Fréttablaðið - 16.03.2012, Blaðsíða 4
16. mars 2012 FÖSTUDAGUR4
GENGIÐ 15.03.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
228,4399
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
127,28 127,88
199,3 200,26
166,02 166,94
22,327 22,457
21,924 22,054
18,628 18,738
1,5247 1,5337
194,72 195,88
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason
hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
GILDIR Í
24 TÍMA
5.990 kr.
Verð 10.500 kr.
Afsláttur
4.510 kr. 43%
Smurning á fólksbíl á 5.990 kr. (kostar 10.500kr.).
Innifalið er olía, sía, rúðuvökvi, frostlögur og bremsuvökvi.
429 kr.
Verð 1.077 kr.
Afsláttur
648 kr. 60%
Taco Bell Volcano BURRITO, NACHOS með ostasósu og
GOS á aðeins 429 kr. (kostar 1.077 kr.) Skuggalega sterkt!
1 ÁRS AFMÆLISVIKA
VIÐ ENDURTÖKUM ÖLL VINSÆLUSTU TILBOÐIN
MENNTAMÁL Mennta- og menningar-
málaráðuneytinu hafa borist fyr-
irspurnir um rétt nemenda til
að fá nám sitt á fyrra námsári í
Menntaskólanum Hraðbraut metið
í öðrum framhaldsskólum. Sam-
kvæmt upplýsingum frá ráðuneyt-
inu má ráða af fyrirspurnunum að
ekki séu ljós möguleg áhrif þess að
námið er ekki lengur viðurkennt af
yfirvöldum.
Innritun fyrir nýja nemendur
skólaárið 2012 og 2013 í Hraðbraut
hófst í vikunni. Ólafur Johnson
skólastjóri segir að þó sé ekki
vitað hversu há skólagjöldin verða,
en þau eru nú 249 þúsund krón-
ur fyrir árið. Hann telur líklegt
að gjöldin hækki náist ekki nýir
samningar við ráðuneytið fyrir
sumarið. Samkvæmt Ólafi er ekki
vitað til þess að nokkur nemandi
hafi skráð sig.
„Það verður fullt af fólki sem
mun sækja um skólavist ef við
störfum næsta vetur, ég hef engar
áhyggjur af því,“ segir Ólafur. „En
auðvitað er það áhyggjuefni að
umsóknum beint úr grunnskólum
hefur fækkað og það má segja að
það sé partur af aðför ráðuneytis-
ins að reyna að tryggja að erfitt sé
að sækja um í skólann.“
Ólafur skoraði á Katrínu
Jakobs dóttur menntamálaráð-
herra að mæta á opinn fund um
málefni skólans sem átti að fara
fram í gærkvöld. Honum var þó
aflýst þar sem ekkert svar barst
frá ráðuneytinu, að sögn Ólafs.
Katrín hefur verið stödd erlendis
alla vikuna.
Ólafur segist þurfa að leggja út
fyrir kostnaði við rekstur skólans
úr eigin vasa, skipti ráðuneytið
ekki um skoðun.
„Það er á mína persónulegu
fjárhagslegu ábyrgð ef eitthvað
fer úrskeiðis í fjármálum skól-
ans,“ segir hann. „Ég er með veð í
öllum mínum eignum og konunnar
minnar og ég mundi tryggja skóla-
starfið áfram með sama hætti.“
Námið fyrir árið 2012 og 2013 er
ekki samþykkt af ráðuneytinu þar
sem fallið var frá þjónustusamn-
ingum við skólann síðasta haust.
Ekki er gert ráð fyrir fjárveiting-
um til Hraðbrautar í fjárlögum
þessa árs. Þeim nemendum sem
þegar voru skráðir í námið var þó
gefinn kostur á því að klára það
fram til vorsins 2012.
sunna@frettabladid.is
Innrita nemendur án
samþykkis ráðuneytis
Byrjað er að innrita nýja nemendur í Menntaskólann Hraðbraut þrátt fyrir að
námið sé ekki samþykkt af menntamálaráðuneyti. Óvíst er um upphæð náms-
gjalda og jöfnunarstyrki. Ráðuneytinu hafa borist fyrirspurnir frá foreldrum.
