Fréttablaðið - 16.03.2012, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 16.03.2012, Blaðsíða 1
veðrið í dag Íslenskt hráefni í Svíþjóð Rúnar Larsen býður upp á íslenskt lamb og humar á veitingahúsi sínu í Svíþjóð. MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Sími: 512 5000 *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup júlí - september 2011 Föstudagur skoðun 16 2 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Fólk Lífið 16. mars 2012 64. tölublað 12. árgangur BJÓÐA UPP Á ÍSLENSKAN HUMAR OG LAMB Í SVÍ Ó MÁLVERKA-GJÖRNINGUR Hulda Hlín Magnúsdóttir stendur fyrir gjörningi, Málverk á ferð, á morgun. Gjörningurinn hefst við Hallgrímskirkju klukkan 13. Þaðan ferðast hún með málverk gegnum miðbæinn til þess að gera list sýnilegri utan hefðbundinna sýningarrýma. 16. MARS 2012 KATRÍN JAKOBS RÁÐHERRA LEIKUR VIÐ BÖRNIN TIL AÐ TÆMA HUGANN JÓI FEL & UNNUR SAMSTÍGA Í RÆKTINNI GLÆSIKONUR Á OPNUN HRÍMS HÖNNUNARHÚSS MAGGI BESS & KATRÍN EVA Í SKÝJUNUM Paratabs® Kringlukast Opið til 19 í kvöld Nýtt kortatímabil 20–50% afsláttur Einstök örlagasaga um vináttu, leyndarmál og ástríður NÝ KILJA Ég l jú fa v i l þé r s yng ja söngva ÉL SV-TIL Í dag verður yfirleitt hæg suðlæg átt með éljum SV-til en annars úrkomulaust að mestu. Hitinn breytist lítið. VEÐUR 4 1 -1 -2 -2 0 EFNAHAGSMÁL Rannsóknarnefnd Alþingis vann ágæta grunnvinnu á þeim skamma tíma sem hún hafði til umráða en sú vinna dugar hvergi nærri til að gera upp hrun- ið. Þetta er mat Ingibjargar Sól- rúnar Gísladóttur, fyrrverandi utanríkisráðherra. „Tökum mig sem dæmi, ég fer til rannsóknarnefndarinnar og sit þar í klukkutíma í skýrslutöku. Það er allt og sumt. Það sem fólk segir er aldrei gagnprófað og reynt að kafa dýpra eða fólk spurt aftur og málum fylgt eftir. Það er ekki við nefndina að sakast – hún hafði mjög skamm- an tíma – en það hefði þurft að skoða þetta miklu betur,“ segir Ingibjörg í viðtali við Fréttablaðið í dag. Hún telur að það hafi verið mikil mistök að fara með málið í refsifar- veg þar sem ekkert er til skoðunar annað en tímabilið frá febrúar fram í október 2008. „Í stað þess að fara með þetta í farveg einhvers konar sannleiksnefndar þar sem málið yrði skoðað í miklu víðara ljósi. Það er það sem menn eins og Ögmundur Jónasson átta sig núna á þó að seint sé. Þetta gerir það að verkum að það er búið að loka þeirri leið – hún verð- ur aldrei farin.“ Ingibjörg segir að þrátt fyrir allt þetta séu réttarhöldin yfir Geir H. Haarde ekki alslæm. „Það er að ýmsu leyti gott að fá að koma þarna og fá að tala. Vegna þess að maður hefur upplifað það í þrjú ár að það hafa engin hlustunarskilyrði verið í samfélaginu. Það er eins og sá tímapunktur sé kannski loksins kominn.“ Ingibjörg ræðir í einnig í viðtal- inu um starf sitt í þágu kvenréttinda í Afganistan. - sh / sjá síðu 12 Skýrsla RNA langt frá því að vera nóg Við hefðum þurft sannleiksnefnd til að gera upp hrunið, segir Ingibjörg Sólrún, sem telur rannsóknarnefnd Alþingis ekki standa undir þeim titli. Sjálf sat hún lengur í vitnastúku fyrir Landsdómi en í skýrslutöku hjá rannsóknarnefndinni. EFNAHAGSMÁL Húsnæðisverð á Íslandi er líklegt til að hækka um samanlagt 16% á næstu tveimur árum. Að teknu tilliti til verðbólgu- spár