Fréttablaðið - 02.04.2012, Side 6
2. apríl 2012 MÁNUDAGUR6
N J Ó T U M Þ E S S A Ð H R E Y F A O K K U R
50%
afsláttur
STJÓRNSÝSLA „Við erum skyldugir
gagnvart lögum að sinna þessu
starfi og svo ákveður ríkið
þóknunina einhliða. Það er mjög
erfitt að sætta sig við það,“ segir
Brynjar Níelsson, formaður Lög-
mannafélags Íslands. Hann krefst
þess að hið opinbera leiðrétti
kjör lögmanna sem taka að sér
verjenda störf í sakamálum, ella
komi til greina að fara með málið
fyrir dóm.
Brynjar skrifar pistil um málið
í nýjasta tölublað Lögmannablaðs-
ins, sem kom út í síðustu viku. Þar
segir frá því að ráðherra dóms-
mála hafi í kjölfar banka hrunsins
sett reglugerð um þóknanir til
verjenda, sem áður var á könnu
Dómstólaráðs að ákvarða. Með
reglugerðinni hafi þóknunin jafn-
framt verið lækkuð um tíu prósent,
niður í tíu þúsund krónur á tímann,
sem sé um það bil helmingurinn af
hefðbundnu tímakaupi lögmanna.
Brynjar segir „fullkomlega frá-
leitt“ að ráðherra ákveði einhliða
upphæðina á sama tíma og lög-
menn séu skyldugir að lögum að
verja sakamenn.
„Í hugum margra er hér um
hreina aðför að lögmönnum að
ræða. Undir það má taka. Það er
ólíðandi að þeir lögmenn sem taka
að sér vörn í sakamálum, eða önnur
réttargæslustörf, þurfi að sæta því
að fá ekki greidda eðlilega þóknun
fyrir vinnu sína,“ segir í pistlinum.
Brynjar gagnrýnir sömu leiðis
þá ákvörðun Dómstólaráðs að
lækka greiðslur til lögmanna í svo-
kölluðum útivistarmálum, það er
þegar skjólstæðingur lögmannsins
mætir ekki þegar mál er þingfest
og því lýkur þá og þar. Sú þóknun
sé nú tíu þúsund króna eingreiðsla
þótt oft liggi mikil vinna að baki
fyrir lögmenn. Stundum geti jafn-
vel borgað sig fyrir skjólstæðing-
inn, til dæmis í skuldamálum sem
liggja nokkuð beint við, að mæta
ekki og sleppa þannig mun betur
en ella frá greiðslu málskostnaðar.
Brynjar segir að verði þessi mál
ekki færð í eðlilegt horf innan
skamms tíma komi til álita að láta
reyna á þau fyrir dómi.
Fréttablaðið falaðist eftir
viðbrögðum frá innanríkis-
ráðuneytinu vegna málsins og
fékk þau svör frá upplýsinga-
fulltrúanum Jóhannesi Tómas-
syni að borist hefði erindi frá Lög-
mannafélaginu vegna málsins.
„Ráðuneytið hefur erindið til
skoðunar til að kanna hvort unnt
er að verða við þeirri beiðni. Ekki
er hægt að segja á þessari stundu
hvenær niðurstaða liggur fyrir
en þess er vænst að það geti orðið
mjög bráðlega.“ stigur@frettabladid.is
Hótar málsókn vegna
atlögu að lögmönnum
Formaður Lögmannafélagsins segir „fullkomlega fráleitt“ og óviðunandi að hið
opinbera ákvarði einhliða laun verjenda í sakamálum, enda séu þeir skyldugir
til að sinna starfinu. Hann krefst breytinga, ella komi til álita að höfða mál.
ÓSÁTTUR Brynjar, í miðið, hefur mikla reynslu af verjendastörfum. Hann var til
dæmis meðal verjenda í Baugsmálinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ALÞINGI Guðbjartur Hannesson vel-
ferðarráðherra hefur lagt fram
frumvarp um réttarstöðu einstak-
linga með kynáttunarvanda. Frum-
varpinu er ætlað að skýra réttar-
stöðu transfólks hér á landi.
