Fréttablaðið - 02.04.2012, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 2. apríl 2012 13
Skráðu litla snillinginn til leiks á www.kreditkort.is
Ef þú notar MasterCard kort frá Kreditkorti gætirðu
tryggt barninu þínu ógleymanlega upplifun. Eitt barn
á aldrinum 7-9 ára verður dregið út og fer ásamt
fylgdarmanni á úrslitaleik UEFA Champions League í
Munchen í maí. Þar fær barnið að leiða leikmann inn á
völlinn í boði MasterCard, aðalstyrktaraðila UEFA
Champions League. Það eina sem þú þarft að gera er að
skrá barnið og nota MasterCard kortið a.m.k. 10 sinnum
frá 1. apríl–30. apríl 2012.
UPPLIFUN SEM
ALDREI GLEYMIST
Barnið þitt gæti fengið að leiða leikmann
inn á völlinn í úrslitaleik
UEFA Champions League í Munchen
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
SKIPULAGSMÁL „Ég hef sagt að ég
sé tilbúin til að skoða Perluna sem
hugsanlegt húsnæði fyrir náttúru-
minjasafn en mér finnst það vera
sjálfstæð ákvörðun og ekki hanga
endilega á einhverjum þriðja aðila,“
segir Katrín Jakobsdóttir, mennta-
og menningarmálaráðherra.
Eins og fram hefur komið vilja
hæstbjóðendur í söluútboði reisa
viðbyggingar við Perluna og að
ein þeirra hýsi „Náttúrugripasafn
Íslands“ sem svo var nefnt áður
en heiti þess var breytt í Náttúru-
minjasafn Íslands.
Katrín segir Náttúruminja safnið
nú vera í bráðabirgðahúsnæði í loft-
skeytastöðinni á Melunum. „Það
hefur komið fram umræða, eftir
að upp kom að Perlan væri til sölu,
að hún gæti verið hentugt húsnæði
fyrir þetta safn. En þessi hugmynd
sem kemur frá þessum tilboðs-
gjöfum hefur ekki komið hing-
að inn í menntamálaráðuneyti,“
segir ráðherra og undir strikar að
hún hafi aðeins heyrt um áform
hæstbjóðendanna í fjölmiðlum.
Hún sé ekki einu sinni viss um að
þeir séu að vísa til Náttúruminja-
safns Íslands með tillögu sinni um
náttúru gripasafn.
Fyrirspurn um umræddar
breytingar á Perlunni var á mið-
vikudag tekin fyrir í Skipulagsráði
Reykjavíkur sem vísaði málinu til
umsagnar hjá skipulagsstjóra. - gar
Menntamálaráðherra segir húsnæðismál Náttúruminjasafns óháð þriðja aðila:
Perlumenn ekki rætt við ráðuneytið
NÁTTÚRUPERLAN Hæstbjóðendur í
Perluna vilja reisa viðbyggingu undir
náttúrugripasafn við húsið.
MYND/FREYR FROSTASON THG ARKITEKTAR
DÓMSMÁL Friðrik J. Arngríms-
son, framkvæmdastjóri Lands-
sambands íslenskra útvegs-
manna (LÍÚ), hefur stefnt
hagfræðingnum Ólafi Arnars-
syni fyrir meiðyrði.
Friðrik telur að sér vegið í
tveimur pistlum sem Ólafur birti
á vefmiðlinum Pressunni, fyrst
í júlí 2010 og svo í júlí 2011. Þar
hélt Ólafur því fram að LÍÚ,
fyrir tilstilli og undir stjórn
Friðriks, styddi vefinn AMX
til nafnlausra níðskrifa með
dulbúnum fjárframlögum sem
næmu tuttugu milljónum á ári.
Friðrik krefur Ólaf um eina
milljón króna í miskabætur og
auk þess um 1,6 milljónir til að
standa straum af kostnaði við að
birta dóminn í fjölmiðlum. Málið
verður tekið fyrir 10. apríl.
- sh
Telur að sér vegið í pistlum:
Friðrik stefnir
Ólafi fyrir dóm
ÓLAFUR
ARNARSON
FRIÐRIK J.
ARNGRÍMSSON
SJÁVARÚTVEGUR Félagsfundur
Dögunar, samtaka um réttlæti,
sanngirni og lýðræði, mótmæl-
ir frumvarpi um breytingar á
fiskveiðistjórnunarkerfinu og
krefst þess að fram fari þjóðar-
atkvæðagreiðsla um framtíðar-
skipan fiskveiðistjórnunarkerf-
isins.
Dögun bendir á að frum varpið
tryggi núverandi handhöfum
aflaheimilda forgangsrétt til 40
ára. Það sé hvorki í samræmi við
loforð ríkisstjórnarflokkanna,
né sjónarmið í stjórnarsáttmála
ríkis stjórnarinnar. - áas
Dögun mótmælir frumvarpi:
Vilja frumvarp
í þjóðaratkvæði
FRAMKVÆMDIR Átaksverkefni
við sundlaugamannvirki mun
kosta borgarsjóð 500 milljónir
króna á þessu ári. Um endur-
gerð, viðbætur og viðgerðir er
að ræða í átaki sem hófst í fyrra
við Árbæjarlaug, Breiðholtslaug,
Grafarvogslaug, Laugardalslaug,
Sundhöllina, Vesturbæjarlaug og
ylströndina í Nauthólsvík.
Ljúka á þessum framkvæmdum
en einnig hefjast handa við nýtt
verkefni til að bæta aðstöðu og
öryggi. Þá á að hefja framleiðslu
á klór til að nota meðal annars
í Breiðholtslaug. Þetta kemur
fram í greinargerð með tillögu
sem borgarráð vísaði til starfs-
hóps um framtíð sundlauganna í
Reykjavík. - gar
Átaksverkefni í Reykjavík:
Sundstaðir fá
hálfan milljarð
LAUGARDALSLAUG 300 milljónir fara
á þessu ári til framkvæmda í Laugar-
dalslaug.
NÝSTÁRLEGUR KJÓLL Á tískusýningu
í Peking í Kína mátti líta þennan sér-
stæða kjól frá frönskum tískuhönnuði.
NORDICPHOTOS/AFP