Fréttablaðið - 16.03.2012, Blaðsíða 29
LÍFIÐ 16. MARS 2012 • 9
ekki sjúkt og hann hefur yfir alveg
ótrúlega fullkomnu kerfi að ráða til
að viðhalda heilbrigði sínu. En lífsstíll
okkar í dag verður honum ofviða. Því
er stundum haldið fram að við verð-
um að deyja úr einhverju en helming-
ur þeirra sem deyr vegna lífsstílssjúk-
dóma í heiminum er undir sjötugu.
Það er enginn aldur. Og að lyfjunum
– hver ákvað að við niðurgreiðum
nánast bara lyf en ekki aðrar með-
ferðir? Rannsóknir hafa til dæmis
sýnt að þunglyndislyf hafa ekki meiri
áhrif á vægt og miðlungs þung-
lyndi en lyfleysa og ekki meiri áhrif
en regluleg hreyfing. Hvers vegna er
hreyfingin ekki niðurgreidd en þung-
lyndislyf í stórum stíl. Lyf geta gert
gagn en ofnotkunin blasir við. Mat-
aræði hefur gríðarleg áhrif á heilsu.
Því er svo haldið fram að það hafi
ekki verið sannað með tvíblindum
empírískum rannsóknum, svokölluð-
um gullrannsóknum sem henta pa-
tentlausnum eins og lyfjum mjög vel,
að matur geti fyrirbyggt og jafnvel
hjálpað líkamanum að lækna sig af
sjúkdómum. En vísbendingarnar eru
óteljandi í óteljandi rannsóknum og
fólk á rétt á þessari vitneskju. Heil-
brigðiskerfið sem við höfum byggt
upp mun að mínu mati ekki geta
staðið undir sér. Það er einfaldlega
of dýrt. Við verðum að fara að búa
hérna til raunverulegt heilbrigðiskerfi
en ekki áframhaldandi sjúkdóma-
kerfi. Sem bregst bara við þegar að
við erum orðin veik. En það þarf hug-
rekki í svona breytingar – og spurn-
ingin sem blasir við er hvort við þurf-
um að gera ráð fyrir 290 þúsund fer-
metrum undir veikt fólk í framtíðinni
en það er gert ráð fyrir þessu bygg-
ingarmagni í áætlunum um nýja spít-
alann – í stað þess að gera áætlun
um hvernig við ætlum að snúa þessu
við og fækka þeim sem verða veikir
og þurfa að leggjast inn á sjúkrahús.
Telurðu íslenskan almenn-
ing nógu vel upplýstan um inni-
hald matvæla? Vitund almennings
er alltaf að aukast og fleiri og fleiri
eru farnir að skoða innihaldslýsing-
ar þess sem þeir versla. En við þurf-
um auðvitað að vita hvað á að forð-
ast svona að öllu jöfnu. Ég hvet alla
til að gera það þó það sé ekki nema
til að verða meðvitaðri um hvað þeir
eru að setja ofan í sig. En ef reglan er
að borða að mestu leyti óunna mat-
vöru og búa sem mest til frá grunni
OTKUN
Framhald á síðu 10
umhverfi og eiturefnin sem við höfum
dreift út í umhverfið hafa safnast upp
og við neytum þeirra daglega. Lífs-
stílssjúkdómar blómstra og stóru
lausnirnar sem kerfið býður upp á
felast í þróun nýrra lyfja. Takið bara
eftir því næst þegar fjallað verður um
sjúkdóm í sókn að þá mun að öllum
líkindum fylgja frétt um að vonir séu
bundnar við lyf eða þróun nýrra lyfja.
Við erum eiginlega bara farin að trúa
því að náttúrulegt ástand manns-
ins sé sjúkt en ekki heilbrigt – og
að það sé eðlilegt að taka inn töfl-
ur í stórum stíl til að laga ástandið.
Og að það sé bara eðlilegt að hérna
deyi til dæmis sjö hundruð manns á
ári vegna hjarta- og æðasjúkdóma
og sex hundruð úr krabbameini. Ef
sami fjöldi færist á hverju ári í bíl-
eða flugslysum yrði tekið í taumana.
Líkaminn er alveg ótrúlega fullkom-
ið tæki og í raun fullkomin efnaverk-
smiðja. Náttúrulegt ástand hans er
Þú munt elska þær breytingar
sem þú sérð
Nýtt. Revitalizing Supreme
Nú getur þú endurvakið náttúrulega eiginleika húðarinnar
til að sýnast yngri með kremi sem uppfyllir allar þarfir húðarinnar
Með hverju keyptu kremi af Revitalizing Supreme fylgir snyrtibudda
frá Estée Lauder með varalit, viðgerðardropum og nýja kreminu*
*meðan birgðir endast
Verslanir