Fréttablaðið - 16.03.2012, Síða 50
16. mars 2012 FÖSTUDAGUR30
sport@frettabladid.is
ÞÓRA BJÖRG HELGADÓTTIR átti mjög góðan leik í markinu og Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði sigur-
markið þegar LdB Malmö vann þýska liðið 1. FFC Frankfurt 1-0 í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeild-
ar Evrópu í fótbolta í gær. Þóra sýndi mikið öryggi í markinu allan tímann og varði alls níu skot en Sara skoraði
sigurmarkið á 25. mínútu og hefur því skorað 5 mörk í 5 leikjum í Meistaradeildinni á tímabilinu.
525 8000
www.bilaland.is
KLETTHÁLSI 11 og EIRHÖFÐA (Bílakjarninn)
VIÐ ERUM Á TVEIMUR STÖÐUM:
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
10
0
4
KJARNA - ÞVERHOLTI 2
• 270 MOSFELLSBÆ
• SÍMI: 586 8080
• FAX: 586 8081
WWW.FASTMOS.IS
Breiðagerði 7 - 108 Reykjavík
Þrastarás 25 - 221 Hafnarfjörður
Opið hús í dag föstudag frá kl. 12:30 til 13:00
347,9 m2 einbýlishús með aukaíbúð í kjallara við Breiðagerði 7 í
Reykjavík. Húsið sjálft er á þremur hæðum skráð 219 m2. Bílskúrinn
er skráður 40 m2 og geymsla í kjallara undir bílskúrnum er skráð 89
m2. Eignin er laus til afhendingar strax. V. 53,9 m. 10293
Opið hús í dag föstudag frá kl. 12:30 til 13:00
Mjög fallegt og vel skipulagt 231,5 m2 einbýlishús með stórum
bílskúr við Þrastarás 25 í Hafnarfirði. Stór timburverönd. Fallegar
innréttingar og gólfefni. Stutt í skóla og leikskóla.
Eignin er laus til afhendingar strax. V. 53,9 m 10291
OP
IÐ
H
ÚS
OP
IÐ
H
ÚS
Iceland Express karla
Grindavík-Snæfell 89-101 (39-52)
Stig Grindavíkur: J’Nathan Bullock 25 (13 frák.),
Páll Axel Vilbergsson 18, Þorleifur Ólafsson
13, Sigurður Þorsteinsson 7, Jóhann Ólafsson
7, Ólafur Ólafsson 6, Ómar Sævarsson 6, Ryan
Pettinella 4, Björn Steinar Brynjólfsson 3.
Stig Snæfells: Marquis Sheldon Hall 22, Quincy
Hankins-Cole 21 (17 frák.), Jón Ólafur Jónsson 18
(11 frák.), Pálmi Freyr Sigurgeirsson 14, Hafþór
Ingi Gunnarsson 14, Sveinn Davíðsson 8, Ólafur
Torfason 2, Óskar Hjartarson 2.
Fjölnir-Njarðvík 92-74 (43-36)
Stig Fjölnis: Calvin O’Neal 27, Nathan Walkup 20
(11 frák.) Jón Sverrisson 16 (12 frák.), Arnþór
Freyr Guðmundsson 14 (6 frák./6 stoðs.),
Björgvin Ríkharðsson 13, Daði Berg Grétarsson 2.
Stig Njarðvíkur: Cameron Echols 24 (15 frák.),
Travis Holmes 17, Elvar Már Friðriksson 13, Páll
Kristinss. 6, Styrmir Fjeldsted 6, Ólafur Helgi
Jónss. 5, Oddur Péturss. 2, Maciej Baginski 1.
ÍR-Haukar 87-92 (46-49)
Stig ÍR: Robert Jarvis 26, Rodney Alexander 21
(11 frák.), Nemanja Sovic 17, Ellert Arnarson
8, Kristinn Jónasson 6, Níels Dungal 6, Eiríkur
Önundarson 3.
