Fréttablaðið - 16.03.2012, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 16.03.2012, Blaðsíða 40
16. mars 2012 FÖSTUDAGUR20 Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. timamot@frettabladid.is Okkar ástkæra eiginkona, dóttir, móðir, tengdamóðir og amma, Guðlaug Gunnarsdóttir Frostaskjóli 3, Reykjavík, andaðist að morgni 11. mars á Landspítalanum við Hringbraut. Útförin fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn 20. mars kl. 13.00. Halldór Vídalín Kristjánsson Ebba Dahlmann Solveig Sif Halldórsdóttir Arnar Pálsson Jón Vídalín Halldórsson Linda Björg Birgisdóttir Gunnar Áki Halldórsson Svala Júlía Ólafsdóttir og barnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Rósa Kemp Þórlindsdóttir Barrholti 7, Mosfellsbæ, sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi fimmtudaginn 8. mars síðastliðinn, verður jarðsungin frá Grensáskirkju mánudaginn 19. mars klukkan 13.00. Jón Þorberg Eggertsson Ólafur Ólafsson Alda Konráðsdóttir Svala Haukdal Jónsdóttir Kjartan O. Þorbergsson Þórdís Elva Jónsdóttir Hafsteinn Ágústsson Guðríður Erna Jónsdóttir Ólafur Ágúst Gíslason Jórunn Linda Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum stuðning og hlýhug við andlát og útför ástkærrar unnustu minnar, dóttur okkar, systur, mágkonu og frænku, Petrínu Margrétar Árnadóttur Sólheimum 27, Reykjavík. Guðmundur Mjölnir Þorsteinsson Árni Sigurðsson Sigurbjörg Sigurðardóttir Kristófer Eiríkur Árnason Sandra Ólafsdóttir Þorkell Árnason Oddný Bergþóra Helgadóttir Viðar Már Ólafsson Kristófer Örn Kristófersson Kristinn Arnar Kristófersson Bróðir minn, Lárus Magnússon frá Tjaldanesi, sem andaðist þann 9. mars sl., verður jarðsunginn frá Staðarhólskirkju í Dalasýslu laugardaginn 17. mars og hefst athöfnin kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Guðrún Magnúsdóttir Elskulegur frændi okkar og mágur, Barði Ágústsson Lindargötu 4, Siglufirði, lést á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar 8. mars. Hann verður jarðsunginn frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 17. mars kl. 14.00. Við færum starfsfólki Heilbrigðisstofnunarinnar sérstakar þakkir fyrir einstaka umönnun og hlýju. Aðstandendur. 70 ára afmæli Smiðurinn, skátinn og slökkviliðsmaðurinn síkáti, Siggi í Bæjarstæði (afi Siggi), Sigurður Guðjónsson, verður 70 ára laugardaginn 17. mars. Í tilefni dagsins verður slegið upp veislu í Golfskálanum frá kl. 16-19. Þökkum af alhug auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru Baldvinu Gunnlaugsdóttur Eiðsvallagötu 26, Akureyri. Guð blessi ykkur öll. Anton Sölvason Anna Vigfúsdóttir Margrét Sölvadóttir Þröstur Guðjónsson Gunnlaugur Sölvason Halldóra Garðarsdóttir María Sölvadóttir Egill Sölvason Auðbjörg Bára Guðmundsdóttir Guðfinna Sölvadóttir Konráð Gunnarsson barnabörn og barnabarnabörn. „Það kom mér helst á óvart hvað var auðvelt að sýna fram á hvað 4 og 5 ára börn búa yfir mikilli hæfni til að byggja upp þekkingu og gefa henni merkingu. Ég held að börn séu tölu- vert vanmetnir einstaklingar,“ segir Þórdís Þórðardóttir, sem í dag klukk- an 13 mun verja doktorsritgerð sína við uppeldis- og menntunarfræði- deild Menntavísindasviðs í hátíðarsal Háskóla Íslands. Nafn ritgerðarinnar er „Menningar- læsi – hlutverk barnaefnis í uppeldi og menntun telpna og drengja í