Fréttablaðið - 16.03.2012, Side 32
12 • LÍFIÐ 16. MARS 2012
HEILSUHEIMUR
Margrét Lára Viðarsdóttir, atvinnukona
í knattspyrnu og sálfræðinemi á öðru
ári, býr í Þýskalandi þar sem hún spilar
með Turbine Potsdam. Hún deilir með
okkur tíu mikilvægum atriðum sem
vert er að hafa í huga til að ná árangri
í knattspyrnu.
Hvað gerir þú til að tæma hugann eftir erfiða vinnuviku? Það sem ég
geri á hverjum degi er að leika við börnin mín. Ef ég mögulega get þá
tæmi ég hugann best þannig. Þá skipti ég um gír og hugsa um þeirra
heim. Ég á þrjá stráka sex, fjögurra ára og níu mánaða.
Hvernig hleður þú batteríin? Uppáhaldið mitt er að fara út að ganga eða
hjóla og fá ferskt loft. Best af öllu er að fara út að ganga með góðri vin-
konu því þá fær maður bæði hreyfingu, súrefni og félagsskap. Líkamleg
og andleg næring.
Hugleiðir þú eða notar þú aðrar aðferðir til að rækta hugann? Ég hugleiði
ekki en á efri árum þá er ég farin að rifja upp jákvæða hluti og góðar
minningar fyrir svefninn.
Viltu deila með okkur uppáhalds hamingjumolanum þínum? Því meira sem
við sækjumst eftir hamingjunni því ólíklegri erum við til að öðlast hana.
Þessi tilvitnun er ekki eftir neinn sérstakan en er vel þekkt þversögn úr
heimi heimspekinnar. Hamingjan er eitthvað sem við þráum öll og því
meira sem við rembumst við að ná henni því erfiðara getur það orðið.
1. Setja sér há markmið
og vinna hart að því að
ná þeim.
2. Byggja upp gott og
mikið sjálfstraust. Hafa
trú á sjálfum sér og láta
aldrei neikvætt umtal
draga sig niður.
3. Setja íþróttina í for-
gang. Fótboltinn númer
eitt, tvö og þrjú.
4. Mæta á æfingu til
þess að bæta sig og
leggja sig alltaf 110%
fram.
5. Æfa aukalega. Mikil-
vægt að æfa vel. Styrkja
enn betur þá þætti sem
maður er góður í og
fækka veikleikum sínum.
6. Hafa gaman af því
sem maður er að gera.
Það á að vera það
skemmtilegasta sem
maður gerir – að æfa og
spila.
7. Mikilvægt að um-
gangast góða vini og fjöl-
skylduna, þau standa
við bakið á manni bæði
þegar vel gengur og illa.
8. Stunda hugarþjálfun
þegar góður tími gefst.
Leggjast upp í rúm með
góða tónlist og sjá fyrir
sér andstæðing sinn og
hvernig maður ætlar að
bregðast við ákveðnum
aðstæðum sem geta
komið upp í leik eða á
æfingu.
9. Setja rétt bensín á
vélina. Það er að segja
hugsa um mataræð-
ið, borða hollan og
næringarríkan mat.
10. Mikilvægt að fá
nægan svefn. Ekkert
er verra en að mæta
þreyttur á æfingu.
Hjónin Unnur Gunnarsdóttir og
Jói Fel sjónvarpskokkur æfa
saman með jákvæðu hugarfari.
Stundið þið líkamsrækt? „Já,
hreyfing skiptir okkur afar miklu
máli og skipar stóran sess í dag-
legri rútínu hjá okkur. Það er alltaf
hægt að koma að æfingu og öllu
máli skiptir að vera ekki að taka
óþarfa pásur – bara drífa sig á æf-
ingu, ekkert bull, engin afsökun.“
Hve oft æfið þið í viku? „Við reyn-
um að komast fimm sinnum í
viku. Þá stundum við lyftingar
alla daga og brennsla er með í
hófi. Góðar teygjur og jákvætt
hugarfar verður að vera með, og
svo eigum við lítinn dásamlegan
hund sem við skottumst með út
daglega.“
Hvernig er mataræðið hjá ykkur?
„Mataræðið er í föstum skorðum
nema um helgar þá gerum við
vel við okkur. Lífið er of stutt fyrir
megrun og þess háttar. Við borð-
um mikið af brauði, sem eru jú öll
sykurlaus og frábær hollusta. Svo
má alls ekki gleyma rauðvíninu
sem verður að vera með því það
skapar góða stemningu, melt-
ingu, slökun og gleði.“
TÍU KNATTSPYRNURÁÐ
MARGRÉTAR LÁRU
ÆFA SAMAN FIMM
SINNUM Í VIKU
Katrín Jakobs-
dóttir mennta-
og menningar-
málaráðherra
HAMINGJUHORNIÐ
Nýtt frá Dove – body lotion
með shea butter
Shea butter er næringarríkur
rakagjafi sem inniheldur
nauðsynlegar fitusýrur til að
viðhalda raka og teygjanleika
húðarinnar. Húðkremin frá Dove
innihalda formúluna DeepCare complex, sem fær kremið
til að fara dýpra í húðina og auka þar með virkni þeirra.
DOVE KYNNIR:
www.markid.is sími 553 5320 Ármúla 40
RR
\
R
\\
TBW
TBW
A
ÚTSALA Á ÖLLUM ÞREK OG LYFTINGAVÖRUM
Hlaupa-
bretti
Primus
Bekkpressubekkur með fótatæki
Verso
fjölþjálfar
Classic
Lyftingastöð
Lóð og
handlóð
50 kg.
lóðasett
. arkid.is • í i 17 4600 • Ár l
Þrekhjól