Fréttablaðið - 16.03.2012, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 16.03.2012, Blaðsíða 2
16. mars 2012 FÖSTUDAGUR2 Felix, verða þetta þöglar kvöld- stundir? „Þetta er svo rómantískt hjá okkur að ég vitna bara til skáldsins og segi: Þögul nóttin þreytir aldrei þá sem unnast.“ Felix Bergsson, leikari og tónlistarmaður, gaf á dögunum út sína fyrstu sólóplötu sem ber nafnið Þögul nóttin. Á næstunni heldur Felix ferna tónleika víðs vegar um landið til að kynna plötuna. DÓMSMÁL Golfklúbbur Öndverðar- ness og Golfklúbbur Kiðjabergs krefjast þess að innanríkisráðu- neytið ógildi ákvörðun sveitar- stjórnar Grímsnes- og Grafn- ingshrepps um byggingu 18 holu golfvallar í landi Minni-Borgar. „Það virðist vera einlægur vilji sveitarstjórnar að í sveitar- félaginu verði í framtíðinni einn golfvöllur, golfvöllur sveitar- félagsins, byggður og rekinn fyrir skattfé íbúanna og sumarhúsa- eigenda. Innanríkisráðuneytinu ber að koma í veg fyrir slíkt enda framkvæmdin andstæð lögum,“ segir Hjörleifur Kvaran, lögmað- ur golfklúbbanna tveggja, í stjórn- sýslukæru. Ráðuneytið hafn- ar kröfum klúbbanna um að það mæli fyrir um að framkvæmdum sé frestað þar til úrskurður þess liggur fyrir. Gunnar Þorgeirsson, oddviti sveitarfélagsins, bendir á að engar athugasemdir hafi verið gerðar þegar deiliskipulag fyrir golfvöll- inn var samþykkt fyrir um tíu árum. Þá var það reyndar Golf- borgir ehf. sem hugðist standa að byggingu vallarins og hóf fram- kvæmdir. Félagið fór í þrot og sveitarfélagið keypti landið af Sparisjóðabankanum fyrir 55 milljónir króna. „Þarna hefur verið opið fram- kvæmdasvæði sem valdið hefur talsverðu moldroki og leiðindum. Við sjáum fyrir okkur að loka þessu en erum ekki að fara að reka golfvöll,“ segir oddvitinn og hafn- ar því að sveitarfélagið megi ekki koma að uppbyggingu vallarins. „Ég vissi ekki að það væru einkaleyfi á uppbyggingu golfvalla á Íslandi,“ segir Gunnar. „Sveit- arfélög byggja upp íþróttavelli, knattspyrnuvelli og körfuboltavelli og væntanlega flokkast golf undir íþrótt þannig að ég átta mig nú alls ekki á þessum málflutningi.“ Grímsnes- og Grafningshrepp- ur hefur þegar undirritað viljayf- irlýsingu um leigu á golfvellinum við félag sem þar hyggst reisa og reka eitt hundrað herbergja hótel. Jóhann Friðbjörnsson, formað- ur Golfklúbbs Kiðjabergs, segist telja viljayfirlýsinguna yfirvarp sveitarstjórnarinnar vegna kær- unnar. Sveitarstjórnin muni alla tíð koma að rekstrinum á einn og eða annan hátt. „Nú er ljóst að að fjárfesta þarf í tækjum til að slá og hirða það svæði sem tilbúið verður í vor. Má þá segja að sveitarfélagið sé komið í rekstur á svæðinu um leið og sú vinna hefst. Höfum heyrt að þeir séu nú þegar búnir að fjárfesta í einum vinnubíl og að fleiri tæki séu á leiðinni. Verða þessi tæki trúlega skráð á áhaldahús sveitarfélagsins svo kostnaður við kaup leggist ekki völlinn og rekstur við hann,“ segir Jóhann. gar@frettabladid.is Klúbbar kæra nýjan golfvöll í Grímsnesi Golfklúbbar kæra Grímsnes- og Grafningshrepp til innanríkisráðuneytisins vegna byggingar sveitarfélagsins á golfvelli við Minni-Borg. Oddvitinn segir engan hafa einkarétt á golfvöllum. Sveitarfélagið muni ekki sjálft