tveim- ur leikskólum“. Með menningarlæsi leikskólabarna er átt við þá þekkingu þeirra á barnaefni sem nýtist þeim til virkrar þátttöku í samræðum, leik og skapandi starfi í leikskólanum og færir þeim jafnframt virðingarsess í jafningjahópnum. Er þá jafnt átt við bækur, sjónvarp, mynddiska og tölv- ur, enda gera börn engan greinarmun á því efni að sögn Þórdísar. „Þegar kemur að barnaefni getum við ekki flokkað eftir hugmyndum okkar um sígilt efni og afþreyingarefni, því þau gera ekki greinarmun á því.“ Þórdís segir það standa upp úr niðurstöðum hennar hversu kynjað menningarlæsi barna sé. „Það kom mér satt að segja óþægilega á óvart hvað kynjamunurinn var skýr. Menn- ingarlæsi telpna byggir á tengslum, vináttu, samskiptum og prinsessum sem eru fallegar og giftast prinsum. Strákarnir eru mjög fastir í ofur- hetjum, stríðshetjum og því að bjarga fólki. Hjá þeim er slegist og þar er stríð. Mjög margar stelpur hafa gaman af ofurhetjum, en þær segja helst ekki frá því nema í laumi. Strák- arnir fordæma hins vegar prinsessu- sögurnar.“ Hún segir að börn efist um staðal- myndir kynjanna, rétt eins og full- orðnir, og efinn birtist helst í því að stelpur segist líka geta verið ofur- hetjur og að þær séu alveg jafn sterk- ar og strákar. Hins vegar komi það mun sjaldnar fyrir að strákar segist alveg mega leika í stelpuleikjum, enda hafi þeir lítinn áhuga á því. Þannig, segir Þórdís, er alveg klárt að karl- mennskan nýtur meiri virðingar en kvenleikinn á meðal leikskólabarna. Börnin skipa hvert öðru í virðingar- sess, eftir því hversu haldgóða þekk- ingu þau hafa á barnaefni, samkvæmt niðurstöðum Þórdísar. Þau sem hæst- an hafa virðingarsessinn meðal jafn- ingja eru þau sem hafa hvað besta þekkingu á efninu. En eru foreldr- ar þá ef til vill að minnka menning- arlæsi barna sinna, með því að tak- marka aðgang þeirra að tilteknu efni, reyni til dæmis að halda strákum frá bardagaleikjum og stelpum frá prins- essusögum? „Það væri kannski betra að orða það þannig að menningar- læsi barna eykst eftir því sem þau hafa aðgang að fjölbreyttari miðlum. Ef þeim er haldið frá tölvum og sjón- varpi fá þau ekki eins djúpa þekkingu, því börn bera alla miðlana saman og þannig dýpkar þekking þeirra.“ Þórdís segir að þau börn sem hafi áhuga á öðrum hlutum en jafningjar þeirra standi oft frammi fyrir stríðni. „Börn mega vera öðruvísi og fylgja sinni sannfæringu, en ef hún er á skjön við sannfæringu hópsins mega þau búast við því að verða strítt. Það er veiðileyfi á þá sem eru öðruvísi. En um leið dást hin börnin að þeim fyrir að fylgja sannfæringu sinni. Þetta á jafnt við um stráka og stelpur.“ holmfridur@frettabladid.is ÞÓRDÍS ÞÓRÐARDÓTTIR: VER DOKTORSRITGERÐ UM MENNINGARLÆSI BARNA Það kom óþægilega á óvart hversu skýr kynjamunurinn er ÞÓRDÍS ÞÓRÐARDÓTTIR Mjög margar stelpur hafa áhuga á ofurhetjuleikjum, en strákar for- dæma alla jafnan prinsessusögur og hafa engan áhuga á þeim. Þetta sýnir hversu skýrt það er strax í leikskóla að karlmennskan nýtur meiri virðingar en kvenleikinn að mati Þórdísar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ALBERT EINSTEIN (1879-1955) fæddist á þessum degi „Hver sá sem segist geta dæmt um hvað er sannleikur og þekking bíður skipbrot og verður aðhlátursefni guðanna.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.