Þar tilkynnti
hann þá leikmenn sem munu spila
í vináttuleikjunum gegn Japan og
Svartfjallalandi ytra í lok mánað-
arins.
En hann nýtti einnig tækifærið
og fór yfir með ítarlegum hætti
hvernig hann hyggst byggja upp
landsliðið, bæði innan sem utan
vallarins.
Lagerbäck tók sér drjúgan
tíma til að kynna sín sjónarmið
og þær leiðir sem hann ætlar sér
að fara til að ná settum markmið-
um. Fundinn sátu einnig Heimir
Hallgrímsson, aðstoðarþjálfari
hans, sem og Eyjólfur Sverrisson,
þjálfari U-21 liðsins, og Sigurður
Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálf-
ari kvenna. Greinilegt er að Lag-
erbäck ætlar sér að nýta þeirra
krafta í þágu A-landsliðs karla
og uppbyggingu þess á komandi
árum.
Sænskur njósnari í teyminu
Tvö ný andlit eru í starfsteymi
Lagerbäck. Roland Andersson
verður „njósnari“ liðsins – það er
að segja sérfræðingur hans um
andstæðinga Íslands. Lagerbäck
og Andersson hafa unnið lengi
saman, bæði í landsliði Svíþjóðar
og Nígeríu, en sá fyrrnefndi sagði
nauðsynlegt að hafa mann í þessu
hlutverki sem hann þekkir vel
og treystir. Það reynir á skýr og
góð samskipti þeirra, sérstaklega
þegar stutt er á milli leikja. Guð-
mundur Hreiðarsson mun svo sjá
um þjálfun markvarða.
„Númer eitt hjá mér er að vinna
knattspyrnuleiki,“ sagði hann um
hvað hann teldi mikilvægast í
sínu starfi. Það væri eitt að reyna
að spila eins og Barcelona eða
spænska landsliðið en niðurstað-
an væri alltaf sú sama – að vinna
leiki. „Besta leiðin til að vinna
leiki er að spila vel.“
Það eru svo miklu fleiri atriði
sem koma að því að ná aðalmark-
miðinu fram, svo sem agi (innan
sem utan vallar), virðing, liðsheild
og ekki síst hugarfar. Viljinn til að
vinna leiki verður að vera til stað-
ar og hugarfarið verður að vera
rétt.
„Það þarf auðvitað margt til að
ná árangri, svo sem hæfileika,
andlegan styrk og svo framvegis.
En þetta snýst að stórum hluta um
skapgerð og persónur leikmanna,“
sagði Lagerbäck. „Það þarf mis-
munandi leikmenn og hver hefur
sína hæfileika en mín reynsla
sýnir að þeir allra bestu eiga eitt
sameiginlegt – allir hafa gríðar-
lega löngun til að vinna leiki og ná
árangri. Það er hægt að temja sér
slíkan hugsunarhátt en að mestu
leyti er þetta meðfæddur hæfi-
leiki.“
Nýta styrkleika leikmanna
Lagerbäck hnykkir einnig á mik-
ilvægi þess að vera raunsær. „Við
verðum að kunna að meta þá hæfi-
leika sem búa í okkar leikmönn-
um. Góður fótbolti snýst um að
geta nýtt leikmennina og hæfi-
leika þeirra á sem bestan máta,“
sagði Lagerbäck. „Þetta fer einn-
ig saman með bjartsýni og trú á
eigin getu.“ Hann kom einnig að
fleiri þáttum sem snúa að leikað-
ferð („Ég vil spila 4-4-2“), mikil-
vægi æfinga og leikmannavali.
Fyrir leikina tvo í lok mánaðarins
valdi hann tvo átján manna hópa
en enginn leikmannanna mun spila
báða leikina. Hann fær því tæki-
færi til að kynnast sem flestum
leikmönnum.
Fyrstu fjórir leikir liðsins undir
stjórn Lägerbacks verða vináttu-
landsleikir gegn sterkum liðum
á útivelli og segir hann að það sé
mikilvægt að láta reyna vel á liðið.
