Fréttablaðið - 02.04.2012, Qupperneq 12
2. apríl 2012 MÁNUDAGUR12
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
SÍÐUSTU FORVÖÐ
Aðeins þrír dagar eftir af
páskatilboðsdögum
PÁSKAVERÐ*
Miele þvottavél W1634
áður kr. 184.500
nú kr. 169.900
Miele þvottavél W1714
áður kr. 202.500
nú kr. 184.900
* á meðan byrgðir endast
FRÉTTASKÝRING
Getur verið að einn stærsti fram-
leiðandi heims á sviði fjarskiptatækni
greiði leið njósna?
Fréttablaðið greindi frá því fyrir
helgi að stjórnvöld í Ástralíu hefðu
bannað kínverska fjarskiptafyrir-
tækinu Huawei, sem hefur um ára-
bil átt í samstarfi við íslensk síma-
fyrirtæki, að taka þátt í útboði
vegna uppbyggingar
landlægs háhraða inter-
net kerfis. Ástæðan eru
áhyggjur sem leyni-
þjónusta la ndsins
hefur af því að notkun
kínversks fjarskipta-
búnaðar auðveldi kín-
verskum tölvuþrjótum
að njósna um áströlsk
fyrirtæki og stofnanir.
Áður höfðu banda-
rísk stjórnvöld bannað
Huawei að koma að
uppbyggingu símkerfis
bandarísks símafyrir-
tækis.
Huawei er einn
stærsti framleiðandi
heims á vörum og tækni
fyrir fjarskiptafyrir-
tæki. Segja má að tortryggni ástr-
alskra og bandarískra stjórnvalda
gagnvart fyrirtækinu varpi ljósi
á áhyggjur sem mörg ríkja Vest-
urlanda hafa af netnjósnum sem
rekja má til Kína og flestir telja
að tengist kínverskum stjórnvöld-
um. Slíkar áhyggjur hafa magn-
ast á síðustu misserum eftir því
sem upp hefur komist um fjölmörg
dæmi um tilraunir kínverskra aðila
til að brjótast inn í tölvukerfi fyrir-
tækja og stofnana á Vesturlöndum.
Til að mynda komst árið 2009
upp um tilraun til að brjótast inn
í síma Kevin Rudd, þáverandi for-
sætisráðherra Ástralíu. Á sama
ári var brotist inn í öll tölvukerfi
kvikmynda hátíðarinnar
í Melbourne í kjölfar
þess að skipu leggjendur
hátíðarinnar neituðu að
verða við kröfum kín-
verskra stjórnvalda um
að sýna ekki heimildar-
mynd um kínverskan
andófsmann.
Þá hefur netárásum
sem rekja má til Kína
meðal annars verið
beint að bandarískum
olíu- og tæknifyrir-
tækjum, þar með talið
Google sem ráðist var
á árið 2009. Í kjölfarið
hefur bandarísk þing-
nefnd hafið að rann-
saka hvort notkun á
kínverskum fjarskipta-
búnaði, þar með talið frá Huawei,
auðveldi netnjósnir kínverskra
aðila.
Huawei neitar alfarið tengslum
við kínversk yfirvöld og meintar
njósnir þeirra. Gagnrýnendur
fyrir tækisins benda á að stofnandi
þess, verkfræðingurinn Ren
Zhengfei, var áður yfirmaður fjar-
skiptadeildar kínverska hersins og
á þá staðreynd að eignarhald fyrir-
tækisins er að mestu á huldu. Þrátt
fyrir það virðist það hafa unnið
sér inn traust stærstu símafyrir-
tækja heims sem eiga nær öll í við-
skiptum við fyrirtækið. Þá hefur
það byggt upp fjarskiptakerfi í fjöl-
mörgum löndum Asíu, í Bretlandi
auk þess sem allt símkerfi Nova á
Íslandi og hluti símkerfis Vodafone
eru frá Huawei.
