Fréttablaðið - 11.02.2012, Side 110

Fréttablaðið - 11.02.2012, Side 110
11. febrúar 2012 LAUGARDAGUR74 PERSÓNAN „Það er óneitanlega gaman að myndin fái svona mikla athygli,“ segir Óskar Þór Axels- son, leikstjóri myndarinnar Svartur á leik. Bandaríski vefmiðillinn Hollywood Reporter telur íslensku myndina vera eina af sjö myndum sem vert er að fylgjast með á kvik- myndahátíðinni í Berlín. Svartur á leik, eða Black ś Game eins og hún er titluð á ensku, hefur verið á miklu heims- hornaflakki undanfarið þrátt fyrir að enn eigi eftir að frumsýna hana hér á landi. Myndin var sýnd á kvikmyndahátíð í Rotterdam á dög- unum en bæði leikstjórinn og aðalleikarinn, Þorvaldur Davíð Kristjánsson, fylgdu henni eftir þangað. Myndin fékk góða dóma þar sem leikarinn Damon Younger fær sérstakt hrós frá gagn- rýnanda vefsíðunnar Twitchfilm.com. „Það er alltaf smá stressandi að frumsýna fyrir fullum sal af fólki en þetta gekk mjög vel og við fengum jákvæð viðbrögð,“ segir Óskar og bætir við að áhorfendur hafi verið að tengja vel við íslenska raunveruleikann í myndinni. „Af því sem ég hef fengið að heyra þykir myndin endurspegla íslenskt umhverfi og veruleika vel.“ Svartur á leik er byggð á bók Stefáns Mána og gerist í undirheimum Reykja- víkurborgar í lok tíunda áratugarins. Óskar ætlar ekki að fylgja myndinni til Berl- ínar en hlakkar til að heyra af viðtökunum. „Ég kemst því miður ekki í þetta sinn en ég fylgist spenntur með. Það verður líka spenn- andi að frumsýna hér heima.“ Myndin verður frumsýnd hér á landi í mars. - áp Óskar Þór ánægður með viðtökurnar ÁNÆGÐUR Óskari Þór Axelssyni líkar vel við athyglina sem mynd hans Svartur á leik hefur fengið úti í heimi. Hér er hann ásamt Stefáni Mána, höfundi bókarinnar sem myndin er byggð á. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Nanna Kristín Magnúsdóttir, leikkona og einn af stofnendum Vesturports, er nú að búa sig og fjöl- skyldu sína undir flutning til Vancouver í Kan- ada. Þangað hyggst leikkonan flytjast á næstu mánuðum til að setjast á skólabekk í Vancouver Film School og takast á við nám í handritagerð fyrir kvikmyndir og sjónvarp. Vancouver Film School er mjög virtur skóli og langt, strangt og erfitt ferli að komast þar inn. Nanna Kristín má því una sátt við sitt og vera stolt af þessum árangri. Til að minnka búslóðina fyrir flutningana hefur Nanna Kristín, ásamt Tobbu Marinós og nokkrum öðrum, boðað til bílskúrssölu á KEX Hosteli Skúlagötu 28, á sunnudaginn milli klukkan 11 og 17. Þar verður að finna allt frá barnafötum til húsgagna og alvöru bílskúrssölu- andrúmsloft mun svífa yfir vötnum. - trs Nanna lærir handritagerð HELDUR UTAN Nanna Kristín flytur með fjölskylduna til Vancouver. „Það er mannréttindabrot að geta ekki keypt sitt rauðvín,“ segir Aðalbjörn Tryggvason, söngvari rokksveitarinnar Sólstafa. Ekki eru allir á eitt sáttir við ákvörðun ÁTVR og stjórnvalda um að banna sölu á rauðvíni ensku rokksveitarinnar Motörhead hér á landi. Ástæðan sem gefin var upp var sú að nafnið sé vísun í amfeta- mínneyslu og sveitin syngi um stríð, óábyrgt kynlíf og fíkniefni. „Tónlist er list og það er verið að kenna rauðvín við listform. Hvernig geturðu sagt að listform stuðli að eiturlyfjaneyslu, stríði