„Það er auðvitað ekki gott að tapa
en um leið er mikilvægt að liðið
taki framförum. Til þess er nauð-
synlegt að spila gegn eins sterkum
liðum og mögulegt er.“
Lagerbäck hefur kynnt sér leiki
íslenska liðsins á myndböndum
og landsliðsmenn sem hafa spil-
að síðustu ár. Hann vill þó gefa
öllum jafnt tækifæri á að sýna
sig og sanna fyrir honum í eigin
persónu. „En mestu máli skiptir að
bestu leikmennirnir séu í landslið-
inu hverju sinni, óháð aldri,“ ítrek-
ar hann.
Megum ekki við klaufalegum mis-
tökum
Ísland hefur ekki náð góðum
árangri í síðustu undankeppnum
en Lagerbäck segir þó að liðið hafi
oft spilað vel og í raun verið óhepp-
ið í mörgum leikjum. „En ef ég á
að vera hreinskilinn þá fékk liðið
á sig mörg klaufaleg mörk – í raun
kjánaleg (e. silly). Liðið má ekki
við slíkum mistökum ef það ætlar
sér að vinna sterk lið,“ sagði hann
og benti á mörk sem Ísland fékk
á sig gegn Portúgal í síðustu und-
ankeppni. „Liðið spilaði oft vel en
stundum þurfti það síðasta upp á –
að koma boltanum yfir línuna. Þar
komum við aftur að hugarfarinu
og sigurviljanum sem getur haft
mikið að segja í slíkum aðstæðum.
Það er eitthvað sem öll lið þurfa að
huga vel að.“
Ísland leikur gegn Japan 24.
febrúar og Svartfjallalandi fimm
dögum síðar. eirikur@frettabladid.is
NÚMER EITT ER AÐ VINNA LEIKI
Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, hefur valið sína fyrstu landsliðshópa en á blaðamanna-
fundi í gær útlistaði hann hvaða leiðir hann ætlar að fara til að ná settum markmiðum. Leikmenn byrja
með hreint borð hjá þjálfaranum sem valdi alls 36 menn fyrir leikina á móti Japan og Svartfjallalandi.
GÓÐIR SAMAN Lars Lagerbäck og Eyjólfur Sverrisson á blaðamannafundinum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Samvinna þjálfara A-
landsliðs karla og U-21 landsliðs-
ins verður meiri en hingað til. Lars
Lagerbäck sagði á blaðamanna-
fundi KSÍ í gær að hann vonaðist
eftir góðu samstarfi við bæði Eyj-
ólf Sverrisson, þjálfara U-21 liðs-
ins, sem og Sigurð Ragnar Eyjólfs-
son þjálfara kvennalandsliðsins.
„Við höfum rætt saman um þessi
mál og það hefur allt verið mjög
jákvætt,“ sagði Eyjólfur um sam-
starf hans og Lagerbäcks fyrstu
vikur þess síðarnefnda í starfi.
„Við ætlum að koma íslenska
landsliðinu á hærri stall. U-21 liðið
er undirbúningur fyrir A-liðið og
þar fá strákarnir fyrstu kynni af
þessu umhverfi. Við munum sam-
ræma okkar aðferðir, allt frá leik-
skipulagi að agareglum, svo að
leikmenn sem koma úr U-21 lands-
liðinu í A-landsliðið viti að hverju
þeir eru að ganga.“
Lagerbäck leggur áherslu á að
láta lið sín spila samkvæmt 4-4-2
leikkerfinu og Eyjólfur mun því
innleiða þá leikaðferð í sitt lið.
„Við ræddum þessi mál ítarlega
og auðvitað þarf að haga þessum
málum eftir aðstæðum hverju
sinni. En ég tel að við getum stillt
upp í 4-4-2 enda mikilvægt að
þessi tvö lið stilli saman strengi
sína á þennan máta,“ segir Eyj-
ólfur og er óhræddur við að prófa
nýja hluti.