Engar grunsemdir hafa komið
fram opinberlega um neins konar
netárásir eða -njósnir hér á landi
sem rekja má til Kína. Þó má
minnast á að í svokölluðum sendi-
ráðsskjölum sem vefsíðan Wiki-
leaks gerði aðgengileg árið 2010
komu fram grunsemdir banda-
rískra sendiráðsstarfsmanna
um að Kínverjar stunduðu iðn-
njósnir hér á landi sem beindust
gegn fyrir tækjum á sviði erfða-
greiningar og læknisfræði.
magnusl@frettabladid.is
Netnjósnir sem rekja má til
Kína valda víða áhyggjum
Fjölmörg dæmi hafa komið upp á síðustu misserum um tilraunir kínverskra aðila til iðnnjósna á Vestur-
löndum. Í kjölfar árása á bandarísk olíu- og tæknifyrirtæki, þar á meðal Google, hefur bandarísk þing-
nefnd hafið rannsókn á umsvifum kínverskra fjarskiptafyrirtækja, þar á meðal Huawei, í landinu.
BANDARÍSKA SENDIRÁÐIÐ Í svokölluðum sendiráðsskjölum sem vefsíðan Wikileaks
birti á árinu 2010 komu fram grunsemdir bandarískra sendiráðsstarfsmanna um að
Kínverjar stunduðu iðnnjósnir hér á landi sem beindust gegn fyrirtækjum á sviði
erfðagreiningar og læknisfræði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Þetta ár birti
vefsíðan Wikileaks
bandarísk sendi-
ráðsskjöl þar sem
fram komu grun-
semdir banda-
rískra sendirráðs-
starfsmanna um
iðnnjósnir Kínverja
á Íslandi.
2010
UMHVERFISMÁL „Efling græns hag-
kerfis á að vera forgangsverkefni
stjórnvalda,“ sagði Skúli Helga-
son á aðalfundi Umhverfis-
stofnunar fyrir helgi.
Í grænu hagkerfi felst að
áhersla er lögð á atvinnu-
starfsemi sem er byggð á fjár-
festingum einkaaðila og opin-
berra aðila, sem dregur úr
mengun og losun gróðurhúsaloft-
tegunda, stuðlar að bættri nýt-
ingu orku og auðlinda og kemur í
veg fyrir hnignun líffræðilegrar
fjölbreytni og þjónustu.
Skúli sagði að í stjórn málum á
Íslandi hafi tvo andstæð sjónar-
mið tekist á, annars vegar sjónar-
mið þeirra sem vilja virkja
náttúru auðlindir og svo sjónar-
mið þeirra sem vilja vernda nátt-
úruna. Þess vegna getur grænt
hagkerfi samþætt þessi tvo
sjónar mið þar sem helsta mark-
mið þess er að auka verðmæta-
sköpun á sama tíma og það er
dregið úr álagi á náttúruna.
Annað markmið á grænu hag-
kerfi er að auka græn störf sem
eru bæði mannbætandi og stuðla
að bættu umhverfi.
Stjórnvöld hafa átt í erfið-
leikum með að
skilgreina hvað
græn störf eru
en samkvæmt
skil greiningum
er hægt að
skipta þeim í
tvo yfirflokka.
Annars vegar
er um að ræða
störf við fram-
leiðslu á umhverfisvænum vörum
og hins vegar störf sem gera
framleiðsluferla í mismunandi
framleiðslugreinum umhverfis-
vænni. - áas
Efling græns hagkerfis á Íslandi á að vera forgangsverkefni stjórnvalda:
Stefnan sættir andstæð sjónarmið
SKÚLI HELGASON
NEYTENDAMÁL Bónus var með lægsta verðið á
16 páskaeggjum af 28, samkvæmt verðkönnun
Alþýðusambands Íslands (ASÍ) í sjö matvöru-
verslunum víðs vegar um landið. Verðkönnun fór
fram í síðustu viku.
Fjarðarkaup var næstoftast með lægsta verðið,
það er á níu páskaeggjum, en Krónan var með
lægsta verðið á þremur, að því er segir í fréttatil-
kynningu frá ASÍ.