jafngildir það um 8,5% hækk- un að raunvirði. Þetta er mat grein- ingar Íslandsbanka sem birt hefur spá um þróun íbúðaverðs. Í spánni kemur fram að meðal helstu aflvaka líklegra hækkana verði áframhaldandi bati í efna- hagslífinu, sögulega lágir vextir, vaxandi kaupmáttur og minni óvissa um skuldastöðu heimila. Þá hafi á síðustu misserum safnast upp óuppfyllt eftirspurn eftir húsnæði. Helsta forsenda spárinnar er að bat- inn í hagkerfinu haldi áfram á næst- unni án bakslags en ýmsir óvissu- þættir eru þó nefndir sem sett geta strik í reikninginn. Ingólfur Bender, forstöðumaður greiningar Íslands- banka, segir að hækki húsnæðis- verð muni það koma skuldugum heimilum til góða. „Þetta getur auk þess ýtt undir efnahagsbatann en þá þarf að tryggja að hækkunin verði varanleg og sérstaklega að passa að ekki verði farið of geyst í nýjar lánveitingar,“ segir Ingólfur. Gangi spáin eftir mun sú lækk- un sem varð á nafnverði íbúðar- húsnæðis eftir hrun hafa gengið til baka um mitt þetta ár. Raunverð er þó enn langt undir þeim hæðum sem það náði fyrir hrun. - mþl Greining Íslandsbanka spáir 16% hækkun húsnæðisverðs næstu tvö ár: Ekki má fara of geyst í lánveitingar FÓLK Leikstjórinn Ólafur Jóhannes son er að ganga frá samningum við kvikmyndaris- ann New Regency um endurgerð á myndinni Borgríki. Það eru Hollywood-fram- leiðendurnir James Mangold og Cathy Conrad sem hyggjast endurgera myndina en meðal þeirra mynda sem þau hafa fram- leitt eru Walk the Line, Girl Interrupted og Scream 1, 2, 3 og 4. „Þetta er mjög stórt og við Kristín Andrea, sem framleiddi Borgríki með mér, erum komin með sterkan lögfræðing til að sjá um okkur þarna úti því þetta er mikill frumskógur.“ - áp / sjá síðu 34 Íslensk kvikmynd endurgerð: Selja Borgríki til Hollywood SAFNA FYRIR UNICEF Nemendur í Hvaleyrarskóla í Hafnarfirði hafa undanfarna daga kynnst Afríku vegna þemadaga í skólanum. Krakkarnir framleiddu meðal annars skartgripi. Í dag milli klukkan tíu og tólf verður opið hús þar sem hægt verður að kaupa afurðirnar. Allur ágóðinn rennur til UNICEF. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Læra fléttur Útskriftarnemar í hárgreiðslu kenna foreldrum ýmsar auðveldar barnahárgreiðslur. lífstíll 26 Börn eru vanmetin Þórdís Þórðardóttir ver í dag doktorsritgerð sína um menningarlæsi barna. tímamót 20 Töpuðu en fengu bikar Grindvíkingar tóku á móti deildarmeistarabikarnum í gærkvöldi. sport 30 SÝRLAND Yfir þúsund flóttamenn hafa komið til Tyrklands frá Sýr- landi undanfarinn sólarhring. Verið er að setja upp nýjar flótta- mannabúðir fyrir ört vaxandi fjölda Sýrlendinga við landa- mærin. Ár var í gær liðið frá því að uppreisnin gegn Assad Sýrlands- forseta hófst. Stjórnarherinn hefur hert aðgerðir sínar gegn uppreisnarmönnum undanfar- ið og er talið að 46 manns hið minnsta hafi látist í gær. Mann- réttindasamtök segja um tíu þús- und manns hafa látist á undan- förnu ári. Sameinuðu þjóðirnar telja að um 230 þúsund manns hafi flúið heimili sín vegna ástandsins. - þeb Ár liðið frá uppreisn í Sýrlandi: Þúsundir flýja til Tyrklands FLÓTTAMANNABÚÐIR Sýrlenskur drengur í Reyhanli-flóttamannabúð- unum í Tyrklandi. NORDICPHOTOS/AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.