Fréttablaðið - 02.04.2012, Page 2
2. apríl 2012 MÁNUDAGUR2
MALASÍA, AP Skemmtiferðaskipið
Azamara Quest komst til hafnar
í Malasíu í gær meira en sólar-
hring eftir að eldur kom upp í
véla rými.
Eldurinn kom upp á föstudags-
kvöld og rak skipið stjórnlaust
um hafið í sólarhring með þúsund
manns um borð. Fimm manns úr
áhöfninni slösuðust.
Þetta er þriðja óhappið sem
kemur fyrir stórt skemmtiferða-
skip á þessu ári. Fyrst strandaði
skemmtiferðaskipið Costa Con-
cordia við strönd Ítalíu í janúar.
Síðan kom upp eldur í skipinu
Costa Allegra á Indlandshafi í
febrúar og rak það skip stjórn-
laust í þrjá sólarhringa. - gb
Eldur í skemmtiferðaskipi:
Rak stjórnlaust
í sólarhring
KOMIÐ TIL HAFNAR Farþegum í Azamara
Quest létti mjög þegar skipið lagðist að
bryggju. NORDICPHOTOS/AFP
SPURNING DAGSINS
Fáðu lánuð
heyrnartæki og
finndu muninn
VERSLUN Áfengis- og tóbaks verslun
ríkisins (ÁTVR) hefur fellt úr
gildi ákvörðun sína um að selja
ekki bjórinn Black Death, eða
svartadauða, í verslunum sínum.
Ákvörðunin hafði verið kærð til
fjármálaráðuneytisins. Bjórinn
er væntanlegur í verslanir ÁTVR
í byrjun maí að sögn Valgeirs
T. Sigurðs sonar, eiganda vöru-
merkisins Black Death.
ÁTVR hafnaði því upphaf-
lega að taka bjórinn í sölu vegna
slag orðsins Drink in Peace, eða
drekkið í friði, sem stendur á
flöskunum. Ákvörðunin var byggð
á því að á umbúðum áfengis megi
einungis vera skilaboð sem tengist
vörunni, gerð hennar eða eigin-
leikum. Þá má hafna vöru sem
inniheldur gildishlaðnar eða ómál-
efnalegar upplýsingar. Valgeir og
lögmaður hans töldu hins vegar að
í slagorðinu fælust jákvæð skila-
boð og ábending um ábyrga neyslu
vörunnar. Ekki væri hægt að telja
textann gildishlaðinn eða innihalda
ómálefnalegar upplýsingar, að því
er fram kemur í kærubréfi til fjár-
málaráðuneytisins vegna málsins.
Áður en frestur ÁTVR til að skila
greinargerð til ráðu neytisins rann
út var ákvörðunin felld niður.
Ekki voru talin nægileg rök fyrir
höfnuninni, að sögn Valgeirs, sem
var tilkynnt um ákvörðunina með
bréfi.
Valgeir er ánægður með þessa
niðurstöðu. „Þessi hindrun er
úr veginum. Bjórinn má koma í
verslanir frá og með deginum í dag
[sunnudag] en það þarf náttúrulega
að framleiða og gera hlutina klára.
Hann fer því líklega ekki í búðir
fyrr en í byrjun maí,“ segir hann.
„Ég var búinn að segja að frekar
Hætt við að banna
svartadauða í ÁTVR
ÁTVR felldi úr gildi ákvörðun sína um að banna bjórinn Black Death í versl-
unum sínum eftir að ákvörðunin var kærð til fjármálaráðuneytisins. Bjórinn er
væntanlegur í verslanir í næsta mánuði. Eigandinn kveðst sáttur við málalokin.
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR) vildi ekki
slagorðið „drekkið í friði“ í búðir sínar, en hefur nú
skipt um skoðun. Bjórinn með áletruninni umdeildu
mun væntanlegur í hillur ÁTVR í næsta mánuði.
vildi ég vera utan við þessar búðir
en breyta miðanum á flöskunni.
Mér finnst svo rosalega mikið út
í hött að það skuli einhver maður
eða kona út í bæ vera að ala mann
upp, þessi rosalega forsjárhyggja.“
Bjórinn Black Death Beer hefur
verið framleiddur frá árinu 1989
og seldur víða erlendis, auk þess
sem hann hefur verið seldur í Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar. Valgeir
hefur átt vörumerkið Black Death
frá árinu 1978.
thorunn@frettabladid.is
„Drink in peace“ þótti ekki smekklegt
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
R
N
ÞÓ
R
TÓNLIST Úrslitakvöld Músíktilrauna fór fram í
Austurbæ á laugardagskvöldið þar sem 10 hljóm-
sveitir komu fram. Sunnlenska sveitin RetRoBot
bar sigur úr býtum en hana skipa Daði Freyr Pét-
ursson, Gunnlaugur Bjarnason, Kristján Pálmi
Ásmundsson og Guðmundur Einar Vilbergsson.
„Við bara fríkuðum út því við bjuggumst alls
ekki við þessu,“ segir Daði Freyr. Kapparnir eru
allir 19 ára gamlir og skólabræður úr Fjölbrauta-
skóla Suðurlands á Selfossi (FSu).
Daði Freyr skilgreinir tónlist sveitarinnar sem
elektrónískt indí-rokk en hann var einnig valinn
Rafheili Músíktilrauna. Daði Freyr byrjaði
sjálfur að spila síðasta sumar en sveitin var
svo stofnuð í janúar. Þetta er í þrítugasta sinn
sem Músíktilraunir fara fram en sigurvegarar í
gegnum tíðina hafa átt góðu gengi að fagna. Sem
dæmi má nefna sveitina Of Monsters and Men
sem skrifuðu undir samning við bandarísku út-
gáfuna Universal í fyrra en þau sigruðu árið 2010.
„Við stefnum líka á heimsyfirráð, ekki spurning.
Við höfum fengið góð viðbrögð og ætlum að vera
duglegir að koma fram í nánustu framtíð.“ - áp
Sveitin RetRoBot vann Músíktilraunir sem haldnar voru í Austurbæ um helgina:
Bjuggumst alls ekki við þessu
SIGURVEGARARNIR Rafveitin RetRoBot vann Músíktilraunir 2012.
Sveitin er skipuð nemendum úr FSu. MYND/ÁRNÝ FJÓLA ÁSMUNDSDÓTTIR
RÚSSLAND, AP Lögreglan í Rúss-
landi handtók í gær 55 mót-
mælendur, sem höfðu komið
saman fyrir utan hlið Rauða
torgsins í Moskvu til að mót-
mæla Vladimír Pútín og ríkis-
stjórn landsins.
Rauða torginu var aldrei þessu
vant lokað til þess að koma í veg
fyrir mótmælin, þannig að ferða-
menn komust ekki inn á torgið
frekar en aðrir.
Um það bil 300 mótmælendur
gripu þá til þess ráðs að koma
saman fyrir utan hliðin og hófu
á loft skilti með áletrunum á borð
við „Þetta er okkar borg“, „Rúss-
land fær frelsi“ og „Rússland án
Pútíns“.
Sumir mótmælenda kröfðust
þess að fá að fara inn á Rauða
torgið en lögreglan smalaði þeim
saman og skipaði þeim að fara í
farþegavagna, sem biðu þess að
flytja fólkið burt.
Lítið hefur verið um mótmæli
gegn Pútín síðan hann vann sigur
í forsetakosningum í byrjun
mars, en tugir þúsunda höfðu
efnt til mótmæla gegn honum
eftir þingkosningarnar, sem
haldnar voru í desember. - gb
Tugir mótmælenda voru handteknir í Moskvu í gær:
Rauða torginu í Moskvu lokað
MÓTMÆLANDI HANDTEKINN Lögreglan
tók 55 manns höndum. NORDICPHOTOS/AFP
RÚSSLAND, AP Bjarga þurfti 675
veiðimönnum af ísfleka, sem rak
á haf út frá Sakalín-eyju í gær.
Um helmingurinn komst af ísnum
með þyrlum en hinir með bátum.
Algengt er að bjarga þurfi
veiðimönnum af ís á reki á
þessum slóðum, austast í Rúss-
landi, sérstaklega á vorin þegar
ísa tekur að leysa. Afar óvenjulegt
er þó að bjarga þurfi svo mörgum
í einu. Einn veiðimannanna,
Vladimír Vasilenko, segir að þeir
hefðu betur farið eftir veðurspám
og viðvörunum í útvarpi. - gb
Hætt komnir við Rússland:
Veiðimönnum
bjargað af ís
Árni, ert þú nýja dægurflugan
hans Bubba?
„Já, hann að minnsta kosti kramdi
mig ekki.“
Kvikmyndagerðamaðurinn Árni Sveinsson
var fluga á vegg hjá Bubba er hann gerði
heimildarmynd um tónlistarmanninn
sem kemur út með vorinu.
JAPAN, AP Allt að 34 metra há
flóðbylgja gæti kaffært byggðir
nánast hvar sem er á austur-
strönd Japans, komi þar annar
skjálfti upp á níu stig skammt út
af ströndinni.
Þetta fullyrðir sérfræðinga-
nefnd sem fékk það verkefni að
endurmeta flóðahættuna. Áður
var talið að flóðbylgjur gætu vart
orðið hærri en 20 metrar.
Risaflóðbylgjan sem reið yfir í
kjölfar skjálftans mikla á síðasta
ári var 14 metra há þar sem hún
varð hæst. - gb
Japanir endurmeta hættu:
Flóðahættan
var vanmetin
ALÞINGI Allsherjar- og mennta-
málanefnd hefur lagt fram til-
lögu til þingsályktunar um að
innanríkisráðherra verði falið að
undirbúa heildstæða aðgerðar-
áætlun gegn
skipulagðri
glæpastarf-
semi.
Björgvin G.
Sigurðsson
er formaður
nefndarinnar.
Tillagan
gerir ráð fyrir
að ráðherra
stofni til sam-
vinnu við hlutaðeigandi ráðu-
neyti og stofnanir, auk nefndar-
innar sjálfrar.
Þá er lagt til að fjármálaráð-
herra tryggi að í frumvarpi til
fjáraukalaga yfirstandandi árs
verði gert ráð fyrir 50 milljónum
króna fyrir fjárveitingu til starfa
rannsóknar- og aðgerðarteymis
lögreglu. - kóp
Tillaga frá allsherjarnefnd:
Aðgerðir gegn
glæpastarfsemi
BJÖRGVIN G.
SIGURÐSSON
MEXÍKÓ, AP Fátæk fjölskylda í
smábænum Nacozari, skammt
frá landamærum Banda ríkjanna,
er grunuð um að hafa myrt tvo
tíu ára drengi og eina 55 ára
konu.
Morðin eru talin hafa verið
liður í fórnarathöfn til Santa
Muerte, eða Dauðans, goðsagna-
veru sem náð hefur vaxandi
vinsældum meðal fátækra íbúa í
Mexíkó og í Bandaríkjunum.
Nágrannar fjölskyldunnar eru
miður sín. Engan grunaði að fjöl-
skyldan væri gengin í þennan
sértrúarsöfnuð.
Lík drengjanna og konunn-
ar fundust grafin skammt frá
hreysum sem fjölskyldan hefur
búið í. - gb
Fátæk fjölskylda grunuð:
Kona og tveir
drengir myrt