Fréttablaðið - 02.04.2012, Qupperneq 58
2. apríl 2012 MÁNUDAGUR34
Enska úrvalsdeildin:
NEWCASTLE - LIVERPOOL 2-0
1-0 Papiss Demba Cisse (18.), 2-0 Papiss Demba
Cisse (58.).
TOTTENHAM - SWANSEA 3-1
1-0 Rafael van der Vaart (18.), 1-1 Gylfi Þór
Sigurðsson (59.), 2-1 Emmanuel Adebayor (72.),
3-1 Emmanuel Adebayor (86.).
ASTON VILLA - CHELSEA 2-4
0-1 Daniel Sturridge (8.), 0-2 Branislav Ivanovic
(50.), 1-2 James Collins (76.), 2-2 Eric Lichaj
(79.), 2-3 Branislav Ivanovic (82.), 2-4 Fernando
Torres (91.).
EVERTON - WBA 2-0
2-0 Victor Anichebe (67.).
FULHAM - NORWICH CITY 2-1
1-0 Clint Dempsey (2.), 2-0 Damien Duff (12.),
2-1 Aaron Wilbraham (76.).
MANCHESTER CITY - SUNDERLAND 3-3
0-1 Sebastian Larsson (30.), 1-1 Mario Balotelli
(42.), 1-2 Nicklas Bendtner (48.), 1-3 Sebastian
Larsson (54.), 2-3 Mario Balotelli (84.), 3-3
Aleksandar Kolarov (85.).
QPR - ARSENAL 2-1
1-0 Adel Taarabt (21.), 1-1 Theo Walcott (36.), 2-1
Samba Diakite (65.).
WIGAN ATHLETIC - STOKE CITY 2-0
1-0 Antoli n Alcaraz (54.), 2-0 Victor Moses (92.).
WOLVES - BOLTON WANDERERS 2-3
1-0 Michael Kightly (52.), 1-1 Martin Petrov (62.),
1-2 Marcos Alonso (79.), 1-3 Kevin Davies (83.),
2-3 Matt Jarvis (87.)
STAÐAN:
Man. United 30 23 4 3 74-27 73
Man. City 31 22 5 4 75-25 71
Arsenal 31 18 4 9 62-41 58
Tottenham 31 17 7 7 56-36 58
Chelsea 31 15 8 8 53-36 53
Newcastle 31 15 8 8 46-42 53
Everton 31 12 7 12 32-32 43
Liverpool 31 11 9 11 36-33 42
Sunderland 31 11 8 12 42-37 41
Swansea City 31 10 9 12 35-39 39
Fulham 31 10 9 12 39-42 39
Norwich City 31 10 9 12 42-49 39
Stoke City 31 10 8 13 29-43 38
WBA 31 10 6 15 36-43 36
Aston Villa 30 7 12 11 33-42 33
Bolton 30 9 2 19 36-60 29
Blackburn 30 7 7 16 43-62 28
QPR 31 7 7 17 35-54 28
Wigan 31 6 10 15 29-55 28
Wolves 31 5 7 19 33-68 22
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Manchester City mátti
þakka fyrir að fá stig gegn
Sunderland um helgina. Eftir að
hafa verið hörmulegt í rúmar 80
mínútur komu tvö mörk nánast
upp úr engu og City náði stigi sem
liðið átti ekki skilið að fá.
Stemningsleysið var áberandi í
City-liðinu í leiknum og mórallinn
í hópnum virðist ekki vera upp á
það besta um þessar mundir. Þeir
Mario Balotelli og Aleksandar
Kolarov lentu til að mynda í
rifrildi um hver ætti að taka auka-
spyrnu í síðari hálfleik.
Þó svo Balotelli hafi skorað lag-
legt mark með skoti utan teigs og
skorað úr víti var stjórinn, Roberto
Mancini, allt annað en sáttur við
framlag ítalska framherjans í
leiknum.
„Ég íhugaði að taka hann af velli
eftir fimm mínútur í leiknum en
hann endaði með því að skora tvö
mörk. Hann spilaði samt alls ekki
vel. Í svona leik eiga framherjar
að gera út um leikinn. Ekki bara
að stíga upp undir lokin. Menn eins
og Mario og Dzeko eiga að skora
tvö til þrjú mörk í svona leik,“
sagði Mancini þungur á brún en
hann neyðist til þess að halla sér
að manninum sem átti aldrei aftur
að spila fyrir City – Carlos Tevez.
„Okkur vantar Carlos núna.
Framherja sem getur skipt
sköpum.“
Sjö leikja sigurgöngu Arsenal
lauk um helgina er QPR nældi sér
í þrjú afar mikilvæg stig í botn-
baráttunni.
