Fréttablaðið - 16.03.2012, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 16.03.2012, Blaðsíða 20
■ FRAMHALD AF FORSÍÐU Sýningin heitir Dulúð og myndirnar eru allar unnar út frá hugmynd-um um einhverja óskilgreinda töfraveru,“ segir Rebekka Líf sem opnar einkasýningu á ljósmyndum í Galleríi Tukt á morgun. „Þetta eru sex myndir á svipuðum nótum og þemað er ljós og skuggi.“ Rebekka Líf stundar nám í ljósmynd- un við Tækniskólann og útskrifast í vor. Auk þess hefur hún lokið sveinsprófi í grafískri miðlun. Hvað var það sem kveikti áhugann á ljósmyndun? „Ég hef tekið myndir síðan ég var lítil stelpa og þessi áhugi alltaf legið undir niðri,“ segir Rebekka Líf. „Ég held reyndar að mér hafi í upphafi þótt þetta spennandi af því að það var eiginlega bannað að vera að fíflast með myndavélina hans pabba og það varð auðvitað til þess að maður sótti enn meira í það. Ég fékk þó að nota einnota myndavélar, en filmurnar voru nánast aldrei framkall- aðar þannig að ég á enn þá fjöldann allan af óframkölluðum filmum heima. Fyrstu stafrænu myndavélina fékk ég svo í fermingargjöf, en það var ekki fyrr en 2008 sem ég eignaðist virkilega góða myndavél og þá opnuðust nýjar dyr fyrir mér. Þá gerði ég mér grein fyrir því að það var hægt að tjá sig með mynd- unum og segja heilu ævintýrin.“ Rebekka Líf stefnir á framhaldsnám í ljósmyndun en þar sem ekki er hægt að stunda það hérlendis er hún ekki viss um hvenær eða hvert hún fer. „En það er alveg á hreinu að ég verð viðloðandi þennan geira það sem eftir er,“ segir hún og brosir út að eyrum. ■ fsb FÓLK|HELGIN SÝNIR MYNDIR AF ÓSKIL- GREINDRI TÖFRAVERU LISTRÆN LJÓSMYNDUN Dulúð nefnist ljósmyndasýning sem opnuð verður í Gall- eríi Tukt á morgun. Þar sýnir Rebekka Líf ljósmyndir sem prentaðar eru á álplötur. SÚKKULAÐI- KAKAN 125 g sykur 140 g súkkulaði 125 g smjör 5 egg 75 g hveiti Bræðið smjör, sykur og súkkulaði saman. Kælið blönduna og hrærið eggjunum saman við einu í einu. Sigtið hveitið síðan í blönduna. Kælið deigið í tvær klukkustundir áður en það fer í ofninn. Penslið formin með smjöri og síðan hrásykri áður en þau eru fyllt með deiginu að 2/3. Bakað við 175°C í um það bil 8 mínútur. Þessi súkkulaðikaka á að vera fljótandi í miðjunni. Ef hún er bökuð í einu stóru formi þarf lengri tíma. HINDBERJAÍS 100 g sykur 250 ml mjólk 250 ml rjómi 80 g eggjarauða 1 vanillustöng 350 ml hindberja- mauk Sjóðið saman sykur, mjólk, rjóma og vanillu. Munið að kljúfa vanillu- stöngina og skrapa út fræin, þar er allt bragðið. Þeytið eggjarauðuna létt í stórri skál, hellið síðan sjóðandi rjóma- blöndunni yfir eggin og þeytið á meðan þangað til þykknar. Blandið þá hindberjamauk- inu í og kælið niður áður en ísinn er frystur í ísvél. Þegar Rúnar fór til Svíþjóðar fékk hann vinnu á veitingahúsi í bæ sem nefnist Piteå. Eigendur þar voru hjónin Jón Óskar Árnason og Sarah Holmqvist Árnason. Í sameiningu ákváðu þau að ráðast í byggingu nýs veitingahúss í Skellefteå sem var opnað í nú desember. Um sjötíu kílómetrar eru á milli þessara tveggja bæja. Í Skellefteå eru tvö veitingahús í sama húsi, annars vegar bistró og hins vegar fínn veitinga- staður. Staðurinn er búinn nýjustu og fullkomnustu tækjum. „Þetta er í raun sami veitingastaður og í Piteå þótt hann sé kominn á nýjan stað í nýju húsi. Um tuttugu manns starfa á Bryggargatan, fjórtán í fullri vinnu og sex í hlutastarfi. Þetta er gríðar- mikil vinna en skemmtileg þó að sumir dagar geti verið langir,“ segir Rúnar. EKKI Á HEIMLEIÐ „Ég ætlaði upphaflega að vera hér í eitt ár en þegar ég var búinn að vera í níu mánuði gerðist ég meðeigandi. Nú er ég sestur hér að og ekki á heimleið, enda kann ég vel við mig hérna,“ segir Rúnar sem segist hafa verið fljótur að komast inn í málið. Hann hafði áður starfað eitt sumar sem kokkur í Svíþjóð. Þótt stutt sé síðan veitingahúsið var opnað hefur það strax vakið athygli. Rúnar segir að íbúar í bænum séu um 70 þúsund og duglegir að fara út að borða. Boðið hefur verið upp á íslenskt lamba- kjöt og humar sem var mjög vel tekið af gestum staðarins. Þeir félagar, Rúnar og Jón Óskar, ætla að gera meira af því í framtíðinni að bjóða upp á íslenskt hrá- efni. Rúnar bætir því þó við að í Svíþjóð sé hráefnið líka mjög gott. KEPPNISMAÐUR Rúnar segir allnokkrar Íslendinga búa á þessu svæði og hafa þeir verið duglegir að koma á Bryggargatan. „Í Piteå er tón- listarháskóli og þar eru Íslendingar við nám sem þekkja staðinn.“ Rúnar Þór Larsen hefur tekið þátt í keppni matreiðslumanna, bæði hér heima og í Svíþjóð. Árið 2005 hlaut hann titilinn matreiðslunemi ársins. Árið 2007 tók hann þátt í keppninni Mat- reiðslumaður ársins í Svíþjóð og komst þar í undanúrslit, einn af 24 en 150 mat- reiðslumenn tóku þátt. Þá lenti hann í þriðja sæti í keppninni Matreiðslumaður ársins hér á landi árið 2009. Rúnar gefur lesendum uppskrift að vinsælum eftirrétti á Bryggargatan. ■ elin DULÚÐ Rebekka Líf opnar sýningu á ljósmyndum sínum í Galleríi Tukt á morgun. MYND/STEFÁN NAMMI NAMM Heit súkkulaðikaka, fljótandi í miðjunni. 4 beikonsneiðar 2 salatblöð 2 tómatsneiðar 2 brauðsneiðar, ristaðar 1 msk. majónes Steikið beikon á pönnu, í um það bil tíu mínútur. Þerrið sneiðarnar með eld- húspappír. Raðið beikoni, káli og tóm- ötum á aðra ristuðu brauðsneiðina. Smyrjið majónesi á hina. Leggið brauð- sneiðarnar saman. Útkoman er guð- dómleg. Á KORTERI BLT samloka HEIT SÚKKU LAÐI KAKA MEÐ HINDBERJAÍS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.