Fréttablaðið - 02.04.2012, Síða 53
en venjulegar Panodil töflur
HRAÐAR
Panodil Zapp (parasetamól, 500 mg). Ábendingar: Höfuðverkur, tannverkur, hiti sem fylgir kvefi, tíðaverkir, vöðva- og liðverkir, verkjastillandi við gigtarverkjum, hár hiti. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir og börn eldri en 12 ára: 1-2 töflur á 4-6 klst.
fresti, að hámarki 8 töflur á sólarhring. Börn 10-15 mg/kg líkamsþyngdar á 4-6 klst. fresti, að hámarki 4 sinnum/sólarhring. Gæta skal varúðar ef um skerta nýrnastarfsemi og lifrarsjúkdóm er að ræða. Skal ekki notað með öðrum verkjalyfjum sem innihalda
parasetamól (t.d. samsettum lyfjum). Hærri skammtar en ráðlagðir eru geta valdið hættu á mjög alvarlegum lifrarskemmdum. Aukaverkanir: Mjög sjaldgæfar: Almennar: Ofnæmisviðbrögð. Útbrot, ofsakláði, ofsabjúgur. Lifrarskemmdir. Lifrarskemmdir
af völdum parasetamóls hafa komið fram í tengslum við misnotkun áfengis. Við langtímanotkun er ekki hægt að útiloka hættuna á nýrnaskemmdum. Pakkning: Filmuhúðaðar töflur 500 mg, 20 stk. Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli lyfsins. Nánari upplýsingar
eru á http://www.serlyfjaskra.is. Panodil er skrásett vörumerki GlaxoSmithKline fyrirtækjasamstæðunnar.
ÁHRIFARÍKT GEGN
VERKJUM OG HITA
Panodil Zapp frásogast hraðar en venjulegar
Panodil töflur, þannig nást fyrr hin vel þekktu
verkjastillandi og hitalækkandi áhrif.
MÁNUDAGUR 2. apríl 2012 29
„Þetta verður alveg geggjað. Ég held að
við toppum þetta frá því í fyrra,“ segir
Helgi Björnsson.
Hann ætlar að endurtaka leikinn á
þjóðhátíðardaginn og halda tónleika í
Eldborg 17. júní undir nafninu Íslenskar
dægurperlur. Þar mun stórskotalið
íslenskra söngvara stíga á svið og flytja
þekkt íslensk popplög undir stjórn
Samúels J. Samúelssonar. Hann hefur
sér til fulltingis vaska sveit tónlistar-
manna, þar á meðal lúðra- og fiðlusveit.
Meðal söngvara í ár verða Valdimar
Guðmundsson, Ragnhildur Gísla dóttir,
Sigríður Thorlacius, Jón Jónsson og
þau Eivör og Bogomil Font sem komu
einnig fram í fyrra.
„Stemningin var svo góð í fyrra að
það ætlaði bókstaflega að kvikna í
húsinu,“ segir Helgi og hlær. Þá fór ein-
mitt brunavarnarkerfið í gang þegar
lagið Brennið þið vitar var flutt. „Núna
verða væntanlega áttatíu slökkviliðs-
menn á vakt til að vera með þetta allt
á hreinu.“ Kynnir og skemmtanastjóri
verður myndlistarmaðurinn Ragnar
Kjartansson. Miðasala hefst í apríl.
Geisla- og mynddiskur með tón-
leikunum kom út fyrir jólin í fyrra
og hefur hann náð gullsölu, eða fimm
þúsund eintökum. Tónleikarnir í sumar
verða einnig teknir upp en ekki hefur
verið ákveðið hvort þeir verða gefnir
út. -fb
Ætlar að toppa síðustu tónleika
VILL GERA ENN BETUR Helgi Björnsson ætlar að gera enn betur á tón-
leikum sínum 17. júní. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Söngvarinn Elton John kveðst
hafa orðið fyrir einelti á full-
orðinsárum sínum. Þeir er
lögðu söngvarann í einelti stóðu
honum nærri og beittu hann
bæði andlegu og líkamlegu
ofbeldi. Söngvarinn greinir frá
þessu í nýju viðtali við sjón-
varpsstöðina E!.
„Þetta snérist um vald og
ég var hið fullkomna fórnar-
lamb þrátt fyrir frægð mína
og frama. Ég var alltaf mjög
feiminn og óöruggur og það
gerði mig auðsæranlegan,“
sagði söngvarinn og bætir við
að hann hafi bæði orðið fyrir
líkamlegu og andlegu ofbeldi.
„Þetta fólk stóð mér allt
nærri. Þetta var fólk sem
skipti mig og frama minn máli
og spilaði stóra rullu í mínu
persónulega lífi.“ Söngvarinn
segir að eina leiðin til að upp-
ræta einelti sé að fjalla um
málið á opinskáan hátt og ekki
bera harm sinn í hljóði.
Var lagður
í einelti
VARÐ FYRIR EINELTI Elton John segir
að hann hafi verið lagður í einelti á
fullorðinsárum af fólki sem stóð honum
nærri. NORDICPHOTOS/GETTY
Breska söngkonan Adele hefur
þurft að þola ýmsa gagn-
rýni undanfarið en nú hafa
fjölmiðlar verið að fjalla um
aldurs muninn á milli henn-
ar og kærasta hennar, Simon
Konecki. Hann er fjórtán árum
eldri en söngkonan vinsæla sem
þykir fullmikið af því góða.
Nú hefur amma Adele, Doreen
Adkins, stigið fram í The Sun og
tekið upp hanskann fyrir barna-
barnið. „Við erum í skýjunum
með ráðahaginn. Við erum stolt
af Adele og nú hefur hún fundið
ástina.“
Amman
ánægð
ALDURMUNUR GAGNRÝNDUR Breskir
miðlar hafa gagnrýnt aldursmuninn á
milli Adele og kærasta hennar en amma
hennar segir barnabarnið hafa fundið
ástina. NORDICPHOTOS/GETTY