„Okkar frammistaða var einfald-
lega ekki nógu góð til þess að vinna
svona leik. QPR lagði harðar að
sér en við,“ sagði Arsene Wenger,
stjóri Arsenal, en stuðningsmenn
Arsenal voru sumir hverjir farnir
að gera sér vonir um annað sætið í
deildinni fyrir leikinn.
„Það vantaði eitthvað hjá okkur
í leiknum og hugarfar leikmanna
var ekki í lagi. QPR var með allt
sitt á hreinu og til í að berjast fyrir
stigunum.“ - hbg
Man. City að fatast flugið og lítil stemning í liðinu:
Íhugaði að taka Balotelli
af velli strax í byrjun
SLÆMUR MÓRALL Balotelli og Kolarov rífast hér um hver eigi að taka aukaspyrnu.
Fyrirliði City, Vincent Kompany, varð að fjarlægja Balotelli á endanum.
NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Newcastle og Tottenham
fengu þrjú stig í leikjum gær-
dagsins í enska boltanum.
Liverpool er í tómu rugli og búið
að tapa átta leikjum eftir áramót.
Leikur Newcastle og Liverpool
var skrautlegur í meira lagi.
Liverpool stillti upp þremur
fyrrum leikmönnum Newcastle í
leiknum og var baulað miskunnar-
laust á þá alla í leiknum.
Andy Carroll var ekki að auka
vinsældir sínar í Newcastle er
hann tók eina svakalegustu dýfu
vetrarins snemma leiks. Skömmu
síðar átti Danny Simpson að fara
af velli og Liverpool að fá víti
er Simpson varði á línunni. Það
atvik fór fram hjá dómaranum og
Newcastle þakkaði pent fyrir með
því að skora nokkru síðar.
Liverpool var sjálfu sér verst
í þessum leik. Framherjarnir
nýttu ekki færin sín og svo lét
Pepe Reina reka sig af velli undir
lokin er hann skallaði leikmann
Newcastle sem hafði brugðið fyrir
hann fæti. Skallinn var ekki fastur
en rautt spjald var gefið engu að
síður. Það kom því í hlut Jose
Enrique að klára leikinn í búrinu.
Newcastle er með sigrinum enn
með gott tækifæri til að komast
í Meistaradeildina að ári en
Liverpool er aftur á móti búið að
tapa heilum átta leikjum það sem
af er árinu.
„Við fengum færi og vorum
óheppnir að fá ekki víti þegar
Simpson ver boltann á línunni.
Þá hefðum við líka verið að spila
gegn tíu mönnum. Síðan fengum
við á okkur mark og eftir það voru
mínir menn pirraðir og fóru jafn-
vel að vorkenna sjálfum sér,“ sagði
Kenny Dalglish, stjóri Liverpool.
„Það mátti sjá bæði á Andy Car-
roll, er hann fer af velli, og Reina,
er hann fýkur af velli, hversu pirr-
aðir mínir menn voru. Pepe átti
að fá rautt en við áttum líka að fá
víti,“ sagði Dalglish. En hvað með
dýfuna hjá Carroll í fyrri hálfleik?
„Þetta var ekki víti og Andy
var ekki heldur að fiska. Það
var grimmt að sýna honum gula
spjaldið því Andy var í vandræð-
um með að halda jafnvægi.“
Eins og Dalglish segir vildi Liver-
pool fá víti og rautt spjald á Danny
Simpson er hann virtist verja
boltann með hendinni á línunni.
„Boltinn fór ofarlega í öxlina á
Danny en ekki í höndina. Hönd-
in er ekki úti og það hefði verið
grimmt að dæma víti. Það var
ekkert að þessu,“ sagði Alan
Pardew, stjóri Newcastle.
Gylif Þór Sigurðsson átti enn
einn stórleikinn með Swansea
gegn Tottenham í gær. Gylfi
jafnaði leikinn, 1-1, með laglegu
marki og var ekki fjarri því að
skora skömmu áður. Því miður
fyrir Swansea dugði mark Gylfa
ekki til því Emmanuel Adebayor
kláraði leikinn með tveim góðum
skallamörkum. henry@frettabladid.is
Taphrina Liverpool heldur áfram
Það gengur ekkert upp hjá Liverpool í ensku úrvalsdeildinni og liðið tapaði enn einum leiknum. Andy
Carroll sýndi engin snilldartilþrif í heimkomunni til Newcastle og rauk reiður af velli. Pepe Reina fékk
rautt fyrir að skalla andstæðing. Gylfi Sigurðsson skoraði fyrir Swansea gegn Spurs en það dugði ekki til.
TAKK FYRIR KOMUNA Stuðningsmenn Newcastle hlógu að Carroll er hann var tekinn af velli. Á minni myndinni má sjá Reina
skalla James Perch. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES