Fréttablaðið - 16.03.2012, Síða 8
16. mars 2012 FÖSTUDAGUR8
Brot Geirs H. Haarde á
ráðherraábyrgð í aðdrag-
anda hrunsins telst alvar-
legt og viðurlög allt að
tveggja ára fangelsi, sagði
saksóknari í málflutningi
sínum í gær. Hún sagði Geir
hafa sýnt alvarlega van-
rækslu á skyldum sínum
sem forsætis ráðherra. Mál-
flutningur heldur áfram í
dag þegar verjandi Geirs á
sviðið.
Geir H. Haarde, fyrrverandi for-
sætisráðherra, sinnti ekki þeirri
frumkvæðisskyldu sem hvíldi á
honum til að draga úr stærð banka-
kerfisins, sjá til þess að Icesave
yrði fært í dótturfélag og fleira í
aðdraganda hrunsins, sagði Sig-
ríður Friðjónsdóttir, saksóknari
Alþingis, í málflutningi í Lands-
dómsmálinu í gær. Brot Geirs telst
að hennar mati alvarlegt, en við
því getur legið allt að tveggja ára
fangelsi verði Geir fundinn sekur.
Sigríður sagði að þó alvarleiki
brota Geirs ætti að leiða til þyng-
ingar refsingar væri eðlilegt að litið
væri til þess að langt væri um liðið
síðan brotin hefðu verið framin, auk
þess sem Geir hefði ekki gerst brot-
legur áður. Það gæti þýtt að skil-
orðsbinda mætti refsingu Geirs,
yrði hann fundinn sekur.
Sigríður sagði Geir hafa sýnt
alvarlega vanrækslu á starfsskyld-
um sínum sem forsætisráðherra frá
byrjun febrúar 2008 fram að banka-
hruninu í október.
Hún tók fram að ekki væri verið
að gefa það í skyn með ákæru að
Geir hefði með aðgerðum sínum
getað afstýrt hruninu. Á honum
hefði hvílt sú skylda að reyna. Hann
hefði vitað af þeirri hættu sem yfir
hefði vofað en hefði ekki brugðist
við eins og honum hefði verið unnt
sem forsætisráðherra landsins.
„Það hefur verið talað um að við-
vörunarljós hafi blikkað og rúmlega
það. Það má líkja þessu við þegar
peran er farin í stefnuljósinu, þá
hamast ljósið sem aldrei fyrr,“
sagði Sigríður, sem taldi viðvörun-
arljós hafa blikkað frá árinu 2006
þegar svokölluð míní-kreppa skall
á bönkunum.
Landsdómur vísaði frá tveimur
af sex ákæruliðum í ákæru Alþing-
is áður en til aðalmeðferðar kom.
Eftir standa fjórir ákæruliðir sem
Sigríður fjallaði um í málflutningi
sínum í gær.
Vanræksla samráðshópsins
Í fyrsta ákæruliðnum sem eftir
stendur, lið 1.3, er Geir ákærður
fyrir að hafa vanrækt að gæta þess
að störf samráðshóps stjórnvalda
um fjármálastöðugleika væru
markviss og skiluðu árangri.
Samráðshópur stjórnvalda um
fjármálastöðugleika var eini vett-
vangurinn þar sem unnið var að
undirbúningi fyrir mögulegt fjár-
málaáfall, sagði Sigríður í Lands-
dómi í gær. Í hópnum sátu fulltrúar
forsætis-, fjármála- og viðskipta-
ráðuneytis, auk fulltrúa Fjármála-
eftirlitsins og Seðlabanka Íslands.
Vinna hópsins átti að fela í sér
greiningu á áhættu ríkisins, sagði
Sigríður. „Það hlýtur að vera for-
senda þess þegar unnið er að gerð
viðbúnaðaráætlunar að gera sér
grein fyrir við hverju megi búast.“
Fundargerðir hópsins, auk ann-
arra gagna, sýna að „vinna hóps-
ins var alls ekki markviss og skil-
aði ekki tilætluðum árangri“, sagði
Sigríður. Hún sagði að skort hefði
upp á aðkomu stjórnvalda að starfi
hópsins. Hópurinn hefði ekki fengið
upplýsingar um út frá hvaða leiðum
stjórnvöld hefðu viljað vinna og því
erfitt að klára viðbúnaðaráætlun
eða önnur verkefni.
Ólíkt öðrum ráðherrum fékk Geir
ýmis gögn frá samráðshópnum, en
settist ekki niður með samráðherr-
um sínum til að móta stefnu. Sigríð-
ur sagði að alvarleg staða banka-
kerfisins hefði blasað við meðlimum
samráðshópsins frá nóvember 2007
að hruninu tæpu ári síðar. Allan
þann tíma hefði hópurinn beðið eftir
stefnumótun stjórnvalda.
Sigríður gerði lítið úr þætti
samráðshópsins í undirbúningi
á neyðarlögunum. Geir hafði,
auk vitna sem komu fyrir Lands-
dóm, sagt neyðarlögin hafa byggt
í veigamiklum atriðum á vinnu
samráðshópsins. Þetta sagði Sig-
ríður orðum aukið. Mikilvægustu
ákvæði neyðarlaganna hefðu verið
samin á þremur dögum fyrir setn-
ingu laganna.
Smækka banka og senda úr landi
Í öðrum ákæruliðnum, lið 1.4, er
Geir ákærður fyrir að hafa ekki
haft frumkvæði að virkum aðgerð-
um ríkisvaldsins til að draga úr
stærð bankakerfisins, til dæmis
með því að einn bankanna flytti
höfuðstöðvar sínar úr landi.
Íslensku bankarnir hefðu vel
getað selt eignir á árinu 2008 til að
minnka efnahagsreikning sinn, og
þar með áhættu sem fylgdi hruni
þeirra þá um haustið, sagði Sig-
ríður. Hún sagði augljóst að Geir
hefði átt að fullvissa sig um að
unnið væri að slíkri eignasölu, og
beita ríkisvaldinu til að tryggja að
af henni yrði.
Hún sagði ekki duga fyrir Geir
að benda á að ýmislegt hefði verið
rætt á fundum, eða að stjórnendur
bankanna hefðu sjálfir ólmir viljað
selja eignir en ekki getað.
„Það verður ekki séð að spjall
um að minnka bankana hafi skilað
neinu,“ sagði Sigríður. Hún sagði
að Geir hefði átt að kalla eftir upp-
lýsingum um stöðu bankanna, setja
fram kröfur og fylgja þeim eftir í
stað þess að leyfa bönkunum að gera
þetta á eigin forsendum.
Sigríður sagði augljóst að bank-
arnir hefðu tapað á því að selja eign-
ir sem mögulega hefðu verið keypt-
ar á uppsprengdu verði, þó fráleitt
væri að tala um brunaútsölu. Þó þeir
hefðu ekki verið viljugir til að taka
á sig slíkt tap hefði það verið skylda
Geirs að setja hag samfélagsins í
fyrsta sæti og krefjast eignasölu.
Bankarnir þrýstu á þessum tíma
mjög á stjórnvöld að stækka gjald-
eyrisvarasjóð Seðlabankans. Sig-
ríður sagði að það hefði verið kost-
ur fyrir stjórnvöld að binda slíka
stækkun skilyrðum um að bank-
arnir minnkuðu stærð efnahags-
reikninga sinna með sölu eigna
óháð kostnaði, í ljósi óhagstæðra
aðstæðna.
Ekki var hægt að útiloka að slík
eignasala kæmi einum eða feiri
bönkum í vanda, en svo mikið var í
húfi að Geir hefði átt að sjá til þess
að þeir reyndu, sagði Sigríður.
„Ákærði hafði skyldur við
íslenskt samfélag umfram bank-
ana,“ sagði Sigríður. Hún sagði að
svo hefði virst sem Geir hefði verið
mögulegt tap bankanna efst í huga,
ekki alvarlegar afleiðingar af hruni
þeirra fyrir íslenskt samfélag.
Flytja Icesave í breskt dótturfélag
Í þriðja ákæruliðnum, lið 1.5, er
Geir ákærður fyrir að hafa ekki
fullvissað sig um að unnið væri
að flutningi Icesave-reikning-
anna frá útibúi Landsbankans í
Bretlandi í dótturfélag með virkri
aðkomu ríkisvaldsins.
Icesave-reikningar Landsbank-
ans í Bretlandi, og síðar Hollandi,
urðu þess valdandi að mikil
hætta vofði yfir ríkissjóði vegna
Tryggingarsjóðs innstæðueig-
enda, sem ábyrgðist innistæðurn-
ar, sagði Sigríður. Þá hefði verið
hætta á áhlaupi á reikningana,
og þar með Landsbankann, sem
hefði getað haft alvarlegar afleið-
ingar fyrir allt íslenska fjármála-
kerfið.
Geir hefði átt að hafa frum-
kvæði að því að þvinga Lands-
bankann til að færa Icesave-
reikningana úr útibúi sínu í
Bretlandi í breskt dótturfélag
til að takmarka áhættu Íslands
vegna þeirra, sagði Sigríður.
Breska fjármálaeftirlitið (FSA)
setti sem skilyrði að eignir yrðu
færðar í slíkt dótturfélag, en það
hugnaðist stjórnendum Lands-
bankans augljóslega ekki, sagði
Sigríður.
„Landsbankinn vildi ekki færa
neinn herkostnað vegna þessa,“
sagði Sigríður. FSA taldi flutn-
inginn geta tekið þrjá til sex
mánuði.
Ræða ógn á ríkisstjórnarfundum
Í fjórða ákæruliðnum, lið 2, er Geir
ákærður fyrir að hafa látið fyrir
farast á ríkisstjórnarfundum að
ræða um þá ógn sem steðjað hafi
að íslenska fjármálakerfinu.
Í stjórnarskránni er kveðið á um
að forsætisráðherra skuli ræða á
ríkisstjórnarfundum um „mikil-
væg málefni“. Þrátt fyrir þetta
verður ekki séð að vandi fjár-
málakerfisins hafi verið ræddur
fyrir alvöru á fundum ríkisstjórn-
ar Geirs fyrr en í óefni var komið,
sagði Sigríður.
„Málin verða varla mikið
stærri,“ sagði hún, og átti þá við
stöðuna á efnahagsmálunum frá
því snemma árs 2008. Með því
að ræða ekki þetta alvarlega mál
á ríkisstjórnarfundum er ljóst
að möguleiki ríkisstjórnarinn-
ar á því að afstýra hættu á tjóni
minnkaði, sagði Sigríður. Það séu
augljóslega minni möguleikar til
að bregðast við reyni menn ekki
að vinna saman og finna lausnir.
Sigríður sagði venjur um hvað
tekið væri á dagskrá ríkisstjórnar-
funda ekki geta ýtt til hliðar skýru
ákvæði í stjórnarskrá lýðveldisins.
Sagði Geir sekan um alvarlega vanrækslu
MÁLFLUTNINGUR Sigríður Friðjónsdóttir, saksóknari Alþingis, undirbjó sig fyrir málflutning fyrir Landsdómi í gær þegar Geir gekk í
salinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Það hefur verið talað um að
viðvörunarljós hafi blikkað og
rúmlega það. Það má líkja þessu við
þegar peran er farin í stefnuljósinu,
þá hamast ljósið sem aldrei fyrr.
Sigríður Friðjónsdóttir taldi útilokað annað
en Geir H. Haarde hafi séð viðvörunar-
ljósin blikka fyrir hrun.
Það virtist enginn vita neitt
um krosseignatengsl, enginn
nema Tryggvi [Þór] Herbertsson sem
virtist vita mest af öllum um þetta.
Sigríður sagði að skort hefði á að upp-
lýsingar um stöðu bankanna og áhættu í
rekstri þeirra væru tiltækar í hruninu.
Þá hefði kannski verið snjallt
fyrir menn að drífa sig í stærra
hagkerfi. Svona fyrir okkur hin.
Sigríður vitnaði í bankastjóra Kaupþings
sem orðaði það þannig að íslenska hag-
kerfið væri of lítið fyrir bankann.
Ákærði hafði skyldur við
íslenskt samfélag umfram
bankana.
Sigríði þótti Geir hafa frekar verið
umhugað um að bankarnir töpuðu ekki
peningum en að tryggja öryggi landsins.
Þetta bjargaðist. Sem betur
fer […] Þetta fór merkilega
vel, betur en á horfðist, en það má
setja spurningarmerki við hverjum
það var að þakka.
Sigríður taldi, þrátt fyrir allt, íslenskt samfé-
lag hafa sloppið merkilega vel frá hruninu,
þótt hún hefði að því er virðist ekki talið
að sá árangur væri Geir að þakka.
Viðskiptaráðherra var ekki
á þeim fundi, frekar en
mörgum öðrum fundum.
Sigríður tók undir þá skoðun sumra að
upplýsingum hafi verið haldið frá Björg-
vini G. Sigurðssyni viðskiptaráðherra.
Orðrétt
Geir H. Haarde fyrir Landsdómi – dagur 8
Brjánn
Jónasson
brjann@frettabladid.is
Sumarúthlutun 2012
Ekki gleyma þér!19.
MARS
Efling-stéttarfélag, Sætúni 1, 105 Reykjavík, sími 510 7500, fax 510 7501, efling@efling.is, www.efling.is
Síðasti skiladagur
umsókna er
19. mars 2012