reka völlinn. GOLFVÖLLUR Á MINNI-BORG Áætlað er að um 170 milljónir króna kosti að ljúka gerð vallarins á Minni-Borg sem hannaður er af Edwin Roald golfvallahönnuði. Sérkenni á vellinum verður meðal annars að í stað sands verður rauðamöl í glompum. MYND/EDWIN ROALD DÓMSMÁL Karlmaður var í dag dæmdur í þriggja mánaða skil- orðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt þegar hann sat sem gjaldkeri í fjölbýlishúsi í Breiðholti í Reykja- vík. Maðurinn dró sér rúma millj- ón á tímabilinu 23. mars 2010 til 24. nóvember sama ár. Við meðferð málsins fyrir dómi féll sækjandi málsins frá nokkr- um ákæruliðum, upphæðin lækk- aði því lítillega og stóð því í 805 þúsund krónum. Maðurinn, sem er tæplega fimmtugur, játaði brot sín skýlaust. Refsingin er skil- orðsbundin og fellur niður eftir tvö ár, haldi maðurinn skilorð. Fimmtugur maður dæmdur: Stal milljón frá húsfélaginu HEILBRIGÐISMÁL Hjúkrunar- fræðingum og ljósmæðrum verður heimilt að ávísa horm- ónatengdum getnaðarvörnum að uppfylltum ákveðnum skil- yrðum, samþykki Alþingi frum- varp Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra. Á vef ráðuneytis hans kemur fram að með frumvarpinu sé brugðist við tilmælum barna- réttarnefndar Sameinuðu þjóðanna sem lýsti nýlega yfir áhyggjum vegna fjölda þungana og fóstureyðinga meðal stúlkna undir 18 ára aldri hér á landi. Sala hormónagetnaðar- varna er minnst hér á landi í samanburði við önnur Norðurlandaríki. Sala á neyðargetnaðarvörnum er hvað mest hér. - ibs Ávísun getnaðarvarna: Fleiri en læknar fái heimildina FRAKKLAND, AP Franska ríkið braut ekki á rétti lesbískrar konu með því að banna henni að ættleiða barn. Þetta er niður- staða Mannréttindadómstóls Evrópu. Konan vildi ættleiða dóttur konu sinnar og verða lögforeldri hennar. Henni var neitað um það og franskir dómstólar vís- uðu í lög um að aðeins gift fólk gæti ættleitt á þennan hátt. Konurnar kærðu niðurstöð- una til Mannréttindadómstóls- ins og töldu þeim mismunað vegna kynhneigðar. Mannrétt- indadómstóllinn taldi svo ekki vera, því samkvæmt lögun- um væri öllum ógiftum pörum bannað að ættleiða með þessum hætti, óháð kynhneigð. Samkyn- hneigðir mega ekki gifta sig í Frakklandi. - þeb Mannréttindadómstóll Evrópu: Bann við ætt- leiðingu í lagi LÖGREGLUMÁL Sex menn voru í Héraðsdómi Reykjaness í gær úrskurðaðir í gæsluvarðhald til miðvikudags vegna viðamikillar rannsóknar lögreglu á skipulagðri glæpastarfsemi, líkamsmeiðingum og öðrum tengdum brotum. Fimm þeirra hafa kært úrskurðinn til Hæstaréttar. Meðal þeirra sem sitja í varð- haldi eru handrukkarinn Ann- þór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson, sem hlaut sjö og hálfs árs fangelsisdóm árið 2005 fyrir hrottafengna líkamsárás með öxi. Þá er að minnsta kosti einn sex- menninganna liðsmaður vélhjóla- samtakanna Hells Angels, en hann var tekinn höndum í Héraðsdómi Reykjaness í gærdag, þar sem hann var staddur til að styðja félaga sína í samtökunum sem voru leiddir fyrir dómara út af öðru máli. Annþór og Börkur eru taldir hafa staðið í innheimtustarfsemi um nokkurt skeið, meðal annars fyrir Hells Angels, og eru þeir grunaðir um að tengjast tveimur alvarlegum líkamsárásum, annars vegar í Mosfellsbæ og hins vegar í Hafnarfirði. Lögregla réðst í húsleitir á átta stöðum vegna málsins á mið- vikudagsmorgun, meðal annars á tveimur sólbaðsstofum Annþórs og Barkar og í heimahúsum. Þar fannst lítilræði af fíkniefnum og meint þýfi. - sh Viðamikil rannsókn á skipulagðri glæpastarfsemi og handrukkunum: Sex úrskurðaðir í gæsluvarðhald HULINN Annþór var leiddur út úr Héraðsdómi Reykjaness undir teppi. MÆTTUR AFTUR Þessi liðsmaður Hells Angels var handtekinn í Héraðsdómi Reykjaness á miðvikudag og leiddur þangað aftur í gær. EFNAHAGSMÁL Stjórnvöld endur- greiða síðar í þessum mán- uði jafngildi 116 milljarða króna af lánum frá Alþjóða- gjaldeyrissjóðnum (AGS) og Norðurlöndunum. Fjárhæðin nemur ríflega fimmt- ungi af þeim lánum sem tekin voru hjá aðilunum í tengslum við efna- hagsáætlun stjórnvalda og AGS. Um er að ræða fyrirframgreiðslu vegna gjalddaga lánanna á árunum 2013 til 2016. Miðar greiðslan að því að draga úr kostnaði við gjald- eyrisforðahald. - mþl Endurgreiðsla AGS lána: Greiða 116 millj- arða fyrirfram VIÐSKIPTI Slitastjórn Glitnis greið- ir í dag forgangskröfuhöfum jafngildi 105,6 milljarða króna. Greiðslurnar verða í myntkörfu sem styðst við gengi krónunnar hinn 22. apríl 2009. Slitastjórnin áformar að inna af hendi greiðslur beint til for- gangskröfuhafa og einnig inn á sérstaka geymslureikninga sem greitt verður af mánaðarlega. Samkvæmt breytingum sem gerðar voru á lögum um gjaldeyris höft í vikunni þarf slita- stjórnin samþykki Seðlabankans fyrir úthlutun greiðslna í íslensk- um krónum. Sá hluti sem greiða átti í íslenskum krónum í dag verður settur á geymslureikning meðan beðið er heimildar Seðla- bankans fyrir greiðslunum. - mþl Slitastjórn Glitnis: Greiðir út rúma 100 milljarða Eldisstöð fyrir senegalflúru Framkvæmdir við nýja fiskeldisstöð á Reykjanesi gætu hafist á næstu vikum. Stolt Sea Farm Holdings hefur fengið leyfi frá Reykjanesbæ til að reisa stöðina. Um er að ræða eldi á senegalflúru. REYKJANESBÆR STJÓRNSÝSLA Aðalsteinn Leifsson, stjórnarformaður Fjármála- eftirlitsins, segir að rétt hafi verið staðið að brottvikningu Gunnars Þ. Andersen úr starfi forstjóra FME. Þetta kom fram í viðtali við hann í Kastljósi í gærkvöldi. Aðalsteinn segir að frá upphafi hafi verið ljóst að ákvörðun um framtíð Gunnars hjá FME yrði byggð á þremur þáttum: álits- gerð Andra Árnasonar lögmanns, álitsgerð Ástráðs Haraldssonar lögmanns og Ásbjörns Björns- sonar endurskoðanda og loks mati stjórnar FME. Hann sagði aðeins hafa verið stigsmun á álits- gerðunum tveimur og niðurstaða beggja hafi verið að upplýsinga- gjöf Gunnars um aðkomu hans að aflandsfélögum í eigu Landsbank- ans hafi verið ófullnægjandi. Aðalsteinn hélt því fram að ekki hefði verið hægt að veita Gunn- ari áminningu eins og lög um rétt- indi og skyldur opinberra starfs- manna kveða á um vegna þess að brot hans hefðu átt sér stað áður en hann var ráðinn. Hann sagðist ekki óttast að tapa dómsmáli ef Gunnar kærir brottvikningu sína. - þeb Aðalsteinn Leifsson, stjórnarformaður FME, segir ekki hægt að veita áminningu: Segir rétt staðið að brottvikningu AÐALSTEINN LEIFSSON GUNNAR Þ. ANDERSEN SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.