Fréttablaðið - 02.04.2012, Blaðsíða 50
2. apríl 2012 MÁNUDAGUR26 26
menning@frettabladid.is
GUNNHILDUR ÞÓRÐARDÓTTIR er myndlistamaður aprílmánaðar hjá SÍM. Sýning hennar Fráhvarf verður
opnuð á morgun, þriðjudag 3. apríl, klukkan 17. Á sýningunni eru ný verk, bæði ætingar og skúlptúrar. Sýningin
stendur til 25. apríl og er opin á opnunartíma skrifstofu SÍM, mánudaga til föstudaga frá 10-16.
Atómstöðin eftir Halldór
Laxness hefur verið gefin
út á ný, í nýju útliti svörtu
seríunnar, sem samræm-
ist endurútgáfu á bókum
skáldsins undanfarin ár.
Bókin var fyrst útgefin árið
1948 en hefur verið ófáanleg
í langan tíma. Atómstöðin
er ein umdeildasta skáld-
saga Halldórs Laxness enda
skrifuð beint inn í samfélags-
umræðu og snertir siðferði-
leg og pólitísk deilumál sem
voru efst á baugi á Íslandi í
umróti fyrstu áranna eftir
stríð. Sagan segir frá norðan-
stúlkunni Uglu sem kemur
í höfuðstaðinn til þess að
læra á orgel. Þar mæta henni
ólíkir heimar; borgaralegt
þingmannsheimilið þar sem
hún er í vist og litskrúðugt
mannlíf í húsi organistans
þar sem gildismatið er tölu-
vert annað.
Atómstöðin
loksins gef-
in út á ný
UMDEILD Atómstöðin var skrifuð inn
í samfélagsumræðuna eftir stríð.
Leikhús ★★★★★
Tengdó
Höfundur: Valur Freyr Einarsson
Leikarar: Kristín Þóra Haraldsdóttir og
Valur Freyr Einarsson; Tónlist og hljóð-
mynd: Davíð Þór Jónsson; Lýsing:
Aðalsteinn Stefánsson; Hreyfimynd-
band: Ilmur Stefánsdóttir og Jón Páll
Eyjólfsson; Leikmynd og búningar:
Ilmur Stefánsdóttir; Leikstjóri: Jón Páll
Eyjólfsson.
Borgarleikhúsið í samstarfi við
Common Nonsense.
Á fimmtudagskvöldið hófst ævin-
týri sem hrífur og hreyfir við
áhorfendum, ævintýri sem er frá-
sögn úr raunveruleikanum. Þeim
raunveruleika sem mörg íslensk
börn hafa lifað við. Saga Magneu,
tengdamóður höfundarins Vals
Freys Einarssonar og móður leik-
mynda- og búningahönnuðarins
Ilmar Stefánsdóttur, er sögð af
virðingu, hlýju og með greindar-
legum undirliggjandi húmor.
Sýningin er sett upp á Litla
Sviðinu en það er eins konar sex-
hyrningur eða hringur sem hentar
allri myndinni ákaflega vel. Ilmur
Stefánsdóttir hefur með dóta-
kassa úr fórum ömmu sinnar og
mömmu byggt upp umgjörð sem
er einkar heillandi. Á hvítri fall-
hlíf sem myndar eins og hring-
laga himinn yfir leiknum birtast
í skuggamyndum tákn og börn og
menn og myndir sem glæða verk-
ið lífi og fleiri víddum.
Magnea var öðruvísi, kölluð
kolamoli. Einhvers staðar langt
í burtu á hún pabba því þó svo
að henni hafi alltaf verið sagt að
hann hafi dáið, þá finnur hún það
á sér að hann er til. Hún fæddist
árið 1945, allt öðruvísi á litinn en
hin börnin í Höfnunum. Móðir
hennar var 42 ára gömul, hafði
verið gift í áraraðir án þess að
eignast eigið barn en svo féll hún
fyrir súkkulaðisætum brúneygum
grískum guð.
Það eru tveir leikarar í verkinu
þó hlutverkin séu í raun þrjú.
Valur Freyr, sem safnað hefur
saman upplýsingum og skrifað
verkið, leikur bæði móður
Magneu og eins hana sjálfa, en
því hlutverki deilir hann með
Kristínu Þóru Haraldsdóttur.
Framan af býst maður við ein-
hvers konar haldbærri skýringu
á því hvers vegna karlmaður er í
þessu hlutverki, og maður veltir
fyrir sér hvort hann eigi allt í einu
að breytast í eitthvað annað, en
þegar á leið varð þetta eðlilegasti
hlutur í heimi.