Samkaup-Úrval var með hæsta verðið á 21
páskaeggi af 28 en Hagkaup var næst oftast með
hæsta verðið eða á sjö páskaeggjum. Mestur verð-
munur í könnuninni reyndist vera á páskaeggi frá
Freyju númer 9, bæði draumaeggi og ríseggi. Það
var dýrast hjá Samkaupum-Úrval þar sem það
kostaði 2.569 krónur en ódýrast í Fjarðarkaupum
þar sem verðið var 1.598 krónur.
Minnstur verðmunur í könnuninni var á lakkrís
páskaeggi frá Nóa Síríus. Það var dýrast hjá Nettó
þar sem það kostaði 1.379 krónur en ódýrast hjá
Bónus þar sem það kostaði 1.259 krónur.
Verð á páskaeggjum hefur hækkað í flestum til-
fellum hjá öllum verslunum milli ára nema á Nóa
Síríus gulleggi - 6 stk. í pakka sem hefur lækkað
milli ára.
Könnunin var gerð í Bónus á Akureyri, Krónunni
í Lindum, Nettó á Egilsstöðum, Hagkaupum í
Kringlunni, Fjarðarkaupum í Hafnarfirði, Nóatúni
í Hamraborg og Samkaupum-Úrval í Hafnarfirði.
Kostur og Víðir neituðu að taka þátt. - ibs
Verðkönnun Alþýðusambands Íslands á algengum páskaeggjum:
Páskaeggin oftast ódýrust í Bónusi
PÁSKAEGG Verð á páskaeggjum hefur hækkað í flestum til-
fellum að því er fram kemur í nýrri verðkönnun ASÍ.
ÍRAK, AP Stjórnvöld í Írak höfðu
vonast til þess að leiðtoga-
fundur Arababandalagsins í
vikunni myndi sýna fram á
traust nágrannalandanna til
Íraks, sem er að byrja að fóta
sig eftir langvarandi stríðsátök.
Einungis innan við helmingur
ríkjaleiðtoga bandalagsins lét
þó sjá sig, hinir héldu sig heima.
Fjarvera leiðtoganna þykir
benda til þess að þeir beri ekki
mikið traust til íraskra stjórn-
valda.
Forsætisráðherra Katars
fór ekki í grafgötur með þetta,
þegar hann sagði að hann og
aðrir sem ekki mættu væru að
mótmæla því að írösk stjórnvöld
héldu minnihluta súnní-mús-
lima frá völdum og áhrifum.
- gb
Illa mætt á leiðtogafund:
Treysta ekki
ríkisstjórn Íraks
FÁMENNT Leiðtogar Íraks, Kómoreyja,
Líbanons og Palestínu á leiðtoga-
fundinum í Bagdad. NORDICPHOTOS/AFP
Endurbætur samþykktar
Borgarráð hefur samþykkt að verja
180 milljónum króna til breytinga og
endurbóta á austurálmu Breiðagerðis-
skóla. Framkvæmdir hefjast í júní og á
að vera lokið í ágúst 2013.
REYKJAVÍKURBORG
FÉLAGSSTARF Deilur vegna fram-
kvæmdar Söngkeppni framhalds-
skólanna hafa orðið til þess að
Nemendafélag Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra (NFNV) hefur
sagt sig úr Sambandi íslenskra
framhaldsskólanema (SÍF).
NFNV telur hagsmuni nemenda
fyrir borð borna í keppninni. Til
dæmis er átalin ákvörðun um að
láta bara 12 atriði keppa til úrslita
og ákvörðun um að færa keppnina
frá Akureyri til Reykjavíkur.
NFNV segist munu ganga aftur í
SÍF segi stjórn SÍF af sér. - óká
Framhaldsskólanemar deila:
Ósætti vegna
söngkeppni
VÉLMENNI KEPPA Tvö lið vélmenna,
annað frá háskólanum í Madrid og hitt
frá háskólanum í Frankfurt, keppa þarna
á móti sem haldið var í Magdeburg í
Þýskalandi. NORDICPHOTOS/AFP