Fréttablaðið - 02.04.2012, Page 10
2. apríl 2012 MÁNUDAGUR10
VIÐSKIPTI Mikilvægt er að skapa
menningu sameiginlegrar ábyrgðar
innan fyrirtækja. Þetta er mat Dr.
Daniel Levin, lögmanns og stjórn-
armanns í Íslandsbanka. Levin var
ræðumaður á fundi Festu, mið-
stöðvar um samfélagsábyrgð fyr-
irtækja, Viðskiptaráðs og Háskól-
ans í Reykjavík fyrir helgi um
stjórnunarhætti fyrirtækja.
„Megnið af því sem sagt er
um stjórnunarhætti fyrirtækja
er lítils virði vegna þess að við
þekkjum í raun öll muninn á
góðum og slæmum stjórnunar-
háttum. Sú nálgun sem ég hef þess
vegna á þetta viðfangsefni er að
skoða ekki ljótu dæmin um bresti í
stjórnunarháttum heldur að skoða
fremur litlu valkostina sem fólk
stendur frammi fyrir daglega.
Það kemur fyrir að fólk breyti
gegn betri vitund í sínu daglega
starfi og slíkir brestir geta undið
upp á sig og valdið stórum vanda-
málum. Spurningin er því hvernig
við komum í veg fyrir slíkt og
mitt svar er að það þurfi að skapa
menningu þar sem slík hegðun er
ekki liðin,“ segir Levin, sem hefur
í gegnum lögmannsstörf sín komið
reglulega til Íslands síðustu 20 ár.
Levin er eins og áður segir
stjórnamaður í Íslandsbanka en
innan bankans hefur verið hleypt
af stokkunum verkefni í því skyni
að kortleggja ákvarðanatöku-
ferla innan hans. Markmiðið er
að tryggja að fyrir hendi séu kerfi
og ferlar sem lágmarka áhættu,
styðja við góða stjórnarhætti og
að stjórnkerfi bankans sé ávallt í
samræmi við það sem best gerist.
„Áskorunin er að skapa menningu
í kringum góða stjórnunar hætti
þar sem fólk er verðlaunað fyrir
að halda sig frá ósiðum sem geta
mengað út frá sér. Þegar ég segi
verðlaunað á ég ekki eingöngu við
laun eða bónusa heldur einfaldlega
að fólk fái áhugaverðari verkefni
og meiri ábyrgð ef það til dæmis
sýnir heilindi í starfi og vinnufé-
lögum tillitsemi,“ segir Levin og
heldur áfram: „Þá þarf að gera
fólki ljóst að kerfið getur hrunið ef
hver er að róa í sína átt. Þess vegna
hef ég ekki trú á því að verðlauna
einstaklinga með bónusum heldur
fremur að verðlauna hópa og búa
þannig til andrúmsloft sameigin-
legrar ábyrgðar. Lykil atriðið er að
hagsmunir einstaklinga og fyrir-
tækisins séu þeir sömu.“
Levin segir að auðvitað sé
hverju fyrirtæki mikilvægast að
framleiða góðar vörur og hafa
starfsfólk sem leggur hart að sér.
„Þegar ég tala um þessa hluti þá
er ég að gera ráð fyrir að grund-
vallaratriðin séu í lagi. Vilji fyrir-
tækið hins vegar skara fram úr er
mikilvægt fyrir það að hafa sér-
lega áhugasamt og atorkusamt
starfsfólk og þá kemur menningin
inn í spilið,“ segir Levin og bætir
við að til þess að stuðla að heil-
brigðri menningu þurfi stjórn-
endur að sýna fordæmi í störfum
sínum. magnusl@frettabladid.is
Fyrir getur komið að fólk
breyti gegn betri vitund
Daniel Levin, lögmaður í stjórn í Íslandsbanka, er sérfróður um góða stjórnunarhætti. Hann telur mikil-
vægt að skapa menningu samábyrgðar innan fyrirtækja og mælir ekki með bónusum til einstaklinga.
DR. DANIEL LEVIN Levin er fæddur í Sviss en er bæði svissneskur og bandarískur
ríkisborgari. Hann hefur verið tíður gestur hér á landi vegna lögmannsstarfa sinna
síðustu tvo áratugi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
SKIPULAGSMÁL Úrslit eru fengin í
hugmyndasamkeppni Reykjavíkur-
borgar, Háskóla Íslands og
Norræna hússins um umhverfi
Vatnsmýrarinnar.
„Hugmyndin sem vann þykir
vera með framúrskarandi til-
lögu að tengingu við Hljómskóla-
garðinn og tjörnina með regn-
bogagöngum undir Hringbraut
þar sem breið tenging gefur bæði
mannfólki, fuglum og dýrum
að ferðast frítt,“ að því er segir
í tilkynningu um lyktir sam-
keppninnar.
Þar kemur líka fram að til-
lagan sé líka með norðurljósastíg
sem myndi menningaröxul „með
Hörpu í norður og Háskólann og
Norræna húsið í suður.“
Alls bárust í hugmyndasam-
keppni borgarinnar, Háskólans og
Norræna hússins fjórtán tillögur
víðs vegar af Norðurlöndunum.
Vinningstillagan er unnin af
arkitektastofunni Landsmótun
af þeim Aðalheiði Erlu Kristjáns-
dóttur, Áslaugu Traustadóttur,
Kristbjörgu Traustadóttur og
Þórhildi Þórhallsdóttur. - gar
Valið úr 14 tillögum í hugmyndasamkeppni:
Göng undir Hringbraut
VINNINGSTILLAGAN Á svokölluðum Norðurljósastíg milli Norræna hússins og mið-
borgarinnar liggja Regnbogagöngin undir Hringbrautina. MYND/LANDSMÓTUN
UMHVERFISMÁL Norðurþing hefur
gróðursett flestar plöntur allra
sveitarfélaga á landinu, yfir
tvær milljónir frá árinu 1990.
Sveitarfélagið hlaut sérstaka
viðurkenningu frá Skógræktar-
félagi Íslands á dögunum.
Viðurkenningin var veitt á
fagráðstefnu skógræktar, sem
fór fram á Húsavík í síðustu
viku. Norðurþing fékk viður-
kenningu fyrir þátttöku í Land-
græðsluskógaverkefni félagsins
og gróðurbótastarf í bæjar-
landinu. - þeb
Viðurkenning Norðurþings:
Gróðursetja
flestar plöntur
SKIPULAGSMÁL Björn Zöega, for-
stjóri Landspítalans, segir mikil-
vægt að aðgengi allra landsmanna
að spítalanum sé sem best, hvort
heldur sem
þeir koma land-
veginn eða með
flugi.
Þetta kemur
fram í umsögn
Björns vegna
ályktunar
stjórnar Lands-
sambands heil-
brigðisstofnana
um nauðsyn nálægðar Reykjavík-
urflugvallar og Landspítalans.
Björn segir mikilvægt að
Reykjavíkurborg tryggi með
skipulagsstarfi gott aðgengi að
spítalanum með góðum tengslum
við almenningssamgöngur og
greiðum akstursleiðum sjúkrabíla
frá öllum hverfum Reykjavíkur-
svæðisins og innanlandsflugvelli,
„hvar sem hann verður staðsettur
í framtíðinni“. - gar
BJÖRN ZOËGA
Forstjóri Landspítalans:
Borgin þarf að
tryggja aðgengi
NÝR LANDSPÍTALI Tölvugerð mynd af
væntanlegu Sóleyjartorgi við nýjan
spítala. MYND/NLSH
VONAST EFTIR VIÐSKIPTUM Á markaði
í Bamako, höfuðborg Mali, beið þessi
sölukona eftir því að einhver vildi
kaupa vefnaðarvörur sem hún geymdi
á höfði sér. NORDICPHOTOS/AFP
EGYPTALAND, AP Khayrat el-Shater,
varaformaður Bræðralags mús-
lima, verður í framboði til forseta í
Egyptalandi. Forysta samtakanna
skýrði frá þessu í gær.
Flokkur á vegum Bræðralags
múslima náði góðum árangri í
þingkosningunum, sem haldnar
voru í vetur. Samtökin höfðu ætlað
að halda sig til hlés í forseta-
kosningunum, sem haldnar verða
seint í maí.
El-Shater er auðugur kaupsýslu-
maður sem hefur gegnt mikil-
vægu hlutverki í samtökunum á
umbrotatímunum undanfarið ár,
eftir að Hosni Mubarak forseta var
steypt af stóli í fjöldamótmælum.
Bæði herforingjarnir, sem nú fara
með völd í landinu, og lýðræðis-
hreyfingar sem stóðu að mót-
mælunum í byrjun síðasta árs, hafa
viðrað áhyggjur af því að Bræðra-
lag múslima nái sterkum tökum á
stjórnmálum í landinu.
Samtökin hafa hug á að auka
veg íslamstrúar í stjórn landsins
og löggjöf. Samskiptin við Banda-
ríkin gætu versnað og Ísraelar
hafa áhyggjur af vaxandi áhrifum
íslamista. Bræðralagi múslima var
áratugum saman bannað að skipta
sér af stjórnmálum en hefur þrátt
fyrir það notið vinsælda og átt
sterk ítök í landsmönnum. - gb
Bræðralag múslima tilkynnir þátttöku í forsetakosningum í Egyptalandi í maí:
Þykir eiga góðar líkur á sigri
MOHAMED BADIE Leiðtogi Bræðralags
múslima tilkynnir framboð varafor-
mannsins, Khayrat el-Shater, til forseta.
NORDICPHOTOS/AFP