Fréttablaðið - 02.04.2012, Side 4
2. apríl 2012 MÁNUDAGUR4
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason
hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
BÚRMA, AP Staðfesti herforingja-
stjórnin í Búrma sigur Aung San
Suu Kyi í aukaþingkosningum í
Kawhmu, þá tekur hún von bráðar
sæti á þingi í fyrsta sinn.
Flokkur hennar, Lýðræðis-
fylkingin, fullyrðir að fram-
bjóðendur flokksins hafi unnið
sigur í 40 kjördæmum af þeim 45
sem kosið var í. Lýðræðisfylkingin
bauð fram í 44 þeirra.
Mikill fögnuður braust út meðal
stuðningsmanna flokksins og
Suu Kyi víða um land. Yfirlýsing
flokksins um sigur í hverju kjör-
dæminu á fætur öðrum var birt á
ljósaskilti fyrir utan höfuðstöðvar
hans í borginni Rangún. Þúsundir
stuðningsmanna flokksins voru
saman komnir fyrir utan húsið og
tóku strax að hrópa sigri hrósandi:
„Við unnum, við unnum!“
Ekki er búist við opinberum
niður stöðum úr atkvæðatalningu
fyrr en í dag. Yfirlýsingar Lýð-
ræðisfylkingarinnar eru byggðar
á útgönguspám, sem flokkurinn lét
gera. Engin óháð samtök hafa getað
staðfest þessa niðurstöðu.
Suu Kyi, sem er orðin 66 ára,
hefur verið höfð í stofufangelsi
meira og minna undanfarna tvo ára-
tugi en var látin laus síðla árs 2010,
þegar herforingjastjórnin var tekin
til við að slaka á valdataumunum.
Lýðræðisfylkingin vann yfir-
burðasigur í þingkosningum árið
1990 en herforingjastjórnin neitaði
þá að viðurkenna úrslit þeirra
kosninga.
Síðan herforinginn Thein Sein
tók við forsetaembætti í landinu
snemma á síðasta ári hafa nokkrar
lýðræðisumbætur orðið. Flestum
pólitískum föngum hefur verið
sleppt úr haldi og ritskoðun á fjöl-
miðlum hefur að stórum hluta verið
aflétt.
Jafnframt hefur einangrun
landsins verið rofin. Samskiptin
við Vesturlönd hafa batnað og jafn-
vel Bandaríkin hafa gefið vilyrði
um aðstoð, haldi þessi þróun í lýð-
ræðisátt áfram.
Lýðræðisfylkingin hefur á hinn
bóginn sakað herforingjastjórnina
um að hafa staðið að margs konar
kosningasvindli í gær. Tugir kæra
höfðu borist til yfirkjörstjórnar
landsins. Meðal annars eru þar ásak-
anir um að kjörseðlar hefðu verið
vaxbornir, sem gerði kjósendum
erfitt fyrir að merkja við fram-
bjóðendur með þeim af leiðingum
að kjörseðlarnir geta verið taldir
ógildir. gudsteinn@frettabladid.is
Suu Kyi sögð komin á þing
Helsti flokkur stjórnarandstöðunnar í Búrma lýsti yfir sigri í aukakosningum í gær og fullyrti að Aung San
Suu Kyi væri þar með komin á þing. Herforingjastjórnin sökuð um kosningasvik og óvíst um staðfestingu.
7. nóvember 2010: Herforingjastjórnin efnir
til þingkosninga, þeirra fyrstu síðan 1990.
13. nóvember 2010: Suu Kyi leyst úr
stofufangelsi.
4. febrúar 2011: Nýkjörið þing kýs Thein
Sein í forsetaembættið.
30. mars 2011: Thein Sein tekur við forseta-
embætti.
17. maí 2011: Meira en 14 þúsund fangar
fá sakaruppgjöf. Einungis fáir þeirra voru þó
úr hópi hinna 2.000 pólitísku fanga, sem þá
voru í haldi.
11. ágúst 2011: Suu Kyi skorar á stjórnina
að hætta við áform um Myitsone-stífluna,
sem Kínverjar hugðust fjármagna.
14. ágúst 2011: Suu Kyi lætur reyna á þolrif
herforingjastjórnarinnar með því að halda í
fundaferð um landið, sem henni hafði áður
verið bannað.
19. ágúst 2011: Suu Kyi á fund með Thein
Sein forseta og segist ánægð með viðræður þeirra.
15. september 2011: Hömlum létt af fjölmiðlum og bannaðar vefsíður opnaðar.
30. september 2011: Thein Sein lýsir yfir að hætt sé við áform um Myitsone-
stífluna.
11. október 2011: Thein Sein undirritar lög, sem heimila starfsemi verkalýðs-
félaga og leyfa verkföll, en með takmörkunum þó.
22. nóvember 2011: Thein Sein undirritar lög, sem heimila friðsamlega
mótmælafundi, en þó með takmörkunum.
25. nóvember 2011: Lýðræðisfylking Suu Kyi skráð sem stjórnmálaflokkur og
boðar þátttöku í aukakosningunum 2012.
30. nóvember 2011: Hilary Rodham Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
kemur í heimsókn til Búrma og boðar bætt samskipti.
4. janúar 2012: Meira en sex þúsund fangar fá sakaruppgjöf, en aftur voru fáir
þeirra úr hópi pólitískra fanga.
12. janúar 2012: Stjórnin undirritar friðarsamkomulag við uppreisnarhóp karena,
einn fjölmargra þjóðernishópa landsins.
13. janúar 2012: Stjórnin sleppir meira en 600 pólitískum föngum úr haldi, þar á
meðal sumum helstu andófsmönnum landsins.