FÉLAGSMÁL Svana Helen Björns-
dóttir var í gær kjörin formaður
Samtaka iðnaðarins. Hún tekur
við af Helga
Magnússyni,
sem hefur verið
formaður síðan
árið 2006.
Svana Helen
er fyrsta konan
til að gegna
embættinu.
Hún hafði betur
í kjöri gegn
Haraldi Ólafs-
syni, framkvæmdastjóra málm-
endurvinnslunnar Furu. Hún
fékk 94.440 atkvæði eða 58,6
prósent greiddra atkvæða.
Svana Helen er framkvæmda-
stjóri ráðgjafar- og hugbúnaðar-
fyrirtækisins Stiku. - th
Formannskjör hjá SI:
Kona í fyrsta
skipti formaður
SVANA HELEN
BJÖRNSDÓTTIR
EGYPTALAND, AP Saksóknari í
Egyptalandi hefur ákært 75
manns fyrir aðild að óeirðum
eftir knattspyrnuleik í borg-
inni Port Said í byrjun febrúar.
Minnst 74 létu lífið í óeirðunum.
Níu lögreglumenn eru meðal
hinna ákærðu og telur saksóknari
að þeir hafi vitað að ráðast ætti á
aðkomumennina. Þeir hafi hleypt
allt of mörgum á völlinn og ekki
leitað á neinum. Þá hafi lögreglu-
menn ekkert aðhafst þegar átökin
hófust. - þeb
Knattspyrnuóeirðir í febrúar:
75 ákærðir í
Egyptalandi
FRAMHALDSSKÓLANEMI Nemandi á fyrsta ári við Menntaskólann Hraðbraut
hefur fengið synjun frá LÍN vegna umsóknar um jöfnunarstyrk þar sem námið er
ekki lengur viðurkennt af menntamálaráðuneytinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Námsstyrkjanefnd LÍN hefur synjað nemanda á fyrsta ári við Mennta-
skólann Hraðbraut um jöfnunarstyrk, eða dreifbýlisstyrk, á þeirri forsendu
að skólinn hafi ekki viðurkenningu frá menntamálaráðuneyti til kennslu á
fyrra námsári. Auður Lilja Erlingsdóttir, formaður námsstyrkjanefndar LÍN,
segir að þegar einstaklingar fái slíka synjun geti þeir kært úrskurð nefndar-
innar til menntamálaráðuneytisins og fengið þaðan endanlegan úrskurð.
Nemandinn sem um ræðir hefur þó ekki gert það.
Eins og greint er frá í greininni segir Ólafur Johnson að enginn hafi enn sótt
um nám á fyrsta ári Hraðbrautar fyrir næsta misseri.
Nemanda synjað um dreifbýlisstyrk
LANDHELGISGÆSLAN Viðgerðir
Rolls Royce á vélum varðskipsins
Þórs eru á áætlun, að því er fram
kemur á vef Landhelgisgæslunn-
ar. Skipið er í viðgerð í Noregi.
„Gert er ráð fyrir að skipið verði
tilbúið til afhendingar að nýju
eftir vélaskipti, prófanir og
úttektir flokkunarfélags í byrjun
apríl,“ segir á vefnum.
Fram kemur að viðgerðirnar
séu alfarið á ábyrgð framleið-
anda vélanna, Rolls Royce, og
muni Landhelgisgæslan ekki
bera nokkurn kostnað af fram-
kvæmdunum. „Ábyrgðartími
véla og skips lengist sem nemur
framkvæmdatíma vegna þessa.“
- óká
Rolls Royce ber kostnaðinn:
Þór úr viðgerð
í byrjun apríl
VARÐSKIPIÐ ÞÓR Í fjarveru Þórs hefur
varðskipið Ægir verið við eftirlit og
löggæslu á Íslandsmiðum.
KJARAMÁL Kjaranefnd Félags
eldri borgara krefst þess að
kjaraskerðing sem aldraðir og
öryrkjar urðu fyrir á krepputím-
anum verði leiðrétt strax, þar
á meðal sú kjaraskerðing sem
þessi hópur varð fyrir þann 1.
júlí 2009.
