Fréttablaðið - 02.04.2012, Page 48
2. apríl 2012 MÁNUDAGUR24
BAKÞANKAR
Erlu
Hlynsdóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. fyrirhöfn, 6. kúgun, 8. berja,
9. fljótfærni, 11. tveir eins, 12. drep-
sótt, 14. sveigur, 16. persónufornafn,
17. flík, 18. bókstafur, 20. bókstafur,
21. spyrja.
LÓÐRÉTT
1. rusl, 3. fyrirtæki, 4. dagatal, 5. mak,
7. hænsnfugl, 10. aum, 13. útdeildi,
15. málmur, 16. þögn, 19. ónefndur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. ómak, 6. ok, 8. slá, 9. ras,
11. mm, 12. plága, 14. krans, 16. þú,
17. fat, 18. enn, 20. ká, 21. inna.
LÓÐRÉTT: 1. sorp, 3. ms, 4. almanak,
5. kám, 7. kalkúnn, 10. sár, 13. gaf,
15. stál, 16. þei, 19. nn.
Rólegur Jói!
Ekki missa
glasið!
Rólegur!
Ég HEF
stjórn á
þessu!
Kærar þakkir!
Uh... Já.
Þjónustan hér hefur
batnað mikið...
...Mér fannst
hann ekki
hunsa mig
jafn mikið og
síðast.
Krakkarnir hérna
vinna ekki. Þeir
fá greitt fyrir að
fara í taugarnar á
fullorðnum.
Ok. Hvaða fífl
borðaði nautalundina?
Pabbi,
hvað ertu
stór?
175 cm. Hvað? Þú ert ekki
1,75. Þú ert í
mesta lagið
1,70.
Ekki samkvæmt
mínum aðferðum.
Þá er komið að því. Ég ætla að opna bar. En ekki neinn venjulegan bar, nei. Þessi
bar verður opnaður til að berjast gegn
alkóhólisma.
ÞAÐ er sorgleg staðreynd að fólk er í
auknum mæli að drekka áfengi heima hjá
sér, algjörlega eftirlitslaust. Á mínum bar
verður ótrúlega gott verð á áfengi þannig
að það verður mun hagstæðara að kaupa
áfengi hjá mér.
AUÐVITAÐ græði ég pening á því
að fólk kaupi af mér áfengi, en
það er algjört aukaatriði fyrir
mig. Ég vil bara bjóða fólki
upp á umhverfi þar sem það
getur farið á fyllerí undir
eftirliti og leggja þannig
mitt af mörkum til að
bæta samfélagið.
INN af barnum stefni
ég síðan á að hafa
lítið vændishús. Bara
rétt passlega stórt til
að koma í veg fyrir
nauðganir á Íslandi.
ÉG KEM til með að
bjóða upp á stelpur á
öllum aldri, af öllum
stærðum og gerðum.
Til er fólk (aðallega
konur) sem halda að nauðganir snúist um
valdbeitingu og kúgun. Ég veit hins vegar
að þeir sem nauðga gera það bara því þeir
fá ekki nóg að ríða. Það er því nauðsynlegt
að bjóða upp á þessa þjónustu.
Á VÆNDISHÚSINU mínu verður nóg af
smokkum og stelpurnar fara reglulega
í skoðun hjá kvensjúkdómalækni til að
tryggja að þær séu ekki að dreifa klamydíu
eða herpes. Síðan þurfa allir viðskipta-
vinirnir að skrifa undir yfirlýsingu þar
sem segir að þeir beri ómælda virðingu
fyrir stelpunum. Það er auðvitað bara
formsatriði.
INNI á barnum, framan við vændishúsið,
verður síðan þetta líka fína spilavíti þar
sem markmiðið er að vinna gegn spilafíkn.
EINS og staðan er í dag neyðist áhugafólk
um fjárhættuspil til að notast við spila-
kassa í sjoppum þar sem enginn fylgist
með því. Meira að segja eru dæmi um að
börn og unglingar komist í þetta.
SÍÐAN færist í aukana að fólk sé einsamalt
heima hjá sér, eftirlitslaust, og tapi háum
upphæðum á spilasíðum á Netinu. Þetta er
auðvitað ólíðandi.
ALLT að sjö þúsund Íslendingar eiga í veru-
legum vanda vegna spilafíknar. Þetta fólk
mun eiga athvarf hjá mér.
Baráttubarinn minn