18. janúar 2012: Suu Kyi skráir framboð sitt til þings í aukakosningum í Kawmhu,
fátæku bæjarfélagi skammt suður af höfuðborginni Rangún.
14. mars 2012: Suu Kyi flytur stefnuskrá flokks síns í ríkisútvarpi og sjónvarpi.
1. apríl 2012: Aukakosningar haldnar í 45 kjördæmum. Kosið er um þingsæti
sem losnað hafa síðan í þingkosningunum 2010.
Búrma þokast í lýðræðisátt
FÖGNUÐUR Í BÚRMA Stuðningsmenn Aung San Suu Kyi eftir að flokkur hennar hafði
lýst yfir sigri. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
AUNG SAN SUU KYI Leiðtogi
stjórnarandstöðunnar á kjörstað í
Kawhmu. NORDICPHOTOS/AFP
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
18°
16°
8°
5°
14°
17°
6°
6°
20°
13°
19°
12°
31°
5°
16°
17°
2°Á MORGUN
Strekkingur sums staðar
NV-lands annars hægari.
MIÐVIKUDAGUR
Strekkingur úti fyrir
N- og SA-ströndinni
annars hægari.
7 7
5 5
6
5
4 3
2
3
2
3
1
0
-1
-1
-1
-2
-3
-3
-4
5
5
5
5
5 5
5
5
5
5
5
MILDIR PÁSKAR?
Það verður heldur
kaldara á landinu í
dag en undanfarna
daga og lítilsháttar
snjókoma eða
slydda með austur-
og suðurströndinni.
Á morgun hlýnar
svo aftur og lítur út
fyrir suðvestlægar
áttir með mildu
veðri og vætu
næstu daga, jafnvel
fram yfi r páska.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
UMHVERFISMÁL Umhverfisátakið Grænn
apríl er hafið en þar er lögð áhersla á að
kynna og bjóða upp á upplýsingar um
þekkingu, vöru og þjónustu sem telst vera
græn og umhverfisvæn.
Í upphafi átaksins í gær tók verslunar-
miðstöðin Kringlan á móti viðurkenningu
fyrir framúrskarandi árangur í flokkun á
sorpi frá Íslenska Gámafélaginu.
Kringlan er fyrsta stóra verslunar-
miðstöð landsins sem býður upp á
flokkunar tunnur á göngunum. Sigurjón
Örn Þórsson, framkvæmdastjóri
Kringlunnar, var að vonum ánægður með
viðurkenninguna en þrjú ár eru síðan
verslunarmiðstöðin hóf að flokka sitt sorp.
Kringlan hefur nú sparað sér milljónir
í sorpgjöld og með endurvinnslu bylgju-
pappa hafa um 5,500 tré sparast frá upp-
hafi flokkunar.
„Nú flokkum við 38 prósent af okkar
sorpi og á síðasta ári spöruðum við um
2,5 milljónir í urðunargjöld,“ segir Sigur-
jón en Kringlan stefnir á að ná að flokka
helming af sorpi sínu á næstu þremur
árum.
„Þetta er hægfara þróun en spurning
um samfélagslega ábyrgð. Þetta er sam-
vinnuverkefni allra hérna og viðurkenn-
ingin mikil hvatning,“ segir Sigurjón.
Hægt er kynna sér átakið á vefsíðunni
graennapril.is. - áp
Umhverfisátakið Grænn apríl hófst í gær, sunnudaginn fyrsta apríl, með því að Kringlan fékk viðurkenningu:
Kringlan flokkar 38 prósent af sínu sorpi
UMHVERFISVÆNN MÁNUÐUR Kringlan sparar um 2,5 milljónir
í sorpgjöld með því að flokka sorpið en þau flokka um 38
prósent af því sem til fellur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BELGÍA, AP Lögreglan í Belgíu
handtók í gær um það bil 200
manns sem efndu til mótmæla við
höfuðstöðvar Atlantshafsbanda-
lagsins í Belgíu.
Fólkið mætti á staðinn til að
krefjast kjarnorkuafvopnunar og
brotthvarfs herliðs allra aðildar-
ríkja NATO frá Afganistan.
Mótmælendurnir reyndu að
komast inn fyrir girðinguna, sem
er í kringum um höfuðstöðvarnar,
en þeim tókst það ekki.
Lögreglumenn þurftu að elta
marga mótmælendurna góðan spöl
áður en þeim tókst að handtaka þá.
- gb
Tvö hundruð handtekin:
Mótmæli gegn
NATO í Belgíu
HANDTÖKUR Lögreglan stöðvaði
mótmæli. NORDICPHOTOS/AFP
ALÞINGI Fjármálaráðherra lagði
á laugardag fram frumvarp um
heimild til handa ráðherra til að
fjármagna jarðgöng undir Vaðla-
heiði. Verði það að veruleika fær
ráðherra heimild til að undir-
rita lánssamning um allt að 8,7
milljarða króna við Vaðlaheiðar-
göng ehf.
Tryggingar fyrir láninu eru
félagið sjálft, eignir þess og tekju-
streymi. Í greinargerð með frum-
varpinu kemur fram að með
göngunum kæmust Akureyri og
Húsavík nálægt því að mynda eitt
atvinnu- og búsvæði. - kóp
Fjármögnun Vaðlaheiðarganga:
Heimild til 8,7
milljarða láns
GENGIÐ 30.03.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
230,4448
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,17 126,77
201,97 202,95
168,26 169,20
22,615 22,747
22,133 22,263
19,041 19,153
1,5363 1,5453
195,38 196,54
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR