Fréttablaðið - 16.03.2012, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 16.03.2012, Blaðsíða 8
16. mars 2012 FÖSTUDAGUR8 Brot Geirs H. Haarde á ráðherraábyrgð í aðdrag- anda hrunsins telst alvar- legt og viðurlög allt að tveggja ára fangelsi, sagði saksóknari í málflutningi sínum í gær. Hún sagði Geir hafa sýnt alvarlega van- rækslu á skyldum sínum sem forsætis ráðherra. Mál- flutningur heldur áfram í dag þegar verjandi Geirs á sviðið. Geir H. Haarde, fyrrverandi for- sætisráðherra, sinnti ekki þeirri frumkvæðisskyldu sem hvíldi á honum til að draga úr stærð banka- kerfisins, sjá til þess að Icesave yrði fært í dótturfélag og fleira í aðdraganda hrunsins, sagði Sig- ríður Friðjónsdóttir, saksóknari Alþingis, í málflutningi í Lands- dómsmálinu í gær. Brot Geirs telst að hennar mati alvarlegt, en við því getur legið allt að tveggja ára fangelsi verði Geir fundinn sekur. Sigríður sagði að þó alvarleiki brota Geirs ætti að leiða til þyng- ingar refsingar væri eðlilegt að litið væri til þess að langt væri um liðið síðan brotin hefðu verið framin, auk þess sem Geir hefði ekki gerst brot- legur áður. Það gæti þýtt að skil- orðsbinda mætti refsingu Geirs, yrði hann fundinn sekur. Sigríður sagði Geir hafa sýnt alvarlega vanrækslu á starfsskyld- um sínum sem forsætisráðherra frá byrjun febrúar 2008 fram að banka- hruninu í október. Hún tók fram að ekki væri verið að gefa það í skyn með ákæru að Geir hefði með aðgerðum sínum getað afstýrt hruninu. Á honum hefði hvílt sú skylda að reyna. Hann hefði vitað af þeirri hættu sem yfir hefði vofað en hefði ekki brugðist við eins og honum hefði verið unnt sem forsætisráðherra landsins. „Það hefur verið talað um að við- vörunarljós hafi blikkað og rúmlega það. Það má líkja þessu við þegar peran er farin í stefnuljósinu, þá hamast ljósið sem aldrei fyrr,“ sagði Sigríður, sem taldi viðvörun- arljós hafa blikkað frá árinu 2006 þegar svokölluð míní-kreppa skall á bönkunum. Landsdómur vísaði frá tveimur af sex ákæruliðum í ákæru Alþing- is áður en til aðalmeðferðar kom. Eftir standa fjórir ákæruliðir sem Sigríður fjallaði um í málflutningi sínum í gær. Vanræksla samráðshópsins Í fyrsta ákæruliðnum sem eftir stendur, lið 1.3, er Geir ákærður fyrir að hafa vanrækt að gæta þess að störf samráðshóps stjórnvalda um fjármálastöðugleika væru markviss og skiluðu árangri. Samráðshópur stjórnvalda um fjármálastöðugleika var eini vett- vangurinn þar sem unnið var að undirbúningi fyrir mögulegt fjár- málaáfall, sagði Sigríður í Lands- dómi í gær. Í hópnum sátu fulltrúar forsætis-, fjármála- og viðskipta- ráðuneytis, auk fulltrúa Fjármála- eftirlitsins og Seðlabanka Íslands. Vinna hópsins átti að fela í sér greiningu á áhættu ríkisins, sagði Sigríður. „Það hlýtur að vera for- senda þess þegar unnið er að gerð viðbúnaðaráætlunar að gera sér grein fyrir við hverju megi búast.“ Fundargerðir hópsins, auk ann- arra gagna, sýna að „vinna hóps- ins var alls ekki markviss og skil- aði ekki tilætluðum árangri“, sagði Sigríður. Hún sagði að skort hefði upp á aðkomu stjórnvalda að starfi hópsins. Hópurinn hefði ekki fengið upplýsingar um út frá hvaða leiðum stjórnvöld hefðu viljað vinna og því erfitt að klára viðbúnaðaráætlun eða önnur verkefni. Ólíkt öðrum ráðherrum fékk Geir ýmis gögn frá samráðshópnum, en settist ekki niður með samráðherr- um sínum til að móta stefnu. Sigríð- ur sagði að alvarleg staða banka- kerfisins hefði blasað við meðlimum samráðshópsins frá nóvember 2007 að hruninu tæpu ári síðar. Allan þann tíma hefði hópurinn beðið eftir stefnumótun stjórnvalda. Sigríður gerði lítið úr þætti samráðshópsins í undirbúningi á neyðarlögunum. Geir hafði, auk vitna sem komu fyrir Lands- dóm, sagt neyðarlögin hafa byggt í veigamiklum atriðum á vinnu samráðshópsins. Þetta sagði Sig- ríður orðum aukið. Mikilvægustu ákvæði neyðarlaganna hefðu verið samin á þremur dögum fyrir setn- ingu laganna. Smækka banka og senda úr landi Í öðrum ákæruliðnum, lið 1.4, er Geir ákærður fyrir að hafa ekki haft frumkvæði að virkum aðgerð- um ríkisvaldsins til að draga úr stærð bankakerfisins, til dæmis með því að einn bankanna flytti höfuðstöðvar sínar úr landi. Íslensku bankarnir hefðu vel getað selt eignir á árinu 2008 til að minnka efnahagsreikning sinn, og þar með áhættu sem fylgdi hruni þeirra þá um haustið, sagði Sig- ríður. Hún sagði augljóst að Geir hefði átt að fullvissa sig um að unnið væri að slíkri eignasölu, og beita ríkisvaldinu til að tryggja að af henni yrði. Hún sagði ekki duga fyrir Geir að benda á að ýmislegt hefði verið rætt á fundum, eða að stjórnendur bankanna hefðu sjálfir ólmir viljað selja eignir en ekki getað. „Það verður ekki séð að spjall um að minnka bankana hafi skilað neinu,“ sagði Sigríður. Hún sagði að Geir hefði átt að kalla eftir upp- lýsingum um stöðu bankanna, setja fram kröfur og fylgja þeim eftir í stað þess að leyfa bönkunum að gera þetta á eigin forsendum. Sigríður sagði augljóst að bank- arnir hefðu tapað á því að selja eign- ir sem mögulega hefðu verið keypt- ar á uppsprengdu verði, þó fráleitt væri að tala um brunaútsölu. Þó þeir hefðu ekki verið viljugir til að taka á sig slíkt tap hefði það verið skylda Geirs að setja hag samfélagsins í fyrsta sæti og krefjast eignasölu. Bankarnir þrýstu á þessum tíma mjög á stjórnvöld að stækka gjald- eyrisvarasjóð Seðlabankans. Sig- ríður sagði að það hefði verið kost- ur fyrir stjórnvöld að binda slíka stækkun skilyrðum um að bank- arnir minnkuðu stærð efnahags- reikninga sinna með sölu eigna óháð kostnaði, í ljósi óhagstæðra aðstæðna. Ekki var hægt að útiloka að slík eignasala kæmi einum eða feiri bönkum í vanda, en svo mikið var í húfi að Geir hefði átt að sjá til þess að þeir reyndu, sagði Sigríður. „Ákærði hafði skyldur við íslenskt samfélag umfram bank- ana,“ sagði Sigríður. Hún sagði að svo hefði virst sem Geir hefði verið mögulegt tap bankanna efst í huga, ekki alvarlegar afleiðingar af hruni þeirra fyrir íslenskt samfélag. Flytja Icesave í breskt dótturfélag Í þriðja ákæruliðnum, lið 1.5, er Geir ákærður fyrir að hafa ekki fullvissað sig um að unnið væri að flutningi Icesave-reikning- anna frá útibúi Landsbankans í Bretlandi í dótturfélag með virkri aðkomu ríkisvaldsins. Icesave-reikningar Landsbank- ans í Bretlandi, og síðar Hollandi, urðu þess valdandi að mikil hætta vofði yfir ríkissjóði vegna Tryggingarsjóðs innstæðueig- enda, sem ábyrgðist innistæðurn- ar, sagði Sigríður. Þá hefði verið hætta á áhlaupi á reikningana, og þar með Landsbankann, sem hefði getað haft alvarlegar afleið- ingar fyrir allt íslenska fjármála- kerfið. Geir hefði átt að hafa frum- kvæði að því að þvinga Lands- bankann til að færa Icesave- reikningana úr útibúi sínu í Bretlandi í breskt dótturfélag til að takmarka áhættu Íslands vegna þeirra, sagði Sigríður. Breska fjármálaeftirlitið (FSA) setti sem skilyrði að eignir yrðu færðar í slíkt dótturfélag, en það hugnaðist stjórnendum Lands- bankans augljóslega ekki, sagði Sigríður. „Landsbankinn vildi ekki færa neinn herkostnað vegna þessa,“ sagði Sigríður. FSA taldi flutn- inginn geta tekið þrjá til sex mánuði. Ræða ógn á ríkisstjórnarfundum Í fjórða ákæruliðnum, lið 2, er Geir ákærður fyrir að hafa látið fyrir farast á ríkisstjórnarfundum að ræða um þá ógn sem steðjað hafi að íslenska fjármálakerfinu. Í stjórnarskránni er kveðið á um að forsætisráðherra skuli ræða á ríkisstjórnarfundum um „mikil- væg málefni“. Þrátt fyrir þetta verður ekki séð að vandi fjár- málakerfisins hafi verið ræddur fyrir alvöru á fundum ríkisstjórn- ar Geirs fyrr en í óefni var komið, sagði Sigríður. „Málin verða varla mikið stærri,“ sagði hún, og átti þá við stöðuna á efnahagsmálunum frá því snemma árs 2008. Með því að ræða ekki þetta alvarlega mál á ríkisstjórnarfundum er ljóst að möguleiki ríkisstjórnarinn- ar á því að afstýra hættu á tjóni minnkaði, sagði Sigríður. Það séu augljóslega minni möguleikar til að bregðast við reyni menn ekki að vinna saman og finna lausnir. Sigríður sagði venjur um hvað tekið væri á dagskrá ríkisstjórnar- funda ekki geta ýtt til hliðar skýru ákvæði í stjórnarskrá lýðveldisins. Sagði Geir sekan um alvarlega vanrækslu MÁLFLUTNINGUR Sigríður Friðjónsdóttir, saksóknari Alþingis, undirbjó sig fyrir málflutning fyrir Landsdómi í gær þegar Geir gekk í salinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Það hefur verið talað um að viðvörunarljós hafi blikkað og rúmlega það. Það má líkja þessu við þegar peran er farin í stefnuljósinu, þá hamast ljósið sem aldrei fyrr. Sigríður Friðjónsdóttir taldi útilokað annað en Geir H. Haarde hafi séð viðvörunar- ljósin blikka fyrir hrun. Það virtist enginn vita neitt um krosseignatengsl, enginn nema Tryggvi [Þór] Herbertsson sem virtist vita mest af öllum um þetta. Sigríður sagði að skort hefði á að upp- lýsingar um stöðu bankanna og áhættu í rekstri þeirra væru tiltækar í hruninu. Þá hefði kannski verið snjallt fyrir menn að drífa sig í stærra hagkerfi. Svona fyrir okkur hin. Sigríður vitnaði í bankastjóra Kaupþings sem orðaði það þannig að íslenska hag- kerfið væri of lítið fyrir bankann. Ákærði hafði skyldur við íslenskt samfélag umfram bankana. Sigríði þótti Geir hafa frekar verið umhugað um að bankarnir töpuðu ekki peningum en að tryggja öryggi landsins. Þetta bjargaðist. Sem betur fer […] Þetta fór merkilega vel, betur en á horfðist, en það má setja spurningarmerki við hverjum það var að þakka. Sigríður taldi, þrátt fyrir allt, íslenskt samfé- lag hafa sloppið merkilega vel frá hruninu, þótt hún hefði að því er virðist ekki talið að sá árangur væri Geir að þakka. Viðskiptaráðherra var ekki á þeim fundi, frekar en mörgum öðrum fundum. Sigríður tók undir þá skoðun sumra að upplýsingum hafi verið haldið frá Björg- vini G. Sigurðssyni viðskiptaráðherra. Orðrétt Geir H. Haarde fyrir Landsdómi – dagur 8 Brjánn Jónasson brjann@frettabladid.is Sumarúthlutun 2012 Ekki gleyma þér!19. MARS Efling-stéttarfélag, Sætúni 1, 105 Reykjavík, sími 510 7500, fax 510 7501, efling@efling.is, www.efling.is Síðasti skiladagur umsókna er 19. mars 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.