Kristín Dóra Haraldsdótt-
ir sannfærði okkur um að hún
væri lítil og öðruvísi og byrjuð að
reykja sjö ára gömul. Henni tókst
að segja sögurnar um eineltið á
þann hátt að það hefði mátt vera
tilfinningalaus manneskja sem
komst ekki við. Lýsingar hennar
á þeirri skilyrðislausu ást sem
Magnea bar til Jóns stjúpa síns
var einnig afar falleg. Jón stjúpi
dó áður en Magnea byrjaði í barna-
skóla en það var skelfileg upplifun
sem fallegur ljóshærður drengur
með blá augu bjargaði henni úr.
Og sá fallegi ljóshærði drengur sat
og hélt í höndina á konunni sinni á
frumsýningunni.
Hér var ævisaga sögð en vita-
skuld með tilheyrandi vali höf-
undar. Leitin að upprunanum og
rétturinn á því að vita hver maður
er, stýrði framvindunni. Í sýning-
unni var mikil ljóðræna, mikil feg-
urð og tónlistin smaug inn undir
fallhlífina og lífið og gerði stemn-
inguna fullkomna. Elísabet Brekkan
Niðurstaða: Sýningin fjallar um tímabil
í sögu landsins sem skiptir mjög
miklu máli, unnin af ást, virðingu og
umhyggju fyrir viðfangsefninu.
FALLEG SÝNING UM FÖÐURLEIT
KRISTÍN ÞÓRA OG VALUR FREYR Leikarar sýningarinnar standa sig afar vel að mati gagnrýnanda. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Lofað er að hádegistónleikarnir í
Hafnarborg þriðjudaginn 3. apríl
klukkan 12 verði örlaga þrungnir.
Þar túlkar Hörn Hrafnsdóttir
mezzósópran fjórar persónur úr
óperubókmenntunum sem ýmist
sjá fyrir ill örlög annarra eða leiða
til örvinglunar, afbrýðisemi, dauða
eða tortímingar. Hörn syngur
meðal annars Ulricu úr óperunni
Un ballo in Maschera eftir Verdi,
blindu konuna úr óperunni La
Gioconda eftir Ponchielli og Azu-
cenu úr Il Trovatore eftir Verdi.
Hörn stundaði tónlistarnám í
Tónlistarskóla Kópavogs og Söng-
skólanum í Reykjavík. Hörn hefur
einnig sótt ýmis námskeið og söng-
tíma, meðal annars í Vínar borg,
Edinborg, London og á Ítalíu. Á
Íslandi hefur hún sótt tíma hjá
Elínu Ósk Óskarsdóttur og Krist-
jáni Jóhannssyni. Árið 2007 var
Hörn meðal fyrstu verðlaunahafa
í alþjóðlegu söngvara keppninni
Barry Alexander Inter national
Vocal Competition. Hún hefur
starfað og sungið einsöng með
ýmsum kórum og er hluti af tríóinu
Sopranos. Hún hefur komið fram
sem einsöngvari, meðal annars á
Ítalíu, í Búlgaríu og Kanada auk
þess að hafa sungið einsöng á
tvennum tónleikum í Carnegie Hall
í New York. Hjá Íslensku óperunni
hefur Hörn sungið La Zia Princi-
pessa í Suor Angelica hjá Óperu-
stúdíóinu, Amneris í Aidu-ástarþrí-
hyrningnum og mömmu Luciu í
Cavalleria Rusticana sem var sam-
starfsverkefni ÍÓ og Óperukórs
Hafnarfjarðar.
Hörn í Hafnarborg
HAFNARBORG Þetta er níunda árið sem boðið er upp á hádegistónleika í Hafnar-
borg. Frá upphafi hefur Antonía Hevesi píanóleikari verið listrænn stjórnandi tón-
leikanna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Mikið mál?
Minna mál með SagaPro
www.sagamedica.is
Ef tíð næturþvaglát eru mikið mál fyrir
þig ættir þú að nota tækifærið og ná í
kaupauka af SagaPro.
Í apríl færðu 20 stk. kaupauka þegar
þú kaupir 40 stk. pakka af SagaPro
í Garðs Apóteki.
Tilboðið gildir út apríl í Garðs Apóteki,
Sogavegi 108.
KAUPAUKI
No
tað
u S
aga
Pro
í 10
da
ga
og
þú
mu
nt s
ann
fær
ast
um
ára
ngu
r.
SagaPro bætir
nætursvefn þinn
og maka þíns
Sæktu styrk í íslenskt náttúruafl!
Dregur úr tíðum næturþvaglátum
SagaPro
Ókeypis sýnishorn
Opið kl. 9 -18 virka daga,
lokað um helgar.