Stig Hauka: Christopher Smith 25, Emil Barja 19,
Alik Joseph-Pauline 15 (10 frák./7 stoðs.), Chavis
Lamontz Holmes 12, Helgi Björn Einarsson 9,
Haukur Óskarsson 5, Guðmundur Kári Sævarsson
3, Davíð Páll Hermannsson 2, Örn Sigurðarson 2.
STAÐAN Í DEILDINNI:
Grindavík 20 17 3 1799- 1599 34
Þór Þ. 19 13 6 1624-1516 26
KR 19 12 7 1679-1609 24
Stjarnan 19 12 7 1667-1574 24
Keflavík 19 12 7 1716-1603 24
Snæfell 20 11 9 1877-1780 22
Tindastóll 19 9 10 1578-1652 18
Njarðvík 20 9 11 1682-1714 18
ÍR 20 8 12 1770-1855 16
Fjölnir 20 8 12 1714-1801 16
Haukar 20 6 14 1575-1654 12
Valur 19 0 19 1444-1768 0
LEIKIR Í KVÖLD:
Tindastóll - Þór Þorl. Sauðárkr. Kl. 19.15
Keflavík - Stjarnan Toyota höllin Kl. 19.15
Valur - KR Vodafonehöllin Kl. 19.15
Evrópudeildin 16 liða úrslit
Athl. Bilbao - Man. United 2-1 (5-3 sam.)
1-0 Fernando Llorente (23.), 2-0 Oscar De
Marcos (65.), 2-1 Wayne Rooney (80.)
Man.City - Sporting Lissabon 3-2 (3-3)
0-1 Matías Fernández (33.), 0-2 Ricky van
Wolfswinkel (40.), 2-1 Sergio Agüero (60.), 2-2
Mario Balotelli, víti (75.), 3-2 Agüero (82.)
Hannover 96 - Standard Liege 4-0 (6-2)
Birkir Bjarnason fékk ekki að koma inná.
PSV - Valencia 1-1 (3-5)
Udinese - AZ Alkmaar 2-1 (2-3)
Jóhann Berg Guðmundsson kom inn á 78. mín.
Besiktas - Atlético Madrid 0-3 (1-6)
Olympiakos - Metalist Kharkiv 1-2 (2-2)
Schalke 04 - Twente 4-1 (4-2)
ÚRSLIT Í GÆR
FÓTBOLTI Manchester-liðin geta
farið að einbeita sér að baráttunni
um Englandsmeistaratitilinn eftir
að þau féllu bæði úr leik í sextán
liða úrslitum Evrópudeildarinnar
í gær. United tapaði 2-1 á útivelli
á móti spænska liðinu Athletic
Bilbao og það nægði ekki City
að vinna 3-2 heimasigur á portú-
galska liðinu Sporting Lissabon.
Athletic Bilbao yfirspilaði
Manchester United lengstum í
gær alveg eins og í fyrri leiknum
og það er óhætt að segja að Span-
verjarnir hafi unnið sannfærandi
sigur í báðum leikjum. Manchester
United hefur þar með tapað þrem-
ur Evrópuleikjum í röð og alls
fjórum af síðustu fimm leikjum
sínum í Meistaradeildinni og Evr-
ópudeildinni.
„Ég held að við getum ekki
kvartað. Það er enginn léttir að
vera fallinn úr leik. Það voru samt
mestu vonbrigðin að falla út úr
Meistaradeildinni,“ sagði Sir Alex
Ferguson, stjóri Man United.
Jóhann Berg Guðmundsson
og félagar í hollenska liðinu AZ
Alkmaar komust áfram þrátt fyrir
að leika manni færri í 87 mínútur
í 2-1 tapi á móti Udinese á Ítalíu.
Birkir Bjarnason og félagar í
Standard Liege eru úr leik. - óój
Bæði Manchester-liðin féllu úr leik í 16 liða úrslitum Evrópudeildarinnar í gær:
Enn eitt Evróputapið hjá United
WAYNE ROONEY Skoraði 3 mörk í leikj-
unum á móti Bilbao. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
KÖRFUBOLTI Deildarmeistarar
Grindavíkur höfðu greinilega
lítinn áhuga á því að lyfta bikar
við bestu aðstæður í gær því þeir
virtust aldrei vera með hugann
almennilega við verkefnið. Þeir
reyndu þó að kreista fram bros
í leikslok er þeir tóku við deild-
armeistaratitlinum. Hólmarar
brostu þó hringinn enda komnir
í úrslitakeppnina með sigri.
Helgi Jónas ekki sáttur
„Ég er ekki sáttur. Þetta var bara
lélegt. Ég veit hreinlega ekki
hvað ég á að segja,“ sagði Helgi
Jónas Guðfinnsson, þjálfari
Grindavíkur, svekktur í leikslok.
Helgi var foxillur út í sína leik-
menn allan leikinn og sparkaði í
veggi er hann var hvað reiðastur.
„Ég sagði mönnum að njóta
sín í leiknum en þeir fylgdu ekki
neinu af því sem búið var að
leggja upp með. Það tekur á að
horfa á slíkt. Ég veit ekki hvað
skal skrifa þetta á. Bara þjálfar-
ann. Ég verð að taka þetta á mig,
það er minnsta mál,“ sagði Helgi
sem hefur verið duglegur að
skamma sína menn í vetur þó svo
þeir hafi verið langbestir. „Það
liggur við að það sé eina sem
virkar á þá. Ef ég segi ekki neitt
þá fer þetta í tóma vitleysu.“
Það voru gestirnir sem mættu
miklu betur stemmdir til leiks.
Grindvíkingar höfðu ekki að
neinu að keppa nema vera í góðu
skapi í bikarafhendingunni eftir
leik. Það virtist ekki vera næg
hvatning því þeir voru algjörlega
hauslausir nær allan hálfleikinn.
Gestirnir úr Hólminum náðu
fljótt þægilegu forskoti og mest-
ur var munurinn 20 stig í fyrri
hálfleiknum. Útlendingarnir
spiluðu vel í liði Snæfells sem
og Jón Ólafur og Pálmi Freyr.
J‘Nathan Bullock var eini mað-
urinn með meðvitund hjá Grind-
víkingum og þökk sé honum var
munurinn aðeins þrettán stig í
hálfleik, 39-52.
Snæfell hélt einbeitingu í
síðari hálfleik, gaf Grindvík-
ingum engin færi á sér sem þó
voru skömminni skárri í síð-
ari hálfleik. Grindvíkingar
komust aldrei nær en ellefu
stig og Snæfell fagnaði mjög
sanngjörnum sigri.
„Þetta var langt yfir pari hjá
mörgum rétt eins og undanfarið.
Nú var grimmdin og einbeitingin
til fyrirmyndar allan leikinn hjá
okkur. Menn voru í stuði enda er
úrslitakeppnin að byrja,“ sagði
Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari
Snæfells, en hann var hæstánægð-
ur með sætið í úrslitakeppninni.
„Nú þurfum við að bæta við
okkar leik og ætlum að koma inn í
úrslitakeppnina með stemningu.“
Haukar enn á lífi
Það er enn spenna í fallbarátt-
unni eftir leikina í gærkvöldi því
Haukar héldu sér á lífi með því
að vinna fimm stiga sigur á ÍR í
Seljaskóla. Fjölnir vann á sama
tíma Njarðvík sem þýðir að bæði
ÍR og Fjölnir eru með fjórum
stigum meira en Haukar. Hauk-
arnir búa hins vegar að því að
vera með betri innbyrðisstöðu
en bæði þessi lið og það eru enn
fjögur stig eftir í pottinum.
henry@frettabladid.is
ooj@frettabladid.is
SÚRSÆT BIKARLYFTING
Grindvíkingar lyftu deildarmeistaratitlinum í gærkvöld en það var lítill meist-
arabragur á leik þeirra þegar þeir töpuðu, 89-101, fyrir spræku liði Snæfells.
BIKARINN Á LOFT Páll Axel Vilbergsson, fyrirliði Grindavíkur, lyftir hér deildarmeistarabikarnum í gær. MYND/JÓN BJÖRN ÓLAFSSON