Meðal helstu ákvæða í frum-
varpinu er að lagt er til að stofnað
verði sérfræðingateymi innan
Landspítalans, sérfræðinefnd um
kynáttunarvanda verði skipuð og
að Þjóðskrá Íslands haldi utan um
skráningu kynleiðréttra einstak-
linga ásamt nafnabreytingu og
útgáfu á nýjum kennitölum.
Frumvarpið byggir að megin-
Velferðarráðherra hefur lagt fram frumvarp á Alþingi sem eyðir óvissu:
Bætir réttarstöðu transfólks
Kynáttunarvandi er upplifun einstaklings frá unga aldri um að hafa fæðst í
líkama af röngu kyni og óskar að tilheyra hinu kyninu. Eitt til tvö slík tilfelli
koma upp á hverju ári.
Hvað er kynáttunarvandi?
stefnu á því verklagi sem tíðkast
nú þegar hér á landi, en með heild-
stæðum lögum á að skýra stöðuna
og eyða réttaróvissu. Réttaróvissa
hefur ríkt um réttarstöðu einstak-
lings eftir að hann hefur hlotið
staðfestingu á því að tilheyra gagn-
stæðu kyni. Sama hefur verið uppi
á teningnum hvað varðar réttar-
stöðu barna sem eiga foreldri með
kynáttunar vanda og þá hefur verið
óvissa um hvernig bregðast skuli
við þeim aðstæðum þegar einstak-
lingur sem hlotið hefur staðfestingu
á að hann tilheyri gagnstæðu kyni
vill hverfa aftur til fyrra kyns. - þeb
UTANRÍKISMÁL Össur Skarphéðins-
son utanríkisráðherra fundaði
með Nikolay Patrushev, formanni
þjóðaröryggisráðs Rússlands, á
laugardag.
Patrushev var staddur á
Íslandi í stuttri heimsókn en
hann fór af landi brott síðdegis
á laugardag. Á fundinum ræddu
þeir Össur um málefni norður-
slóða og gott samstarf Íslands og
Rússlands, bæði í tvíhliða sam-
starfi og innan Norðurskauts-
ráðsins. Þá ræddu þeir samskipti
Rússlands og Atlantshafsbanda-
lagsins og málefni Miðaustur-
landa. - þeb
Ræddu málefni norðurslóða:
Össur fundaði
með Patrushev
ÖSSUR OG PATRUSHEV Funduðu um
margvísleg mál í stuttri heimsókn
Patrushevs til Íslands.
MYND/UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ
Braut rúðu á Hressó
Rúða var brotin á veitingastaðnum
Hressó aðfaranótt sunnudags.
Maðurinn sem braut rúðuna slóst
einnig við dyraverði. Flytja þurfti
manninn á slysadeild, en að því
loknu var hann vistaður í fangaklefa.
LÖGREGLUMÁL
Ert þú hlynnt/ur því að gjald
verði tekið upp á einhverjum
ferðamannastöðum?
Já 64,5%
Nei 35,5%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Hljópstu apríl í gær?
Segðu skoðun þína á vísir.is
Gripnir við ólöglegar veiðar
Landhelgisgæslan stóð færeyskan
línubát að meintum ólöglegum
veiðum í íslenskri lögsögu suðaustur
af landinu í gær. Bátnum var vísað
til íslenskrar hafnar þar sem lögregla
tók á móti honum. Tekin var skýrsla
af skipstjóranum og að því loknu fékk
báturinn að fara sína leið.
LANDHELGISGÆSLAN
Viðskipti Landsvirkjun keypti
hlut Atvinnueflingar Þingeyjar-
sveitar og Orkuveitu Húsavíkur í
Þeistareykjum ehf. fyrir helgi og
fer því með allt hlutafé í félaginu.
Orkuveita Húsavíkur átti 3,2
prósenta hlut í félaginu en hlutur
Atvinnueflingar Þingeyjarsveitar
var 0,087 prósent. Landsvirkjun
greiddi samanlagt rúmar 200
milljónir fyrir hlutina.
Þeistareykir ehf. hafa frá
stofnun félagsins árið 1999 staðið
að borunum og rannsóknum til
hagnýtingar á orku úr jörðinni
Þeistareykjum í Þingeyjarsveit
en þeim hefur miðað vel á síðustu
árum.