Þetta kemur fram í ályktun
Félags eldri borgara sem sam-
þykkt var á þriðjudag.
„Í lögum um málefni aldraðra
segir að aldraðir eigi að njóta
jafnréttis á við aðra þegna þjóð-
félagsins. Það er búið að aftur-
kalla kjaraskerðingu ráðherra,
þingmanna og embættis-
manna en ekki kjaraskerðingu
lífeyrisþega,“ segir meðal ann-
ars í ályktuninni og krefst kjara-
nefndin leiðréttingar strax.
- kh
Kjaranefnd eldri borgara:
Vilja afturkalla
kjaraskerðingu
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
19°
21°
17°
11°
19°
18°
11°
11°
22°
15°
15°
14°
28°
9°
21°
15°
9°
Á MORGUN
5-13 m/s
SUNNUDAGUR
Vaxandi SA-átt
síðdegis.
-1
-2
-2
-1
-4
-2
2
0
1
1
4
8
5
7
6
6
4
7
2
3
3
7
-5
-4
-3
-1
-2
0
0
0
2
1
HELGARHORFUR
Á laugardag verður
norðlæg átt með
éljum norðanlands
en bjart sunnan
heiða. Á sunnudag
snýst þetta við og
verður vaxandi
suðaustanátt með
snjókomu eða
slyddu og síðan
rigningu sunnan-
og vestanlands.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
FJÁRMÁL Almenningi gefst kostur
á að fá ókeypis ráðgjöf við gerð
skattframtals í aðalbyggingu
Háskólans í Reykjavík á sunnu-
daginn. Opið verður frá klukkan
11 til 17.
Boðið verður upp á túlkaþjón-
ustu fyrir pólsku- og kínversku-
mælandi fólk. Þá verður einnig
táknmálstúlkur á staðnum. Skil á
skattframtali er 22. mars. Arion
banki, í samstarfi við Mannrétt-
indaráð Reykjavíkurborgar, lög-
fræðiþjónustu Lögréttu og KPMG,
stendur fyrir skattadeginum. - th
Skattadagur í HR um helgina:
Ókeypis aðstoð
við skattframtal
STJÓRNMÁL Oddný G. Harðardóttir
fjármálaráðherra segir ekkert
standa í vegi fyrir því að Ísland
uppfylli Maastricht-skilyrði
evrusamstarfsins á næsta kjör-
tímabili. Lang farsælast sé fyrir
Ísland að stefna að inngöngu í ESB
og upptöku evru. Oddný var meðal
ræðumanna á Iðnþingi Samtaka
iðnaðarins í gær.
Þá sagði Oddný skattkerfisbreyt-
ingar að mestu yfirstaðnar á þessu
kjörtímabili.
Jón Daníelsson, prófessor við
London School of Economics, tók
einnig til máls á Iðnþingi en hann
ræddi nokkuð
u m va l kost i
Ís lend i nga í
gjaldmiðilsmál-
um. Í erindi sínu
ræddi Jón einnig
vanda evrusvæð-
isins sem hann
sagði hafa verið
óumflýjanlegan
í ljósi hönnunar
evrusamstarfs-
ins. Líklegast væri þó að samstarf-
ið kæmist í gegnum erfiðleikana
þótt ekki væri víst að lausnir evru-
ríkjanna yrðu fullnægjandi.
Jón sagði Íslendinga standa
frammi fyrir fjórum kostum í
gjaldmiðilsmálum. Í fyrsta lagi
að halda gjaldeyrishöftunum í
óbreyttri mynd til langs tíma. Í
öðru lagi að afnema höftin og halda
krónunni. Í þriðja lagi að taka ein-
hliða upp aðra mynt og að síðustu
stæði til boða sú langtímalausn
að ganga í ESB og taka upp evru.
Þó sagði Jón það fráleitan kost að
taka einhliða upp annan gjaldmið-
il og lagði áherslu á að hægt væri
að afnema höftin á skömmum tíma
með réttum undirbúningi.
- mþl
Ræðumenn á Iðnþingi fjölluðu um framtíðarfyrirkomulag gjaldmiðilsmála:
Fjórir kostir í boði í gjaldmiðilsmálum
ODDNÝ G. HARÐAR-
DÓTTIR