Fréttablaðið - 16.03.2012, Síða 42
16. mars 2012 FÖSTUDAGUR22
BAKÞANKAR
Sifjar
Sigmars -
dóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Angan af nýslegnu grasi fyllir vitin þar sem ég sit undir berum himni og skrifa
þessi orð með ylhýra golu í nýlögðu hárinu
og hrímað glas af silkimjúku Chardonney
við höndina. Djók. Ég sit við eldhúsborðið
klædd flannelnáttfötum með saumsprettu
í klofinu. Cheerios-ið er sokkið gegnsósa til
botns í morgunverðarskálinni og herbergið
fyllir rammur þefur af gömlu fiskroði og
kaffikorgi því ég nenni ekki út með ruslið. Í
miðri baráttu við ritstíflu reikar hugurinn
að ísskápnum. Í ávalri flösku liggja dreggj-
ar hvítvíns síðustu helgar. Mig langar í þær.
Ástæðurnar eru margar. Lyktin er eins og
af grasi, ferskleikinn er eins og gola og eftir
nokkra sopa stæði mér á sama um að hárið á
mér lítur út eins og gjörningur eftir Ragnar
Kjartansson sem gæti heitið Medúsa safnar
í dredda. Ein er þó sú ástæða sem myndi
ekki liggja til grundvallar ákvörðun um að
láta freistast í flöskuna.
RÉTT VIKA er síðan alþjóðlegum bar-
áttudegi kvenna var fagnað um heim
allan – með mismunandi hætti þó.
Í Afganistan vöknuðu konur upp
við þær fréttir að samkvæmt til-
skipun yfirvalda töldust þær nú
annars flokks þegnar. Í Bretlandi
var farið í skrúðgöngu. Á Íslandi
var konum færð gjöf: Í tilefni
dagsins samþykkti borgarráð að
grípa til aðgerða til að fá fleiri
konur til að hjóla því rannsóknir
sýndu að aðeins 8% kvenna hjóla allt árið á
móti 17% karla.
ÉG KLÓRAÐI mér í höfðinu. Hvernig var
hægt að draga þá ályktun að fleiri konur á
hjólum stuðli að jafnrétti? Næsta dag rann
upp fyrir mér ljós. Á forsíðu Fréttablaðsins
mátti lesa viðtal við Gunnar Smára Egils-
son, formann SÁÁ. Tilefnið var könnun sem
sýndi að áfengisneysla íslenskra kvenna
hefði aukist síðasta áratug og að lítill munur
væri orðinn á drykkju kynjanna. Gunnar
Smári taldi þróunina böl sem rekja mætti
til réttindabaráttu kvenna: „Konur þurfa
að geta gert allt eins og karlar, þar á meðal
drukkið eins og þeir.“
Æ FLEIRI virðast haldnir ranghugmyndum
um að konur þrái fátt heitar en að vera
karlar. Sem afleiðing eru kynjahlutföll,
sem koma jafnrétti ekki vitund við, gripin
á lofti og þau notuð til að skora ódýr stig.
Nær væri að borgarráð nýtti fé sem ætlað
er að jafna hjólanotkun kynjanna í alvöru
jafnréttismál – leikskólapláss, launajöfn-
un – í stað þess að hafa jafnréttisbaráttuna
að athlægi. Við konur óskum okkur jafnra
tækifæra, ekki ályktana um að við klæð-
umst jakkafötum og pungbindum, horfum
á fótbolta, lesum Tom Clancey eða hjólum í
tólf vindstiga gaddi. Og við drekkum Char-
donneyið okkar því okkur finnst það gott en
ekki vegna þess að okkur langar til að vera
Gunnar Smári Egilsson. Skál.
Mig langar ekki í pungbindiLÁRÉTT
2. gáski, 6. átt, 8. arinn, 9. kvenkyns
hundur, 11. pípa, 12. yfirstétt, 14.
ofanálag, 16. berist til, 17. haf, 18.
maka, 20. tveir eins, 21. gort.
LÓÐRÉTT
1. hleypa, 3. í röð, 4. snyrtipinni, 5.
sakka, 7. flæmi, 10. óvild, 13. lærir,
15. hald, 16. krá, 19. tvíhljóði.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. ærsl, 6. sv, 8. stó, 9. tík,
11. æð, 12. aðall, 14. álegg, 16. bt, 17.
sær, 18. ata, 20. ii, 21. raup.
LÓÐRÉTT: 1. ysta, 3. rs, 4. stælgæi,
5. lóð, 7. víðátta, 10. kal, 13. les, 15.
grip, 16. bar, 19. au.
Ég og þú! Kertaljós,
úrvals nautasteik
og unaðslegt
rauðvín!
Eftirréttinn borðum
við fyrir framan arin-
eldinn! Ég ætla að
finna töfrasprotann
minn og skapa töfra!
Hvað
segir þú
gott?
Ég trúi
því að Dr.
Stang ELSKI
mig! Hvað
heldur þú?
Ég held að ég
trúi meira á
jólasveininn!
Palli, ég er komin með
hundleið á þessari fýlu í þér!
Af hverju ferðu ekki
aðeins út og verður
fúll þar? Nei,
takk.
Maður kvelst varla án
áhorfenda.
Bling bling
húsið
Ég er fangi í
spádómskökuverksmiÐju.
Sendu hjálp!
Nei,
ókei.
Smekkur barnsins á fötum
takmarkast við bragð fatanna.
Kommuneqarfik SERMERSOOQ Reykjavíkurborg Tórshavnar kommuna
Samstarfssjóður Kommunequarfik
Sermersooq-Reykjavíkur-Þórshafnar
auglýsir eftir styrkumsóknum fyrir
árið 2012
Reykjavíkurborg er aðili að samstarfssjóði höfuðstaða Færeyja,
Grænlands og Íslands. Sjóðurinn hefur að markmiði að efla
skil ning og samstarf, m.a. á sviði menningarmála, milli
þessara borga, íbúa þeirra, samtaka og stjórnmálamanna og
veita fjár styrki til verkefna sem þjóna þessum markmiðum.
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum til verkefna
sem tengjast samskiptum milli höfuðstaðanna og efla tengsl
þeirra með einhverjum hætti, t.d. á sviði menningar, fræðslu
eða íþrótta.
Í umsókn skal lýsa fyrirhuguðum verkefnum ítarlega, fyrir-
komulagi þeirra, tímasetningu og kostnaði.
Umsókn skal beint til:
Samstarfssjóður Kommunequarfik Sermersooq-Reykjavíkur-
Þórshafnar
b.t. skrifstofu borgarstjóra
Ráðhúsi Reykjavíkur
Tjarnargötu 11
101 Reykjavík
Umsóknir skulu berast skrifstofu borgarstjóra í síðasta lagi
föstu daginn 20. apríl nk. og koma umsóknir sem síðar kunna
að berast ekki til afgreiðslu. Sérstök umsóknareyðublöð er
hægt að nálgast á vef Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu borgarstjóra, Ráðhúsi
Reykjavíkur, s: (354) 411 4500.
Stjórn sjóðsins mun afgreiða umsóknir í maí nk.
Reykjavík, 16. mars 2012
Borgarritari
Alla virka daga kl. 18.00
Disovery Channel er fáanleg í ALLT FRÆÐSLA TOPPUR LANDSBYGGÐ