Landsvirkjun á Þeistareyki
Greiddu 200
milljónir
ALÞINGI Katrín Jakobsdóttir,
mennta- og menningarmálaráð-
herra, hefur lagt fram frum-
varp til laga um Ríkisútvarp-
ið. Er því ætlað að skerpa á
almannaþjón-
ustuhlutverki
stofnunarinnar.
Samkvæmt
frumvarpinu
ber Ríkisút-
varpinu skylda
til að bjóða upp
á fjölbreytta
dagskrá sem
nær til allra
landsmanna.
Þá ber því að
rækja lýðræðishlutverk sitt,
sem og menningarlegt hlutverk.
Ríkisútvarpinu ber að hafa hlut
karla og kvenna sem jafnastan
í dagskrá sinni og starfsemi.
Þá er því gert að leggja sér-
staka rækt við íslenska tungu
og kynna sögu þjóðarinnar,
menningararfleifð og náttúru.
- kóp
Þjónustuhlutverk skerpt:
Frumvarp um
Ríkisútvarpið
KATRÍN JAKOBS-
DÓTTIR
TÆKNI Vegna framkvæmda í
Bændahöllinni er nauðsynlegt
að loka tölvukerfum samtakanna
frá klukkan 17 til 20 í dag. Þetta
hefur áhrif á notendur forrita og
gagnagrunna á vegum Bænda-
samtaka Íslands (BÍ). Tölvu-
kerfin sem lokunin hefur áhrif
á eru eftirfarandi: Baendatorg.
is, huppa.is, Lotus Notes, efabis.
is, símkerfi og hýsing ásamt
fleiri minni kerfum. Notendur
eru beðnir velvirðingar á þeim
óþægindum sem þetta kann að
hafa í för með sér. - áp
Rask í Bændahöllinni í dag:
Tölvukerfi BÍ
lokað um stund
KJÖRKASSINN
Það er ólíðandi að
þeir lögmenn sem
taka að sér vörn í sakamál-
um, eða önnur réttargæslu-
störf, þurfi að sæta því að fá
ekki greidda eðlilega þóknun
fyrir vinnu sína.
BRYNJAR NÍELSSON
FORMAÐUR LÖGMANNAFÉLAGS ÍSLANDS
SÝRLAND, AP Fulltrúar um 70 ríkja strengdu þess heit
í gær að útvega nokkrar milljónir Bandaríkjadala á
mánuði handa uppreisnarmönnum og stjórnarand-
stæðingum í Sýrlandi. Einnig ætla þeir að útvega
þeim samskiptabúnað.
Með þessu hafa Bandaríkin, Vesturlönd og araba-
ríki ákveðið að blanda sér enn frekar í átökin í Sýr-
landi, sem kostað hafa meira en átta þúsund manns
lífið undanfarið ár.
Á fundi fulltrúa ríkjanna, sem haldinn var í Istan-
búl í Tyrklandi í gær, virtist lítil trú ríkja á friðar-
viðleitni Sameinuðu þjóðanna og Arababandalagsins
sem Kofi Annan, fyrrverandi framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, hefur verið fenginn til að hafa
forystu um.
„Ef Assad heldur áfram, eins og hann hefur gert,
að ná engum árangri við að binda enda á átökin
og koma á vopnahléi, að draga hersveitir sínar frá
þeim svæðum sem hann hefur herjað á, þá er ólík-
legt að hann muni nokkru sinni veita samþykki sitt,“
sagði Hillary Clinton, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, um Bashar al-Assad Sýrlandsforseta, sem
hefur beitt hersveitum sínum af mikilli hörku á
mótmælendur og uppreisnarmenn í landinu. - gb
Ráðstefna „Vina Sýrlands“ var haldin í Istanbul í Tyrklandi í gær:
Uppreisnarmenn fá stuðning
HILLARY CLINTON Utanríkisráðherra Bandaríkjanna í Tyrklandi í
gær á fundi um 70 ríkja til stuðnings uppreisninni í Sýrlandi.
NORDICPHOTOS/AFP