„Ég lít á þetta sem tækifæri til
að bæta við mig og læra af Lars
sem er hokinn af reynslu í þessum
bransa. Þetta er mjög spennandi
tækifæri fyrir mig.“ - esá
Eyjólfur Sverrisson:
U-21 spilar 4-4-2
eins og A-liðið
EYJÓLFUR SVERRISSON Kynnir hér
hópinn sinn í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Leikur við Japan 24. febrúar
Markmenn:
Gunnleifur Gunnleifsson FH
Hannes Þór Halldórsson KR
Varnarmenn:
Hjálmar Jónsson IFK Gautaborg
Arnór Sveinn Aðalsteinsson Hönefoss
Guðmundur Kristjánsson Breiðablik
Skúli Jón Friðgeirsson KR
Hallgrímur Jónasson Sönderjyske
Elfar Freyr Helgason AEK Aþena
Miðjumenn:
Helgi Valur Daníelsson AIK
Theódór Elmar Bjarnason Randers
Steinþór Freyr Þorsteinsson Sandnes
Ari Freyr Skúlason Sundsvall
Haukur Páll Sigurðsson Valur
Þórarinn Ingi Valdimarsson ÍBV
Sóknarmenn:
Gunnar Heiðar Þorvaldsson Norrköping
Arnór Smárason Esbjerg
Matthías Vilhjálmsson FH
Garðar Jóhannsson Stjarnan
Leikur við Svartfjallaland 29. febrúar
Markmenn:
Stefán Logi Magnússon Lilleström
Haraldur Björnsson Sarpsburg
Varnarmenn:
Indriði Sigurðsson Viking
Grétar Rafn Steinsson Bolton
Birkir Már Sævarsson Brann
Bjarni Ólafur Eiríksson Stabæk
Ragnar Sigurðsson FCK
Sölvi Geir Ottesen FCK
Hjörtur Logi Valgarðsson IKF Gautaborg
Miðjumenn:
Emil Hallfreðsson Hellas Verona
Aron Einar Gunnarsson Cardiff
Kári Árnason Aberdeen
Jóhann Berg Guðmundsson AZ
Rúrik Gíslason OB
Eggert Gunnþór Jónsson Wolves
Sóknarmenn:
Birkir Bjarnason Standard Liege
Alfreð Finnbogason Lokeren
Gylfi Þór Sigurðsson Swansea
Landsliðshóparnir hans Lars Lagerbäck
Hilton stóll
kr. 49.000,-
SVARTUR &
BRÚNN
Hilton 3ja sæta
kr. 89.000,-
SVARTUR &
BRÚNN
Hilton 2ja sæta
kr. 69.000,-
SVARTUR &
BRÚNN
ReLax 3ja sæta
kr. 159.000,-
SVARTUR &
BRÚNN
ReLax stóll
kr. 89.000,-
SVARTUR &
BRÚNN
Hallanlegt bak
og fótskemill
báðum megin
Ótrúlega þægilegt !
Allir sitja vel !
U-21 landsliðshópurinn
Markmenn: Arnar Darri Pétursson (Sönder-
jyske), Ásgeir Þór Magnússon (Valur)
Árni Snær Ólafsson (ÍA)
Varnarmenn: Hólmar Örn Eyjólfsson
(Bochum), Finnur Orri Margeirsson (Breiða-
blik), Jóhann Laxdal (Stjarnan), Eiður Aron
Sigurbjörnsson (Örebro), Brynjar Gauti Guð-
jónsson (ÍBV), Hörður Björgvin Magnússon
(Juventus)
Miðjumenn: Þórarinn Ingi Valdimarsson
(ÍBV), Björn Daníel Sverrisson (FH), Dofri
Snorrason (KR), Guðmundur Þórarinsson
(ÍBV), Jón Daði Böðvarsson (Selfoss), Egill
Jónsson (KR)
Sóknarmenn: Kristinn Steindórsson
(Halmstad), Aron Jóhannsson (AGF), Björn
Bergmann Sigurðarson (Lilleström), Þorsteinn
Már Ragnarsson (KR)