og óábyrgu kynlífi. Þetta er út í hött,“ segir Motörhead-aðdáand- inn Aðalbjörn, sem er ósáttur við gang mála. „Þetta er bara plebb- ismi. Á hvaða öld lifum við eig- inlega? Þú tekur ekki LSD þótt þú hlustir á Let it Be. Börn eru í tölvuleikjum og þau fara ekki að drepa fólk. Þetta er forræðis- hyggja af verstu sort,“ segir hann og bætir við: „Þegar ég sá þetta á netinu hugsaði ég: „Af hverju er ég ekki ofbeldishneigður? Þá myndi ég bara skalla einhvern. Ég á ekki til orð.“ Bergur Geirsson úr poppsveit- inni Buff, sem er einnig mik- ill Motörhead-maður, er á sama máli og Aðalbjörn. „Þetta er þessi hræsni sem er í stjórnsýslunni og víðar. ÁTVR myndi leyfa Winston Churchill-koníak þó að hann hafi verið spíttfíkill og drykkjumaður. Ef það kæmi Bítlabjór í ríkið yrði hann örugglega leyfður.“ Annar grjótharður Motörhead- aðdáandi er Vésteinn Valgarðs- son. „Mér þykir miður að geta ekki keypt mér Motörhead-vín. Mér finnst ástæðurnar sem eru gefnar upp fyrir því hljóma hjá- kátlega. Þær hljóma eins og geð- þóttaákvörðun. Ef við myndum nota sama mælikvarða á allt þá myndu þeir örugglega banna ýmis- legt sem þeir leyfa núna. Ég skil ekki af hverju ég ætti ekki að geta keypt mér þetta rauðvín,“ segir Vésteinn svekktur. Blaðamaður reyndi einnig að ná tali af Jóa Motörhead, fyrrum trommuleikara Egó, við vinnslu fréttarinnar en ekki náðist í hann. freyr@frettabladid.is AÐALBJÖRN TRYGGVASON: FORRÆÐISHYGGJA AF VERSTU SORT Mannréttindabrot að geta ekki keypt rauðvínið sitt ÓSÁTTIR MOTÖR- HEAD-AÐDÁENDUR Aðalbjörn Tryggvason, Bergur Geirsson og Vésteinn Valgarðsson eru ósáttir við að mega ekki kaupa sér Motörhead-rauðvín í ÁTVR sem Lemmy og félagar í Motör- head standa fyrir. Agnar Ólason Aldur: 21 árs Starf: Vél- skólanemi, útgerðarmaður og formaður Karlakórs Sjó- mannaskólans. Foreldrar: Óli Björn Einarsson, húsasmiður og Kristbjörg Sigurðar- dóttir, verðandi ferðamálafræðingur. Hjúskaparstaða: Einhleypur. Búseta: Bý í Reykjavík eins og er, en er aðfluttur frá Kópaskeri. Stjörnumerki: Tvíburi. Agnar er formaður Karlakórs Sjómanna- skólans sem sigraði söngkeppni Tækni- skólans í síðustu viku og keppir fyrir hönd skólans í Söngkeppni framhalds- skólanna. Krassandi ævintýraleikrit í leikstjórn Sigga Sigurjóns MIÐASALA Á NETINU: LEIKFELAG.IS NETFANG: MIDASALA@LEIKFELAG.IS MIÐASÖLUSÍMI: 4 600 200 TRYGGÐU ÞÉR MIÐA STRAX FRAMLEITT AF LEIKFÉLAGI AKUREYRAR Í SAMSTARFI VIÐ BORGARLEIKHÚSIÐ Lau 11/2 kl.16 UPPSELT Lau 11/2 kl.19 UPPSELT Sun 12/2 kl.19 UPPSELT Fim 16/2 kl.19 örfá sæti laus Fös 17/2 kl.19 UPPSELT Lau 18/2 kl.16 UPPSELT Lau 18/2 kl.19 UPPSELT Sun 19/2 kl.19 örfá sæti laus Fim 23/2 kl.19 örfá sæti laus Fös 24/2 kl.19 UPPSELT Lau 25/2 kl.16 UPPSELT Lau 25/2 kl.19 UPPSELT Sun 26/2 kl.16 ný sýning Lifestream Bowel+ meltingarensímin tryggja betri meltingu, meiri upptöku á næringaefnum og góða líðan í maga og ristli. Regluleg inntaka tryggir vellíðan. Inniheldur: Nútíma meðhöndlun á matvælum eyðileggur ensímin í matnum, því skortir flesta meltingarensím nema við séum reglulega á hráfæði. lífræn bætiefni fyrir alla - heilsa til framtíðar Fæst: Apótekum, heilsubúðum og Krónunni. Bragðgott, 2 tsk á dag
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.